Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 29 Náðu tökum á tölvunni Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is Rafiðnaðarskólinn hefur mikla reynslu af almennri tölvukennslu. Hjá okkur starfa vel menntaðir og hæfir kennarar með reynslu úr íslensku atvinnulífi. Reynsla okkar sýnir að tveggja til þriggja mánaða tölvunám er ein áhrifaríkasta leiðin til þess að ná tökum á tölvunni. Rafiðnaðarskólinn hefur einn skóla á Íslandi hlotið vottun Microsoft sem tæknikennslusetur (CTEC). Við leggjum áherslu á þægilegt námsumhverfi og stuðning við nemendur. Á öllum tölvunámsbrautum fylgja vönduð kennslugögn. Rafiðnaðarskólinn býður einnig mikið úrval styttri tölvunámskeiða. Kynnið ykkur málið á www.raf.is T ö l v u - o g b ó k h a l d s n á m s a m h l i ð a s t a r f i Rafiðnaðarskólinn býður þrjár leiðir sniðnar að ólíkum þörfum. Boðið er upp á morgun-, dag- eða kvöldkennslu, staðbundið nám og fjarnám. Tölvunotkun 1, 2 og 3 Stuttar námsbrautir í þremur stigum þar sem farið er í almenna tölvunotkun og öll algengustu forritin. Hér geta bæði byrjendur sem lengra komnir fundið námsefni við sitt hæfi. Gagnlegt og hagnýtt nám fyrir þá sem ekki vilja skuldbinda sig í langt nám eða hafa lítinn tíma. Ekki er ætlast til heimavinnu. – 60 kennslustundir, hefst næst 23. september Tölvur og vinnuumhverfi 1 og 2 Ítarlegt og skemmtilegt nám fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennd er almenn tölvunotkun og notkun algengustu forritanna. Unnið er mikið af raunhæfum verkefnum. Þetta er nám fyrir þá sem vilja fá virkilega góða undirstöðu í tölvunotkun. Framhaldsnámið hentar þeim sem vilja bæta við þekkingu sína og ná mjög góðu valdi á Office-forritunum. Tvær afar vinsælar námsbrautir. Náminu lýkur með lokaverkefni. Einnig er boðið upp á stöðupróf í vélritun. – 120 kennslustundir, hefst 16. september Tölvu- og rekstrarnám Öflugt nám í bókhaldi og tölvunotkun. Hér lærir fólk mikið á skömmum tíma. Námið er krefjandi og skemmtilegt. Rafiðnaðarskólinn hefur boðið upp á Tölvu- og rekstarnám í 8 ár og er stoltur af árangrinum. Þetta nám er valkostur margra sem vilja skipta um starf eða eru í atvinnuleit. Hentar einnig þeim sem eru með eigin rekstur. Náminu lýkur með prófum og lokaverkefni. Stöðupróf í vélritun fyrir þá sem vilja. – 280 kennslustundir, hefst 2. september Fyrir þá sem vilja ná árangri Nánari upplýsingar í síma 568 5010 eða á www.raf.is Engin heimav inna Einnig í fjarná mi ÞEGAR Listasumar á Akureyri er hálfnað er ljóst að aldrei hafa jafn- mörg blóm lista fengið að njóta sín á þeim vettvangi, jafnt leiklist, mynd- list, bókmenntir og tónlist. Fyrir þá sem hafa viljað njóta blómskrúðans til fullnustu hafa vart kvöld og helgar dugað til. Eina blómið frá endurreisn- artímanum sem boðið hefur verið upp á var litskrúðugt og töfrandi, en virt- ist þó ekki ná að lokka með ilmi sínum áheyrendur að sem skyldi. Miðað við hve mikil aðsókn hefur verið á nánast alla listviðburði á Listasumri, sem skipta tugum, var aðsókn á þessa tónleika að sama skapi rýr og margir sem misstu af gullnu tækifæri. Ef til vill var kynningin ekki nægileg, eða að eitthvað sé til í orða- tiltækinu „það sem bóndinn þekkir ekki borðar hann ekki“. Á öldum áður kynntust menn vart tónlist sem eldri var en elstu menn mundu. En með rannsóknum og end- urskoðun gamallar tónlistar og túlk- unar hennar hafa tónlistarmenn veitt okkur lifandi sýn inn í gamla tíma og að hluta til gert okkur kleift að njóta hljómbliks þeirra og fært okkur til að meta og nærast. Endurreisnin færði manninn í önd- vegi og sviðið til að dansa á var lífið í því núi sem þá var. Elísabetartíminn með glæsilegum leikritum fæddi af sér „consort“ milliþáttatónlist, leikna á blokkflautur og strengjahljóðfæri sem gjarnan undirstrikaði gleðina eða sorgina eftir því sem við átti. Lengi vel var erfitt að ráða í þau nótnatákn sem varðveittust í handritum, hvern- ig þau höfðu verið túlkuð og hvernig þau áttu að hljóma. En með þrautseigju tónlistar- og tónvísindamanna, sem rýndu og skoð- uðu samtímalýsingar af hljóðfæra- smíði og leikaðferðum, ekki síst lýs- ingu á öllu því skrauti og hlaupum sem við átti að bæta, hefur tekist að færa tónlistina til þess lífs sem henni ber. Paul Leenbouts er einn þeirra blokkflautusnillinga sem hafa varið lífi sínu í að færa okkur þessi gömlu verðmæti og gert þau aðgengileg. Með lýsingum Jakobs van Eyck á smíði endurreisnarblokkflautunnar og Bassano á leikaðferðum og miklu fleiri heimildum hefur þetta blessast prýðisvel. Paul á tenór-, alt- og sópranblokk- flautur ásamt Gunnhildi á hörpuna tókst á sannfærandi og glæsilegan hátt að flytja verk ellefu tónskálda 16. og 17. aldar, hollenskra, ítalskra, enskra, þýskra og víðar, svo vel að maður naut stundarinnar til fullnustu og var hrifinn á gamlar slóðir, sem um leið urðu nýjar. Spuni og fantasíur hljóðfæraleikaranna voru ríkur þátt- ur í endurlifun tónlistarinnar, oft ekki fjarri djassspuna. Einleiksverkin voru hrífandi og hljóðfærin nutu sín vel í magnandi endurómi Ketilhúss- ins. Helst þótti mér á skorta að fá smáslagverk og málmgjöll í dönsun- um en ég hætti mér ekki út á svið sér- fræðinganna að öðru leyti. Ég vil svo að lokum hvetja þetta ágæta fólk til að láta ekki deigan síga og vekja fleiri eyru til að upplifa það sem ég fékk sem forréttindamaður á tónleikunum í Ketilhúsinu síðastliðið laugardags- kvöld. Endurreisnar- tónar TÓNLIST Listasumar á Akureyri Ketilhús Flytjendur: Paul Leenbouts á endurreisn- arblokkflautur og Gunnhildur Einarsdóttir á barokkhörpu. Á efnisskrá voru: Fant- asíur, kansónur og dansar eftir tónskáld frá 16. og 17. öld. Laugardagur 10. ágúst. LEGENDA AUREA Jón Hlöðver Áskelsson TÓNLISTARDAGAR Vestmanna- eyja fara fram dagana 17.–25. ágúst. Þar koma fram íslenskir og erlendir listamenn og nemendur þeirra frá Íslandi og Ítalíu. Dagskráin hefst kl. 17 í Höllinni á morgun, laugardag. Þar koma fram Áshildur Haraldsdóttir, Marçal Cervera, Arnaldur Arnarson og Nína Margrét Grímsdóttir. Leikin verða verk eftir Cassadó, Bellinati, Couperin, Ravel,Villa-Lobos, John Speight (frumflutningur á Íslandi), Castelnuovo-Tedesco og Pujolog Chaminade. Laugardaginn 24. ágúst kl. 16 verða tónleikar í sal Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Þar koma fram nemendur á Masterclass 2002. Hátíðartónleikar Tónlistardaga Vestmannaeyja verða í Höllinni sunnudaginn 25. ágúst kl. 13. Þar koma fram Áshildur Haraldsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Marçal Cerv- era, Arnaldur Arnarson, og Nína Margrét Grímsdóttir og úrval nem- enda Masterclass 2002. Á efnisskrá verða m.a. tónverk eftir Beethoven, Haydn og Weber. Hátíðinni lýkur með tónleikum um borð í Víkingi inni í Klettshelli laug- ardaginn 24. ágúst kl. 21. Tónlistardag- ar í Vest- mannaeyjum Nína Margrét Grímsdóttir Áshildur Haraldsdóttir Í SJÓMINJASAFNI Íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, opnar Rebekka Gunnarsdóttir sýningu á morgun, laugardag, á vatnslita- myndum og glerverkum sem hún hefur að mestu unnið á þessu ári. Aðalviðfangsefni myndanna er landslag, götumyndir og hús í Hafnarfirði en glerið er brætt og mótað í ýmsa hluti, svo sem skálar, myndir, lampa og skúlpt- úra. Rebekka Gunnarsdóttir hefur sótt myndlistarnámskeið hjá ýms- um listamönnum, m.a. Sigurði Þór, og glerbræðslu nam hún hjá Jón- asi Braga en að öðru leyti er hún sjálfmenntuð í list sinni. Þetta er 16. einkasýning Rebekku en hún hefur áður sýnt á ýmsum stöðum úti á landi, í Kaupmannahöfn og á vetrarhátíðinni Ljós í myrkri í Reykjavík. Sýningin stendur til 8. septem- ber og er opin alla daga frá kl. 13– 17 á sama tíma og safnið. Glerverk í Sjóminjasafninu Eitt vatnslitaverka Rebekku Gunnarsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.