Morgunblaðið - 16.08.2002, Page 12

Morgunblaðið - 16.08.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVERFASAMTÖK Vatnsenda- hverfis, „Sveit í borg“, hafa sent Skipulags- og byggingasviði Reykja- víkurborgar athugasemdir vegna til- lögu að nýju deiliskipulagi Norð- lingaholts. Gagnrýna samtökin hversu þétt byggð er fyrirhuguð á svæðinu. Segir m.a. í athugasemdunum að hin þétta og háa byggð sé engu betri en umdeilt skipulag á Vatnsenda- svæðinu. Þéttleikinn sé meiri en „á verst skipulögðu og umdeildustu byggð innan Vatnsendasvæðis- ins...þ.e. svokallaðs F-reits.“ Er bent á að Reykjavíkurborg hafi gagnrýnt það skipulag á sínum tíma og lagt áherslu á að tillit yrði tekið til lífríkis Elliðavatns við skipulag byggðar þar. Þá segir að þétt byggð eigi alls ekki rétt á sér á umræddu svæði þar sem hún rýri gildi náttúrulegs um- hverfis og sömuleiðis er gagnrýnt að þéttleikinn sé „langt umfram“ það sem gert er ráð fyrir í Svæðisskipu- lagi höfuðborgarsvæðisins. Loks er bent á hættu af mengun grunnvatns á svæðinu. Sveit í borg gagnrýnir deiliskipulag Norðlingaholt FYRIR ellefu árum innritaði átta ára snáði sig ásamt félaga sínum í 10 kílómetra hlaup í Reykjavíkur- maraþoninu. Við marklínuna beið fjölskylda hans spennt, að und- anskildum pabbanum sem sjálfur var önnum kafinn við tuttugu og eins kílómetra hlaupið. Þetta var upphafið að þátttöku fjölskyld- unnar í hlaupinu. Síðan hefur hún verið með í Reykjavíkurmaraþon- inu ár hvert, að undanskildu einu skipti þegar hún var erlendis. „Við héldum að þetta væri ekkert mál og biðum bara eftir því að hann kæmi fyrstur í mark,“ segir mamm- an, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, hlæjandi um hlaup sonarins, Heið- ars Inga Ólafssonar, sem í dag er 18 ára. „Svo fór ég sjálf 10 kílómetr- ana árið á eftir og þá sagði ég við sjálfa mig: Hvernig datt mér í hug að leyfa barninu þetta?“ Hún lét þó ekki deigan síga og síðan hefur hún og maður hennar Ólafur Ingi Ólafsson iðulega hlaup- ið 21 kílómetra en börnin, Heiðar Ingi og systir hans, Elín Ýr, sem er 14 ára, farið styttri vegalengdir. En hvað er svona skemmtilegt við að taka þátt í Reykjavíkurmaraþon- inu? „Bara allt,“ segir Hólmfríður. „Við höfum meira að segja einu sinni hlaupið í grenjandi rigningu og það var samt gaman!“ Ólafur bætir því við að þetta sé nátt- úrulega „uppskeruhátíð skokk- arans“ og í ljós kemur að þau hjón- in eru með í skokkhóp sem hleypur reglulega allt árið um kring. „Reykjavíkurmaraþonið er síðan eins og bikarúrslitaleikur sem allir verða að mæta á.“ Krakkarnir taka undir þetta þó að Elín viðurkenni að skemmtileg- ast sé þegar hlaupið er búið. Heiðar segir hlaupið hafa verið aukaæf- ingu þegar hann var að æfa fót- bolta. Hann man vel eftir hlaupinu þegar hann var átta ára og neitar því að hafa verið nær dauða en lífi þegar að marklínunni var komið. „Nei, nei, maður var í miklu betra formi þá en nokkru sinni núna,“ segir hann sannfærandi. Farið á menningarnótt eftir hlaupið Fjölskyldan segir stemninguna í hlaupinu sérstaklega skemmtilega og að innan hópa sem æfa allan árs- ins hring myndist alveg sérstemn- ing. „Við hittumst áður og hitum upp saman og erum að bera saman bækur okkar, hver ætlar að hlaupa hvað og á hvaða tíma hann ætlar að vera. Á eftir hittumst við yfirleitt í sundi og svo er það orðin hefð í okkar hópi að borða saman heima hjá einhverjum. Loks fara allir saman niður í bæ á menningarnótt- ina.“ Þau bæta því við að þau séu sérstaklega ánægð með að hlaupið hafi verið flutt fram fyrir menning- arnótt Reykjavíkurborgar því áður hafi þau alltaf þurft að sleppa því að fara í bæinn það kvöld vegna hlaupsins daginn eftir. Þau undirstrika þó að hlaupið sé ekki bara fyrir eitilharða skokkara og íþróttafólk. „Það eru bara allir sem hafa áhuga, fólk með börnin sín og afar og ömmur með barna- börnin,“ segir Hólmfríður og Ólaf- ur tekur við: „Mesta stemningin í svona hlaupi er yfirleitt í kring um skemmtiskokkarana og þá sem fara styttra. Það er ekki jafnmikil stemning hjá þeim sem fara heilt maraþon og eru að hlaupa í fjóra, fimm klukkutíma. Enda eru ekki nema 100 eða 200 manns sem fara það.“ Eins og gefur að skilja stefnir fjölskyldan á að taka þátt í hlaup- inu á morgun og þegar hún er spurð hvort stefnan sé að hlaupa með næstu 40 árin hlær Hólmfríður við og segir að líklega endi þau á að vera með í hjólastólum þegar fæt- urnir gefa sig. „Maður verður með á meðan maður kemst í þetta. Það eru svo mikil forréttindi að geta tekið þátt og í þessu hlaupi geta nánast allir verið með.“ Morgunblaðið/Arnaldur Hólmfríður, Elín Ýr, Heiðar Ingi og Ólafur eru klár í hlaupið á morgun sem þau segja vera sannkallaða „uppskeruhátíð skokkarans“. Fjölskyldan hefur aðeins misst af einu hlaupi síðustu ellefu ár. Reykjavíkurmaraþonið er á morgun Hafa verið með í ellefu ár Reykjavík TILLAGA að deiliskipulagi annars áfanga Sörlaskeiðs, athafnasvæðis hestamannafélagsins Sörla í Hafnar- firði, var auglýst í fyrradag. Með skipulaginu er núverandi svæði fé- lagsins stækkað og lóðum undir hesthús fjölgað. Í greinargerð með tillögunni kem- ur fram að ásókn í hesthús á svæðinu til eignar eða leigu hafi verið mikil og fari vaxandi sökum góðrar aðstöðu sem Sörli hefur yfir að ráða. Öllum byggingarhæfum lóðum við Sörla- skeið hafi verið úthlutað og til að mæta óskum um fleiri lóðir hafi verið ákveðið að ráðast í gerð annars áfanga athafnasvæðisins. Skipulagssvæðið sem um ræðir er 33 hektarar að stærð og er suðaust- anmegin á hraunjaðrinum aftan við núverandi hesthúsabyggð við Sörla- skeið. Kemur fram að um sé að ræða „tiltölulega slétt hraunsvæði með einstaka gjótu en lítið sem ekkert er af hraunklettum/dröngum. Hraunið er mosa- og lyngvaxið“. Allt landið er í eigu Hafnarfjarðarbæjar. Aðkoma að svæðinu verður annars vegar frá reiðhöllinni á Sörlaskeiði og hins vegar frá Kaldárselsvegi en gert er ráð fyrir einni götu frá reið- höllinni og út á Kaldárselsveg. Beggja vegna þessarar götu verða hesthús en í nyrðri enda götunnar er gert ráð fyrir húsum fyrir atvinnu- rekstur tengdan hestamennsku. Í syðri enda götunnar er svo gert ráð fyrir húsi undir ákveðna starfsemi tengda hestamennsku. Á milli verða almenn hesthús og mun hver húseign hafa sérhlaupa- gerði, taðþró og bílastæði innan lóð- arinnar. Alls munu 22 hús bætast við athafnasvæðið með nýja skipulaginu en fallið er frá sjö húsum sem átti að reisa samkvæmt fyrra deiliskipulagi. Hið nýja svæði mun tengjast þeim reiðstígum sem fyrir eru á svæðinu. Að auki er gert ráð fyrir nýrri reið- leið austanmegin við nýju lóðirnar og bætt er við tengingum milli nýrri og eldri reiðleiða. Deiliskipulagstillagan verður í kynningu til 27. september en þá rennur frestur til þess að skila inn athugasemdum jafnframt út. ($     $ ! )*      %  +,-. &) /. .#01#23# 4.#2.56# (78.9:43#           Athafnasvæði Sörla stækkað Hafnarfjörður BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar hefur samþykkt að leita álits Skipulags- stofnunar á því að bærinn taki gamla ullarþvottahúsið í Álafoss- kvosinni eignarnámi. Að sögn bæj- arritara hyggst bærinn rífa húsið til að framfylgja deiliskipulagi fyrir svæðið sem samþykkt var árið 1997. Á fundi bæjarráðs í gær var lagt fram bréf Stefáns Ómars Jónssonar bæjarritara þar sem fram kemur að bærinn hafi átt í viðræðum við eig- anda hússins um nokkurt skeið um kaup á eigninni en samningar hafi ekki náðst. Í apríl síðastliðnum hafi eigandanum verið sent bréf þar sem honum hafi verið greint frá því að bærinn hygðist taka húsið eign- arnámi og í svarbréfi hans hafi komið fram að hann óskaði eftir því að bærinn útvegaði sér sambæri- legt húsnæði í stað þess sem bærinn keypti. Kemur fram að bærinn telji sig ekki í stakk búinn til að útvega slíkt húsnæði og því sjái hann sér ekki annað fært en að óska eftir um- sögn Skipulagsstofnunar á fyrir- huguðu eignarnámi. Að sögn Stefáns hefur málið átt sér nokkurn aðdraganda en það er tilkomið vegna þess deiliskipulags sem samþykkt var fyrir svæðið árið 1997. „Þá var gert ráð fyrir því að ákveðin hús í Álafosskvosinni við brúna yrðu rifin til að opna að gamla Álafossinum. Framtíðarmús- íkin er sú að þá geti gestir og gang- andi komist að fossinum og Varm- ánni frá húsaþyrpingunni í brekkunni ofan við gamla steinhús- ið.“ Tilheyrði Álafoss- verksmiðjunni Hann segir að húsið sem um ræð- ir hafi tilheyrt Álafossverksmiðj- unni. „Þetta er hluti af byggingun- um þarna, gömlu ullarþvotta- stöðinni og spunahúsunum sem hafa verið byggð úr ýmsum efnum í gegnum aldanna rás.“ Stefán segir næstu skref í málinu vera þau að bíða umsagnar Skipu- lagsstofnunar en hún sé forsenda þess að hægt sé að leggja fram beiðni um eignarnám hjá mats- nefnd eignarnámsbóta. Hyggjast taka gamla ullarþvotta- húsið eignarnámi Mosfellsbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.