Morgunblaðið - 04.07.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 04.07.2002, Síða 40
UMRÆÐAN 40 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ F átt er hollara þeim sem þekkir eigin stað en að fara á annan. Ef ein- staklingurinn þekk- ir heimastaðinn, og fer á flakk, getur hann flutt heim með sér nýja þekkingu. Hann gerir ósjálfrátt samanburð á því sem hann sér og því sem hann þekk- ir, og fær um leið annað sjón- arhorn á heimkynni sín. Júlí er ferðamánuður, og margir á faraldsfæti, en hver er hugmyndin? Ég ákvað að hugsa um það eftir að hafa lesið stutt- an pistil um efnið í bókinni The Meaning of Things eftir A.C. Grayling (Weidenfeld & Nicolson, London, 2001). Það er sitt- hvað að vera ferðamaður og túristi. Ferða- maðurinn er virkur; hann ferðast til að öðlast reynslu, til að læra og skilja eitthvað annað en hann þekkir. Hann býst við að lenda jafnvel í vandræðum og hann langar til að takast á við þau. Hann vonast jafnvel til að ferðalagið breyti honum og að það hafi áhrif á skoðanir hans. Stundum gerir hann jafn- vel sjálfum sér erfitt fyrir og neitar að fara styttri leiðina sem stendur óþægilega oft til boða. Túristinn er hins vegar óvirk- ur; hann býst við þjónustu og að vera borinn um svæðið, fyllt- ur af skemmtiatriðum, og verndaður frá óþægindum. Hann býst við að hlutirnir komi til hans, og hann lendir aðeins í fyrirfram ákveðnum ævintýrum, skipulögðum og síendurteknum af öðrum. Gott fyrir dauð- þreytta úr erli dagsins. Galdurinn við ferðalög er að horfa ferskum augum á það sem fyrir ber, og slíta af sér viðjar vanans. Mistökin eru að skjóta nýju reynslunni inn í eitthvert fyrirfram mótað hólf heilans og afgreiða hana þar. Það er held- ur rart að ferðast um heiminn með bundið fyrir skynfærin fimm. Ein ferðaspurning er um hvort betra sé að ferðast ein/n eða með ferðafélaga, en þetta er mjög umdeilt atriði. Kenn- ingin um að betra sé að vera ein/n, þótt það sé eflaust ekki eins skemmtilegt, felst í því að raunin sé meiri og einbeitingin betri. Gott sé að vera ein/n með sjálfum sér og þroskandi að takast á við það að bjarga sér upp á eigin spýtur. Ekki sé hægt að flýja á náðir vinar síns eða varpa ábyrgðinni yfir á hann. Það getur því verið hollt að ferðast ein/n, en ég hallast fremur að hinni kenningunni, a.m.k. ef ferðafélaginn er góður. Það er bæði ánægjulegra, og svo sjá augu betur en auga. Ferðafélaginn tekur oft eftir ýmsu sem annars liði hjá og glataðist. Einnig er mögulegt að hefja umræður um óljós atriði sem fyrir augu bregður og fá nýjar hugmyndir. Segjum að ferðalangar bregði sér á listasafn í útlöndum. Þeir geta skoðað verkin saman og pælt í þeim, dottið ótrúlegustu hlutir í hug og fengið undarleg- ustu niðurstöður. Þannig getur allt þeirra ferðalag verið; skemmtilegt, þeir geta hugsað saman. Vissulega getur verið ágætt að vera stundum bara óbreyttur túristi á leið í þriðja sinn á sama stað, túristi sem býst við að sér verði skemmt eins og óteljandi öðrum á undan honum eftir uppskrift. Það er að minnsta kosti betra heldur en að láta sér leiðast heima, og hann getur a.m.k. gert tilraun til að stilla augun fersk. Endr- um og eins er þó ef til vill þess virði að leggja það á sig að vera ferðamaður sem lætur það ekki hafa of mikil áhrif á sig þótt hann lendi í einhverjum raun- um. Ferðamaðurinn flytur heim- kynni sín með sér hvert sem hann fer; umhverfið, og fólkið sem hann hefur bundist í lífi sínu frá barnæsku. Ef ferðalag- ið heppnast skilur hann bæði heiminn betur, uppruna sinn, og einnig sjálfan sig. En stóuspek- ingurinn Seneka (2. f.Kr–65. e.Kr.) sagði að það væri sama hversu langt að heiman ein- staklingurinn færi, og það væri sama hversu lengi hann ferðað- ist um heiminn, hann myndi æv- inlega að leiðarlokum mæta sjálfum sér. Nútíma ferðamaður hefur oft áhuga á að læra eitthvað um lífsbaráttu fyrri kynslóða og sjá merkin um það í formi húsa í bæjum og tófta í náttúrunni, ef einhver hefur haft vit á því að viðhalda og endurbyggja minj- ar. Ferðamaðurinn vill líka oft- ast fá að sjá lífið í hverju landi eins og það er, þótt hann viti að hann muni einungis skynja brot af því. Ef hann telur sig geta skrifað greinar og bækur um einhverja borg eða land eftir viku- eða mánaðarferð, þá hefur hann misskilið eitthvað. Þetta gerðu aftur á móti stundum ferðamenn fyrri alda sem skrifuðu m.a. magnaðar lýsingar um Ísland. Þessir ferðamenn sáu bæði skrímsli og undarlegt fólk. Þeir áttu ekkert hólf í heilanum til að stinga reynslunni í og bjuggu til nýtt hólf fyrir skrítilegheitin. Að lokum má nefna sökn- uðinn sem ferðamenn finna á ferðum sínum, eða þegar þeir finna hvað það er sem þeir sakna og elska en vilja ekki missa. Ferðalög geta því hreinsað hugann og opinberað ferðalang- inum hvað það er sem skiptir máli; hvað er mikils virði og hvað ekki. Ferðalög geta verið til að endurmeta, til að fagna, til að hvílast, til að læra, til að gleyma eða til að rifja upp, til að flýja eða bara til að stilla hugann og búa sig undir næsta áfanga í annasömu lífi. Ferð túristans Stóuspekingurinn Seneka sagði að það væri sama hversu langt að heiman ein- staklingurinn færi, og það væri sama hversu lengi hann ferðaðist um heim- inn, hann myndi ævinlega að leið- arlokum mæta sjálfum sér. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is STJÓRNENDUR Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hafa und- anfarna daga hvað eftir annað talað um fram- tak hinna fimm stofn- fjáreigenda í SPRON og samning þeirra við Búnaðarbankann sem „fjandsamlega yfir- töku“ á SPRON. Af þessu tilefni hljóta menn að spyrja: Hverjum er yfirtakan fjandsamleg? Ekki er hún fjand- samleg stofnfjáreig- endum sparisjóðsins, þar sem gert er ráð fyrir að þeir fái fyrir stofnfjárhluti sína fjórfalt það verð, sem stjórn SPRON hafði ætlað þeim. Þar að auki fela fyrirætlanir fimmmenn- inganna það í sér að samið verði við stofnfjáreigendurna um málið. Það er vissulega eins vinsamleg aðgerð og hugsast getur að semja við mann um hagsmunamál hans. Aðgerðin er heldur ekki fjand- samleg starfsmönnum spari- sjóðsins, enda sérstaklega kveðið á um að gætt skuli hagsmuna þeirra í samningnum við Búnaðarbank- ann. Það blasir því við hvað stjórn- endur sparisjóðsins meina, þegar þeir segja aðgerðina fjandsamlega. Þeir telja hana fjandsam- lega sjálfum sér. Og svo mikið er þeim niðri fyrir að þeir virðast ekki mega til þess hugsa að stofn- fjáreigendur fái hærra verð en fram- reiknað nafnverð fyrir stofnfé sitt. Þetta er skrítið. Stofnfjáreigendur kjósa stjórnina. Stjórnin starfar því í umboði þeirra. Hún hlýtur umfram allt að eiga að gæta hagsmuna þessara félagsmanna í sparisjóðnum á sama hátt og stjórnum í öðrum félögum ber að gæta hagsmuna félagsmannanna sem kjósa þær. Geri hún þetta ekki verður hún auðvitað sett af. Hvers vegna telur stjórnin að- gerðina fjandsamlega sér? Það er vegna þess að þá fá stjórnarmenn- irnir ekki lengur að ráðskast með eigið fé sparisjóðsins eins og það sé þeirra eigið fé. Það er hlálegt, svo ekki sé meira sagt, að horfa á Guðmund Hauksson sparisjóðs- stjóra setja geislabaug um höfuð sér, þegar hann talar um þann göf- uga tilgang með sparisjóðsfénu, sem honum einum og stjórnar- mönnunum sé treystandi fyrir. Þetta er sami maðurinn og hefur setið sem stjórnarformaður í Kaupþingi hf. á grundvelli hluta- fjáreignar SPRON í því fyrirtæki. Ekki er nein ástæða til að halla orðinu mikið á Kaupþing hf. og starfsemi þess undanfarin ár í fjármálalífi á Íslandi. Óhætt er þó að segja að Kaupþing hf. er ekkert skátafélag. Hörð viðskiptasjónar- mið hafa ráðið þar ríkjum eins og alþjóð er kunnugt. Sú starfsemi hefur verið rekin undir stjórn stjórnarformannsins Guðmundar Haukssonar. Framganga stjórnar SPRON í þessu máli hefur verið henni til minnkunar. Þar sitja menn, sem hika ekki við að ganga gegn aug- ljósum hagsmunum umbjóðenda sinna, stofnfjáreigendanna, til að geta sjálfir persónulega nýtt valdastöðu sem fylgir miklum pen- ingum. Fjandsamleg hverjum? SPRON Framganga stjórnar SPRON í þessu máli, segir Davíð Ólafur Ingi- marsson, hefur verið henni til minnkunar. Höfundur er stofnfjáreigandi í SPRON. Davíð Ólafur Ingimarsson STJÓRN Byggða- stofnunar ákvað á fundi sínum í Bolung- arvík hinn 20. júní sl. að eignast allmarga senda sem stofnunin á veð í og beita sér fyrir því að stækka útsend- ingarsvæði sjónvarps- stöðva um lands- byggðina. Þrjár stöðvar hafa snúið sér til stofnunarinnar með ósk um atbeina hennar í þessu skyni. Það eru Norðurljós vegna út- sendinga Sýnar, Ís- lenska sjónvarpsfélag- ið vegna Skjás eins og Aksjón á Akureyri. Stjórnin sam- þykkti að fela starfsmönnum að undirbúa tillögur um uppsetningu þeirra á stöðum í dreifbýlinu í sam- ráði við þessi þrjú fyrirtæki og aðra aðila sem kunna að gefa sig fram. Tildrögin eru þau að Byggða- stofnun veitti fyrir nokkru fyrir- tæki lán til þess að koma upp dreifikerfi fyrir starfsemi sína, en það gekk ekki eftir og fyrirtækið hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Ákvörðun stjórnar Byggðastofnun- ar nú lýtur að því að ganga að veði stofnunarinnar fyrir láninu, sem eru sendarnir, og nýta þá til þess að auka fjölbreytni þjónustu á þessu sviði á landsbyggðinni. Ekki er ætlunin að stofnunin eigi eða standi að rekstri dreifikerfis, ann- aðhvort verða sendarnir seldir við- komandi fyrirtæki eða lagðir fram sem hlutafé í því. Minna má á að fyrir nokkrum ár- um ákvað stjórn Byggðastofnunar að kaupa svonefnda byggðabrú og láta koma henni upp. Það var for- senda þess að hægt var að nýta Netið til þess að halda fundi á mörgum stöðum í senn og taka upp fjarkennslu m.a. á háskólastigi. Þarna sýndu stjórnmálamenn frumkvæði þegar aðrir héldu að sér höndum. Íbúar margra staða á lands- byggðinni hafa óskað eftir bættri þjónustu á þessu sviði, t.d. er mjög óskað eftir aðgangi að útsendingum Sýnar af íþróttaáhugamönnum. Fyrirtækið bendir hins vegar á að vegna fámennis sé ekki lík- legt að tekjur standi undir stofnkostnaði og rekstri dreifikerfisins. Þetta á við um fjöl- marga fámenna staði um land allt. Þá er spurningin þessi: eiga markaðs- lögmálin ein að ráða eða á hið opinbera að koma að málinu og stuðla að nauðsynlegri uppbyggingu? Þessari spurningu er greini- lega svarað í forystu- grein Mbl. sl. sunnu- dag á þann veg að það sé óeðlilegt og Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri gerir slíkt hið sama, svo furðulegt sem það nú er af hálfu yf- irmanns ríkisstofnunar sem hefur byggt upp sitt dreifikerfi fyrir op- inbert fé og lögbundið afnotagjald. Þarna er stjórn Byggðastofnunar algerlega ósammála þessum tveim- ur aðilum. Það er líka hlutverk stofnunarinnar að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á lands- byggðinni skv. lögum um Byggða- stofnun. Sem dæmi um þátt stofn- unarinnar í uppbyggingu byggðar má nefna að á síðasta ári var Við- skiptaháskólanum á Bifröst veitt ábyrgð fyrir lánum til þess að reisa skólahúsnæði, sem gerir skólanum kleift að auka framboð af námsefni og fjölga verulega nemendum við skólann. Það styrkir byggðina. Með sama hætti er það talið styrkja byggð að auka þjónustustig á ýms- um sviðum, meðal annars í afþrey- ingu, íbúar á fámennum stöðum landsins eiga rétt á því að hið op- inbera beiti sér í þessu skyni. Það er svo sem ekkert einsdæmi, ríkið styrkir áætlunarflug um land- ið t.d. til Hafnar í Hornafirði og Morgunblaðið nýtir sér þjónustuna sem þannig er unnt að veita og dreifir blaði sínu austur með flugi Flugleiða. Leiða má rök að því að með þessu sé dreifingin niður- greidd úr ríkissjóði og ef ekki kæmi til niðurgreiðslu verði viðskiptavin- ir blaðsins að greiða hærra verð eða fá lakari þjónustu. Dreifikerfi RÚV væri ekki svo víðfeðmt sem raun ber vitni nema vegna þess að ríkið hefur greitt fyrir óarðbæra hluta þess. Ríkið styrkir byggingu íþrótta- húsa og sundlauga um landið, eink- um í fámennum byggðarlögum í því skyni að auka þjónustu við íbúana á viðkomandi stöðum. Ríkið styrkir rekstur óperuhúsa og leikhúsa í miklum mæli og ekki er spurt hvort þeir sem kaupa þessa þjónustu eigi ekki einir að standa undir kostn- aðinum. Þvert á móti er talið sjálf- sagt að skattgreiðendur borgi brús- ann að miklu leyti. Nú hefur verið ákveðið að ríkið leggi fram marga milljarða króna til þess að byggja tónlistarhús í Reykjavík, sem þýðir einfaldlega að starfsemin geti ekki staðið undir stofnkostnaði. Öll þessi dæmi sýna að almenn samstaða er um að beita opinberu fé til þess að bæta þjónustu við íbúana, stundum svæðisbundið og stundum bundið við ákveðna áhugahópa. Ákvörðun stjórnar Byggðastofn- unar um að beita sér fyrir upp- byggingu dreifikerfis fyrir sjón- varpsefni er í samræmi við almenn viðhorf landsmanna og í fullu sam- ræmi við hlutverk stofnunarinnar. Það eru ekki aðeins íbúar dreif- býlisins sem njóta góðs af ákvörð- uninni heldur einnig íbúar höfuð- borgarsvæðisins þegar þeir ferðast út á land. Spurningin sem undrandi ferðamenn bera fram er hvers vegna dreifikerfi RÚV er víða svo lélegt sem raun ber vitni, hvers vegna dreifikerfi GSM-símans um landið er mjög takmarkað hjá fyr- irtæki í eigu þjóðarinnar sem græð- ir á tá og fingri og hvers vegna dreifing á efni sjónvarps og útvarps er ekki víðtækari en raun ber vitni. Þetta er í raun spurning um póli- tískan vilja og annað ekki. Það þarf póli- tískan vilja Kristinn H. Gunnarsson Þjónusta Almenn samstaða er um, segir Kristinn H. Gunnarsson, að beita opinberu fé til þess að bæta þjónustu við íbúana. Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.