Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 1
190. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. ÁGÚST 2002
ÍSRAELSKI herinn hefur verið
harðlega gagnrýndur fyrir aðferðir
sínar í hernaðinum gegn Palest-
ínumönnum og er þeim jafnað við
stríðsglæpi. Tilefnið er, að í fyrra-
kvöld neyddu ísraelskir hermenn
palestínskan ungling til að fara að
húsi, sem þeir sátu um, og fá út
með sér mann, sem grunaður er
um hryðjuverk. Var unglingurinn
skotinn í aðgerðinni.
Ísraelsku hermennirnir sátu um
hús í þorpinu Tubas á Vesturbakk-
anum en þeir töldu, að þar væri að
finna Hamas-manninn Nasser Jer-
ar, sem sakaður hefur verið um
hermdarverk. Er hann eða var
fatlaður og í hjólastól.
Hermennirnir neyddu palest-
ínska unglinginn, Nidal Daragh-
meh, til að klæðast skotheldu
vesti, ógnuðu honum með byssum
og skipuðu að fara inn í húsið og fá
Jerar með sér út. Daraghmeh var
hins vegar skotinn áður en hann
komst inn og er ekki vitað hver
það gerði. Að því búnu jöfnuðu ísr-
aelsku hermennirnir húsið við
jörðu án þess að reyna að ná Jerar
út.
Í Ísrael hefur þetta framferði
verið harðlega gagnrýnt en ísr-
aelski ráðherrann Effie Eitam
segir, að herinn hafi notað þessa
aðferð, að hafa óbreytta, palest-
ínska borgara sér að skildi, árum
saman og kallar „nágrannaað-
ferðina“. Sagði ráðherrann, að að-
ferðin væri „mjög siðleg“ vegna
þess, að hún „drægi úr áhættu
hermannanna“.
Vissu ekki hvort
einhver var í húsinu
Yossi Sarid, einn helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Ísrael,
sagði í gær, að þetta framferði
væri líklega „stríðsglæpur“ og
undir það hafa mannréttindasam-
tökin B’Tselem tekið. Zehava Gal-
on, leiðtogi Meretz, vinstrisinnaðs
flokks, sagði, að um væri að ræða
„mafíuaðferðir“ og Emmanuel
Gross, kunnur lögfræðingur, sagði
þær brot á alþjóðalögum.
Komið hefur fram, að ísraelsku
hermennirnir töldu en vissu ekki
hvort Jerar var inni í húsinu og
þeir vissu ekki hvort þar væri ann-
að fólk þegar þeir brutu það niður.
Palestínumenn segja, að Ísrael-
ar beiti æ oftar þessari aðferð og
hafi stundum neytt óbreytta borg-
ara til að fara inn í hús, sem þeir
óttast, að sé sprengjugildra.
Ísraelskir hermenn skutu í gær
fimm ára palestínskan dreng í
þorpinu Khan Yunis á Gaza og
særðu föður hans og annan mann.
Kváðust hermennirnir hafa verið
að svara skothríð einhverra Pal-
estínumanna.
Aðferðum ísraelska hers-
ins jafnað við stríðsglæpi
Jerúsalem. AP.
Hermenn skýldu sér á bak við palest-
ínskan ungling sem var skotinn
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, hefur ákveðið að
loka fyrir aukalega fjárhagsað-
stoð við Egyptaland vegna dóms
yfir egypsk-bandaríska mannrétt-
indafrömuðinum Saad Eddin
Ibrahim.
Claire Buchan, talsmaður Hvíta
hússins, staðfesti fréttir þessa
efnis sem birtust í gær í Wash-
ington Post og Chicago Tribune.
Sagði hún að ákvörðunin breytti
engu um aðra aðstoð við Egypta,
sem nemur 170 milljörðum ísl. kr.
árlega, en Mubarak hefur farið
fram á 13 milljarða kr. að auki.
Ahmed Maher, utanríkisráð-
herra Egyptalands, sagði í gær að
Egyptar myndu ekki láta undan
þrýstingi af neinu tagi en ákvörð-
un Bush vekur athygli vegna þess
að Egyptar eru gamlir banda-
menn Bandaríkjamanna.
Ibrahim var dæmdur í sjö ára
fangelsi 29. júlí en honum var gef-
inn að sök fjárdráttur, að hafa
tekið við ólöglegum erlendum
framlögum, meðal annars frá
Evrópusambandinu, og að hafa
svert ímynd Egyptalands erlend-
is. Það hafi hann gert með því að
ýja að kosningasvindli í landinu
og ofsóknum gegn koptum eða
kristnu fólki.
Amnesty International hefur
mótmælt dóminum og einnig
John Gerhart, rektor Ameríska
háskólans í Kairó, en þar var
Ibrahim prófessor í félagsfræði.
Bush andvígur meiri
aðstoð við Egypta
Washington. AP, AFP.
ÞESSAR þrjár sænsku yngismeyjar
voru í gær að kæla sig í gosbrunni í
Stokkhólmi en þá fór hitinn þar í 31
gráðu á Celsíus. Ólíkt veðurfarinu
sunnar í Evrópu hafa miklir hitar
verið á Norðurlöndum í sumar og
þeir mestu í Svíþjóð frá því mæl-
ingar hófust 1860. Ef undan eru
skildar miklar rigningar í Suður-
Svíþjóð í júlílok hefur sumarið ver-
ið eitt hið þurrasta í áratugi og það
sama er að segja frá Noregi og
Danmörku. Óvenjulegir þurrkar
hafa líka verið í Færeyjum og þar
er nú víða farið að gæta vatns-
skorts. Í Finnlandi er einnig um
hitamet að ræða en þar hefur hitinn
verið um 30 gráður vikum saman.
Í sólinni í Svíþjóð
Reuters
út í ána frá efnaverksmiðju í Tékk-
landi. Tugþúsundir hermanna og
annarra björgunarmanna unnu að
því í gær að flytja burt fólk og bjarga
ómetanlegum listverkum frá
skemmdum en áætlað er, að tjón á
mannvirkjum og efnahagslegt tjón í
Þýskalandi einu nemi hundruðum
milljarða ísl. kr. Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalandi, hét í gær fyrstu
aðstoð við fórnarlömb flóðanna, rúm-
lega 30 milljörðum kr. Hefur Evr-
ópusambandið einnig heitið mikilli
hjálp.
Í Tékklandi og Austurríki hleypur
tjónið líka á hundruðum milljarða kr.
en þar virðist það versta vera afstað-
ið. Flóðin í Dóná halda enn áfram að
aukast er austar dregur og var mikill
viðbúnaður vegna þeirra í Búdapest,
höfuðborg Ungverjalands, og Brat-
islava, höfuðborg Slóvakíu.
FLÓÐIN í Saxelfi og Dóná voru í
gær þau mestu í meira en heila öld
og hafa þau valdið gífurlegu tjóni allt
frá Þýskalandi til Rúmeníu. Flóðin í
Moldá hafa hins vegar sjatnað nokk-
uð og í gær skein sólin á íbúa Prag-
borgar í fyrsta sinn í langan tíma.
Vegna flóðanna í Saxelfi hefur
orðið að flytja tugþúsundir manna
frá þorpum og bæjum við ána og í
Dresden eru margir borgarhlutar
undir vatni.
Í gær var vatnsborðið í ánni átta
metrum hærra en venjulega og spáð
var, að það færi í 8,5 metra í dag.
Nálgast það metið frá 1845, sem er
8,76 metrar.
Óttast var um tíma, eftir að stífla
brast, að bærinn Bitterfeld og efna-
verksmiðja, sem þar er, færu undir
vatn en úr þeirri hættu dró er á dag-
inn leið. Mikill klór barst hins vegar
Gífurlegt
tjón af völd-
um flóðanna
Dresden. AP, AFP.
UPPÞOT voru í Caracas, höf-
uðborg Venesúela, í fyrrakvöld og
fyrrinótt eftir að hæstiréttur lands-
ins sýknaði fjóra háttsetta herfor-
ingja en þeir voru þeir sakaðir um
að hafa átt þátt í skammvinnu
valdaráni í apríl síðastliðnum. Jafn-
gildir dómurinn því að ekki hafi
verið um neitt valdarán að ræða
þótt Hugo Chavez, forseti Vene-
súela, hafi verið í fangelsi í tvo
daga. Olli úrskurðurinn mikilli
reiði meðal stuðningsmanna forset-
ans, sem efndu til mikilla mótmæla
fyrir utan byggingu hæstaréttar í
höfuðborginni. Særðust tveir menn
er þjóðvarðliðið réðst til atlögu
gegn mótmælendum með táragasi
og gúmmíkúlum.
Mótmæli
í Caracas
Reuters