Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 4

Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SMÁRALIND S. 569 1550 KRINGLUNNI S. 569 1590 AKRANESI S. 430 2500 Þú kau pir nún a en bo rgar ek ki fyrst u afborg un fyrr en eft ir 4 mánu ði, vax talaust . Og þá er mög uleiki á allt a ð 32 m ánaða raðgre iðslu. FYRSTA AFBO RGUN Í OKTÓ BER! 0VEXTIR% GRÍPTU GÆSINA, HÉR ER Whirlpool hellubor› Whi-akm332 Steypt helluborð með 2 hraðsuðuhellum og rofum. 19.995,- Ver› á›ur 23.995 kr. RAFMAGNSVEITUR ríksins eru að láta kanna möguleika á að reisa rúmlega 70 MW virkjun í Hólmsá í Skaftártungu. Frumáætlun liggur þegar fyrir en samkvæmt niður- stöðum verkefnisstjórnar ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls eru umhverfisáhrif vegna Hólmsár- virkjunar minnst í samanburði við aðra virkjunarkosti. Að sögn Kristjáns Jónssonar raf- magnsveitustjóra hefur Almenna verkfræðistofan unnið frumáætlun um virkjun á þessum slóðum sem byggð er á gögnum Orkustofnunar. Um er að ræða 73 MW virkjun sem samsvarar um 440 kílóvatt- stundum af orkugetu á ári. Virkj- unin byggist á tiltölulega litlu miðl- unarlóni ofarlega í Hólmsá sem ræðst af því að rennsli er jafnt á veturna og sumrin. Gert er ráð fyr- ir fallgöngum neðanjarðar niður í virkjunarhús sem er undir jörðu. Þaðan verða frárennslisgöng í Tungufljót í Skaftártungu sem sameinast Hólmsá í Kúðafljóti. „Við höfum áhuga á að skoða þennan virkjunarmöguleika og er- um að leita leiða til að auka okkar eigin orkuöflun sem í dag er ekki nema 13–15%. Þetta er viðleitni í þá veru,“ segir Kristján. Þar sem einungis liggur fyrir frumáætlun segir Kristján að eftir sé að gera ýmiss konar rannsóknir áður en hægt er að fara í mat á mat á umhvefisáhrifum, kannanir o.fl. „Það eru engar tímaáætlanir en það liggur fyrir að farið verður í jarðfræðirannsóknir á svæðinu í sumar,“ segir hann. Úrskurðar í máli Villinganess að vænta á næstu vikum Í apríl 1999 var hlutafélagið Hér- aðsvötn ehf. stofnað um virkjun Héraðsvatna við Villinganes. RARIK á 75% hlut í félaginu og Norðlensk orka 25%. Nokkur mót- mæli hafa verið frá ferðaþjónustu- aðilum vegna virkjunaráformanna en niðurstaða Skipulagsstofnunar gagnvart virkjuninni var jákvæð, að sögn Kristjáns. Í úrskurði stofn- unarinnar um matsskýrslu vegna Villinganesvirkjunar setti skipu- lagsstjóri hins vegar þrjú skilyrði. Í einu skilyrðanna er gerð krafa um að settur verði upp laxastigi og farvegur, alls 2,8 kílómetrar að lengd. „Við teljum samkvæmt reynslu hér á landi með laxastiga að það sé óraunhæft að fara í þetta verkefni sem að auki er mjög dýrt.“ Héraðsvötn ehf. hafa kært úr- skurð um þetta tiltekna skilyrði til umhverfisráðherra og er svara að- vænta frá ráðuneytinu innan nokk- urra vikna, að sögn Kristjáns. Árið 1999 var félagið Sunnlensk orka stofnað um jarðgufuvirkjun í Grændal norður af Hveragerði. Fé- lagið er í eigu RARIK sem á 90% og eignarhaldsfélags Hveragerðis og Ölfuss sem á 10%. Fram fór mat á umhverfisáhrifum vegna vega- lagningar og rannsóknarborholu í Grændal en Skipulagsstofnun lagð- ist gegn vegalagningu inn dalinn. Sá úrskurður var kærður til um- hverfisráðherra sem var á sömul leið. Að sögn Kristjáns liggja því frekari áætlanir niðri að sinni. Hann segir að verið sé að skoða möguleika á að nýta orku úr bor- holum skammt frá, í Ölfusdal, sem voru boraðar á árunum 1958–61. Kristján segir að holurnar geti hugsanlega gefið 8–10 MW sem hugsanlega yrði hagkvæmt að nýta. RARIK lætur kanna 73 MW virkjun í Hólmsá Jarðfræðirannsóknir hefjast í sumar ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn hf., Íshug, og Landssími Íslands hf. hafa tilkynnt um formlegar viðræður milli fyrirtækjanna um kaup hins fyrrnefnda á eignasafni þess síðar- nefnda í upplýsingatæknifyrirtækj- um og er ætlunin að niðurstaða náist fyrir lok næsta mánaðar. Fyrir hálfum mánuði var greint frá því að stjórnir Íslenska hugbúnaðar- sjóðsins og Talentu-Hátækni og Tal- entu-Internets hefðu komist að sam- komulagi um sameiningu félaganna undir nafni Íslenska hugbúnaðar- sjóðsins. Þeirri sameiningu er ekki formlega lokið en gert er ráð fyrir að boðað verði til hluthafafunda félag- anna eftir um einn mánuð og þá verði sameiningin staðfest. Endapunktur á stækkunarferli Íshugs Sigurður Smári Gylfason, fram- kvæmdastjóri Íslenska hugbúnaðar- sjóðsins, segir að eftir sameininguna við Talentu verði stærstu hluthafar sameinaðs félags Íslandsbanki hf., Landsbanki Íslands hf. og Nýsköp- unarsjóður atvinnulífsins, hver um sig með um 18% hlut. Þá segir hann að búast megi við að ef af þeim við- skiptum verði við Símann sem nú séu til umræðu megi búast við að hann verði í hópi stærstu eigenda Íslenska hugbúnaðarsjóðsins og ekki miklu minni en þessir þrír stærstu. Sigurður Smári segir að viðræð- urnar við Símann nú séu endapunkt- ur á stækkunarferli sem hafi hafist fyrir um hálfu öðru ári samkvæmt stefnumörkun sem gerð hafi verið fyrir sjóðinn. Fyrir rétt um ári hafi eignarsafn Búnaðarbankans verið keypt og um áramótin hafi sjóðurinn stækkað eftir kaup á fyrirtækjum frá Nýsköpunarsjóði og Landsbankan- um. Síminn hafi alltaf verið talinn álitlegur kostur og þegar breytingar urðu þar hafi Íslenski hugbúnaðar- sjóðurinn sett sig í samband við hann til að kanna möguleika á frekari stækkun. Sigurður Smári segir að hugmyndin sé að viðskiptin nú verði með svipuðum hætti og þegar samið hafi verið við Nýsköpunarsjóð, Landsbankann og Talentu, en í öllum tilvikum hafi verið um það að ræða að Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn greiði fyrir þau bréf sem hann kaupir með eigin bréfum, en fái að auki greitt í peningum ámóta fjárhæð og hann fær í bréfum. Hann segir að um það bil 16 fyrirtæki í eigu Símans séu til skoðunar í þessu sambandi og mörg þeirra fari afar vel við safn sjóðsins. Of snemmt sé hins vegar að slá nokkru föstu um niðurstöður við- ræðnanna. Sigurður Smári segir að Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn sé nú stærsti aðilinn á þessum markaði, þ.e. í fjár- festingum í upplýsingatæknifyrir- tækjum, og með þessari stækkun styrki hann sig enn. Þá segir hann að sjóðurinn sé nú orðinn það stór að frekar sé tekið mark á honum erlend- is og að samskipti við útlönd hafi auk- ist, sérstaklega við Norðurlöndin. Þetta auki meðal annars möguleika tæknifyrirtækjanna á samstarfi við fyrirtæki erlendis og möguleika eig- enda þeirra á útgönguleið. Viðræðurnar á byrjunarstigi Heiðrún Jónsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, segir að viðræðurnar við Íslenska hugbúnaðarsjóðinn séu á byrjunarstigi og að engin niður- staða sé komin, en ef af samkomulag- inu verði þá muni Síminn trúlega verða einn af stærri eigendum að Ís- lenska hugbúnaðarsjóðnum. „Síminn hefur undanfarið dregið úr fjárfestingum í dótturfélögum og hyggst nú færa sig í auknum mæli úr sprotafjárfestingum og leita sam- starfs við sérhæft fyrirtæki þar í framhaldinu. Þetta er í samræmi við þá þróun sem hefur átt sér stað hér á landi. Stefnt er að því að einfalda og hagræða í rekstri og í ljósi þess að mikið af þeim áætlunum sem hafðar voru til hliðsjónar þegar fjárfest var í félögun hafa ekki gengið eftir er ljóst að þau þurfa meira aðhald og stuðn- ing en hægt er að óbreyttu að veita þeim innan Símans. Síminn var því opinn fyrir því að finna félögunum annan farveg,“ segir Heiðrún, en ítrekar að viðræðurnar séu á byrj- unarstigi og geti farið á hvorn veginn sem er. Hún segir að verið sé að ræða um öll félög Símans, að Grunni, Stefju, Anza, Tækniakri og Tæknivörum undanskildum, og það sé í samræmi við þær áherslur að fara út úr fé- lögum sem hafa ekki skýra tengingu við meginstarfsemi fyrirtækisins. Íshug ræðir við Símann um kaup á upplýsinga- tæknifyrirtækjum Morgunblaðið/Guðrún Vala Datt af hestbaki og fékk ekki að kjósa Þess má að lokum geta að úrslit kosninganna urðu þau að fjórði maður á B-lista var með jafnmörg atkvæði á bak við sig og annar mað- ur á L-lista. L-listinn vann með hlutkesti en framsókarmenn hafa ákveðið að kæra talninguna. Þeir telja að eitt atkvæði, sem úrskurðað var ógilt, hefði átt að flokka með at- kvæðum B-listans. FLEMMING Jessen, skólastjóri í Varmalandsskóla, brá sér á hest- bak á kosningadaginn, svona til að lyfta sér upp áður en hann færi á kjörstað og greiddi atkvæði. Ekki vildi betur til en svo að hrossið fældist og Flemming datt af baki. „Það má segja að ég hafi verið í vinnu hjá Vegagerðinni í nokkrar sekúndur þegar ég hreinsaði veg- inn með andlitinu,“ sagði Flemming sem dróst aðeins með hestinum og lenti síðan undir honum. Hann brotnaði ekki en þarf að ganga við hækjur vegna tognunar. Flemming eyddi svo þremur klukkustundum á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi þar sem læknir gerði að sárum hans. „Það þurfti að hreinsa mikið af smágrjóti og steinflísum úr and- litinu á mér og sauma spor hér og þar um andlitið,“ sagði Flemming, „en steininn tók svo úr á kjörstað þegar ég fékk ekki að kjósa.“ Það var ekki það að Flemming væri óþekkjanlegur vegna áverka held- ur kom í ljós að samkvæmt lögum var hann ekki kjörgengur þar sem hann er danskur ríkisborgari og hafði átt lögheimili í Danmörku síð- asta ár. Lögin kveða á um þriggja ára samfellt lögheimili á Íslandi til að mega kjósa. 3.902 útstrikanir voru á framboðs- lista Reykjavíkurlistans vegna borg- arstjórnarkosninganna í Reykjavík. 1.042 útstrikanir voru á lista Sjálf- stæðisflokksins og 102 á lista Frjáls- lyndra og óháðra. Alfreð Þorsteins- son, sem skipar annað sæti á Reykjavíkurlistanum, var strikaður oftast út eða 1.833 sinnum. Helgi Hjörvar, sem er í níunda sæti Reykjavíkurlistans, var strikaður út 623 sinnum og Stefán Jón Hafstein, sem er í þriðja sæti listans, 572 sinn- um. Þá fékk Árni Þór Sigurðsson, efsti maður á lista Reykjavíkurlistans, 257 útstrikanir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fékk 25 út- strikanir. Björn Bjarnason, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins, var strik- aður 191 sinni út. Guðlaugur Þór Þórðarson 146 sinnum og Guðrún Ebba Ólafsdóttir 92 sinnum. Gísli Helgason, þriðji maður á lista Frjálslyndra og óháðra, var strikað- ur oftast út á þeim lista eða 47 sinn- um. Ólafur F. Magnússon, efsti mað- ur á lista frjálslyndra, var strikaður út 20 sinnum. Flestar útstrikanir hjá ReykjavíkurlistaINNBROTSÞJÓFAR sem létu greipar sópa um kaffihús og verslun í Smáralind í mars sl. ýttu tveggja ára gamalli dóttur annars þeirra á undan sér í innkaupakerru sem þeir notuðu til að flytja þýfið. Faðir stúlkunnar játaði innbrotið og hlaut hann dóm í apríl. Hinn neit- aði sök og sagðist hafa verið að sinna stúlkunni meðan faðir hennar lét greipar sópa. Þessi framburður var talinn ótrú- verðugur og segir í dómnum að á ör- yggismyndböndum úr Smáralind sé ekki annað að sjá en þar gangi tveir menn samhentir og ákveðnir til verks. Ekki verði heldur séð að maðurinn veiti barninu neina sérstaka athygli. Þvert á móti virðist faðir stúlkunnar sjá um það að svo miklu leyti sem það er gert. Dæmdi Héraðsdómur Reykjaness hann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í gær. Innbrotin frömdu þeir að kvöldi 9. mars sl. stuttu eftir lokunartíma. Af innbrotunum eru til upptökur úr ör- yggismyndavélum Smáralindar. Þar sést að í fylgd með þeim var barn sem þeir lengst af óku á undan sér í inn- kaupakörfu. Við eftirgrennslan þekktust mennirnir af myndunum og barnið reyndist vera dóttir annars. Með 2 ára barn í innbrot

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.