Morgunblaðið - 31.05.2002, Síða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 29
Trúföstum hætt við áráttu
TRÚFÖSTU rómversk-kaþólsku
fólki virðist vera hætt við svo-
nefndum áráttuheilkennum (obsess-
ive-compulsive disorder), eða
áráttukenndri hneigð til hreinlætis
er getur heft mjög daglegt líf þess,
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar. Þeir sem haldnir eru
áráttuheilkennum hafa oft
sterklega á tilfinningunni að um-
hverfi þeirra sé útatað í sýklum og í
verstu tilvikum ver þetta fólk allt að
átta klukkustundum á dag til
hreingerninga. Talið er að fimm
milljónir Bandaríkjamanna og ein
milljón Breta hafi þessa áráttu.
Vísindamenn undir forystu
Claudios Sicas, við Háskólann í
Parma á Ítalíu, báru saman kaþ-
ólskar nunnur og presta, trúaða
kaþólska leikmenn og aðra sem
höfðu litla eða enga trúarsannfær-
ingu, að því er greint verður frá í
vikuritinu New Scientist á morgun.
Voru þátttakendur beðnir um að
greina frá vægum einkennum ár-
áttuheilkenna, t.d. þrálátum ímynd-
unum eða áhyggjum. Í ljós kom að
hinir trúfastari höfðu frá fleiri og
alvarlegri tilvikum að segja.
Greint verður nánar frá rann-
sókninni í tímaritinu Behaviour
Research and Therapy, en ósvarað
er þeirri spurningu hvers vegna
tengsl virðast vera á milli trúfestu
og áráttuheilkenna. Telja sumir
geðlæknar að orsakirnar sé að finna
í arfberum, en skiptar skoðanir eru
um það hvort hneigðin styrkist við
trúarlegt uppeldi – þar sem gjörðir
séu álitnar annaðhvort réttar eða
rangar, svartar eða hvítar – eða
hvort fólk sem hafi slíkar tilhneig-
ingar hneigist fremur til trúariðk-
ana og að helga líf sitt Guði.
París. AFP.
Lík innflytj-
enda finnast
Ankara. AFP.
LÍK 19 ólöglegra innflytjenda, þ. á m.
níu barna, fundust í gær í snævi þökt-
um fjöllum Austur-Tyrklands, og
sögðu þarlendir embættismenn að
fólkið, sem talið er hafa verið frá Afg-
anistan, hefði frosið í hel fyrir að
minnsta kosti fimm mánuðum. Her-
menn í Van-fylki sóttu líkin, sem
fundust skammt frá landamærunum
að Íran.
Flóttafólkið lést í hörðum vetrar-
veðrum einhverntíma á bilinu frá því í
nóvember til janúar, þegar snjóalög á
þessu svæði verða allt að fjögurra
metra djúp, að því er aðstoðarmaður
fylkisstjórans tjáði AFP. Fulltrúi
hersins sagði að fólkið hefði ekki átt
neina möguleika á að lifa af vetrar-
veðrið, og bætti við að enn væri
metradjúpur snjór á svæðinu.
Þá greindi tyrkneska fréttastofan
Anatolia frá því að lögregla í fylkinu
Izmir í Vestur-Tyrklandi hefði fundið
lík fimm pakistanskra innflytjenda á
ströndinni skammt frá bænum
Menderes við Eyjahaf. Sögðu
embættismenn að ekki væri fyllilega
ljóst hvernig fólkið hefði látist.
Leið flestra innflytjenda sem reyna
að komast frá Asíu og fara með ólög-
legum hætti til Vestur-Evrópu liggur
um Tyrkland. Fer fólkið þá oftast
óséð yfir austurlandamæri Tyrk-
lands, er liggja að Íran, og heldur síð-
an í vestur og reynir að komast sjó-
leiðis til Grikklands eða Ítalíu, eða
fara gangandi til Grikklands.
Golfkúlur 3 stk.
í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
ÞRETTÁN ár eru nú liðin frá stúd-
entamótmælunum miklu á Torgi hins
himneska friðar í Peking en að sögn
mannréttindasamtakanna Amnesty
International dúsa þó næstum tvö
hundruð manns enn í fangelsi vegna
þátttöku sinnar í mótmælunum.
Amnesty segist hafa rakið feril 195
manna sem fangelsaðir voru fyrir
þátttöku í lýðræðissamtökum kín-
verskra námsmanna, sem mótmæltu
á Torgi hins himneska friðar árið
1989 eða aðgerðum sem stjórnvöld
tengdu seinna námsmannamótmæl-
unum. Segja samtökin að næsta víst
sé að hópurinn sé „miklu stærri“.
„Tala fórnarlambanna hækkar ár
frá ári,“ sagði í yfirlýsingu Amnesty
en 4. júní nk. eru nákvæmlega þrett-
án ár liðin frá því að kínversk stjórn-
völd brutu sex vikna mótmæli náms-
manna á bak aftur með valdi.
„Haldið er áfram að fangelsa þá
sem ár hvert gera tilraun til að minn-
ast þessarar dagsetningar,“ sagði í
yfirlýsingunni. „Þeir sem voga sér að
fara fram á rannsókn atburðanna –
sem sumir hverjir gera það á Netinu
– hafa einnig mátt sæta því að vera
handteknir og dæmdir í fangelsi fyrir
að minna umheiminn á valdníðslu
stjórnvalda þennan dag.“
Hundruð, jafnvel þúsundir, óvopn-
aðra lýðræðissinna voru stráfelld í
aðgerðum kínverskra öryggissveita
þann 4. júní 1989 og vöktu aðgerð-
irnar sterk viðbrögð bæði í Kína og
annars staðar. Stjórnvöld í Peking
sögðu lýðræðishreyfingunni hins
vegar hafa verið beint gegn þeim
gildum, sem kínverska byltingin fól í
sér, og þann dóm hafa kínverskir
stjórnarherrar neitað að endur-
skoða. Eins og áður sagði dúsa því
margir í fangelsi enn þann dag í dag
fyrir sakir sem í Kína jafngilda land-
ráðum.
Næstum
200 dúsa
enn í
fangelsi
Peking. AFP.