Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
20%
afsl. af öllum vörum*
föstudag og laugardag
* nema tilboðsvörum
www.tk.is
Sýnum 8 falleg brúðkaups og veisluborð.
Komdu og fáðu hugmynd.
Alltaf eitthvað nýtt!
Veislusprengja!
Ný sending af sófum og
stólum, nýjir litir.
Heildsöluverð Ódýr
stell
í sum
arhús
ið
Sófar
Stólar
Kaffi-
stell
Hand-
klæði
Matar-
stell
föstudaginn 31. maí og laugardaginn 1. júní í Faxafeni.
Við höldum veislu í 2 daga
MARKAÐUR
FAXAFENI
F A X A F E N I
¨
Allir fá gjöf sem versla
fyrir 2000.- kr eða meira.
EIMSKIPAFÉLAG Íslands hefur
aukið hlut sinn í Skagstrendingi hf.
með kaupum á öllum hlutabréfum
Höfðahrepps, Nafta og Trygginga-
miðstöðvarinnar og á nú 83,83%
hlutafjár í Skagstrendingi. Kaup-
verð hlutabréfanna í Skagstrendingi
er miðað við gengið 7,2 og er kaup-
verðið samtals 1.051 milljón krónur.
Eimskipafélagið greiðir fyrir þessi
hlutabréf með eigin hlutabréfum að
nafnverði 191 milljón en það jafn-
gildir genginu 5,5.
Friðrik Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Burðaráss hf., eign-
arhaldsfélags Eimskipafélagsins,
segir að öðrum hluthöfum í Skag-
strendingi hafi verið sent bréf í gær
þar sem boðist er til að kaupa bréf
þeirra í félaginu á sömu kjörum og
framangreind kaup. Tilboðið stend-
ur í einn mánuð.
Skagstrendingur og ÚA sameinuð
Yfirtökutilboð Eimskipafélagsins
er lagt fram í samræmi við lög núm-
er 34/1998, þ.e. lög um starfsemi
kauphalla og skipulegra tilboðs-
markaða. Samkvæmt þeim skapast
yfirtökuskylda ef aðili eignast meira
en 50% hlut í félagi sem er skráð á
hlutabréfamarkaði.
Friðrik segir að kaup Eimskipa-
félagsins á hlutabréfunum í Skag-
strendingi sem og kaup félagsins á
hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa fyrr á þessu ári, séu í sam-
ræmi við nýja stefnumörkun Eim-
skipafélagsins. Kaupin miðist að því
að byggja upp öfluga sjávarútvegs-
starfsemi.
„Við höfum sagt að það sé áhuga-
vert að byggja upp fyrirtæki sem
nýtir sér þá áhættudreifingu sem ís-
lenskur sjávarútvegur hefur upp á
að bjóða,“ segir Friðrik. „Skag-
strendingur er öflugt fyrirtæki bæði
í bolfiski og rækju og þess vegna
væri hugsanlega áhugavert að fara
út í starfsemi í uppsjávarveiðum og
vinnslu í framtíðinni. Ekkert hefur
þó verið ákveðið frekar í þeim efn-
um.“
Að sögn Friðriks verður hafist
handa við sameiningu Skagstrend-
ings og Útgerðarfélags Akureyringa
þannig að þau verði formlega hluti
af sjávarútvegsstarfsemi Eimskipa-
félagsins í beinu framhaldi af því að
tilboðsfresti til annarra hluthafa í
Skagstrendingi lýkur.Fram kemur í
tilkynningu Eimskipafélagsins á
Verðbréfaþingi Íslands vegna kaup-
anna í Skagstrendingi að félagið
byggist nú á þremur meginstoðum,
flutningsstarfsemi, sjávarútvegs-
starfsemi og fjárfestingastarfsemi.
Þessar einingar verði reknar sem
sjálfstæð félög innan samstæðunnar
og muni starfa með sjálfstæða
stjórn, sem marka muni skýra
stefnu og áherslu, hver á sínu sviði.
Liður í að byggja upp öflugt
sjávarútvegsfyrirtæki
Þá segir í tilkynningunni að sjáv-
arútvegur sé undirstöðuatvinnu-
grein á Íslandi og því sé mikilvægt
að hafa framsækin, öflug og leiðandi
fyrirtæki sem geti stuðlað að auk-
inni hagkvæmni og útrás í sjávar-
útvegi. Þetta sé ekki síst mikilvægt
fyrir atvinnulíf utan höfuðborgar-
svæðisins. Kaup á hlutabréfum í
Skagstrendingi séu liður í því að
byggja upp og reka öflugt sjávarút-
vegsfyrirtæki á alþjóðlegan mæli-
kvarða innan samstæðu Hf. Eim-
skipafélags Íslands.
Í mars síðastliðnum keypti Eim-
skipafélagið hlutabréf í Skagstrend-
ingi og Útgerðarfélagi Akureyringa
af Búnaðarbankanum og átti eftir
þau kaup 40,7% hlut í Skagstrend-
ingi en 55,3% hlut í ÚA. Í framhaldi
af því var gert yfirtökutilboð í hluta-
bréf annarra hluthafa í ÚA og varð
niðurstaðan sú að yfirgnæfandi
meirihluti hluthafanna ákvað að
taka tilboðinu og á Eimskipafélagið
nú 97,5% í ÚA.
Fyrir kaup Eimskipafélagsins í
Skagstrendingi nú var Höfðahrepp-
ur næststærsti hluthafinn í félaginu
á eftir Eimskipafélaginu, með 24,1%
hlut. Tryggingamiðstöðin var þriðji
stærsti hluthafinn með 11,6% hlut
og Nafta var sá fjórði stærsti með
7,4% hlut. Þar næst komu Sjólaskip
með 6,3% hlut í Skagstrendingi og
Guðmundur Runólfsson hf. með
1,0% hlut. Aðrir hluthafa eiga
minna.
Auk 83,83% hlutar Eimskipa-
félagsins í Skagstrendingi og 97,5%
hlutar í ÚA á félagið 28,1% hlut í
Haraldi Böðvarssyni hf., 19,1% hlut
í Síldarvinnslunni hf., um 4% hlut í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf., um
2% í Hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf.,
innan við 2% í Þorbirni-Fiskanesi hf.
auk enn minni hluta í öðrum fé-
lögum.
Eimskipafélag Íslands eignast tæpan 84% hlut í Skagstrendingi
Öðrum hlut-
höfum boðin
sömu kjör
Morgunblaðið/Ásdís
Skagstrendingur og ÚA verða sameinuð þannig að þau verði formlega hluti af sjávarútvegsstarfsemi Eimskipa-
félagsins í beinu framhaldi af því að tilboðsfresti til annarra hluthafa í Skagstrendingi lýkur.