Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 54
FRÉTTIR
54 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12.
Lára Bryndís Eggertsdóttir leikur á orgel.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu-
bergi kl. 10.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka
deginum í kyrrð kirkjunnar og ber þar fram
áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum má
koma til presta kirkjunnar og djákna.
Hressing í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–15.
Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi for-
eldra með ung börn að koma saman og
eiga skemmtilega samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í safnaðarheimili eftir stundina.
Krossinn verður með samkomu í Egils-
staðakirkju föstudaginn 5. júlí kl. 20.30.
Gunnar Þorsteinsson mun prédika og
sönghópur Krossins flytur tónlist. Allir eru
velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
Safnaðarstarf
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Glæsibæ, fimmtudaginn 20.
júní sl. 16 pör. Meðalskor 168 stig.
Árangur N-S:
Sæmundur Björnss. – Oliver Kristóf. 196
Alfreð Kristjánsson – Halla Ólafsd. 184
Gunnar Helgason – Stefán Gunnarss. 178
Árangur A-V:
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnss. 212
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 203
Magnús Oddss. – Magnús Halldórss. 178
Tvímenningskeppni var spiluð
mánudaginn 24. júní. 19 pör. Með-
alskor 216 stig.
Árangur N-S:
Eysteinn Einarss. – Viggó Nordquist 246
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 243
Alda Hansen – Jón Lárusson 240
Árangur A-V:
Þorsteinn Sveinss. – Kristján Jónss. 254
Oddur Halldórss. – Ragnar Björnss. 243
Elín Jónsdóttir – Soffía Theódórsd. 242
Tvímenningskeppni var spiluð
fimmtud. 27. júní. 17 pör. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Sæmundur Björnss. – Rafn Kristjánss. 261
Eysteinn Einarss. – Viggó Nordquist 252
Haukur Guðmundss. – Gunnar Hersir 230
Árangur A-V:
Ólafur Ingvarss. – Birgir Sigurðss. 258
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 250
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnss. 235
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
ÚTILEGUMENN – áhugamenn
um félagslíf óvirkra alkóhólista, vina
og vandamanna þeirra, standa fyrir
útilegu um næstu helgi, dagana 5. til
7. júlí, í Galtalæk. Útilegumenn
stóðu fyrir viðlíkri útilegu fyrir
réttu ári og var þátttaka þá mjög
góð eða um 500 manns. Fjölbreytt
dagskrá verður þessa daga, á föstu-
dag verður t.a.m. spiluð félagsvist
og haldin brandarakeppni.
„Á laugardag byrjar dagurinn á
jóga og með AA-fundi og eftir há-
degi verður barna- og fjöl-
skylduprógramm. Í eftirmiðdaginn
verður boðið upp á súpu að hætti
Sólveigar hjá Grænum kosti. Um
kvöldið verður kvöldvaka, brenna
og að lokum stiginn dans. Á sunnu-
dag verður gengið um svæðið undir
leiðsögn og haldinn AA-fundur.
Rík áhersla er lögð á að hver og
einn leggi sitt af mörkum til að
skemmta sér og sínum. Enginn að-
gangseyrir er að útilegunni annar
en að á tjaldstæði kostar 1.000 kr.
fyrir 14 ára og eldri. Sjálfsagt er
óþarfi að taka fram að neysla áfeng-
is eða annarra vímuefni verður ekki
liðin á svæðinu,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Vímuefnalaus
útilega
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Þriðjudaginn 2. júlí mættu 10 pör í
Sumarbridge BA og fimm af þeim
voru með í verðlaunapotti. Þetta var
hörð barátta en lokastaðan varð
þessi (skor í %):
Stefán Stefánsson – Guðjón Sigurjónss. 58,8
Reynir Helgason – Pétur Guðjónsson 56,0
Frímann Stefánsson – Björn Þorlákss. 52,8
Jón Sverrisson – Hermann Huijbens 51,9
Verðlaunapottinn hrepptu Stefán
og Guðjón og voru vel að honum
komnir. Nú er að vona að þeir eyði
þessu ekki öllu í vitleysu.
Spilað er á þriðjudögum í sumar í
Hamri, félagsheimili Þórs, kl. 19.30.
Allir eru velkomnir og ekkert mál er
að mæta stakur.
SJÖTTA skógarganga sumarsins á
vegum skógræktarfélaganna í
fræðslusamstarfi þeirra við Búnað-
arbanka Íslands verður fimmtudags-
kvöldið 4. júlí kl. 20.00.
Þetta er afmælisganga í tilefni af
því að 30 ár eru liðin frá því að jörðin
Fossá, í Kjós í Hvalfirði, komst í eigu
Skógræktarfélaga Kópavogs og
Kjósarsýslu og trjáplöntun var hafin
á jörðinni.
Í þessari göngu verður sögð saga
Fossár, gengið eftir skógarstígum,
skoðaðar fyrstu gróðursetningarnar,
nýr jólatrjáaakur og fleira sem fyrir
augun ber.
Eftir göngu verður boðið upp á
veitingar.
Göngustjóri verður Bragi Mich-
aelsson. Skógfræðingar verða einnig
með í för og fræða þátttakendur.
Lagt verður af stað frá Fossárbæn-
um kl. 20.00.
Jörðin Fossá stendur við þjóðveg-
inn um Hvalfjörð. Flaggað verður
við Fossá á göngudaginn svo auð-
veldara verði að finna staðinn.
Einnig verður boðið upp á rútu-
ferð frá Mörkinni 6, húsi Ferða-
félags Íslands. Rútan fer af stað kl.
19.00. Fargjald í rútu er kr. 800.
Allt áhugafólk um útivist og rækt-
un er hvatt til þess að mæta og eiga
ánægjulega kvöldstund.
6. skógar-
ganga skóg-
ræktarfélag-
anna að Fossá