Morgunblaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þrír erlendir leikmenn til liðs við ÍBV í
handbolta / C1
Fylkismenn bjartsýnir þrátt fyrir 1:1
jafntefli / C2
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Opinberun Meðaljóns og Gunnu/B1
Fimar í Flamenco/B2
Alheimsmál í túnfæti/B4
Hugvit á heimsvísu/B6
Geggjað að geta hneggjað/B6
Auðlesið efni/B8
Sérblöð í dag
Morg-
unblaðinu í
dag fylgir dag-
skrá Menning-
arnætur í
Reykjavík 17.
ágúst 2002.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
RÍKISÁBYRGÐ vegna stríðs- og hryðjuverka-
trygginga flugrekenda verður ekki framlengd en
samkomulag um tveggja mánaða framlengingu
ábyrgðarinnar rennur út um næstu mánaðamót.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, segir að tryggingarmöguleikar á hin-
um almenna markaði hafi opnast sem geri það að
verkum að íslensk stjórnvöld sjái ekki lengur rök
fyrir ábyrgðinni og þeirri áhættu sem henni fylgir.
Hann segir að það sé mat stjórnvalda að ekki sé
lengur nauðsyn að ríkið ábyrgist þessar tryggingar,
því tímabili sé lokið.
„Þegar ákvörðunin um ríkisábyrgðina var tekin á
sínum tíma, í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum, var það vegna þess að tryggingafélög voru
hætt að veita þær tryggingar sem kröfur voru gerð-
ar til að flugfélög hefðu, það er ábyrgðartryggingar
vegna hryðjuverka. Íslensk stjórnvöld, eins og
stjórnvöld í öðrum ríkjum, stóðu frammi fyrir því að
ef flugsamgöngur áttu ekki að stöðvast urðu þau að
grípa inn í og takast á hendur, beint eða með end-
urtryggingum, þær tryggingar sem flugfélögin
þurftu að hafa til þess að geta flogið,“ segir hann.
Ákvörðunin í takt við það sem
er að gerast í alþjóðaumhverfinu
Hann bendir á að allar götur síðan hafi þessi mál
verið í deiglunni en erfiðlega hafi gengið að finna
framtíðarlausn þeirra. Hann segir að ýmsar hug-
myndir hafi verið í gangi, til dæmis um sérstakt
tryggingarkerfi sem ríki styddi með einhverjum
hætti við bakið á. Hann bætir við að slíkar hug-
myndir séu ennþá til umræðu þótt þær hafi ekki
leitt til neinnar niðurstöðu.
„Í kringum okkur hafa stjórnvöld í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð jafnframt dregið sig til baka og
hætt að veita þessar tryggingar sem undirstrikar
það enn að það eru að opnast og hafa opnast mögu-
leikar fyrir flugfélögin til þess að fá þessar trygg-
ingar á almennum markaði,“ segir Baldur. Hann
telur því að afnám ríkisábyrgðarinnar eigi ekki að
valda neinum truflunum á flugsamgöngum.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug-
leiða, telur að afnám ríkisábyrgðar hafi í raun litla
þýðingu. Hann segir að það hafi stefnt í þá átt um
nokkurt skeið að tryggingaheimurinn og flugheim-
urinn næðu saman um þessar tryggingar. „Sú
ákvörðun stjórnvalda að falla frá þessari ríkis-
ábyrgð er í takt við það sem er að gerast í alþjóða-
umhverfinu. Við erum sátt við það og nú getum við
keypt þessa tryggingu á almennum trygginga-
markaði og munum gera það,“ segir hann og bætir
við að tryggingamál Flugleiða séu frágengin.
Guðjón leggur áherslu á að lítill munur sé á þeirri
þóknun sem Flugleiðir hafa greitt stjórnvöldum
fyrir þessa ábyrgð og verði þeirra trygginga sem
við taka.
Afnám ríkisábyrgðar vegna stríðs- og hryðjuverkatrygginga flugrekenda
Tryggingarmöguleikar á al-
mennum markaði hafa opnast
BJÖRN Bjarki Þorsteinsson, bæjar-
fulltrúi í Borgarbyggð, segir að
fulltrúar bæjarráðs ætli að óska eftir
fundi með Páli Péturssyni félags-
málaráðherra eftir helgi, til að fara
fram á að réttaráhrifum úrskurðar
félagsmálaráðuneytisins um nýjar
kosningar í Borgarbyggð verði frest-
að.
Í úrskurðinum ber bæjarstjórn
Borgarbyggðar að tilkynna ráðu-
neytinu um nýjan kjördag fyrir 30.
ágúst nk. og skulu kosningarnar fara
fram fyrir 25. nóvember nk.
Björn Bjarki segir í samtali við
Morgunblaðið að fulltrúar bæjarráðs
ætli að fara fram á að ekki verði boð-
að til kosninga fyrr en niðurstaða
liggi fyrir í dómsmáli því sem Óðinn
Sigþórsson, formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu, er að
undirbúa, en hann vill hnekkja fyrr-
greindum úrskurði félagsmálaráð-
herra. Björn Bjarki segir að dóms-
málið geti tekið allt að þrjá mánuði.
Eðlilegra sé að fá niðurstöðu úr því
máli fyrst áður en farið verði út í nýj-
ar kosningar.
Fundur í bæjarráði Borgarbyggð-
ar var haldinn í gærmorgun og var
úrskurður félagsmálaráðherra m.a.
ræddur. Var síðan lögð fram bókun,
meirihlutans í Borgarbyggð, en
minnihlutinn sat hjá. Í bókuninni var
m.a. tekið fram að starfandi meiri-
hluti í bæjarstjórn hefði ekki leitað
til dómstóla vegna úrskurðar er fé-
lagsmálaráðherra birti í kjölfar
kæru Framsóknarfélags Mýrasýslu.
Borgarbyggð
Vilja
bíða eftir
dómi
blaðsins af fundinum, þar sem
rætt var um þær áætlanir sem þá
voru uppi um byggingu Fljótsdals-
virkjunar, kom fram í fyrirspurn-
um að líklega yrði Eyjabakka-
svæðinu sökkt og var Halldór
spurður hvar hann myndi setja
mörkin.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanrík-
isráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, lýsti andstöðu sinni
við að Þjórsárverum yrði fórnað
vegna virkjana á opnum hádeg-
isverðarfundi sem haldinn var á
Hótel Borg 14. október árið 1998.
Samkvæmt frásögn Morgun-
Halldór sagði að hver kynslóð
yrði að svara þessari spurningu
fyrir sig, en bætti við að ekki
kæmi til greina að fórna Þjórs-
árverum eða flytja Jökulsá á Fjöll-
um og eyðileggja Dettifoss.
Ekki náðist í Halldór í gær en
hann er í sumarleyfi erlendis.
Halldór Ásgrímsson á opnum fundi í október 1998
Sagði ekki koma til greina
að fórna Þjórsárverum
Morgunblaðið/Jim Smart
STADDUR er á landinu dansk-
bangladeski listamaðurinn Kajol,
sem hefur þróað listrænt hugtak
sem hann kallar „umferðarlist“, lit-
skrúðug málverk á opinberum
svæðum með risastórum myndum
sem byggjast á þjóðsögum hvaðan-
æva úr heiminum. Hér sést hópur
ungra Íslendinga af ólíkum upp-
runa vinna með Kajol við að mála
bílastæði Norræna hússins.
Á laugardaginn kl. 16 verður síð-
an setningarhátíð í kjötkveðjuhá-
tíðarstíl með óvæntar uppákomur.
Alþjóða-
umferðarlist
MAÐURINN sem fannst látinn í
Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu
í fyrradag hét Jóhannes Magnússon.
Hann var bóndi á Ægissíðu í Húna-
þingi vestra. Hann var fæddur 9. jan-
úar 1919 og lætur eftir sig fjögur
uppkomin börn.
Síðast sást til Jóhannesar um ell-
efuleytið á miðvikudagsmorgun þeg-
ar hann var að sinna skyldustörfum á
jörð sinni og reka nágrannaskepnur
af landareigninni. Talið er að hann
hafi látist af eðlilegum orsökum.
Jóhannes Magnús-
son frá Ægissíðu.
Fannst látinn
í Vesturhópi