Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 13 SVO gæti farið að tívolí yrði rekið á tveimur stöðum í sumar, annars vegar á Hafnarbakkanum, líkt og undanfarin ár, og hins veg- ar í Laugardalnum. Íþrótta- og tómstunda- ráði hefur borist umsókn frá breskum aðilum sem óska eftir því að starfrækja milliliðalaust tívolí við hlið Laugardalshallar í sumar. Er ráðið fylgjandi þessu en borgarráð hefur í tvígang frestað afgreiðslu erind- isins. Í bréfi umsækjendanna kemur fram að þeir hafi starfrækt tívolí á Hafn- arbakkanum undanfarin níu ár en nú óski þeir eftir að fá stærra pláss undir starf- semina þar sem til standi að koma með stærri tæki til landsins en áður hefur ver- ið. „Árið 2002 verður 10. af- mælisár okkar hér á Íslandi og finnst okkur að það eigi að vera sérstakt. Við mynd- um koma með ný áhuga- verð tæki sem laða fólk að, t.d. risahjól (eins og er í London), rússíbana og einn- ig „risa-felliturn“ sem öll þyrftu á meira plássi að halda til að setja upp en hafnarbakkinn býður upp á,“ segir í bréfinu. Þá segir að tívolíið yrði opið frá 11. júlí til 5. ágúst. Þann áttunda yrði búið að ganga frá og hreinsa til eft- ir starfsemina. Norrænt tívolí á Hafn- arbakkanum í sumar Í mars síðastliðnum heim- ilaði Hafnarstjórn Jörundi Guðmundssyni að starf- rækja tívolí á Hafnarbakk- anum í sumar eftir íhlutun borgarstjórnar en hafn- arstjórn hafði áður hafnað erindi hans. Jörundur hefur haft milligöngu um komu breska tívolísins hingað til lands undanfarin níu ár. Í samtali við Morgun- blaðið í gær sagði hann að hann myndi starfrækja tívolí á Hafnarbakkanum í júlí í sumar en að þessu sinni hefði hann fengið nýja aðila til samstarfs við sig sem kæmu frá Norðurlönd- unum. Samþykki borgarráð er- indi breska hópsins um rekstur tívolís í Laug- ardalnum er því útlit fyrir að tvö tívolí verði starfrækt í borginni á sama tíma í sumar. Tvö tívolí í borg- inni í sumar? Reykjavík Morgunblaðið/Sigurður Jökull Jörundur Guðmundsson, sem rekið hefur tívolí á Hafnarbakkanum undanfarin ár, hefur fengið nýja aðila til samstarfs við sig en fyrri samstarfsaðilar hans hafa hug á að setja upp tívolí í Laugardal í sumar. Myndin var tekin á Hafnarbakkanum í fyrra. LAUGARDALSLAUGIN verður lokuð frá mánu- degi til fimmtudags í næstu viku að báðum dög- um meðtöldum. Lokunin er vegna viðhalds á laug- inni. Að sögn Erlings Þ. Jó- hannessonar, íþróttafull- trúa hjá Íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur, er afgreiðslutími lauganna í Reykjavík orðinn það langur að ekki næst að sinna eðlilegu viðhaldi þeirra öðruvísi en loka í nokkra daga, en laugarn- ar eru opnar í um 17 tíma á sólarhring, 362 daga á ári. „Þessi laug er orðin 35 ára og það hefur aldrei verið tekið það átak í henni sem þarf, enda er- um við að byggja þarna nýja laug til að geta gert hina almennilega fína.“ Kristján Ögmundsson, forstöðumaður Laugar- dalslaugarinnar, segir langt mál að telja upp allt það sem gera á við laug- ina. Til standi að hreinsa hana, mála og gera við bakkana og fara yfir öll tæki og tól svo eitthvað sé nefnt. „Þetta er stórt hús með miklum búnaði og það er alltaf eitthvað að bila. Stundum hleðst það upp þótt hægt sé að láta staðinn ganga á meðan,“ segir hann. Laugin verður svo opn- uð á ný á föstudag. Lokað í Laug- ardalslaug í næstu viku Laugardalur ÍSLENSKI Fjallahjóla- klúbburinn (ÍFHK) gagnrýn- ir stöðu hjólreiðamanna í borginni og segir vanta sér- stakar reiðhjólaleiðir með- fram helstu umferðargötum. Þá kemur fram í nýlegri skýrslu klúbbsins að oft á tíð- um gera framkvæmdir í grennd við hjólreiðastíga það að verkum að leiðirnar eru rofnar þannig að hjólreiða- menn komast ekki leiðar sinnar. Að sögn Öldu Jónsdóttur, formanns ÍFHK, eru þeir stígar, sem hjólreiðamenn nota helst, fremur útivistar- stígar en reiðhjólastígar. „Við viljum fara að fá reiðhjóla- vegi meðfram aðalgötunum, eins og Miklubrautinni, Sæ- brautinni og Sundabrautinni þegar hún kemur, þannig að það sé gert ráð fyrir því að fólk geti hjólað í og úr vinnu. Þú hjólar ekkert í rólegheit- unum í sjávarroki á Sæbraut- inni ef þú ert á leið til vinnu heldur viltu fara beinustu leið eins og aðrir.“ 50 hjól í stað 40 bíla Aðspurð um kostnaðinn við gerð slíkra hjólreiðabrauta segir Alda erfitt að segja hver hann yrði. „Það veit enginn hvað þetta kostar því þú veist ekki hvað þú sparar. Það hefur verið gerð talning á hjólreiðamönnum á horni Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar og hún sýndi að þar fara hjólamenn upp í 50 á klukkustund sem er sú tala sem miðað er við erlend- is.“ Hún bendir á að líklega væru þessir menn á 40 bílum ef þeir nýttu ekki reiðhjólin til að komast á milli staða. Alda segir fjölda kosta við þennan samgöngumáta. „Við viljum meina að þetta sé um- hverfisvænt og heilsuvænt og svo er þetta ódýrt. Fólk getur jafnvel sparað sér annan bíl á heimilið með því að hjóla allt sumarið og langt fram á vet- ur.“ Hún bendir einnig á að hjólreiðarnar geti sparað stórar summur í heilbrigðis- kerfinu því kortérs hreyfing á dag geti skipt sköpum fyrir heilsu fólks. Í skýrslu klúbbsins er það gagnrýnt að ekki sé tekið nægjanlegt tillit til hjólreiða- manna við vega- og lagna- framkvæmdir í grennd við hjólreiðastíga. „Það er kannski skyndilega kominn haugur á stíginn eða búið að grafa hann í sundur og það er aldrei merkt að hann sé lok- aður. Þetta er mjög algengt, meira að segja geyma verk- takar tækin sín stundum á stígunum.Við gagnrýnum að það leyfist að loka á gangandi og hjólandi og ekki gera neina hjáleið sem myndi ekki þekkjast fyrir aðra umferð.“ „Vantar ekki viljayfirlýsingarnar“ Að sögn Öldu virðist vera vilji í Aðalskipulagi Reykja- víkur og í annarri stefnumót- un borgarinnar til að bæta aðstæður hjólreiðamanna. „Það vantar ekki viljayfirlýs- ingarnar en því virðist ekki vera fylgt eftir af heilum hug því það er ekki litið á hjólin sem samgöngutæki. Útivist- arstígarnir eru mjög góðir og gildir og fólk notar þá gíf- urlega þannig að þeir eru búnir að sanna sig. Hins veg- ar er varla hægt að hjóla á þeim t.d. um helgar því það er nánast öngþveiti á þeim.“ Hún segist sannfærð um að hjólaeign landsmanna sé mik- il en það vanti hvatningu til að nota þau meira. „Maður heyrir mest á fólki að það þori ekki að nota hjólin sem samgöngutæki af því að það þorir hreinlega ekki að hjóla á götunni,“ segir hún. Nýleg skýrsla Íslenska fjallahjólaklúbbsins um stöðu hjólreiða í borginni Vantar hjólastíga með- fram stærstu götunum Ljósmynd/Páll Guðjónsson Myndir sem teknar voru í ágúst 2000 frá því þegar Lína.Net lagði ljósleiðara um Háaleit- isbraut og segir í skýrslunni að myndirnar sýni bæði hvernig hægt er að loka stíg að óþörfu með því að geyma jarðefni á honum og einnig hvernig hægt er að standa vel að verki. Reykjavík ÞESSA dagana er verið að leggja lokahönd á göngustíg- inn umhverfis Vífilsstaða- vatn. Þessi maður var að ljúka frágangi við eina af mörgum göngubrúm yfir vatnið í gær þegar ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að garði. Sjálfsagt hefur ekki verið dónalegt að vinna við slíkt að undanförnu þar sem blíðviðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa síðustu daga. Morgunblaðið/Sverrir Lokið við göngustíga við Vífilsstaðavatn Garðabær FÓLK Í FRÉTTUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.