Morgunblaðið - 18.04.2002, Síða 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.bi.is
Búnaðarbankinn þakkar
Búnaðarbankinn þakkar fyrirlesurum
og yfir 400 gestum á ráðstefnu um
fjármál eldri borgara í Súlnasal Hótels
Sögu 16. apríl síðastliðinn fyrir einstak-
lega fróðleg og vel heppnuð erindi um
stöðu fjármála eldri borgara á Íslandi
og skemmtilegar og líflegar umræður.
margra er iðnnám síðri
valkostur en stúdents-
prófsleið. Stúdentspróf
er gott próf en það er
fjarri því að vera gull-
trygging fyrir áhyggju-
lausri framtíð barna
okkar. Það veitir t.d.
eitt og sér engin starfs-
réttindi.
Nú er að opnast ný
leið við iðn- og verk-
menntaskóla landsins
sem felst í því að nem-
endur ljúki stúdents-
prófi og iðnmenntun
samtímis. Slíkt próf
veitir allt í senn: starfs-
réttindi, vel launaða
vinnu og rétt til að halda áfram námi
á háskólastigi. Þeir sem hafa áhuga á
að kanna þessa leið geta kynnt sér
ALDREI áður hefur ungt fólk
staðið frammi fyrir eins mörgum val-
möguleikum eins og nú á tímum.
Ekki þarf að fjölyrða um fjölbreytta
afþreyingu og kostaboð á hverju
horni. Gagnvart neysluframboði nú-
tímans þarf sterk bein og vilja til þess
að sjá það sem máli skiptir.
Erfitt getur verið fyrir ungt fólk að
afla sér haldbærra upplýsinga í upp-
lýsingaáreiti nútímans. Mikilvægt er
að unnt sé að leita sér upplýsinga um
menntun sem er í boði og velja síðan
með hliðsjón af áhuga og hæfileikum.
Atvinnulífið gerir sívaxandi kröfur
til starfsfólks vegna þess að störf
verða flóknari. En um leið og kröf-
urnar aukast vaxa líka möguleikar
fólks til að nýta hæfileika sína betur
en áður.
Er iðnnám
síðri valkostur?
Hafa foreldrar opnað augu sín og
barna sinna fyrir öllum þeim náms-
möguleikum sem í boði eru? Í hugum
nánari umfjöllun á vef-
setrinu www.idan.is
sem ætlað er ungu fólki
til upplýsingar um nám
og störf.
Slagsíða
er á bátnum
Iðnmenntun óx upp
úr handverki og vissu-
lega bera margar iðn-
greinar þessum upp-
runa sínum vitni enn í
dag. Í því felst m.a.
styrkur þeirra. Þær
iðngreinar sem skapa
mestan arð fyrir fyrir-
tækin hafa hins vegar
þróast í takt við at-
vinnulífið og eru nær því að vera
tæknifræði en handverk. Sú þróun
átti sér ekki stað vegna þess að ein-
hverjum var umhugað um að einstak-
ar iðngreinar „fengju“ að lifa af held-
ur vegna þess að fyrirtækin þurftu á
betur menntuðu og þjálfuðu starfs-
fólki að halda. Eins og allir vita hljóta
slíkir starfsmenn umbun í betri kjör-
um.
Á Íslandi er vaxandi fjöldi fyrir-
tækja sem reiðir sig á tæknikunnáttu
iðnaðarmanna. Össur og Marel eru
löngu þekkt dæmi um slík fyrirtæki.
Það væri dapurlegt ef skortur á vel
menntuðum iðnaðarmönnum kæmi í
veg fyrir vöxt á sambærilegum fyr-
irtækjum hér á landi. Það er af þess-
ari ástæðu sem Samtök iðnaðarins
beita sér fyrir því að þörf fyrirtækja
fyrir vel menntað og rétt menntað
starfsfólk sé sinnt.
Opinberar tölur staðfesta að há-
skólamenntuðum hefur fjölgað stöð-
ugt undanfarna áratugi. Það er gleði-
efni. Á sama tíma hefur iðnmennt-
uðum fækkað sé tekið mið af fjölda
sveinsprófa. Það er slagsíða á
menntaskútunni að þessu leyti.
Kynnum börnum
okkar iðnnám
Mannauður er ekki innantómt
tískuorð heldur felur það í sér við-
urkenningu hagfræðinnar á raun-
verulegri auðsæld sem býr í fólki.
Þennan auð þurfum við að nýta sem
best. Hér er tækifæri fyrir foreldra
til að eygja hæfileika barna sinna og
beina þeim á námsbraut við hæfi. Það
er réttur ungs fólks að fá að njóta
hæfileika sinna eins vel og kostur er.
Í lokin vil ég benda foreldrum og
ungu fólki, sem les þessar línur, á að
leita sér upplýsinga um möguleika í
iðnnámi. Hvar læri ég grafíska miðl-
un? Hvað gerir bakari? Hvar vinna
húsasmiðir? Svör við þessum spurn-
ingum fást m.a. á upplýsingavefnum
www.idan.is.
Iðnmenntun er
góður valkostur
Halla
Bogadóttir
Höfundur er gullsmiður, kennari
og stjórnarmaður í Samtökum
iðnaðarins.
Iðnmenntun
Skortur á iðnaðarmönn-
um, segir Halla Boga-
dóttir, getur hamlað
hagvexti.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
KLUKKUR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Stimpil
Vefsíða: www.oba.is
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Listhúsinu Laugardal, sími 552 5540
Ódýrari orðabækur