Morgunblaðið - 18.04.2002, Qupperneq 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 61
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn organista. Bústaðakirkja. For-
eldramorgunn kl. 10–12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheimilinu
kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði.
Ýmsar uppákomur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar
1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björnsdótt-
ir. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn kl. 10–12. Opið hús. Upplestur fyrir
eldri börnin, söngstund, kaffispjall. End-
urminningarfundur í Guðbrandsstofu kl.
14–15.30.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Org-
eltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að
stundinni lokinni er málsverður í safnaðar-
heimili. Samvera eldri borgara kl. 14. Guð-
finna Ragnarsdóttir menntaskólakennari
flytur fróðleik og gamanmál. Þjónustuhóp-
ur Laugarneskirkju, kirkjuvörður og sókn-
arprestur annast samveruna. (Sjá síðu
650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur
fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk.
Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón
Guðmunda, Bolli og Þorvaldur. Félagsstarf
aldraðra laugardaginn 20. apríl kl. 14. Far-
ið verður í heimsókn til Íslenskrar erfða-
greiningar. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17–
18.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10–12.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leik-
fimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10.
Fyrirbænaefnum má koma til kirkjuvarða.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund og bibl-
íulestur í Gerðubergi kl. 10.30–12 í um-
sjón Lilju, djákna. Starf fyrir 9–10 ára
stúlkur kl. 17.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir og ýmiss konar fyrirlestrar.
Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir 7–9
ára börn kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag
í Grafarvogskirkju fyrir 8.–9. bekk kl. 20–
22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Alfanámskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgurum
í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund kl. 17.
Fyrirbænaefnum má koma til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. KFUM fundur fyrir stráka á
aldrinum 9–12 ára kl. 16.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og
bæn. Bænarefnum má koma til presta
kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðar-
heimilinu eftir stundina.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–15.
Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi for-
eldra með ung börn að koma saman og
eiga skemmtilega samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja: Kl. 10 foreldramorgunn.
Spjall og samvera foreldra með ungum
börnum sínum. Kl. 14.20 Litlir lærisvein-
ar, æfing I. hópur. Kl. 17.10 Litlir læri-
sveinar, æfing II. hópur. Kl. 18.15 Litlir
lærisveinar, æfing III. hópur.
Keflavíkurkirkja. Að njóta foreldrahlut-
verksins. Fræðslunámskeið fyrir nýbak-
aða foreldra, sem eiga barn á fyrsta ári, kl.
19.30–22 í minni sal Kirkjulundar. Tak-
markaður fjöldi. Hafið samband við Herthu
W. Jónsdóttur, barnahjúkrunarfræðing og
hjúkrunarkennara, í síma 565-9777, fars.
860-5966.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera í
kvöld kl. 20. Fyrirbænaefnum er hægt að
koma áleiðis að morgni fimmtudags milli
kl. 10 og 12 í síma 421-5013. Sóknar-
prestur.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Bænaefnum má koma til
prestanna. Eftir stundina er hægt að
kaupa léttan hádegisverð í Safnaðarheim-
ili. Samhygð kl. 20 í safnaðarheimili.
Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og
börn kl. 10–12.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17 krak-
kaklúbur fyrir 8–9 ára. Kl. 19.30 söngæf-
ing. Kl. 20.30 unglingasamvera.
Safnaðarstarf
LÉTTMESSA verður í Fríkirkjunni
í Reykjavík föstudagskvöldið 19.
apríl kl. 20.30.
Hljómsveitin Upendo leikur lof-
gjörðartónlist. Sú hljómsveit sam-
anstendur af miklum mannlegum
gullmolum. Flutt verður merkileg
reynslusaga í stað predikunar. Í lok
stundarinnar verður blessun með
olíu. Það eru prestarnir Jóna
Hrönn Bolladóttir og Hjörtur
Magni Jóhannsson sem þjóna ásamt
Sveini Bjarka Tómassyni kennara
og Þorvaldi Víðissyni guðfræðingi.
Miðborgarmessan verður sniðin
að þörfum fólks á öllum aldri og
það eru líka allir innilega velkomn-
ir. Strax að lokinni messu verður
Ömmukaffi í Austurstræti 20 opnað
og þar verður hægt að eiga gott
samfélag.
Fríkirkjan í Reykjavík,
Dómkirkjan,
Neskirkja,
Miðborgarstarf KFUM/K.
Donnie Swaggart í
Krossinum
DONNIE Swaggart kemur í heim-
sókn í Krossinn dagana 19.–21.
apríl. Hann verður með samkomur
á föstudags- og laugardagskvöld
kl. 20.30 og sunnudaginn kl. 16.30.
Donnie er landanum að góðu
kunnur. Hann hefur sótt Ísland
heim áður og einnig þekkja hann
margir af skjánum en hann er með
sjónvarpsþátt á sjónvarpsstöðinni
Omega.
Morgunblaðið/Sverrir
Fríkirkjan, Tjörnin.
Miðborgarmessa
við Tjörnina
Ellefu borð í Gullsmára
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á ellefu borðum í Gullsmára 13
mánudaginn 15. apríl. Miðlungur
220. Efst vóru:
NS
Einar Markúss. og Sverrir Gunnarss. 249
Jóna Kristinsdóttir og Sveinn Jenss. 238
Helga Helgad. og Þórhildur Magnúsd. 232
AV
Stefán Ólafss. og Sigurjón H. Sigurjónss.
295
Filip Höskuldss. og Páll Guðmundss. 242
Guðm. Pálss. og Kristinn Guðmundss. 241
– Gullsmárabrids alla mánu- og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á há-
degi. Spil hefst stundvíslega kl. 13.
Undanúrslit í bikarkeppni
Bridssambands Vesturlands
NÚ er lokið undanúrslitum í Bik-
arkeppni Vesturlands. Þar sigraði
sveit Guðmundar Ólafssonar sveit
Guðna Hallgrímssonar með 40 imp-
um og sveit Alfreðs Viktorssonar
sigraði sveit Tryggva Bjarnasonar
með 9 impum. Það verða því Akur-
nesingarnir Guðmundur Ólafsson og
Alfreð Viktorsson sem keppa til úr-
slita og fær sveit Guðmundar heima-
leik. Leiknum skal lokið fyrir 15. maí
Bridsfélag Hafnarfjarðar
MÁNUDAGINN 15. apríl var
spilað síðasta kvöldið í fjögra kvölda
Monrad-barómeter tvímenningi.
Spiluð voru 28 spil og var með-
alskor 50%.
Hæstu skor fengu hinn 15. apríl.
Gunnl. Óskarss. – Þórarinn Sófuss. 57,5%
Atli Hjartarss. – Sverrir Jónss. 56,4%
Halldór Þórólfss. – Hulda Hjálmarss. 54,6%
Jórunn Fjeldsted – Harpa F. Ingólfss. 54,3%
Lokastaðan þar sem meðaltal
þriggja bestu kvöldanna var tekið
saman.
Gunnl. Óskarss. – Þórarinn Sófuss. 56,23%
Einar Sigurðss. – Halldór Einarss. 54,13%
Hulda Hjálmarss. – Halldór Þórólfss.
53,63%
Mánudaginn 22. apríl hefst
þriggja kvölda hraðsveitakeppni hjá
Bridgefélagi Hafnarfjarðar og er
það jafnframt síðasta mót vetrarins
og hvetjum við alla spilara að mæta,
ef spilarar hafa ekki sveitarfélaga
verður reynt að aðstoða við að
mynda sveit.
Bridgefélag Hafnarfjarðar spilar
á mánudagskvöldum í Íþróttahúsinu
við Strandgötu. Spilamennska hefst
kl. 19.30, spilað er með forgefnum
spilum.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Borgarfjarðar
Vor-barómeterinn hófst mánu-
daginn 15. apríl með þátttöku 20
para. Úrslit fyrsta kvöldið urðu eft-
irfarandi:
Jón Einarsson – Anna Káradóttir 76
Ragna og Guðrún Sigurðardætur 48
Eyjólfur Sigurjóns – Jóhann Odds 43
Elín Þórisdóttir – Guðmundur Jóns 42
Guðmundur Kristins – Ásgeir Ásgeirs 39
Íslandsmót í tvímenningi
Undanúrslitin verða spiluð 25.–26.
apríl. 25. apríl, sumardaginn fyrsta,
byrjar spilamennska kl. 11 en 26.
apríl er byrjað að spila kl. 17. Úrslit-
in verða síðan spiluð 27.–28. apríl.
Að öðru leyti er mótið með hefð-
bundnum hætti. Í undanúrslitum eru
spilaðar 3 lotur og kemst 31 par í úr-
slitin.
Í úrslitum spila að auki Íslands-
meistarar síðasta árs og allir svæða-
meistar, alls 40 pör. Allir spila við
alla, 3 spil milli para.
Til að auðvelda skipulag mótsins
eru spilarar beðnir að skrá sig í síð-
asta lagi þriðjudaginn 23. apríl kl. 17.
Skráning í s. 587 9360 eða www.
bridge.is
KIRKJUSTARF
BIODROGA
Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi.
Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri.
Jurta - snyrtivörur
Nýr farði
Silkimjúk,
semi-mött áferð.
4 litir.
Póstkröfusendum
RÆÐISMANNSSKRIFSTOFA Slóv-
akíu var formlega opnuð hinn 15.
apríl á Dalvegi 16 b í Kópavogi af ut-
anríkisráðherra Slóvakíu Eduard
Kukan, að viðstöddum Davíð Odds-
syni forsætisráðherra, sendiherrum
erlendra ríkja, Andrej Sokolik
sendiherra Slóvakíu á Íslandi með
aðsetri í Osló, auk fjölda annarra
gesta.
Utanríkisráðherra Slóvakíu þakk-
aði stuðning íslenskra stjórnvalda
við umsókn Slóvakíu um aðild að
NATO. Eins ítrekaði hann ósk sína
um aukið samstarf í jarðhitamálum,
en í Slóvakíu er heitt vatn í jörðu.
Hann kom einnig inn á ósk Slóv-
aka um tvíhliða samning varðandi
fjárfestingar en fyrr um daginn
höfðu hann og Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra undirritað tví-
sköttunarsamning milli ríkjanna.
Ræðismaður Slóvakíu á Íslandi er
Runólfur Oddsson.
Ræðismannsskrifstofa
Slóvakíu opnuð hér
Morgunblaðið/Ásdís
F. v.: Andrej Sokolik sendiherra, Eduard Kukan utanríkisráðherra,
Runólfur Oddsson ræðismaður og eiginkona hans, Mária Holbicková.
VARÐBERG, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu, hélt
aðalfund sinn 15. mars sl.
Á aðalfundinum var Magnús Þór
Gylfason, framkvæmdastjóri SUS
og nemi við Háskólann í Reykjavík,
kjörinn formaður félagsins í stað
Gests Páls Reynissonar sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Á fyrsta stjórnarfundi, sem hald-
inn var í síðustu viku, skipti stjórnin
með sér verkum og var Björn Ingi
Hrafnsson, skrifstofustjóri þing-
flokks framsóknarmanna, kjörinn 1.
varaformaður og Ágúst Ólafur
Ágústson, laga- og hagfræðinemi við
Háskóla Íslands, 2. varamaður.
Aðrir í stjórn eru Andri Gunnars-
son, Ásgeir Pétursson, Bryndís Ís-
fold Hlöðversdóttir, Dagný Jóns-
dóttir, Einar Skúlason, Gísli
Hauksson, Haraldur Daði Ragnars-
son, Hinrik Már Ásgeirsson, Hólm-
fríður Gestsdóttir, Hrefna Ástmars-
dóttir, Sigfús Ingi Sigfússon og
Svava Björk Hákonardóttir.
Varðberg er myndað af einstak-
lingum sem aðhyllast samstarf vest-
rænna lýðræðisþjóða á sviði varnar-
mála, efnahags- og menningarmála
og þátttöku Íslands á því samstarfi.
Félagið vinnur að því að efla skilning
meðal ungs fólks á Íslandi á gildi lýð-
ræðislegra stjórnarhátta og mikil-
vægi samstarfs lýðræðisþjóðanna til
verndar friðinum, meðal annars með
þátttöku í Atlantshafsbandalaginu,
segir í fréttatilkynningu.
Nýr formaður
Varðbergs
FERÐASÝNINGIN Ferðatorg 2002
verður í Vetrargarði Smáralindar
dagana 19. – 21. apríl.
Þar gefst fólki kostur á að kynna
sér alla þá ferðamöguleika og afþrey-
ingu sem í boði eru á Íslandi. Ár frá
ári eykst breiddin í þjónustu og val-
kostum ferðaþjónustunnar um land
allt.
Um að ræða eins konar markaðs-
torg innlendra ferðamála þar sem
fólk á þess kost að afla sér upplýsinga
um ferða- og afþreyingarmöguleika
um allt land. Innan Ferðamálasam-
taka Íslands eru átta landshlutasam-
tök sem verða sameiginlega með
rúmlega 100 fermetra kynningarbás
á Ferðatorginu, auk þess sem ýmsir
aðrir aðilar ferðaþjónustunnar verða
með kynningarbása. Á Ferðatorginu
verður lögð áhersla á að kynna hvað
er að gerast í hverjum landshluta.
Ferðamálaráð Íslands og Ferða–
málasamtök Íslands standa að því að
kynna fjölbreytileika Íslands á
Ferðatorgi 2002 með stuðningi frá
samgönguráðuneytinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er
markaðstorg ferðamála. Vonir
standa til að slíkt markaðstorg ferða-
þjónustunnar verði árlegur sölu- og
markaðsviðburður, segir í fréttatil-
kynningu.
Ferðatorg 2002
í Smáralind
STJÓRNMÁLAFRÆÐISKOR Há-
skóla Íslands efnir til hádegisfundar
föstudaginn 19. apríl kl. 12.05 – 13 í
Árnagarði, stofu 201, í tilefni útkomu
bókarinnar Gert út frá Brussel?; Ís-
lenskur sjávarútvegur og Evrópu-
sambandið – sjávarútvegsstefna
ESB rannsökuð út frá hugsanlegri
aðild Íslands að sambandinu.
Úlfar Hauksson, höfundur bókar-
innar og stundakennari við stjórn-
málafræðiskor, kynnir helstu niður-
stöður rannsóknarinnar og Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, prófessor
við skorina, mun andmæla. Að lokn-
um framsögum verður orðið gefið
frjálst til fyrirspurna úr sal.
Allir velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu.
Fundur hjá stjórn-
málafræðiskor HÍ
FYRIRLESTUR á vegum Líffræði-
stofnunar Háskóla Íslands verður
haldinn föstudaginn 19. apríl kl. 12.20
í stofu G-6 að Grensásvegi 12.
Jörundur Svavarsson, Líffræði-
stofnun Háskólans, heldur erindi er
nefnist: Furðuskepnur í dýpri hluta
Mexíkóflóa – lífríki metanuppstreym-
issvæðis –. Í erindinu verður fjallað
um rannsóknarleiðangur í Mexíkóflóa
í mars síðastliðnum á rannsóknaskip-
inu Seward Johnson II. Lífríki á botni
við svokallaðan Brine Pool, sem er á
um 700 metra dýpi, var kannað með
hjálp mannaðs kafbáts (Johnson Sea-
Link I) og með gildrum. Sýndar verða
ljósmyndir af ýmsum sérkennilegum
dýrum sem fundust í leiðangrinum og
einnig hluti myndbands, sem tekið
var við köfun.
Allir velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu.
Fyrirlestur hjá
Líffræðistofnun