Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 35
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 35
Í STEFNUYFIRLÝSINGUmeð nýjum kjarasamningimilli Launanefndar sveitar-félaga og Kennarasambands
Íslands var, í þeim kafla sem
fjallar um samband kennara og
nemenda, kallað eftir siðareglum
kennara. Þar segir: ,,Mat kenn-
arans á nemendum, einkunnagjöf
og starf að öðru leyti gerir það að
verkum að nemendur eru afar
tengdir kennurum. Það gerir kröf-
ur um skýrar samskiptareglur um
samband kennara við nemendur,
foreldra og kennara sín á milli.“
Í aðalnámskrá fyrir framhalds-
skóla (bls. 35) kemur einnig fram
að skólar eigi að setja sér sam-
skipta- og siðareglur, og þessu
virðast kennarar sammála, því 86%
grunnskólakennara og um 80%
framhaldsskólakennara voru í
könnun árið 2000 hlynt því að siða-
reglur yrðu settar og skráðar.
Siðareglur, til hvers?
Siðareglur kennara á Íslandi
hafa verið í deiglunni í áratug, og
nú loksins á þingi Kennarasam-
bandsins í mars árið 2002 voru í
fyrsta sinn samþykktar siðareglur
fyrir alla kennara innan Kennar-
sambands Íslands. Þess bera að
geta að leikskólakennarar höfðu
áður stigið þetta skref og hafa haft
slíkar reglur síðan 1991, og endur-
skoðaðað þær reglulega.
Samin voru ný drög að siða-
reglum fyrir kennara fyrir þingið í
mars, um þau var fjallað af skóla-
málanefndum og stjórnum allra að-
ildafélaga KÍ og siðanefnd FL. „Á
ársfundi skólamálaráðs KÍ í nóv-
ember 2001 voru drög að siða-
reglum kennara til umfjöllunar þar
sem ýmsar ábendingar komu fram.
Í framhaldi af því var unnið úr at-
hugasemdum og leitað ráðgjafar
hjá Siðfræðistofnun Háskóla Ís-
lands við það verk,“ segir t.d. í
greinargerð með nýjum siða-
reglum kennara.
Skráðar siðareglur starfsstétta
eru í raun tilraun til að lýsa þeim
reglum sem starfsstéttin telur sig
þurfa að fara eftir til að geta rækt
skyldur sínar, þ.e. skyldur við
samfélagið, starfið og starfsfélaga.
Siðareglurnar er sennilega skráðar
í hjarta flestallra kennara, en skrá-
setningin auðveldar kynningu á
þessum skyldum kennara. Þær
miðla til nýrra kennara safnaðri
reynslu og minna eldri félagsmenn
á hvert hlutverkið sé. „Þær eru
hvatning til kennara um að vanda
sig í starfi og eru þess vegna
styrkur fyrir félagið. “ (Greinar-
gerð).
Umræður og ágreiningur
Umræður um siðareglur eru ef
til villmikilvægastar alls og þær
ættu að auka samheldni kennara-
stéttarinnar og sjálfsvirðingu
hennar. Enginn annar getur samið
siðareglurnar, heldur er nauðsyn-
legt að hver stétt semji sínar eigin
reglur með aðstoð fagmanna eins
og hjá Siðfræðistofnun.
Siðareglur beina ágreiningsmál-
um í viðurkenndan farveg og
stuðla að því að raunverulega sé
tekið á málum. Margar stéttir, eins
og t.d. blaðamenn, auglýsingafólk
og prestar eru með siðanefndir eða
ráð sem hafa vald til að kveða upp
úrskurði um kærð álitamál. Svo er
ekki hjá kennurum, a.m.k. ekki í
bili, hinsvegar eru skýrar reglu-
gerðir sem taka á slíkum álita-
málum. Skólamálaráði er þó falið
að móta tillögur um siðanefnd KÍ
og starfssvið hennar fyrir eitthvert
þing KÍ.
Siðareglur víða um heim
Kennarar í ýmsum löndum hafa,
innan og utan Evrópu, á undan-
förnum árum skráð siðareglur sín-
ar t.d. í Bretlandi, Ástralíu, Kan-
ada og Nýja Sjálandi. Samtök
kennara í USA samþykktu siða-
reglur kennara strax árið 1975. Ár-
ið 2001 samþykktu svo alþjóðasam-
tök kennara, Education Internat-
ional, siðareglur kennara. Kenn-
arafélögin á hinum Norðurlöndun-
um eru flest búin að skrá siða-
reglur sínar. Siðareglurnar hér
voru samþykktar einróma.
Næsta skref fyrir skólamálaráð-
stefnu KÍ er að kynna siðaregl-
urnar öllum kennurum, foreldrum
og nemendum, og efla með því fag-
mennsku kennara með umræðum
og móta tillögur um siðanefnd.
Siðareglur kennara
efla fagmennsku
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur eru stuðningsmenn kennara og kennarar stuðningsmenn nemenda. (MA 2001.)
Kennarar/ Á þingi Kennarasambands Íslands voru skráðar siðareglur kennara í fyrsta
sinn samþykktar, með loforði um kynningu á þeim. Gunnar Hersveinn gerir tilraun til að
kynna foreldrum þessar siðareglur, sem m.a. er ætlað að efla fagmennsku kennara með
djúpum umræðum meðal félagsmanna í KÍ. Síðar verður siðanefnd kennara sett á fót.
Að sýna sér-
hverjum […]
virðingu, áhuga
og umhyggju
Siðareglur
kennara voru
samþykktar ein-
róma á þinginu
Siðareglur eru settar til að efla
fagmennsku kennara og
styrkja fagvitund þeirra. Siða-
reglurnar eru kennurum til
leiðbeiningar í starfi.
1. Kennarar vinna að því að
mennta nemendur og stuðla
að alhliða þroska þeirra
með fræðslu, uppeldi og
þjálfun.
2. Kennurum ber að virða
réttindi nemenda og hafa
hagsmuni þeirra að leið-
arljósi, efla sjálfsmynd
þeirra og sýna sérhverjum
einstaklingi virðingu, áhuga
og umhyggju.
3. Kennurum ber að hafa jafn-
rétti allra nemenda að leið-
arljósi í skólastarfi. Kenn-
arar eiga að vinna gegn
fordómum og mega ekki
mismuna nemendum, t.d.
vegna kyns, þjóðernis eða
trúarbragða.
4. Kennarar skulu leitast við
að skapa góðan starfsanda,
réttlátar starfs- og um-
gengnisreglur og hvetjandi
námsumhverfi.
5. Kennarar leitast við að
vekja með nemendum sín-
um virðingu fyrir umhverfi
sínu og menningarlegum
verðmætum.
6. Kennurum ber að viðhalda
starfshæfni sinni, auka
hana og fylgjast með nýj-
ungum og umbótum á sviði
skólamála.
7. Kennurum ber að hafa sam-
vinnu við forráðamenn eftir
þörfum og gæta þess að
upplýsingar sem þeir veita
forráðamönnum séu áreið-
anlegar og réttar.
8. Kennarar skulu virða
ákvörðunarrétt forráða-
manna ósjálfráða nemenda
og hafa ekki samband um
málefni nemanda við sér-
fræðinga utan viðkomandi
skóla, nema slíkt sé óhjá-
kvæmilegt til að tryggja
velferð og rétt barnsins.
9. Kennurum ber að gæta
trúnaðar við nemendur.
10. Kennurum ber að gæta
þagmælsku um einkamál
nemenda og forráðamanna
þeirra sem þeir fá vitneskju
um í starfi.
11. Kennarar skulu gæta heið-
urs og hagsmuna kenn-
arastéttarinnar.
12. Kennurum ber að vinna
saman á faglegan hátt, taka
þátt í að marka stefnu og
móta daglegt starf í skól-
anum.
13. Kennurum ber að sýna
hver öðrum fulla virðingu í
ræðu, riti og framkomu.
(Siðareglur þessar skal
endurskoða reglulega.)
Siðareglur kennara