Morgunblaðið - 16.08.2002, Side 28
LISTIR/KVIKMYNDIR
28 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
METSÖLUBÆKUR eru jafnan eft-
irsótt efni til kvikmyndagerðar. Ekki
síst ef þær eru eftir höfunda á borð
við Tom Clancy, sem standa að baki
fjölda kunnra aðsóknarmynda.
Clancy er höfundur bókanna um
bandaríska leyniþjónustumanninn
Jack Ryan og er The Sum of All
Fears fjórða bókin um kappann sem
er kvikmynduð. Fyrri myndirnar
eru The Hunt For Red October (’90),
Patriot Games (’92) og Clear and
Present Danger (’94). Allar nutu þær
vinsælda, sama hver túlkaði Ryan.
Hann var leikinn af Alec Baldwin í
fyrstu myndinni, Harrison Ford af-
greiddi tvær þær næstu og nú er röð-
in komin að Ben Affleck. Hann hefur
fengið góða dóma fyrir frammistöðu
sína og þótt standa sig það vel í sam-
anburði við hákarlana tvo á undan
honum að hann er orðinn einn heit-
asti karlleikarinn í Hollywood.
The Sum of All Fears hefst á því
að forseti Rússlands fellur frá og Al-
exander Nemerov (Ciarán Hinds),
gjörsamlega óþekktur maður, tekur
við stjórninni. Enginn veit hvað
mannaskiptin boða fyrir samskipti
stórveldanna, gömul spenna og of-
sóknaræði grípur um sig í vestri.
Bill Cabot (Morgan Freeman),
æðsti maður bandarísku leyniþjón-
ustunnar, ræður Jack Ryan (Af-
fleck), ungan mann í Rússlandsdeild-
inni, til að fylgjast með málum.
Þá gerist voðaatburður, einmitt
það sem menn óttuðust mest; höf-
uðborg Tsjetsjeníu er lögð í rúst með
kjarnorkusprengju.
Bandaríkjamenn eru snöggir að
skella sökinni á Rússa og vantraustið
vex á báða bóga með degi hverjum –
þó svo að Ryan þykist þess fullviss að
önnur öfl hafi staðið að árásinni.
Ryan hefur á réttu að standa en á
erfitt með að sanna mál sitt.
Á meðan kyndir þetta þriðja afl
hatursbál á milli gömlu erkifjend-
anna og þegar sprengja fellur á
Baltimore er kjarnorkustríð í upp-
siglingu – ef Ryan tekst ekki að upp-
lýsa ráðamenn stórveldanna um
hvað er í gangi, hver sé hinn raun-
verulegi óvinur.
Leikarar: Ben Affleck (Pearl Harbor,
Dogma, Armageddon, Good Will Hunt-
ing); Morgan Freeman (Kiss the Girls,
The Shawshank Redemption, Un-
forgiven); James Cromwell (Babe, L.A.
Confidential); Alan Bates (Gosford
Park, The Mothman Prophecies, Zorba
the Greek). Leikstjóri: Phil Alden Rob-
inson (Sneakers, Field of Dreams).
Óttinn
tekur öll völd
Reuters
Ben Affleck (sem Jack Ryan) og Morgan Freeman eru stjörnurnar í The Sum of
All Fears, sem byggð er á samnefndri metsölubók Toms Clancy.
Sambíóin Reykjavík og Akureyri, Laug-
arásbíó frumsýna The Sum of All Fears -
Hættumörk. Með Ben Affleck, Morgan
Freeman, Bridget Moyahan, Alan Bates
og John Cromwell.
TVEIMUR árum eftir að hin hug-
umstóra mýsla, Stuart Little, geyst-
ist fram á sjónarsviðið í mikilli að-
sóknarmynd, kemur þessi
góðkunningi aftur í heimsókn í
Stuart Little 2 - að sjálfsögðu. Tvö
ár eru einnig liðin síðan Stuart
heimsótti Little-fjölskylduna og allt
hefur tekið breytingum. Stuart hef-
ur dafnað og komið sér vel fyrir á
heimili vina sinna. Hann stundar
skólanám og ekur eins og fín mús á
sínum eigin bíl. Stuart kemur líka
að góðu gagni þegar þarf að
reynslufljúga flugmódelum og er
einnig ákaflega upp með sér yfir
hinum frábæru áhrifum sem hann
hefur á fótboltalið skólans. Stuart
er alsæll með Georg stóra bróðir og
systurina Mörtu, nýfædda dóttir
Little-hjónanna. Honum er jafnvel
farið að líka við kattarófétið Snow-
ball.
Þó er það svo að Stuart er farinn
að þrá að eignast nýjan vin, og hann
kemur reyndar, í orðsins fyllstu
merkingu, fljúgandi í fangið á hon-
um. Því dag einn, þegar Stuart
kemur akandi úr skóla, hlemmir
slasaður fugl sér í aftursætið. Þegar
hann kemst til meðvitundar segir
hann Stuart að fálki hafi ráðist á sig
og nú þarf Stuart hvorki að kvarta
undan vina- né aðgerðarleysi!
Enskumælandi leikarar: Michael J. Fox
(Mars Attacks!, Back to the Future, I.,
II., og III.); Geena Davis (Thelma and
Louise, Quick Change); Hugh Laurie
(The Man in the Iron Mask, Spice-
world); Nathan Lane (The Birdcage,
Mouse Hunt); Melanie Griffith (Born
Yesterday, Paradise); James Woods
(The Hard Way, Videodrome); Steve
Zahn (Joy Ride). Leikstjóri: Rob Min-
koff (Stuart Little, The Lion King).
Stuart
snýr aftur
Smárabíó, Regn-
boginn, Laug-
arásbíó, Sambíóin
Keflavík, Borg-
arbíó Akureyri og
Ísafjarðarbíó
frumsýna Stuart
Little 2. Með ís-
lensku og ensku
tali. Íslenskar leik-
raddir: Stúart:
Bergur Ingólfsson.
Georg: Sigurður
Jökull Tómasson.
Hr. Kríli: Gunnar
Hansson. Frú Kríli:
Guðfinna Rúnars-
dóttir. Snjóber:
Hjálmar Hjálm-
arsson. Magga
Lóa: Sigrún Edda
Björnsdóttir. Fálki: Pálmi Gestsson.
Brandur: Stefán Jónsson. Þjálfari ofl.:
Örn Árnason. Kennari og Rita: Nanna
Kristín Magnúsdóttir. Villi: Sigurður
Þórhallsson. Strákar: Alexander Briem,
Andri Már Birgisson, Daði Már Guð-
mundsson og Matthías Sigurbjörnsson.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Kvikmyndaleikarinn Michael J. Fox ásamt Stuart Kríla,
sem hann raddsetur í ensku útgáfunni.
Reuters
Furðuverur í farsa
KVIKMYNDIR
Sambíó Kringlunni og Álfabakka
Leikstjórn: Barry Sonnenfeld. Handrit:
Robert Ramsey og Matthew Stone eftir
sögu Dave Barry. Kvikmyndataka: Greg
Gardiner. Aðalhlutverk: Tim Allen, Rene
Russo, Stanley Tucci, Tom Sizemore,
Johnny Knoxville, Dennis Farina,
Janeane Garofalo, Patrick Warburton og
Jason Lee. 85 mín. USA. Buena Vista Int-
ernational 2002.
BIG TROUBLE Hildur Loftsdóttir
höfundar þess eru ekki alveg með það
á hreinu hvert þeir eru að fara.
Og Sonnenfeld hefur greinilega
kastað til höndum við leikstjórnina.
Leikararnir eru hver öðrum leiðin-
legri og líka lélegri. Það sést best á
leikurunum Patrick Warburton og
Johnny Knoxville sem einnig leika í
mynd Sonnenfelds MIB 2 sem er líka
í bíó. Þar standa þeir (og allir hinir)
sig mun betur, en það á sérstaklega
við um Knoxville sem er ferlega léleg-
ur í þessari mynd. Jason Lee leikur
skemmtilegan karakter og Dennis
Farina og Janeane Garofalo eru fín að
vanda og lyfta myndinni á aðeins
hærra plan.
Ég geri ráð fyrir að Sonnenfeld
hafi ekki alveg fattað handritið, því
það vantar hjarta í þetta allt saman.
Einhvern smáhjartslátt.
Það er samt hægt að skemmta sér
á þessari mynd. Annaðhvort ef maður
hefur aulahúmor eða er bara nógu
ákveðinn í að skemmta sér. Þegar ég
fór í bíó voru náungarnir fyrir aftan
mig byrjaðir að hlæja einni sekúndu
eftir að myndin hófst. Bravó fyrir
þeim.
ALLIR vilja leika í mynd eftir
Barry Sonnenfeld. Það er skiljanlegt.
Það er bara verst að stundum gerir
hann frekar glataðar myndir. Big
Trouble er ein af þeim.
Þannig er að einn fráskilinn með
táningsson kynnist móður bekkjar-
systur hans sem er gift peningagaur.
Af einhverjum ástæðum enda þau
uppi með kjarnorkusprengju sem þau
þurfa að losa sig við. Inn í söguna
kemur fullt af alls konar furðulegum
persónum sem flækjast hver fyrir
annarri á farsakenndan hátt.
Þrátt fyrir allar þessar leikstjörnur
og Sonnenfeld-gæðastimpilinn virkar
myndin ekki. Húmorinn er hrikalega
aulalegur, handritið klúðurslegt og
ÞAÐ kveður við nýjan tón í teikni-
myndagerð með sögu villta folans.
Myndin er mun alvarlegri og ljóð-
rænni en það sem við erum vön að
sjá, með fagurlega gerðum mynd-
rænum úrlausnum. Að sama skapi
verður myndin nokkuð melódrama-
tísk og hreinlega væmin á köflum.
Ekki síst þegar foli, foli fótalipri verð-
ur ástfanginn.
Villti folinn Sindri elst upp í villtri
og undurfallegri náttúru vestursins í
Norður-Ameríku um það leyti sem
hvíti maðurinn er að brjóta sér leið
gegnum sléttuna til að leggja undir
sig heimsálfuna. Villti folinn er fang-
aður og færður í herbúðir. Honum
líkar illa frelsissviptingin, og þar með
hefst barátta hans við hvíta manninn,
en um leið vinátta hans við fangaðan
indíána sem hann kynnist þar.
Myndin er óður til frelsisins og
náttúrunnar. Um leið er þetta saga
Bandaríkjanna í upphafi, eins konar
vestri. Fyrir bandaríska krakka
dregur myndin ekki upp fagra mynd
af forfeðrum (flestra) þeirra, sem
fanga villta hesta til að ryðja járn-
brautarteinum yfir landið. Erkióvin-
urinn indíáninn er hins vegar sá sem
virðir náttúruna og dýrin sem í henni
lifa. Hann er góði maðurinn.
Þetta er vestri sagður út frá sjón-
arhorni hests. Og það gerir myndina
einnig sérstaka. Því ólíkt því og tíðk-
ast í teiknimyndum, talar hesturinn
ekki. Hins vegar heyrum við hugs-
anir hans. Indíáninn segir lítið, það
eru helst hermennirnar sem tala.
Þetta getur stundum orðið smá rugl-
ingslegt. Til þess að túlka síðan áætl-
anir og tilfinningar hestsins er mynd-
in stútfull af keimlíkum og
hvimleiðum Bryan Adams-lögum,
sem enginn endir virðist á. Stefán
Hilmarsson syngur lögin á íslensku
og það hefði ekki verið hægt að finna
betri mann í það.
Vel gerð og ágæt mynd, en kannski
ekki sú skemmtilegasta. Sagan held-
ur manni ekki alltaf, er bara ekki
nógu áhugaverð og hnitmiðuð. Því
miður.
Myndrænt séð er myndin vissu-
lega afrek. Talsetningin er einnig hin
ágætasta þótt reyni minna á þar en
vanalega þar sem samræður er á
undanhaldi í myndinni. Öðruvísi.
Frelsisóður
af gresjunni
KVIKMYNDIR
Sambíó Álfabakka og
Háskólabíó
Leikstjórn: Kelly Asbury og Lorna Cook.
Handrit: John Fusco og Tom Sito. Leik-
stjórn ísl. raddsetn: Atli Rafn Sigurðs-
son. Aðalhlutverk: Atli Rafn Sigurðsson,
Magnús Jónsson, Ólafur Steinn Ingunn-
arson. Ísl. lagatextar: Stefán Hilm-
arsson. 83 mín. USA. Dream Works
2002.
VILLTI FOLINN Hildur Loftsdóttir
MR. BONES vekur eina spurn-
ingu: Hvernig í ósköpunum hefur S-
Afríkumönnum tekist að pranga
þessu drasli inná heimsmarkaðinn?
Það væri ráð að fá þann mann hingað
norður til að markaðssetja öll
„meistarastykkin“ sem hér eru
framleidd en komast, af einhverjum
dularfullum ástæðum, sjaldnast lönd
eða strönd.
Myndinni er greinilega ætlað að
feta í fótspor The Gods Must be
Crazy, og nokkurra „heimildar-
mynda“ og „falinnamyndavéla“ –
mynda sem nutu vinsælda á Vest-
urlöndum fyrir einum 20 árum. Þær
byggðust á hálfvitagangi og sljóleika
frumbyggjanna. Nú er hvítum
blandað saman við, enda „apartheid“
stefnan löngu liðin undir lok. Ekki
hefur kvikmyndagerðin braggast við
það því Mr. Bones er í hópi leiðinleg-
ustu, verst leiknu og gerðu, og ekki
síst ógeðfelldustu mynda sem til
landsins hafa borist. Eini ljósi punkt-
urinn er grípand mbaqanga tónlist-
in, sem þó er alltof lítið notuð. Ef ein-
hver ætlar á myndina mæli ég því
með því að sá hinn sami láti binda
fyrir augun og noti aðeins eyrun.
Skinin
bein
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Grey Hofmeyr. Tónlist: Julian
Wiggins.Aðalleikendur: Leon Schuster,
David Ramsey, Faizon Love, Robert
Whitehead, James Benney. Sýningartími
100 mín. Warner Bros. S-Afríka 2001.
MR. BONES (HERRA BONES) 1⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
KLUKKUBANAR eða
Clockstoppers er hin allra ágætasta
fjölskyldumynd af gamla skólanum.
Þar lendir unglingspilturinn Zak í
ótrúlegum ævintýrum eftir að hlutur
úr vísindatilraunum föður hans lend-
ir í hans vörslu. Um er að ræða tölvu-
úr, sem er þeim eiginleikum búið að
geta látið tímann standa í stað fyrir
þann sem notar úrið. Eftir að Zak
uppgötvar fyrst eiginleika úrsins
reynist það mjög gagnlegt til hinna
ýmsu hversdagsverka, og á sama
tíma kynnist hann skemmtilegri
stúlku, Francescu, og ferðast þau
saman í „ofurtíma“. En fyrr en varir
kemur babb í bátinn, enda eru
hættulegri glæpamenn að reyna að
hagnýta sér uppgötvunina, og faðir
Zaks lendir í lífshættu fyrir vikið.
Ólíkt mörgum ævintýramyndum
af þessu tagi er umrædd mynd ágæt-
lega gerð, og er framvindan spenn-
andi og skemmtileg. Persónur Zaks
og Francescu eru ágætlega skrifaðar
og má segja að leikararnir Jesse
Bradford og Paula Garcés haldi
myndinni vel uppi með frísklegri
frammistöðu. Sérstaklega ber að
þakka það hversu Paula er sjálfstæð
og manneskjuleg persóna, ólíkt því
sem oft gerist þegar „kærustur“ eru
annars vegar í bandarískum ung-
lingamyndum. Þetta er þó fyrst og
fremst barnamynd og þegar gaman-
ið er á enda situr lítið eftir.
Ekkert
venjulegt úr
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjóri: Jonathan Frakes. Handrit: Rob
Hedden, J.D. Stem, D.N. Weiss. Aðal-
hlutverk: Jesse Bradford, Paula Carcés,
French Stewart, Robin Thomas. Sýning-
artími: 94 mín. Bandaríkin. Paramount,
2002.
CLOCKSTOPPERS (KLUKKUBANAR) Heiða Jóhannsdóttir
♦ ♦ ♦
ÚTSÖLULOK UM HELGINA
Laugavegi s. 511 1750Opið til kl. 21 á morgun Menningarnótt