Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 27 DANSLEIKHÚS með Ekka frum- sýnir í kvöld dansleikhúsverkið Eva³ í Tjarnarbíói. Verkið er unnið út frá leikritinu Garðveislu eftir Guðmund Steinsson og er þetta í fyrsta sinn sem Dansleikhús með Ekka nýtir sér ákveðið leikrit í verkum sínum. Höfundar dansleik- húsverksins eru Erna Ómarsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Margrét Sara Guðjónsdóttir, sem jafnframt dansa í verkinu, en þar leikur einn- ig Edda Arnljótsdóttir leikkona. Listrænn stjórnandi verksins er Aino Freyja Järvelä. „Við unnum verkið út frá Garðveislu eftir Guð- mund Steinsson, sem er leikrit sem fjallar um paradís og það hvernig við erum búin að eyðileggja hana. Við tókum fyrir sjónarhorn kon- unnar í leikritinu, Evu, en verkið fjallar upprunalega um Adam og Evu,“ segir Aino Freyja í samtali við Morgunblaðið. Verkið skiptist í þrjá hluta, sem hver um sig fjallar um ólík hlutverk Evu og konunnar. „Vinnuheitin fyr- ir hlutana þrjá eru kyntákn, eig- inkona og móðir. Í fyrsta þættinum er fjallað um sakleysið, forvitnina og freistingarnar, og í þeim þætti er aðallega dans. Í öðrum þættinum er fjallað um væntingar samfélagsins til konunnar og hvernig hún bregst við þeim, og í þriðja þættinum er fjallað um móðurina. Þar eigum við þó ekki við móðurina sem slíka, heldur meira í ætt við móður jörð og sköpunarkraftinn. Sá þáttur tek- ur á því hvernig við erum búin að stunda rányrkju og hvað við höfum gert við jörðina.“ Dansleikhús með Ekka var stofn- að árið 1996 og hefur allar götur síðan stefnt að þróun verka þar sem hreyfing og hið talaða orð hafa jafnt vægi. Liðin eru tvö ár síðan Ekka setti síðast upp sýningu, en það var Tilvist sem sýnt var haustið 2000. „Í þetta sinn langaði okkur að vinna út frá leikriti. Áður höfum við sett upp sýningar sem fjölluðu um ákveðið þema og fundum texta og tónlist hér og þar, en nú höfum við byggt sýninguna frá grunni á þessu leik- riti Guðmundar Steinssonar, sem við höfum aldrei gert áður,“ segir Aino Freyja. Hún segir Garðveislu henta ákaflega vel fyrir dansleik- hús. „Það er eitthvað svo mikil hreyfing í því,“ segir hún og hlær. „En í raun notum við ekki mikinn texta úr leikritinu í verkinu, þótt hann sé allur innblásinn af því.“ Tónlistin í verkinu er samin af hljómsveitinni Trabant, en Rebekka A. Ingimundardóttir er sviðs- og búningahönnuður, ljósahönnun er í höndum Alfreðs Sturlu Böðvarsson- ar og framkvæmdastjóri er Kolbrún Anna Björnsdóttir. „Tónlistin skip- ar mjög stóran sess í verkinu af því hún er næstum eins og sjálfstæður hluti þess. Hljómsveitin Trabant hefur unnið tónlistina samhliða þró- un verksins, ýmist hafa þeir samið tónlistina fyrst og við unnið út frá henni, eða þeir hafa fylgst með rennsli á tilbúnum atriðum og kom- ið með tónlistina eftir á. Það er óhætt að segja að hún sé mjög fjöl- breytt og skemmtileg og talsvert ólík því sem við höfum unnið með áður.“ Frumsýningin á Evu³ verður í kvöld kl. 20, en á morgun, Menning- arnótt, verður sýning kl. 16. Dag- ana 24., 25. og 30. ágúst verður Eva³ sýnd kl. 20. Sýningunni hefur verið boðið á X-Primo-danshátíðina í Malmö í september, en einnig er ráðgert að hún fari sem fulltrúi Ís- lands á listahátíðir í Brussel og Amsterdam síðar á þessu ári. Eva í þriðja veldi Morgunblaðið/Jim Smart Dansleikhúsverkið Eva³ verður frumsýnt í Tjarnarbíói kl. 20 í kvöld. Í LJÓSAFOLD Gall- erís Foldar við Rauð- arárstíg verður opnuð sölusýning á morgun kl. 14 á ljósmyndum Jóns Kaldals frá ár- unum 1925–1970. Myndirnar eru unnar af Guðmundi Ingólfs- syni ljósmyndara á fí- berpappír eftir frum- negatífum Jóns Kaldals. Jón Kaldal var einn af stofnfélögum Ljós- myndarafélags Ís- lands. Hann rak ljós- myndastofu í Reykjavík frá 1925- 1974. Eiginkona Kaldals og hans nánasti samstarfsmaður frá 1940 var Guðrún Kaldal. Sá hún meðal annars um að retúsera myndir hans. Kaldal tók þátt í ýmsum samsýningum víða um heim, allt frá Ant- werpen til Sao Paulo. Hann sýndi hins veg- ar aðeins einu sinni á Íslandi og var það ár- ið 1966 í Casa Nova, húsnæði Mennta- skólans í Reykjavík. Það var jafnframt í fyrsta skipti sem ein- staklingur hélt ljós- myndasýningu hér- lendis. Sýningin stendur til 7. sept- ember og er opin alla daga kl. 10–18, laug- ardaga til kl. 14 en á Menningarnótt, til kl. 24. Þá verður einnig opin sýning í Rauðu stofunni á gömlum fágæt- um ljósmyndavélum í eigu Bald- vins Einarssonar. Jón Kaldal 1896–1981 Ljósmyndir Jóns Kaldals í Fold Í BORGARNESKIRKJU verða tónleikar kl. 17.30 og gefur þar að heyra afrakstur söngnámskeiðs sem staðið hefur undanfarna daga undir yfirskriftinni „Blómlegt sönglíf í Borgarfirði“. Á tónleikunum koma fram tíu söngvarar ásamt píanóleik- ara. Söngvararnir hafa notið leið- sagnar þeirra Pauls Farringtons, söngkennara og raddráðgjafa við Covent Garden, og Clives Pollards píanóleikara, sem meðal annars starfar við Íslensku óperuna. Aðgangur er ókeypis. Söngtónleikar í Borgarneskirkju ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.