Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÁKVEÐIÐ hefur verið að yfir-
stjórn varnarliðsins á Íslandi verði
færð frá Norfolk í Bandaríkjunum
til Evrópuherstjórnar Bandaríkj-
anna í Stuttgart í Þýskalandi. Er
þessi tilfærsla liður í viðamiklum
skipulagsbreytingum á yfirstjórn
herafla Bandaríkjanna sem Donald
H. Rumsfeld varnarmálaráðherra
greindi frá í gær.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði í gærkvöld, þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
Kaupmannahöfn, að íslensk stjórn-
völd teldu eðlilegt að yfirstjórnin
yrði áfram í Bandaríkjunum: „Við
höfum lengi átt samskipti við Nor-
folk um okkar mál og vildum frek-
ar að yfirstjórnin yrði áfram í
Bandaríkjunum,“ sagði utanríkis-
ráðherra.
Varnarliðið á Íslandi heyrir nú
undir svonefnda Sameinaða her-
stjórn Bandaríkjanna („Joint Forc-
es Command“ (JFC) á enskri
tungu) en höfuðstöðvar hennar eru
í Norfolk í Virginíu-ríki í Banda-
ríkjunum. Bandaríkjamenn hafa nú
ákveðið að koma á fót nýrri her-
stjórn, Norðurherstjórninni, sem
ætlað er að tryggja varnir meg-
inlands Bandaríkjanna. Er sú
ákvörðun bein afleiðing árásar
hryðjuverkamanna á Bandaríkin
11. september síðastliðinn.
Ísland, Grænland og Azor-
eyjar undir Evrópustjórnina
Norðurherstjórninni verður m.a.
falið að annast varnir Bandaríkj-
anna, Kanada, Mexíkó og hluta
Karíbahafs. Jafnframt mun Evr-
ópuherstjórnin í Stuttgart taka við
yfirstjórn á austanverðu Atlants-
hafi, sem nú heyrir undir JFC. Sá
gjörningur tekur til Íslands, Græn-
lands og Azor-eyja. Þar með verð-
ur yfirstjórn varnarliðsins á Ís-
landi ein fjölmargra undirstjórna
Evrópuherstjórnarinnar í Stutt-
gart en þær geta síðan aftur
greinst með ýmsum hætti, m.a. í
afmarkaðar svæðisstjórnir.
Evrópuherstjórnin mun hafa
með höndum yfirstjórn alls herafla
Bandaríkjanna í Evrópu og mun
einnig ná til meginhluta Afríku og
Mið-Austurlanda, m.a. Ísraels.
Kaspíahafssvæðið verður einnig
fært undir þá stjórn.
Ákvörðun Bandaríkjastjórnar er
í samræmi við áætlanir um breyt-
ingar sem unnið hefur verið að
samkvæmt „Skipulagi sameinaðrar
herstjórnar“ („Unified Command
Plan“ á enskri tungu). Það skipu-
lag tekur gildi 1. október næstkom-
andi og verður þá yfirstjórn varn-
arliðsins flutt til Evrópu.
„Ég hef vitað um þessi áform
lengi og ég hef átt í viðræðum við
bandarísk yfirvöld um þessi mál,“
sagði utanríkisráðherra. „Ef þessi
verður niðurstaðan, þá þýðir þetta
miklar breytingar á okkar stöðu.
Þær felast fyrst og fremst í því að
yfirstjórn mála í Keflavík færist
frá Norfolk í Bandaríkjunum til
Evrópu. Við teljum að það sé eðli-
legra að yfirstjórnin sé áfram í
Bandaríkjunum vegna okkar tví-
hliða samninga við Bandaríkin,“
sagði Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra.
Varnarsamstarf/38
Eðlilegt vegna tvíhliða samn-
inga okkar við Bandaríkin
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli flutt undir herstjórn í Evrópu
Ráðherra vill yfirstjórn-
ina áfram vestanhafs
Og eru þá gjarna undir austurhlíðinni eins og
þessir veiðimenn. Þá er og vinsælt að ganga
hringinn í kringum vatnið enda mjög hæfileg
gönguferð. Til stendur að leggja sérstaka
ÓÞREYJUFULLIR fluguveiðimenn eru árviss
vorboði við Vífilsstaðavatn. Vatnið þykir gott
vorveiðivatn og þeir alhörðustu byrja að þenja
flugustöngina þar nánast um leið og ísa leysir.
gangbraut umhverfis vatnið, raunar er þegar
búið að merkja fyrir henni, en veiðimönnum
til huggunar skal tekið fram að hún verður
ekki alveg fram við bakkana.
Morgunblaðið/Golli
Vorið komið í veiðimenn við Vífilsstaðavatn
ÞORSKAFLI í togararalli Hafrann-
sóknastofnunar varð meiri í ár en í
fyrra og er heildarvísitala þorsks nú
jafnmikil og árið 1999. Þetta kemur
fram í bráðabirgðaniðurstöðum
stofnmælingar botnfisks á Íslands-
miðum. Lengdardreifing þorsks
bendir til þess að 2001-árgangurinn
sé mjög slakur en seiðavísitala hans
mældist mjög há á síðasta ári. Jó-
hann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunarinnar, segir að
ástand sjávar fyrir norðan land
kunni að skýra lélegt ástand ár-
gangsins. Hann bendir á að sterkir
seiðaárgangar skili sér ekki alltaf í
mikilli veiði. Jóhann segir að árgang-
ar 1997–2000 séu allir í meðallagi en
áhyggjuefni sé hversu lítið er af
þorski eldri en fimm ára.
Eins og árið 2001 var lítið af
þorski á Vestfjarðamiðum.
Togararall Hafrann-
sóknastofnunarinnar
Þorskár-
gangurinn
2001 mjög
slakur
Meiri þorskafli/C16
Meðalverð
á innflutt-
um tómöt-
um hækk-
aði um 33%
MEÐALVERÐ á innfluttum tómöt-
um hefur hækkað um 33% frá 8.
febrúar, samkvæmt aprílkönnun
Samkeppnisstofnunar á grænmetis-
verði. Stofnunin hefur ákveðið að
fylgjast með því reglubundið hvern-
ig aðgerðir ríkisstjórnarinnar til
lækkunar á grænmetisverði skila sér
til neytenda.
Birt er meðalverð á fjölmörgum
tegundum af grænmeti og ávöxtum
eins og það var 8. febrúar síðastlið-
inn og borið saman við meðalverð á
sömu tegundum 8. apríl. Þá er gefið
upp hæsta og lægsta verð í apríl en
oft er verulegur verðmunur á milli
verslana, segir Samkeppnisstofnun.
Perlulaukur á
1.757 krónur kílóið
Meðalverð á mörgum tegundum
grænmetis hefur haldist mjög svipað
en töluverð verðlækkun sést á
nokkrum tegundum, samkvæmt
könnuninni.
Mest hækkun hefur orðið á með-
alverði perlulauks milli febrúar og
apríl, eða 86%, og reyndist hæsta
verð í apríl 1.757 krónur fyrir kílóið
af perlulauk. Munur á meðalverði á
gulrófum og skalottulauk er 22%,
12% á Fresh Quality-grænmetis-
blöndu og 11% á ananas, svo dæmi
séu tekin.
Þær grænmetistegundir sem
meðalverð hefur lækkað hvað mest á
eru íslenskar agúrkur, sem lækkað
hafa um 79%. Meðalverð á blaðlauk
hefur lækkað um 35%, á jarðarberj-
um um 34%, á blómkáli um 33%, um
30% á selleríi, 28% á spergilkáli, 18%
á ísbergssalati, 17% á rauðlauk, 15%
á íslenskum gulrótum og 13% á sal-
atlauk og kínakáli, svo dæmi séu tek-
in.
Grænmetisverð/22
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að
fella niður áætlunarflug milli
Keflavíkur og New York frá 15.
nóvember í haust og fram í apr-
ílbyrjun á næsta ári. Er það gert
vegna minnkandi eftirspurnar í
kjölfar atburðanna í New York 11.
september í fyrra. Eftir sem áður
verður flogið til fjögurra áfanga-
staða í Bandaríkjunum, þ.e. Bost-
on, Baltimore, Minneapolis og Orl-
ando, og engin breyting er fyrir-
huguð varðandi áfangastaði í
Evrópu frá því sem verið hefur í
núverandi vetraráætlun.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir nýt-
ingu á flugleiðinni yfir veturinn
ekki sem skyldi og harða sam-
keppni vera um verð milli flug-
félaga sem stunda áætlunarflug
milli Evrópu og New York. Því hafi
verið ákveðið að gera þetta hlé á
fluginu til New York en á þessu ári
var það fellt niður frá miðjum jan-
úar og fram í miðjan mars. Flogið
verður til áfangastaðanna fjögurra
misoft í viku hverri, allt frá tvisvar
og upp í sex sinnum. Þá segir Guð-
jón að fyrir þá sem þurfi að komast
til New York séu tíðar ferðir þang-
að frá Boston.
Guðjón segir að þrátt fyrir þetta
sé þjónusta á leiðum héðan vestur
um haf meiri en frá öðrum Norð-
urlöndum. Ekkert beint flug sé t.d.
milli Noregs og Bandaríkjanna og
að Flugleiðir bjóði meira flug
þangað frá Íslandi en samanlagt sé
að hafa frá Svíþjóð og Finnlandi.
Forráðamenn Flugleiða vonast
til að ekki þurfi að koma til fækk-
unar flugvéla eða áhafna en leitað
verður eftir fleiri verkefnum á sviði
leiguflugs til að mæta þessum sam-
drætti í áætlunarfluginu. Segir
Guðjón mikinn vöxt hafa verið í
leigufluginu og að taldar séu góðar
horfur á að þar megi fá enn frekari
verkefni.
Flug til New York
fellt niður í rúma
fjóra mánuði