Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MAÐUR eins og ég, rómantísk
þroskasaga kvíðasjúklings, er
hugarfóstur leikstjórans Róberts
Douglas og Árna Óla Ásgeirssonar.
Róbert sló eftirminnilega í gegn með
mynd sinni Íslenska draumnum fyr-
ir tveimur árum og eru því margir
eflaust spenntir að fá að berja nýj-
ustu myndina augum. Sá draumur
getur ræst frá og með deginum í dag
í kvikmyndahúsum landsins.
Í Íslenska draumnum fór Jón
Gnarr með hlutverk Valla, hins mið-
ur upplífgandi vinar söguhetjunnar
Tóta. Í Maður eins og ég er annað
upp á teningnum. Þar bregður hann
sér í hlutverk Júlíusar, starfsmanns
hjá Íslandspósti, sem Jón lýsir sjálf-
ur sem „góðum kjánamanni“.
„Hann langar alltaf til að hlutirnir
gangi miklu betur en þeir gera.
Hann kaupir þessa blekkingu um að
allt eigi eftir að skána,“ segir Jón.
Þetta er fyrsta hlutverk Þorsteins
Guðmundssonar í kvikmynd en hann
er þó ekki óvanur fyrir framan lins-
una og þekkja margir hann í fé-
lagsskap Jóns og fleiri úr gaman-
þáttunum Fóstbræðrum. Þorsteinn
fer með hlutverk Arnars, besta vinar
Júlla.
„Við Júlli erum svona að vissu
leyti andstæður,“ segir Þorsteinn.
„Ég er kominn lengra í því að ná mér
í þetta hús, bíl og konu og hef
kannski aðeins jákvæðara lífsvið-
horf.“
„Já Steini er þessi týpa sem vill
gera öllum til geðs og reynir að fljóta
gegnum lífið og vera sammála öllum.
Það er mjög fyndið,“ segir Jón.
Aðspurðir segja þeir þá Arnar og
Júlla ekki byggða á raunverulegum
fyrirmyndum.
„Við ræddum við fólk og rifjuðum
upp ýmsa sem við höfum kynnst í
gegnum lífið og söfnuðum í hug-
myndabanka. Það eru því kannski
engar beinar fyrirmyndir að persón-
unum,“ segir Þorsteinn.
Hinir dæmigerðu
íslensku plebbar
Þeir Jón og Þorsteinn segjast ekki
hafa fundið fyrir væntingum eða
þrýstingi frá fólki um að Maður eins
og ég megi ekki gefa Íslenska
draumnum neitt eftir. Þeir segjast
heldur ekki hafa neinar áhyggjur af
því að erfitt verði að fylgja hinni eft-
ir.
„Ég hef eiginlega ekkert hugsað
út í það,“ segir Þorsteinn og Jón tek-
ur undir það.
„Ég held að þetta sé bara af hinu
góða. Fyrst fyrri myndin gekk svona
vel hlýtur fólk að koma á þessa,“
segir Þorsteinn.
„Annars er það er bara Róberts
vandamál held ég,“ segir Jón og þeir
Þorsteinn skella upp úr.
„En ég er búinn að sjá nánast alla
myndina og líst bara vel á hana,“
segir Þorsteinn.
„Já, þetta er alveg þokkaleg
mynd, mér fannst hún fín,“ samsinn-
ir Jón. „Mér fannst þetta eins og fá
niðurstöður úr læknisrannsókn. Ég
naut þess kannski ekki beint þegar
ég sá hana heldur var þetta eins og
að skoða röntgenmyndir af sjálfum
sér og komast að því að ekkert er
að.“
Þeir félagar eru sammála um að
myndin hafi verið öðruvísi en þeir
bjuggust við.
„Já allt öðruvísi,“ segir Jón. „Vægi
dramatíkurinnar kom mér á óvart.
Það var mun meira af henni en ég
bjóst við og mér fannst það mun
betra fyrir myndina.“
„Hún tapar því samt aldrei að hún
er gamanmynd,“ bætir Þorsteinn
við.
Sú skilgreining hefur loðað við
myndina að hún sé blanda af þjóð-
félagslýsingu og þjóðfélagsádeilu.
Eru þeir félagar sammála þeirri skil-
greiningu?
„Já ég er alveg sammála því,“ seg-
ir Jón. „Fólkið sem kemur fyrir í
henni er þessir dæmigerðu íslensku
plebbar. Þarna er líka tekið aðeins á
innflytjendamálum en það hefur
ekki mikið verið gert. Það var til
dæmis ekkert minnst á þetta mál í
Mávahlátri. Ekkert fjallað um það –
eins og það væri ekki til.“
„Það er mikil ádeila í myndinni en
fólk þarf ekki að taka það þannig.
Það geta allir haft gaman af henni,“
segir Þorsteinn.
Lummó á Hótel Esju
Í Maður eins og ég kynnist Júlíus
ungri konu frá Kína. Það er leik- og
söngkonan Stephanie Che sem fer
með hlutverk konunnar en hún er
frá Hong Kong. Myndin er tekin að
hluta til í heimalandi Che og segir
Jón það mikla upplifun að koma
þangað.
„Það var algerlega frábært,“ segir
hann upprifinn. Það var mjög gaman
að kynnast þessu landi og þessari
borg.“
Jón segir margt hafa komið sér á
óvart við dvölina í austri en hann hafi
sérstaklega furðað sig á hátterni
innfæddra þegar kom að því að
mæla sér mót við einhvern.
„Alltaf þegar átti að hittast ein-
hvers staðar urðu anddyri fínni hót-
elanna fyrir valinu. Stephanie gerði
þetta líka hérna og bað mig einhvern
tímann að hitta sig í anddyrinu á
Hótel Esju, sem mér fannst ferlega
lummó,“ segir Jón. „Þetta er vegna
þess að það er svo ótrúlega þettbýlt í
Hong Kong. Fólk býr í pínulitlum hí-
Kjánamaðurinn
og hálfvitinn
Kvikmyndin Maður eins og ég verður frum-
sýnd í kvöld. Þeir Jón Gnarr og Þorsteinn
Guðmundsson fara með burðarhlutverk í
myndinni og því hitti Birta Björnsdóttir þá
félaga yfir kaffibolla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þeir Þorsteinn og Jón mæla eindregið með hvor öðrum í Maður eins og ég.
Kvikmyndin Maður eins og ég frumsýnd í kvöld
Sýnd kl. 4. Vit 398
1/2
Kvikmyndir.is
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
Sýnd kl. 4 og 5. Ísl. tal. Vit 418
Ný sérstök útgáfa!
Nú í fyrsta sinn í
kvikmyndahúsum
með íslensku tali.
Kvikmyndir.is
SK Radíó X
Líkar þér illa við köngulær?
Þeim líkar ekkert vel við þig heldur!
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12. Bi. 14. Vit 417
Sýnd kl. 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 12. Vit 422
Sýn
d á
klu
kku
tím
afr
est
i
Frumsýning
Maður eins og ég er rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum.
Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn.
www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 5.20.
Með íslensku tali.Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Kvikmyndir.is
DV
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
27 þúsund áhorfendur
Hvað myndir þú gera ef
þú gætir stöðvað tímann?
Sýnd kl. 6 og 8.
DV
Mbl
RadíóX
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.20. B. i. 16.
DV
HL. MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10. B. i. 12.
Frumsýning
Ben affleck Morgan Freeman
Vegna fjölda áskoranna
verður myndin sýnd áfram í örfáa daga
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 7.
Hluti af ágóða myndarinnar
rennur til Hjálparstofnunnar Kirkjunnar.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6.
Með íslensku tali.Sýnd kl. 8 og 10.05.
Frumsýning
27.000 kjarnorkusprengjur
Einnar er saknað
Maður eins og ég er rómantísk gamanmynd úr raunveru-
leikanum. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn.