Morgunblaðið - 18.04.2002, Qupperneq 34
LISTIR
34 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
son, Ármann Helgason, Eydís
Franzdóttir og Kristín M. Jakobs-
dóttir.
Þórunn er góð söngkona og
sýndi að hún hefur mikla rödd í Ne
poy, krasavitsa, pri mne (Syng mér
ei, mín fagra) eftir Rakhmaninov,
en þetta lag er op 4. nr. 4 og samið
1892, þegar tónskáldið er 19 ára og
enn í námi. Í þessu lagi getur að
heyra tónhugmynd, sem hann not-
ar síðar í Vokalísunni (1915)
frægu. Með Þórunni léku Greta
Guðnadóttir á fiðlu og Valgerður
Andrésdóttir á píanó og áttu þær
góðan hlut í áhrifamiklum og sann-
færandi flutningi Þórunnar.
Sextettinn Mládi (Æska) eftir
Janacek er saminn 1924 og eins og
nokkur verka, sem hann samdi á
síðustu árum ævi sinnar, er honum
gjarnt á að horfa til liðins tíma,
eins og í þessu frekar glaðlega
verki, sem var mjög vel flutt af
Hallfríði Ólafsdóttur, Eydísi
Franzdóttur, Gretu Guðnadóttur,
Guðmundi Kristmundssyni, Ár-
manni Helgasyni, Kjartani Óskars-
syni, Önnu Sigurbjörnsdóttur og
Kristínu M. Jakobsdóttur.
Þórunn Guðmundsóttir söng átta
Barnagælur (Rikadla) eftir Jan-
acek, er hann samdi 1925 fyrir
söngrödd, klarinett og píanó, Síð-
asta árið sem hann lifði bætti hann
tíu barnagælum við, fyrir ýmsar
samsetningar radda og hljóðfæra
og notaði þá margs konar hljóð-
færi, m.a. barnatrommu og okk-
arínu. Í þessu verki er Janacek að
útfæra kenningar sínar um samspil
framburðar og lagferlis en hann í
SVO nefndur 15:15-kammerhóp-
ur hefur haldið nokkra tónleika í
nýja salnum í Borgarleikhúsinu og
eftir því sem gat að heyra á kamm-
ertónleikum 15:15-hópsins sl. laug-
ardag, er hér um að ræða all góðan
tónleikasal, að vísu nokkuð hráan í
útliti, með eins konar baksviðs
svipmóti. Fyrr á öldum voru skilin
á milli leikenda og áheyrenda nær
engin en með tilkomu óperunnar
og byggingu óperuhúsa urðu þessi
skil algjör. Nú leggja leikhúsin
áherslu á hina opnu og táknrænu
leiksviðsmynd, svo segja má, að í
gerð nútíma leiksviðsmynda sé að
mörgu leyti horfið aftur til 16. ald-
ar og einnig löngu fyrr, þegar bún-
ingur og jafnvel andlitsgríman ein
dugði.
Þessi hráleiki í sviðsumbúnaði er
oft falinn með lítilli lýsingu og
myrkrið þá notað sem leiktjöld,
svo sem gert var á nefndum tón-
leikum, sem hófust á Pastorale eft-
ir Stravinskí. Verkið er samið 1907
fyrir sópranrödd (án texta) og pí-
anó, sem höfundurinn umritaði síð-
ar fyrir fjóra blásara og fiðlu í stað
söngraddar. Þórunn Guðmunds-
dóttir söng verkið og fór listilega
með þetta sérstæða söngverk, en
með henni léku Kjartan Óskars-
raun reyndi að gæða tónlist sína
hljómgun unna úr talmáli, og þar
með að sameina söng og tal. Þess-
ar kenningar hans vöktu mikla at-
hygli og má m.a. heyra áhrifin af
þessum athugunum Janaceks í óp-
erunum eftir hann. Barnagælurnar
voru sungnar við þýðingar eftir
Þ.G. (líklega Þorstein Gylfason) og
næsta víst, að ekki hefur náðst
fullt samkomulag á milli lagferlis
unnið út frá tékknesku og fram-
burðar íslenskunnar, enda vantaði
hið leikræna og í reynd barna-
eftirhermuna í flutning Þórunnar,
þó um margt væri hann vel fram
færður
Lokaverk tónleikanna var dans-
svíta eða kvintett fyrir óbó, klarin-
ett, fiðlu, lágfiðlu og kontrabassa
eftir Prokofiev, op. 39, upphaflega
samið í París en síðar lengt um tvo
kafla, er það var flutt í Moskvu.
Þetta er á margan hátt skemmti-
legt verk, nokkuð langdregið og
minnir margt í því á vinnubrögð
Stravinskís, sérstaklega er varðar
notkun stuttra stefhugmynda, sem
í reynd eru frekar hrynhugmyndir
en stef og þá ekki síður í notkun
strengjanna, þó með þeim
skemmtilegu frávikum, að Prok-
ofíev notar „uppstrok“, þar sem
Stravinskí hefði líklega notað „nið-
urstrok“, eins og frægt er orðið.
Þeir sem léku voru Eydís, Ár-
mann. Greta, Guðmundur og Há-
varður Tryggvason á bassa og var
flutningur þeirra allur til fyrir-
myndar.
TÓNLIST
Nýja svið Borgarleikhússins
15:15-hópurinn flutti verk eftir
Stravinskí, Rakhmaninov,
Janacek og Prokofíev
Laugardagurinn 13. apríl 2002.
KAMMERTÓNLEIKAR
Að tala eða syngja
Jón Ásgeirsson
JAZZBALLETTSKÓLI Báru
hefur ákveðið að koma á lagg-
irnar íslensku dansleikhúsi. Það
er hugsað sem vettvangur fyrir
íslenska dansara og danshöf-
unda til að þróa list sína.
„Allt of oft hafa efnilegir og
hæfileikaríkir einstaklingar
hætt í dansi og ekki fengið að
vaxa og þroskast í list sinni, þar
sem verkefni hafa verið af
skornum skammti. Jazzballett-
skóli Báru hefur því ráðist í
þetta þróunarverkefni til þess
að vekja til lífs lifandi, skemmti-
legt og skapandi leikhús þar
sem dansinn er í aðalhlutverki,“
segir í fréttatilkynningu.
Dansleikhúsið hefur form-
lega starfsemi á alþjóðlega
dansdaginn, 29. apríl. Þá verða
sýnd þrjú nútímadansverk eftir þrjá
íslenska danshöfunda: 8Villt eftir Jó-
hann Frey Björgvinsson, Brot eftir
Katrínu Ingvadóttur og Dulúð eftir
Irmu Gunnarsdóttur. Alls taka sex-
tán dansarar þátt í sýningunni, fjór-
tán frá Jazzballettskóla Báru og
tveir frá danshópnum Götustrákarn-
ir. Fyrstu sýningar verða í
Borgarleikhúsinu 29. og 30. apr-
íl.
„Starfsemi Dansleikhússins
verður fjölþætt og munu sér-
menntaðir dansarar og danshöf-
undar þess veita þjónustu á
sviði danslistar. Hvers kyns
dansuppfærslur, menningarvið-
burðir eða sýningar, þar sem
þörf er á sérfræðilegri aðstoð
menntaðra dansara og danshöf-
unda, heyra undir svið Dans-
leikhússins. Dansleikhúsið er
jafnframt farandleikhús og
hugsað sem mótsstaður dans-
listar í landinu. Því ríkir mikill
hugur á koma einnig til móts við
dansunnendur utan höfuðborg-
arinnar. Eru unnendur danslist-
ar og allir þeir sem þurfa á at-
beina fagfólks í dansi að halda
hvattir til að kynna sér starfsemi
Dansleikhússins,“ segir ennfremur í
fréttatilkynningu.
Stofnar nýtt dansleikhús
Jóhann Freyr Björgvinsson er einn þriggja
höfunda á fyrstu sýningu Dansleikhúss.
Jazzballettskóli Báru ræðst í þróunarverkefni
Morgunblaðið/Þorkell
MENNTUN
Kyn: Karl.
Aldur: 21.
Spurning: Mig langar að verða
stærðfræðikennari á framhalds-
skólastigi. Hvað tæki það mig
mörg ár að ná fullum réttindum á
því sviði og í hvaða skóla færi ég?
Svar: Til þess að afla sér
kennsluréttinda á framhalds-
skólastigi þarf að ljúka námi í
kennslufræði. Það er 30 eininga
nám í félagsvísindadeild við Há-
skóla Íslands. Hægt er að ljúka því
námi á einum vetri að loknu BA/
BS-prófi. Sækja þarf sérstaklega
um námið og er umsóknarfrestur
til 1. apríl ár hvert. Hægt er að inn-
ritast í stærðfræðiskor við raunvís-
indadeild við HÍ og ljúka þriggja
ára námi í stærðfræði með BS-
gráðu. Til að hljóta inngöngu í
deildina þarf stúdentspróf af nátt-
úrufræði- eða eðlisfræðibraut eða
sambærilegt próf.
Kennarar í framhaldsskólum
eru með kennsluréttindi auk BA/
BS-prófs í sinni fræðigrein. Þeir
sem kenna stærðfræði í fram-
haldsskólum gætu verið með há-
skólagráðu í líffræði, verið með
mjög góða þekkingu á stærðfræði
úr sínu BA/BS-námi og kennt mis-
munandi áfanga í stærðfræði.
Í raun má segja að það taki fjög-
ur ár að afla sér réttinda sem
framhaldsskólakennari. BA/BS-
námið tekur þrjú ár en að því búnu
tekur kennsluréttindanámið eitt
ár. Þeir háskólar sem bjóða BA/
BS-nám eru t.d. Háskóli Íslands,
Háskólinn á Akureyri og Háskólinn
í Reykjavík. Til að leita frekari upp-
lýsinga er bent á að hafa samband
við kennslustjóra kennsluréttinda-
námsins við HÍ og námsráðgjafa í
viðkomandi háskólum.
Kyn: Kona.
Aldur: 18 ára.
Spurning: Ég er búin að vera þrjú
ár í framhaldsskóla og búin að
vera á þremur brautum. Ég er í
vandræðum með hvað ég vil
verða, en ég veit bara að ég vil
læra eitthvað skemmtilegt en þó
eitthvað sem er vel borgað. Hvað
get ég gert?
Svar: Ákvarðanir sem fólk stend-
ur frammi fyrir eru miserfiðar og
krefjandi og hafa einnig mismikil
áhrif á framtíðina. Þegar staðið er
frammi fyrir ákvörðun um náms-
eða starfsval þarf t.d. að taka mið
af áhuga, hvaða markmið maður
setur sér og að hvers konar námi
er stefnt (iðnnámi, starfsnámi, há-
skólanámi). Einnig skiptir mjög
miklu máli að leita sér upplýsinga
og taka svo ákvörðun.á grundvelli
þeirra. Það er á þér að heyra að þú
hafir vítt áhugasvið og sért opin
fyrir nýjum tækifærum. En það get-
ur einnig gert þér erfiðara að velja
og hafna og raða hlutum í for-
gangsröð.
Þú getur leitað til námsráðgjafa
í þínum skóla og rætt við hann um
framtíðaráform þín, jafnvel þótt
þau séu óljós á þessari stundu.
Leitaðu upplýsinga um nám sem
vekur athygli þína og ræddu það
við námsráðgjafann. Reyndu að
gera þér ljóst hvað skiptir þig máli
og hvar þú sérð sjálfa þig í framtíð-
inni - í hvers konar starfi og á
hvaða starfsvettvangi. Kynntu þér
upplýsingar idan.is. Hvað launin
snertir er ráðlegt að leita til laun-
þegasamtaka og fá uppgefna
launataxta.
Þú stendur vissulega á tímamót-
um og því er vert að staldra við og
vega og meta stöðuna. Ræddu við
foreldra þína og þá sem þér finnst
vera í áhugaverðum störfum.
Nám og störf
TENGLAR
...........................................
Svarið er unnið úr idan.is í sam-
starfi við nám í námsráðgjöf við HÍ.
Landsskrifstofa
Ungs fólks í Evr-
ópu (UFE) á Ís-
landi úthlutaði
nýverið stærsta
styrk sem hún
hefur úthlutað,
60.256 evrum.
Það var fé-
lagsmiðstöðin
Ný-ung á Egilsstöðum sem hlaut
þennan styrk til að taka þátt í svo
kölluðum ungmennaskiptum sem
heyra undir flokk 1 hjá UFE.
Næstkomandi sumar mun Ný-ung
taka á móti ungmennum á aldr-
inum 15-25 ára sem eru frá 6 lönd-
um, þ.e. frá Slóvakíu, Slóveníu,
Ítalíu, Írlandi og Bretlandi. Unga
fólkið mun vinna saman að verk-
efni undir yfirskriftinni Ein-
angrun. Fjallað verður um fé-
lagslega, landfræðilega, og
persónulega einangrun þar sem
unnið verður í umræðuhópum og
niðurstöður teknar saman. Hér er
um langtímaverkefni að ræða því
að stefnt er að því að hóparnir hitt-
ist aftur í einhverju af hinum lönd-
unum. Möguleiki er að sækja um
enn stærri styrki beint til fram-
kvæmdastjórnar ESB og hefur
landsskrifstofan milligöngu um
það.
Nánari upplýsingar um UFE
áætlunina eru á ufe.is.
Ný-ung á Egilsstöðum
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál