Morgunblaðið - 16.08.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 16.08.2002, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 31 ktun á að- g hugsan- matvæl- m sem „Gerðar m áhættu- umhverf- fvera og undvallar fðabreytt- g varnar- takmörk- otkun au- egar sýnt eilbrigðis- túrunni ur ersla á að rjálsu að- (almanna- tur nema til vegna a. Enn- til útivist- pulag og u. ta áratug önnum til st, en það þjóðlegum straumur ægi ferða- um eykur oma í veg umferðar af völdum pjöllum á na aksturs íðandi og um við- á hálend- tivist þró- Jafnframt llit til úti- almennri ingu.“ erðamenn nir standa t og upp- taða og túru nt lítt snort- ður mikil- þróun en a náttúru- tta auðs. di í sjálfu forsenda mannlegs er einfalt mælistiku ýrslunnar ds. áhersla á arkmið sé a tegunda ri eins og r votlendi, önnur lyk- nds. Lagt verði að tlendis og ikilvægra sem slíkt m að mikil um helstu landnámi. hafi þakið landnám ndraðasta. votlendi á láglendi, einkum vegna framræslu og ræktunar mýra. Athuganir hafa leitt í ljós að einungis 3% alls vot- lendis á Suðurlandi er eftir óraskað og einungis 18% votlendis á Vest- urlandi.“ Í skýrslunni er lögð áhersla á vernd sérstæðra jarðmyndana. Lagt er til að gengið verði frá skipu- legu yfirliti yfir jarðmyndanir á Ís- landi sem verði grunnur að mark- vissri verndun þeirra. „Forgangsmál er að vernda jarð- myndanir og kerfi sem eru sjaldgæf eða óvenjuleg á heimsmælikvarða, svo sem dyngjur, eldborgir, gíga- raðir, móbergsmyndanir, linda- svæði og virkt jöklalandslag; svo og landslag og sérstæð fyrirbæri sem eru óvenjuleg í okkar heimshluta og einkennandi fyrir landið, t.d. hraun, móbergsfjöll, fossa og hverasvæði.“ Bent er á að skemmdir á eldvörp- um vegna efnisnáms séu víða mikl- ar, sérstaklega á SV-horni landsins. Talið er að yfir 2.000 opnar efnis- námur séu í landinu. Samfelld víðerni áfram í óbyggðum Íslands Í skýrslunni er fjallað um vernd víðerna í sérstökum kafla. Um markmið slíkrar verndar segir: „Tryggt verði að stór samfelld víð- erni verði áfram að finna í óbyggð- um Íslands. Reynt verði að byggja mannvirki utan skilgreindra víð- erna en þar sem slíkt er ekki mögu- legt verði þess gætt að þau valdi sem minnstu raski og sjónmengun.“ Bent er á að stór, samfelld víð- erni, þar sem sýnilegra áhrifa mannsins gætir lítt eða ekkert, sé varla að finna lengur í vestanverðri Evrópu, nema nyrst í Skandinavíu og á Íslandi. Ástæða sé til þess að ætla að slík víðerni fái aukið gildi í framtíðinni, bæði beint efnahags- legt gildi í tengslum við ferðaþjón- ustu og eins huglægt gildi, í því að skilgreina megi aðgang að ósnort- inni náttúru sem ákveðin lífsgæði borgarsamfélagi Vesturlandabúa. Því sé ástæða til að reyna að raska víðernum sem minnst og gæta þess sérstaklega að lágmarka sjónræn áhrif framkvæmda þar sem í þær verði ráðist. „Á Íslandi er minna flatarmál skóglendis en í nokkru öðru Evr- ópulandi. Talið er að yfir helmingur af samfelldri gróðurhulu landsins hafi orðið roföflunum að bráð frá landnámi. Ástæðan er einkum skóg- arhögg og ofbeit sem hafa auðveld- að eyðingaröflunum leið að rof- gjörnum og viðkvæmum eldfjallajarðveginum. Samkvæmt niðurstöðum heildarúttektar jarð- vegsrofs á landinu er alvarlegt jarð- vegsrof á 52% landsins þegar hæstu fjöll, jöklar og vötn eru undanskil- in.“ Fram kemur að um 0,2% landsins er vaxið náttúrlegum birkiskógi sem nær a.m.k. 5 m hæð, rétt um 1% landsins er þakið birkikjarri og gróðursett hefur verið í 0,1–0,2% landsins, mest á s.l. 10 árum. Í skýrslunni segir að forgangsmál sé að laga beit betur að nýtingarþoli landsins. Fækkun sauðfjár hafi dregið mjög úr beitarálagi. Þrátt fyrir það sé illa farið land enn nýtt til beitar. Beitarstjórnun þurfi að taka tillit til byggðasjónarmiða en þó ekki þannig að beit sé leyfð á óbeitarhæfum löndum, heldur verði bændum gefinn kostur á þátttöku í landbótaverkefnum, m.a. í sam- bandi við gæðastýringu í sauðfjár- og hrossarækt. Um 64% þeirrar raforku sem framleidd er á Íslandi í dag eru nýtt til stóriðju en einungis tæp 36% til almennra nota. Í skýrslunni segir að þar sem notkun jarðefnaeldsneytis í staðbundinni orkuvinnslu á Íslandi sé nær engin verði það markmið að auka hlutfall endurnýjanlegra orku- gjafa í orkunotkun þjóðarinnar til- tölulega erfitt viðfangsefni. Jarð- efnaeldsneyti sé notað til samgangna á landi, á sjó og í lofti. Til þess að breyta þessari orkunotk- un í notkun endurnýjanlegra orku- gjafa sé einkum horft til þess að nota vetni sem orkubera og efna- rafala sem hreyfiafl í farartækjum í samgöngum. Í skýrslunni segir að nýting jarð- hita til húshitunar spari Íslending- um yfir 8 milljarða króna í erlendum gjaldeyri á ári hverju, miðað við að innflutt olía væri annars notuð. „Jákvæð umhverfisáhrif vega ekki minna en reikna má með að út- streymi koltvíoxíðs á Íslandi myndi tvöfaldast ef olía væri notuð í stað jarðhita til húshitunar. Mikið átak hefur verið á síðustu áratugum við að nota jarðhita til húshitunar: Árið 1970 var helmingur Íslendinga með aðgang að hitaveitu en nú eru það um 86%.“ Í skýrslunni er sett það markmið að dregið verði úr myndun úrgangs eftir því sem kostur er og hann með- höndlaður þannig að hann valdi sem minnstum neikvæðum áhrifum á umhverfið. Tryggja þurfi að spilli- efni berist ekki út í umhverfið. Náð verði tölulegum markmiðum um aukna endurnýtingu úrgangs, s.s. umbúðaúrgangs, lífræns úrgangs, rafeindabúnaðar og raftækja. Þá verði við verðmyndun vöru gert ráð fyrir förgunarkostnaði. Að mati umhverfisráðuneytisins hefur árangur náðst í því að bæta meðferð úrgangs, auka endurnýt- ingu og leggja niður opnar sorp- brennslur og ófullnægjandi urðun- arstaði. Sveitarfélög hafi sameinast um lausnir og stofnað byggðasam- lög til að sjá um þennan málaflokk. Það hafi haft í för með sér færri, stærri og hagkvæmari staði til að farga úrgangi. Árið 1995 var sorpi brennt á 37 förgunarstöðum, en á síðasta ári var staðið þannig að förg- un á sorpi á aðeins tveimur stöðum. Á næstu árum munu taka gildi í löndum Evrópska efnahagssvæðis- ins ýmis töluleg markmið varðandi endurnýtingu ýmissa tegunda úr- gangs. Það verður forgangsverkefni stjórnvalda í úrgangsmálum að tryggja að hægt sé að framfylgja þessum markmiðum á sem skilvirk- astan og hagkvæmastan hátt. Meðal þeirra markmiða sem ná skal er að heildarendurnýting alls umbúðaúr- gangs á að vera ekki minni en á bilinu 50–65%. Milli 25 og 45% af þyngd allra umbúðaefna í umbúða- úrgangi skulu verða endurunnin og hlutfall endurvinnslu í hverjum ein- stökum flokki umbúðaúrgangs á að vera a.m.k. 15%. Setja á upp áætlun sem miðar að því að draga úr magni lífræns úrgangs sem fer til urðunar en hún á að tryggja að dregið sé úr því magni af lífrænum úrgangi sem fer til urðunar. Einnig verða á næstu misserum sett töluleg mark- mið og áætlanir varðandi endurnýt- ingu á hjólbörðum, bílum og bíla- hlutum og raftækjum og rafeindabúnaði. Ísland verði leiðandi í aðgerð- um gegn mengun hafsins Í skýrslunni er einnig fjallað tals- vert um hnattræn við- fangsefni. Bent er á að árangur náist ekki í sumum málum nema með samstilltu átaki ríkja heims. Sú stefna er mörkuð að styrkur manngerðra mengunarefna í sjáv- arfangi úr hafinu umhverfis Ísland verði ávallt undir ströngustu við- miðunarmörkum innlendra sem er- lendra heilbrigðisyfirvalda. Einnig að losun skaðlegra efna í hafið frá skipum og landi hverfi með öllu, ekki síst losun þrávirkra lífrænna efna, geislavirkra efna og þung- málma. Þá ætlar Ísland sér að verða leiðandi í alþjóðlegu samstarfi og aðgerðum gegn mengun hafsins. Fram kemur að hafið í kringum Ísland sé með því hreinasta sem þekkist og mengunarefni í íslensk- um fiski séu nær undantekninga- laust undir ströngustu viðmiðunar- mörkum í viðskiptalöndum okkar. Verkefni séu þó fyrir hendi. „Nýleg vitneskja um styrk díoxíns í fiski- mjöli kallar á viðbrögð þar sem díoxín er eitt örfárra þrávirkra líf- rænna efna sem losað er út í um- hverfið hér á landi en ófullkomin sorpbrennsla getur orsakað umtals- verða losun. Í þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið hefur styrkur díoxíns í íslenskum fiskafurðum og fiskimjöli þó reynst innan þeirra viðmiðunarmarka sem Evrópusam- bandið miðar við.“ Í skýrslunni kemur fram að unnið verði að því að ákvæði um bóta- ábyrgð vegna umhverfistjóns verði sett í íslensk lög sem varða mengun hafsins og skýrt í hvaða tilvikum hún eigi við. Jafnframt verði kveðið á um vátryggingaskyldu þeirra sem flytja hættulegan varning eða stunda starfsemi sem valdið getur meiriháttar mengun hafsins. Markmið um losun gróð- urhúsalofttegunda nást Í skýrslunni er sú stefna mörkuð að Ísland taki virkan þátt í alþjóð- legu samstarfi sem miðar að því að koma í veg fyrir hættulega röskun á veðrakerfum jarðarinnar af manna völdum með því að draga úr út- streymi og auka bindingu gróður- húsalofttegunda hér á landi. Ísland fullgilti rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar árið 1993 og Kyoto-bók- unina við þann samning árið 2002. Á grundvelli rammasamningsins sam- þykktu íslensk stjórnvöld 1995 framkvæmdaáætlun þar sem stefnt var að því að útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda yrði ekki meira árið 2000 en árið 1990, að frádregnu út- streymi frá iðnaðarferlum nýrrar stóriðju sem byggðist á hreinum og endurnýjanlegum orkulindum. Það markmið náðist. Samkvæmt Kyoto-bókuninni skuldbinda iðnríkin sig til þess að halda útstreymi sex gróðurhúsaloft- tegunda á árunum 2008–2012 innan útstreymisheimilda sem eru 5,2% lægri en útstreymið á árinu 1990. Í júní 2002 höfðu 74 ríki fullgilt bók- unina sem samtals bera ábyrgð á 35,8% útstreymis iðnríkja. Bókunin gengur í gildi 90 dögum eftir að minnst 55 ríki, þar af iðnríki sem bera ábyrgð á 55% útstreymis iðn- ríkjanna, hafa staðfest hana. Samkvæmt Kyoto-bókuninni og útfærslu hennar gagnvart Íslandi eru útstreymisheimildir Íslands tví- þættar: Í fyrsta lagi skal almennt útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi ekki aukast meira en sem nemur 10% frá árinu 1990, þ.e. vera innan við 3.200 þ. tonn kolt- víoxíðígilda árlega að meðaltali 2008–2012. Í öðru lagi skal koltvíox- íðútstreymi frá nýrri stóriðju eftir árið 1990 sem fellur undir íslenska ákvæðið ekki vera meiri en 1.600 þ. tonn árlega að meðaltali árin 2008– 2012. Fyrir liggur útstreymisspá fyrir gróðurhúsalofttegundir. Sam- kvæmt þeirri spá verður meðalút- streymi koltvíoxíðígilda á skuld- bindingatímabilinu að teknu tilliti til bindingar kolefnis með landgræðslu og skógrækt 3.000 þúsund tonn eða innan við ofangreind útstreymis- mörk. Þessi spá byggir á því að þær ráðstafanir sem ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum 5. mars árið 2002 að grípa til beri tilætlaðan ár- angur. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða við að Ísland uppfylli skilyrði skuldbindingar sínar gagnvart Kyoto-bókuninni fyrir tímabilið 2008–2012. Í skýrslunni er mörkuð sú langtímastefna að notkun jarð- efnaeldsneytis verði óveruleg innan fárra áratuga sem mun draga enn frekar úr losun gróðurhúsaloftteg- unda frá Íslandi eftir 2012. um sjálfbæra þróun til 2020 en hún verður lögð fram á leiðtogafundinum í Jóhannesarborg hefur náðst á mörg- um umhverfismála Morgunblaðið/Sverrir Skýrslan um sjálfbæra þróun var kynnt í gær. Frá vinstri: Halldór Þorgeirsson skrifstofustjóri, Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra, Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri og Hugi Ólafsson deildarstjóri. ega tefn- uðu st 26. una. egol@mbl.is 64% rafork- unnar eru nýtt til stóriðju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.