Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 27
Dagskrá fundarins er
1. Skýrsla stjórnar.
2. Gerð grein fyrir ársreikningi.
3. Tryggingafræðileg úttekt.
4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt.
5. Önnur mál.
Ársfundur 2002
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem og lífeyrisþegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður
haldinn að Skúlagötu 17 á 2. hæð, Reykjavík,
fimmtudaginn 18. apríl 2002 og hefst kl. 16.00.
h
u
n
an
g
Reykjavík 4. apríl 2002
www.esteelauder.com
Líkamsrækt á ljúfum nótum
NÝTT: Private Spa Body Collection
Láttu eftir þér dálítið dekur með árangursríkum snyrtivörum,
sem veita líkama þínum það sem hann þarfnast.
Hér er um að ræða nýjar og sérlega mildar efnablöndur,
sem sameina skynsamlega húðhirðu og líkamsrækt á ljúfum nótum.
SERGIO Vieira de Mello, yfirmaður
bráðabirgðastjórnar Sameinuðu
þjóðanna á Austur-Tímor, óskar
hér frelsishetju Austur-Tímorbúa,
Xanana Gusmao (t.v.), til hamingju
með sigurinn í forsetakosningum,
sem fram fóru um síðustu helgi. Til-
kynnt var um endanleg úrslit í gær
og hlaut Gusmao afar góða kosn-
ingu, fékk 83% greiddra atkvæða.
Austur-Tímor var áður undir
indónesískri stjórn en undanfarin
tvö og hálft ár hafa Sameinuðu
þjóðirnar stjórnað landinu til
bráðabirgða. Í samræmi við nið-
urstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu,
sem haldin var í ágúst 1999, mun
Austur-Tímor hins vegar verða
sjálfstætt ríki 20. maí nk. og verður
Gusmao fyrsti forseti landsins.
Gusmao sagðist í gær afar
hrærður vegna þess trausts sem
honum hefði verið sýnt og hét hann
því að hafa hag allra landsmanna í
fyrirrúmi, ekki aðeins þeirra sem
hefðu kosið hann í forsetakjörinu.
Reuters
Gusmao lýstur
sigurvegari
ÓTTAST er, að um 50 vötn hátt í
Himalajafjöllum yfirfyllist og steyp-
ist niður fjallshlíðarnar á næstu
fimm til tíu árum. Gæti það stofnað
lífi þúsunda manna í hættu og valdið
miklu eignatjóni.
Mælingar í Nepal og Bútan sýna,
að þar hefur hitastigið hækkað um
næstum eina gráðu á celsíus síðasta
aldarfjórðunginn. Afleiðingin er
stóraukin bráðnun í jöklum. Vatnið
rennur síðan í þau vötn, sem fyrir
eru, og myndar ný. Eru þau til jafn-
aðar í 4.000 metra hæð yfir sjávar-
máli.
Vísindamenn segja, að gróður-
húsaáhrifunum sé um að kenna og
vara við miklum voða þegar vötnin
brjótast fram. Flóðið eirir engu á leið
sinni og sópar burt vegum, brúm og
byggingum. Dæmi eru um 40 metra
háan flóðvegg og 10.000 rúmmetra
rennsli á sekúndu.
Segja má, að tveir milljarðar
manna lifi á vatninu frá Himalaja-
fjöllum, en haldi bráðnun jöklanna
áfram er hætta á, að margar ár og
vatnakerfi þorni upp með skelfileg-
um afleiðingum fyrir lífríkið og þar
með mannfólkið.
Óttast flóð í
Himalajafjöllum
Genf. AP.