Morgunblaðið - 04.07.2002, Page 25

Morgunblaðið - 04.07.2002, Page 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 25 NÝ herferð andstæðinga evrunnar, sam- eiginlegrar myntar Evrópusambandsríkj- anna, í Bretlandi hefur vakið mikið upp- nám bæði heima og í Þýskalandi en í auglýsingu, sem sýnd hefur verið í kvik- myndahúsum í Bretlandi, bregður grín- istinn Rik Mayall sér í gervi Adolfs Hit- lers. Þykir mörgum að auglýsingin sé heldur smekklaus brandari, enda vanvirði hún minningu gyðinga, sem létust í út- rýmingarbúðum nasista í síðar heims- styrjöldinni. Í auglýsingunni sést hvar Mayall – í gervi Hitlers – hrópar að miklum hópi fólks: „Ein þjóð! Eitt ríki! Ein evra!“ Segja aðstandendur auglýsingarinnar að með henni hafi einungis átt að vara Breta, með góðlátlegu gríni, við því að stjórnvöld stefndu að því að taka upp evr- una í Bretlandi. Talsmaður þýskra stjórn- valda sagði hins vegar út í hött að tengja Hitler og evruna með þessum hætti.Reuters Grátt gaman evruandstæðinga RÁÐUNEYTI utanríkismála í Bandaríkjunum hefur varað banda- ríska borgara í öðrum löndum við því að hryðjuverkamenn gætu gert árásir á þá. Nefnt var að hættulegt gæti verið að vera á veitinga- stöðum, í skólum eða á íþróttavöll- um þar sem hóp- ar af Bandaríkja- mönnum hefðu safnast saman. Ekki var til- greindur neinn ákveðinn staður eða tími en ljóst er að margir óttast að hermdar- verkamenn gætu látið til skarar skríða í dag, 4. júlí, sem er þjóðhá- tíðardagur Bandaríkjanna. Ari Fleischer, talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði í gær að „ekkert sérstakt“ hefði valdið því, að stjórnvöld sendu frá sér viðvörun. Hann sagði hins vegar að rétt væri að fara varlega enda eðlilegt – með hliðsjón af hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september sl. – að geta sér þess að illvirkjar sjái það hugsanlega sem ágætis skotmark er Bandaríkjamenn söfnuðust sam- an í jafn miklum mæli og von er á. Mest er hættan talin vera í Bandaríkjunum sjálfum og alrík- islögreglan, FBI, mun vera mjög á varðbergi við um 2.000 opinberar samkomur í landinu í tilefni dags- ins, að sögn Fleischers. Colin Po- well utanríkisráðherra sagði í við- tali við CBS-sjónvarpsstöðina á sunnudag að reynt yrði að meta hve mikil hættan væri. „En ég vona að flestir Bandaríkjamenn muni ótrauðir njóta 4. júlí. Það ætla ég að gera,“ sagði Powell. Fleischer hafði svipuð ummæli eftir George W. Bush Bandaríkja- forseta í gær. Sagði hann að Bush vildi að Bandaríkjamenn kæmu saman og fögnuðu þjóðhátíðardeg- inum, í trausti þess að öryggisráð- stafanir yfirvalda skiluðu tilætluð- um árangri. „Skilaboð forsetans til þjóðarinnar er að skemmta sér vel og njóta frídagsins,“ sagði Fleisch- er. „Látið okkur um áhyggjurnar.“ Allt lögreglulið New York í viðbragðsstöðu Allt lögreglulið New York-borg- ar verður í viðbragðsstöðu, þyrlur lögreglunnar verða á sveimi og bannað hefur verið allt flug í grennd við Frelsisstyttuna, umferð skemmtibáta verður ekki leyfð á fljótinu. Fólk sem vill fylgjast með flugeldasýningum við Austurá verður látið fara um 14 varðstöðvar og þar verða óeinkennisklæddir lögreglumenn með geiger-teljara sem mæla geislavirkni. Enn er tal- ið að hryðjuverkamenn gætu reynt að sprengja svonefnda geisla- sprengju í mannþröng til að valda ringulreið og skelfingu. Einnig verða tiltækir lögreglumenn í loft- þéttum búningum til að fást við sýklavopn. Viðbúnaður í Washington Ráðamenn Washington-borgar hafa einnig gripið til umfangsmik- illa aðgerða við svæðið í miðborg- inni sem nefnist National Mall og oft er notað við hátíðarhöld. Þar eru nú öflugar girðingar og málm- leitartæki, um 2.000 lögreglumenn verða til staðar og fjöldi hunda til- tækur. Svipaðar ráðstafanir verða gerðar í mörgum öðrum stórborg- um. Embættismenn segja að komið hafi fram í yfirheyrslum fanga úr röðum al-Qaeda manna, sem eru í í fangabúðum í Guantanamo-her- stöðinni á Kúbu, að aðgerðir á þjóðhátíðardaginn væru á döfinni. Flugbann við Frelsis- styttuna í New York Washington, New York. AP, AFP. Miklar ráðstafanir gegn hermdarverkum 4. júlí Frelsisstyttan. Sæktu um talhólf fyrir heimilissímann á fiínum sí›um á siminn.is, í fljónustuveri Símans 800 7000 e›a í verslunum Símans um allt land. Talhólf er símsvari heimilisins Ef flú sækir um fyrir 12. ágúst 2002 gætir flú unni› fer› fyrir tvo til útlanda. N O N N I O G M A N N I IY D D A • N M 0 6 6 2 2 /s ia .is Panta›u talhólf fyrir 12. ágúst Ertu a› fara í frí? Ekki missa af símtölum, fá›u flér talhólf. Kynntu flér máli› á innkápu símaskrárinnar e›a á siminn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.