Morgunblaðið - 04.07.2002, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 29
söngvarar, og þetta er frábært fólk.
Mitt markmið hefur alltaf verið að
flytja tónlist sem kórinn hefur gam-
an af að syngja, en sem áheyrendur
hafa líka gaman af. Maður heyrir
stundum af frábærum kórum, sem
þó eiga sér ekki áheyrendahóp.
Bakgrunnur minn í tónlist er tví-
þættur. Ég söng í kór alveg frá
barnsaldri, og hins vegar var ég
djasspíanisti. Ég reyni að nýta mér
þessa tvo þætti í því sem ég geri í
kórstarfinu, bæði í eigin verkum og
Sönggleðin í fyrirrúmi
annarra. Djassinn og djass-
elementin lauma sér gjarnan
inn í tónlistina, án þess að hún
sé djass. Með þessu móti hefur
kórinn skapað sér þann stíl
sem hann er þekktur fyrir. Í
nýja verkinu sem við frum-
flytjum í Langholtskirkju í
kvöld er þessi stíll mjög áber-
andi.“
John Høybye segir að fyrir
20–30 árum, þegar hann var
enn í djassinum, hafi það ekki
þótt par fínt að blanda þeirri
tónlist inn í aldagamla kór-
söngshefð. „Í dag er þetta þó
úr sögunni og tónskáld nýta
sér þann efnivið sem þau vilja í
tónlist sína, – hvort sem það er
djass, þjóðleg tónlist eða annað, –
aðalatriðið er að tónlistin sé góð.
Við erum ekki háklassískur kór,
eins og til dæmis danski Útvarps-
kórinn sem er mjög fær í sínu fagi.
Við höfum skapað okkur ákveðna
sérstöðu með okkar stíl, og það á
sinn þátt í því hvað við erum vinsæl.
Af tvennu vel ég frekar í kórinn
músíkalskt fólk með náttúrulegar
raddir og sönggleði en fólk með
skólaðar raddir sem hefur ekki í sér
músík eða sönggleði.“
ÞRÍR kórar, frá Danmörku,
Íslandi og Færeyjum, koma
fram á tónleikum í Lang-
holtskirkju í kvöld kl. 20. Þeir
eru Tritonus undir stjórn
Johns Høybye, Kór Lang-
holtskirkju undir stjórn Jóns
Stefánssonar og Skýrák und-
ir stjórn Kára Bæk.
John Høybye er einn af
virtustu kórstjórum og kór-
tónskáldum Norðurlandanna.
Hann stofnaði kór sinn Trito-
nus árið 1971 og í haust held-
ur kórinn upp á þrjátíu ára
söngafmæli sitt. Kórinn er
einn af þekktustu og víðförl-
ustu kórum Danmerkur;
syngur allar tegundir kór-
tónlistar og hefur frumflutt
mörg ný verk. Þar skipa verk
stjórnandans sjálfs stóran sess.
Tritonus hefur unnið til fjölda verð-
launa á alþjóðlegum vettvangi, með-
al annars fyrstu verðlaun í stóru
kórakeppninni í Búdapest 1995.
John Høybye segir kór sinn Trito-
nus fyrst og fremst áhugamanna-
kór. „Flestir kórfélagarnir tengjast
þó tónlist á einhvern hátt, eru tón-
listarkennarar eða hljóðfæra-
leikarar, en ekki hámenntaðir
Morgunblaðið/Þorkell
John Høybye kórstjóri.
Útsalan
byrjar í dag
Aðeins 4 verð
1.900
2.900
3.900
4.900
Kringlunni sími 588 4848