Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 51
DAGBÓK
hitablásarar
WESPER
Nú eru til afhendingar
einir bestu blásararnir á
markaðnum:
7kw, 10kw, 19kw/24kw
og 28kw/35kw
Pípurnar er úr
kopar - nikkel.
Miklu sterkari en eirinn.
Hljóðlátustu blásararnir
á markaðnum.
Verði mjög stillt í hóf.
40 ára reynsla.
WESPER UMBOÐIÐ.
SÓLHEIMUM 26, 104 REYKJAVÍK,
SÍMI 553 4932, GSM 898 9336,
FAX 581 4932.
Gallabuxur 20% afsl.
Peysur áður 4.990
nú 3.990
Bolir áður 2.490
nú 1.490
Skólabyrjun
Laugavegi 54, sími 552 5201
í Flash
Afsláttur
af öllum nýjum vörum
Ótrúlegt úrval
Nýtt kortatímabil
Haustvörurnar
komnar!
Innilegt þakklæti sendi ég öllum þeim, sem
heimsóttu mig og heiðruðu með gjöfum og
skeytum á afmælisdaginn minn 11. ágúst.
Guð blessi ykkur öll.
Georg Ormsson.
Nýkomið
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
mikið af
hnepptum peysum
kr. 2.900
LJÓÐABROT
Til Helgu
Ég ann þér að æfikveldi,
elsku Helga mín!
og hugsa oft um það hnugginn,
hver muni biðja þín.
Þú ert svo góð og gáfuð
og gasprar svo fínt við þá,
sem eru sífellt á veiðum
og sofa vilja hjá.
Oft ligg ég og læzt þá sofa,
er lágnættissólin skín,
en er þá reyndar að rugga mér hægt
og raula vers til þín.
Ég sef þarna einn á sóffa
og sef einsog annað fólk,
en ástin skvampast innaní mér
einsog spenvolg mjólk.
- - -
Þórbergur Þórðarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Rafmagnaður persónuleiki
afmælisbarns dagsins verk-
ar töfrandi á aðra. Það er til-
finningaríkt en dannað.
Óhrætt við að tjá sína mein-
ingu og er dáð fyrir vikið.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sannfæring þín gagnvart
stjórnmálum, trúar- eða
heimspekilegum málefnum
er sterk í dag. Það ásamt
því að þú vilt vinna hverja
kappræðu örvar keppnis-
skap þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Skattar, tryggingar eða
eignir sem þú deilir með
öðrum valda þér áhyggjum í
dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú ætlar þér að hafa vit
fyrir öðrum kanntu að rata í
harðar deilur í dag. Skiptu
þér ekki af öðrum og reyndu
ekki að bjarga heiminum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð snjalla hugmynd
um hvernig losa má vinnu-
staðinn við óþarfa og drasl.
Brýndu raustina og segðu
hvað þér finnst, því þú hefur
líklega rétt fyrir þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kröftugar tilfinningar
sækja á þig vegna ástarsam-
bands. Láttu það ekki á þig
fá og varastu að ofmeta þær
til lengri tíma litið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú lendir í átökum um eitt-
hvað heima fyrir í dag.
Reyndu ekki að troða öðrum
um tær eða sýna öfund því
það er ástæðulaust.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Greiningarfærni þín er með
besta móti í dag. Einbeit-
ingarkraftur þinn er og
meira en á meðaldegi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er vert að gefa gaum
hugmyndum um hvernig þú
getur aukið tekjur þínar.
Framkvæmdasemi þín er
mikil í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Komdu þér út og leggðu
eitthvað líkamlegt á þig í
dag. Það mun auka bæði á
andlega og líkamlega vellíð-
an.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leyndarmál úr fortíðinni
eða eitthvað sem þú vilt að
liggi áfram í láginni angrar
þig. Þú þarft ekkert að ótt-
ast, allir eiga sín leyndarmál
og fortíðin er að baki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Atlaga frá vini setur þig úr
jafnvægi í dag. Sýndu þó
umburðarlyndi því frekja og
hroki er orðið daglegt brauð
allt í kringum okkur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Storkaðu ekki yfirmanni
þínum í dag, deildu ekki við
hann, bíddu heldur í nokkra
daga að ræða málið ef þú
vilt fara öðruvísi að en hann
ætlast til.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VÖRNIN er viðfangsefni
dagsins. Spilið hér að neðan
kom upp á EM ungmenna í
síðasta mánuði og á flestum
borðum voru spilaðir fjórir
spaðar í suður, stundum
doblaðir:
Norður
♠ 9
♥ D108543
♦ G94
♣Á62
Vestur Austur
♠ Á ♠ 653
♥ K62 ♥ ÁG97
♦ ÁK82 ♦ 1076
♣K10753 ♣G94
Suður
♠ KDG108742
♥ –
♦ D53
♣D8
Með allar hendur uppi er
augljóst að AV eiga heimt-
ingu á fjórum slögum, en í
reynd getur verið erfitt að
ná í laufslaginn. Það eru
a.m.k. tvær leiðir til að
klúðra vörninni. Vestur
kemur út með tígulás og
austur vísar frá. Nú er
freistandi fyrir vestur að
skipta yfir í lauf, enda má
líta á frávísun í lit sem
óbeint kall í öðrum – eða all-
tént uppástungu um að spila
öðrum lit. Ef suður á Dx í
tígli og austur laufdrottn-
ingu getur verið nauðsyn-
legt að ráðast á laufið strax.
Sumir segja að austur eigi
að kalla í tígli til að koma í
veg fyrir að makker spili
laufi, en ekki geðjast öllum
að þeirri varnaraðferð. Önn-
ur hugsanleg leið framhjá
þessum vanda er að nota þá
útspilsreglu að kóngur út
gegn geimsamningi biðji um
talningu, en ekki kall/frávís-
un. Austur myndi sýna þrílit
í tígli í fyrsta slag og vestur
gæti þá óhræddur tekið á
tígulásinn og fengið leiðsögn
um framhaldið. Þetta er
dæmigerð staða fyrir hliðar-
kall – austur á tvo tígla eftir
og notar tækifærið til að
benda á litina til hliðar. Með
þessari aðferð gæti vörnin
þróast þannig: Tígulkóngur
og tían frá austri til að sýna
staka tölu. Tígulás og sjöan
frá austri til að vísa hjartað.
Þeir sem komust þetta
langt hnutu margir um
næstu hindrun. Vestur spil-
aði smáu hjarta og austur
fór upp með ásinn. Nú er
vestur einn um að valda
hjartað og lendir í kast-
þröng í lokastöðunni með
kóngana í hjarta og laufi!
Vörnin er erfið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 16.
ágúst, er áttræð Halldóra
Guðvarðardóttir, Hjarðar-
slóð 6f, Dalvík. Eiginmaður
hennar er Eysteinn Viggós-
son, vélstjóri. Afkomendur
hennar hafa haldið henni
veglega veislu og vill hún
senda öllum afkomendum
sínu kærar þakkir.
Halldóra verður að heim-
an í dag.
Ljósmynd/Ljósmyndarinn í Mjódd
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní sl. í Kópa-
vogskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni þau Hildur María
Kristbjörnsdóttir og Arn-
þór Þórðarson
1. d4 f5 2. Rc3 d5 3. Bg5 Rf6
4. Bxf6 exf6 5. e3 Be6 6. Bd3
Rc6 7. Rge2 Dd7 8. a3 O-
O-O 9. O-O Re7 10. b4 He8
11. Bb5 c6 12.
Bd3 Kb8 13.
Hb1 Ka8 14.
Ra4 b6 15. b5
Hb8 16. bxc6
Rxc6 17. Bb5
Bxa3 18. c4 Dd6
19. Rf4 Re7
Staðan kom
upp á skákhátíð-
inni í Olomouc
sem lauk fyrir
skömmu. Jan
Bernasek (2289)
hafði hvítt gegn
Tom Wiley
(2248). 20. c5!
bxc5 21. dxc5
De5 22. Dd3 og
svartur gafst upp enda er
maður fallinn í valinn. Borg-
arskákmótið hefst kl. 16.00 í
dag, 16. ágúst, í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Taflfélagið
Hellir og Taflfélag Reykja-
víkur standa fyrir mótinu og
er öllum heimil þátttaka en
umhugsunartími verður 7
mínútur á skák.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Þessir duglegu strákar söfnuðu 4.485 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands. Þeir heita Sverrir Torfason, Ragnarsson og
Tómas Ragnarsson.
Hlutavelta
Það eina sem gerðist
var að mamma Lísu
tók við gjöfunum, gaf
okkur hatta, og sendi
okkur svo heim aftur!
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt
Brúðargjafir
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Salsaskálar frá