Morgunblaðið - 04.07.2002, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 55
Í FJÓRÐU fimmtudagsgöngu sum-
arsins verður gengið á Arnarfell sem
er rúmlega 200 metra hár móbergs-
hryggur við norðaustanvert Þing-
vallavatn. Leiðsögumaður í göng-
unni verður Orri Páll Jóhannsson
landvörður. Í gönguferðinni verður
sagt frá búsetusögu eyðibýlsins við
Arnarfell, en jörðin var ávallt í eigu
Þingvallakirkju.
Í Arnarfelli hefur byggð verið
stopul en talið er að þar hafi verið sel
frá Þingvallabæ, en Arnarfell er með
betri veiðijörðum við vatnið. Á 20.
öldinni var reynt að rækta hreindýr
á fjallinu og um tíma lifðu þar nokkur
dýr. Síðan 1998 hefur jörðin verið í
eigu og umsjón þjóðgarðsins á Þing-
völlum. Þar stendur íbúðarhús sem
komið er í eyði, fjós og hlaða, byggt
um 1940. Útsýni af Arnafelli er gott,
ef veður leyfir sést þaðan allt norður
til Esju, austur í Þórisjökul og niður
á Suðurlandsundirlendið. Í göngunni
upp á Arnarfell verður sagt frá Þing-
vallavatni og þjóðgarðinum og flestu
því sem blasir við á leið upp á fellið,
segir í fréttatilkynningu.
Safnast verður saman fyrir fram-
an þjónustumiðstöðina á Þingvöllum
klukkan 19:45. Frá þjónustumiðstöð-
inni verður keyrt upp að Arnarfelli
þar sem gangan hefst. Gangan tekur
um þrjá tíma og hentar jafnt stálp-
uðum börnum sem fullorðnum.
Nauðsynlegt er að vera vel skóaður.
Þátttaka er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Gengið á Arnarfell
MENNNINGARGANGA um Mos-
fellsdal verður í sumar á fimmtu-
dagskvöldum. Lagt verður af stað
frá Gljúfrasteini kl. 19.30, gengið
framhjá bernskuheimili Halldórs
Laxness og að Guddulaug. Eftir að
hafa neytt heilsudrykkjar úr
Guddulaug verður haldið í heim-
sókn á nýja vinnustofu Þóru Sig-
urþórsdóttur leirlistarkonu á
Hvirfli.
Þaðan verður skundað yfir Kýr-
gil, sem er hugsanlega felustaður
silfurs Egils, og áfram að Mosfelli,
segir í fréttatilkynningu.
Í bakaleiðinni verður komið við í
gömlum mógröfum og endað í veit-
ingaskálanum á Bakkakotsvelli þar
sem efnt verður til verðlaunaget-
raunar sem byggist á ævi og verk-
um Halldórs Laxness. Gangan tek-
ur um 2–2½ klst. Leiðsögumaður
er Bjarki Bjarnason. Verð kr. 900,
en afsláttur er fyrir hópa.
Menningarganga
um Mosfellsdal
„STEINAR úr sjó“ er yfirskrift sýn-
ingar sem myndhöggvarinn Örn
Þorsteinsson opnar að Lónkoti í
Skagafirði á laugardag, 6. júlí kl. 15.
Á sýningunni eru höggmyndir úr
steinum, en heiti sýningarinnar vísar
til þess að verkin eru unnin úr fjöru-
grjóti staðarins. Örn hefur unnið að
gerð verkanna frá því í vor, en þau
eru úr grágrýti., segir í fréttatil-
kynningu.
Þetta er 13. einkasýning Arnar og
er um að ræða útisýningu sem stend-
ur til ágústloka. Verkin eru til sölu.
Örn stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og Listahá-
skólann í Stokkhólmi á árunum
1966–’72.
Sýning á högg-
myndum í Lónkoti
LÖGREGLAN á Selfossi lýsir eftir
kerru sem stolið var við gatnamót
Suðurlandsvegar og Skeiðavegar 1.
júlí sl. Kerran er í eigu verktaka og í
henni voru umferðarmerki. Þeir sem
gætu gefið lögreglu upplýsingar um
þjófnaðinn eru beðnir að hafa sam-
band við lögregluna á Selfossi.
Kerru með
umferðar-
merkjum stolið
UM HELGINA verður margt á dag-
skrá á Hólum í Hjaltadal, sérstak-
lega fyrir áhugafólk um sögu og
menningu. En fyrir þá, sem ekki
hafa áhuga á að fræðast um fortíð-
ina, er upplagt að taka þátt í bleikju-
veiðikeppninni sem fram fer hvern
föstudag frá kl. 13–17. Leiðsögn um
staðinn er í boði, Vatnalífssýningin
er opin og alltaf eitthvað gott á borð-
um á veitingahúsinu Undir Byrð-
unni.
Í dag kl. 17 kynnir Ragnheiður
Traustadóttir fornleifafræðingur
fornleifarrannsóknir á Hólum og
gengur um minjasvæðið með gest-
um. Hún endurtekur gönguna kl. 11
á laugardag.
Fjölbreytt
dagskrá á Hólum
alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR