Morgunblaðið - 18.04.2002, Qupperneq 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 65
HVERNIG getum við best vernd-
að fiskistofnana við landið þannig að
þeir stækki og jafnframt sé hægt að
auka veiðar?
Ég tel að þessu markmiði megi ef
til vill ná með því að innan ákveðinnar
landhelgis-línu verði nánast eingöngu
leyfðar veiðar með handfærum og
e.t.v. gildrum.
Hvar þessi lína á að liggja er mér
ekki ljóst en sjómenn og fiskifræðing-
ar í sameiningu hljóta að geta ákveðið
það. Það má e.t.v. miða við gömlu
landhelgina, 12 mílur, í þessu sam-
bandi. Eins er hugsanlegt að línan
þurfi að vera breytileg eftir því hve
aðgrunnt er. Með vilja nefni ég hand-
færi en ekki króka þar sem línuskip
eru mörg hver orðin svo tæknivædd
með sjálfvirkum beitingavélum að
þau kunna að vera of stórvirk.
Ég tel að núverandi veiðarfæri
önnur en handfæri séu flest of mikil
drápstæki til þess að dæmið geti
gengið upp með þeim. Þ.e. þau drepi
of mikið af ungfiski og seiðum og sum
hver skrapa þar að auki botninn og
eyðileggja með því lífsgrundvöllinn.
Þetta þýðir að líka þarf að banna
humar- og rækjutroll, snurvoð og
skeljaplóg og banna að loðna og síld
verði elt innfyrir umrædda línu.
Áframhaldandi veiðar á rækju, humri
og kola innan þessara marka verða þá
að vera með öðrum hætti t.d. í gildrur.
Handfæraveiðar innan þessarar
línu mætti trúlega gefa að mestu leyti
frjálsar nema ef vera skyldi skynsam-
legt að banna allar veiðar um aðal
hrygningartímann.
Með þessum hætti tel ég að við
fáum besta mögulegt „fiskeldi“ og
ættum ekki að leyfa fiskeldi í sjó. Með
þessu lagi tel ég að við fáum líka ríf-
andi vinnu allt í kringum land og þurf-
um ekki að huga að öðru en vegagerð
til þess að landbyggðin blómstri.
BERGUR BJÖRNSSON
reikimeistari, leiðbeinandi og fv.
sjómaður.
bergur@simnet.is
Fiskvernd
Frá Bergi Björnssyni:
EITT af fegurstu útivistarsvæðun-
um í nágrenni Reykjavíkur er
Skorradalur. Dalurinn er syðstur
Borgarfjarðardala og eftir honum
endilöngum liggur Skorradalsvatn,
14 km langt. Hann er frekar
þröngur og kyrrð slík á fögrum
dögum að heyra má tal manna
þvert yfir vatnið. Dalurinn er skógi
vaxinn frá náttúrunnar hendi og
auk þess hefur skógrækt ríkisins
stundað þar skógrækt um langt
árabil. Margir hafa þar lagt hönd á
plóginn, og má þar minnast höfð-
inglegra peningagjafa norska auð-
jöfursins og flugvélaeigandans
Braathen sem um langt árabil
veitti peningum til skógræktar þar.
Þarna hefur því orðið til náttúru-
paradís sem sótt hefur verið af íbú-
um höfuðborgarsvæðisins jafnt
sem vestlendingum. Nú þegar er
þar mikill fjöldi sumarbústaða og
fer vaxandi. Það er varlega áætlað
að á sumarhelgum og löngum frí-
helgum á vetrum séu hátt á annað
þúsund manns í sumarhúsum þar.
Um páskana dvaldi ég og kona
mín í sumarbústað við vatnið.
Vatnið var ísi lagt og kjörið til
gönguferða, enda veður hið besta,
sérstaklega á skírdag og laugar-
daginn fyrir páska þegar logn og
heiðskírt veður var. Það brá hins-
vegar svo við, að hreinlega var
ekki vært þarna við vatnið fyrir
hávaða frá fjölda vélsleða sem voru
að leik á ísnum, ýmist á ofsa-akstri
fram og til baka eftir endilöngu
vatninu eða við akstur hring eftir
hring í fjöruborðinu. Var hávaðinn
á stundum slíkur að minnti fremur
á „formúlu“-kappakstursbraut en
friðsæla sveit, enda fór svo að við
hreinlega flúðum hávaðann á
páskadag og héldum til Reykja-
víkur.
Nú er það svo, að þeir sem eiga
vélknúin leiktæki, hvort sem það
eru vélsleðar sem geta verið þarfa-
þing, hraðbátar eða önnur mis-
munandi hávær véltæki, þurfa
svæði þar sem þeir geta notið þess-
ara tækja sinna. Það er hins vegar
umhugsunarvert fyrir þá sem
þennan dal byggja, hvort sem það
eru landeigendur eða sumarbú-
staðaeigendur, hverskonar um-
hverfi þeir vilja skapa á þessum
friðsæla stað. Boð og bönn eru
ætíð til ama, en geta verið nauð-
synleg þeim sem ekki þekkja sín
takmörk í umgengni við annað
fólk.
MAGNÚS KARL PÉTURSSON
Einilundi 1, 210 Garðabæ
Skorra-
dalur –
Hvert
stefnir?
Frá Magnúsi Karli Péturssyni:
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
Greinarhöfundur segir að mikið ónæði hafi verið af
vélsleðaakstri í Skorradal fyrir skömmu.
AF ráðherrum Framsóknarflokks-
ins má nefna tvo, sem stundum eru
býsna hvatvísir í tali og mæla eins
og þeir flytji að jafnaði véfréttatíð-
indi. Guðni Ágústsson minnir stund-
um á Jeppa á Fjalli, Jón sterka og
Jón á Ólafsvöllum í einni og sömu
persónu. Svo glámskyggn er Guðni
á víxlspor samherja sinna í hags-
munasamtökum bænda að hann kýs
að nafngreina fámenna stétt heild-
sala og gera þá að blóraböggli, en
þegja um stórfelld og vítaverð bók-
halds„trikk“ Goða, kjötsölu SÍS.
Í samtali í Ríkisútvarpinu lét
Guðni þau orð falla að bændur ættu
að gæta þess að „láta ekki heildsal-
ana plata sig“. Þetta segir hann og
beinir með því grunsemdum að fá-
mennri stétt manna og kýs að gera
þá tortryggilega. Þegar ráðherrann
lét ummælin falla vissi þjóðin að
gamalt fyrirtæki SÍS sem auglýsti
„Goði er alltaf góður“ hafði hlunn-
farið bændur og haft af þeim millj-
ónatugi í viðskiptum við félög þeirra
og einstaka bændur. Flokkspólitísk
sérhyggja og siðblinda réðu því að
ráðherrann kaus að senda eitraðar
örvar í raðir fámennrar stéttar sem
ekki gat borið hönd fyrir höfuð sér á
vettvangi.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra hefir á undanförnum árum
lagt sig allan fram um að sannfæra
þjóðina um kosti þess að ganga í
Evrópusambandið. Þá fyrst yrði
hlustað á rödd Íslendinga ef þeir
töluðu þar sem fullgildir félagar í
þeim miklu samtökum. Nú hefir
Halldór hvergi sparað orðin í sam-
tökum, sem hann á aðild að, t.d.
NATO. Þar tekur hann oft til máls
og kemur vel saman við utanrík-
isráðherra Tyrklands. Þeir voru
m.a. innilega sammála um að varpa
sprengjum á Kosovo. Síðar kom í
ljós að sprengjurnar féllu á barna-
spítala. Sif ráðherra var samþykk
sprengjuregni á Kosovo. Sjálf veitti
hún forstöðu barnaspítalasmíð í
Reykjavík.
Ekki hafa ræður Halldórs Ás-
grímssonar leitt til þess að Sophia
Hansen fengi dætur sínar lausar úr
helsi Tyrkja. Hvað gefur tilefni til
þess að halda að ræður Halldórs í
Evrópusambandinu vegi þyngra?
Ekki voru forfeður okkar, þeir sem
lifðu á öld Halldórs Snorrasonar,
þeir ættlerar að þeir létu óhefnt
þeirra frænda sinna er sviknir voru
af tækifærissinnum sinnar tíðar.
Þorsteinn Drómundur, bróðir Grett-
is, hefndi hans í Miklagarði og var
varpað í dýflissu. Komst þaðan fyrir
atbeina Spez drottningar.
Margt er nú breytt á Bjargi og
Friðrik kominn í Grettis stað.
Halldór ætti að manna sig upp í
það að krefjast fullrar sæmdar fyrir
Sophiu Hansen og sýna Tyrkjum í
Miklagarði að enn lifir andi Hall-
dórs Snorrasonar á Íslandi.
PÉTUR PÉTURSSON þulur.
Framsóknar-
ráðherrar
Frá Pétri Péturssyni:
MOLDVARPA eða „Mole“ er nafn
sem notað var yfir njósnara eða
flugumenn, sem laumað var í her-
búðir andstæðinga á dögum kalda
stríðsins, oft mörgum árum áður en
þær áttu að vinna skemmdarverk
sín.
Manni dettur þessi samlíking oft í
hug þegar maður sér aðferðir vissra
afla í þjóðfélaginu. Karl Th. Birgis
fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðsins
sáluga var settur niður á Reyðar-
firði til að dæla þaðan áróðri í líki
saklauss fréttaritara og pistlahöf-
undar. Þráinn Bertelsson, fyrrver-
andi ritstjóri Þjóðviljans, skrifar
lævísar greinar af stakri snilld, eins
og honum er einum lagið, gegn
borgarlegu samfélagi, í Fréttablaðið
á fullum heiðurslaunum frá íslenska
ríkinu.
Einar Karl Haraldsson, fyrrver-
andi ritstjóri Þjóðviljans, semur
kosningaáróður R-listans. Sami
maður vann það afrek að gera Ólaf
Ragnar að forseta, þrátt fyrir lítið
fylgi hans meðal þjóðarinnar. Ólaf-
ur hefur reyndar staðið sig vel sem
forseti. Árni Bergmann, fyrrum rit-
stjóri Þjóðviljans, skrifar enn grein-
ar í DV og rembist eins og rjúpan
við staurinn að reyna að gera blekk-
ingar rauðliða að sannleika í augum
lesenda. Illugi, sem var rekinn af
Rás 2 fyrir ljótan munnsöfnuð, og
Hannes Hólmsteinn látinn víkja um
leið til að halda jafnvæginu, var svo
endurráðinn aftur og hefur frjálsar
hendur við iðju sína. Hannes er enn
úti í kuldanum.
Fréttastofa útvarpsins reyndi að
fela fréttina um „Strætó-hneykslið“,
sem snerist um samspil borgar-
stjóra og einkavinar hennar um tug-
milljónagreiðslur fyrir lítil viðvik.
Sama fréttastofa reyndi að fela frétt
um stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, en birti sem fyrstu frétt
daginn eftir viðbrögð Ingibjargar
Sólrúnar borgarstjóra og þar var nú
ekki þrætt einstigi sannleikans og
drengskapar. Sigurður A. Magnús-
son, sem eitt sinn vann á Morg-
unblaðinu, en flæmdist þaðan,
vegna þess að honum fannst Matt-
hías Johannessen tekinn fram fyrir
sig og undraði það engan, skrifar
ruglingslegar greinar í Dagblaðið
um eigið ágæti og óréttlæti þess að
hann fær ekki heiðurslaun lista-
manna og fyrir hvað má ég spyrja?
Haukur Hauksson „ekki-fréttamað-
ur“ varð frægur að endemum, þeg-
ar hann réðst að Árna Sigfússyni,
sem lá í valnum eftir baráttu við
Ingibjörgu Sólrúnu um borgar-
stjórastólinn, í alræmdu áramóta-
skaupi og níddist bæði á Árna, konu
hans og börnum á afar ósmekk-
legan hátt. Haukurinn var látinn
hætta um stund, en er kominn á
kreik á ný, hatrammari en nokkru
sinni fyrr, knúinn áfram af stjórn-
lausu hatri á Sjálfstæðisflokknum.
Það hefur aldrei þótt drengilegt á
Íslandi að sparka í liggjandi mann,
en það virðast gilda aðrar reglur
um suma.
Þegar flett var ofan af skattsvika-
máli frambjóðenda R-listans fyrir
kosningarnar 1998 varð vinstri fjöl-
miðlaflóran með útvarpið og rás 2 í
broddi fylkingar froðufellandi af
heift yfir ódrengilegri „aðför“, en
nú segir enginn neitt, þegar veiði-
maðurinn mikli, Stefán Jón Haf-
stein, er sendur út af örkinni með
breddu sína til að losa borgarstjóra-
frúna við óhreinu börnin.
Eru þetta þau skoðanaskipti og
fréttaflutningur, sem fólk vill og á
heimtingu á? Eru fjölmiðlarnir eða
fjórða valdið, sem sumir kalla þá,
orðnir hættulegir lýðræðinu?
ÓLAFUR H.
HANNESSON,
Snælandi 4, Reykjavík
Moldvörpur
Ólafur H. Hannesson
DILBERT
mbl.is
Símar: 515 1735 og 515 1731
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin.
Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt.
Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.00 – 15.30.
Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar
og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar.
Utankjörsta›askrifstofa
Sjálfstæ›isflokksins
Sjálfstæ›isfólk!
Láti› okkur vita um stu›ningsmenn
sem ekki ver›a heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
TILBOÐIÐ STENDUR
18. apríl - 6. maí
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
35% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum í 2 vikur
ja vikna tilboð2
NÚ ER LAG!35%
Eldhús Bað Fataskápar Þvottahús
mánudaga–föstudaga kl . 9–18
laugardaga 10–16
sunnudag 21. aprí l k l . 13–16OPNUNARTÍMI:
G l æ s i l e g a r d a n s k a r i n n r é t t i n g a r