Morgunblaðið - 16.08.2002, Page 57

Morgunblaðið - 16.08.2002, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 57 býlum svo ekki er hægt að hittast heima hjá neinum. Ef þú ferð á kaffi- hús þarftu að bíða í hálftíma þar til þú færð sæti og mátt svo helst ekki sitja lengur en tíu mínútur. Fólk fer því frekar á fínu hótelin og á kaffi- húsin þar því þar eru fáir. Þetta fannst mér ótrúlega skrýtið.“ Minns og þinns Þeir Þorsteinn og Jón hafa verið iðnir við kolann þegar útbreiðsla gamanefnis er annars vegar. Auk áð- urnefndra Fóstbræðra hafa þeir báðir fengist við uppistand og hlotið frábærar viðtökur. Það hlýtur því að vera mikil breyting frá því að flytja eigið efni og vera sinn eigin herra að fara að vinna undir leikstjórn ann- arra og eftir handriti annarra. „Ja við skrifuðum þetta eiginlega allt sjálfir,“ segir Þorsteinn boru- brattur. „Við tókum handritið bara og breyttum því. Við vorum því aldrei að leika neitt eftir Róbert Douglas. Hann er reyndar skrifaður fyrir þessu en hann um það.“ Lesendur geta sjálfir gert upp við sig trúverðugleika svars Þorsteins. „Við Steini höfum unnið mikið saman áður og nektin er ekkert vandamál fyrir okkur. Ég hef séð Steina beran og hann hefur séð mig beran,“ játar Jón allt í einu. „Við töl- uðum mikið saman og bárum saman bækur okkar í tökunum. Þú veist: „Hvernig ætlar þinns að gera þetta? Minns verður svona. Minns gerir þetta, en þinns?“ Svo gáfum við hvor öðrum ábendingar um hvað betur mætti fara: „Þinns ætti að gera þetta svo minns geti gert þetta.“ Þetta var allt svona mjög fagmannlega unnið hjá okkur. Við unnum þetta svolítið frá hjartanu og urðum í rauninni bara þessir menn.“ „Ég var undir lokin orðinn svolítið pirraður á því. Sérstaklega þar sem maðurinn sem ég leik er svo mikill hálfviti,“ samsinnir Þorsteinn. „Mér var farið að líða hálfilla þegar ég kom heim eftir vinnu og var farinn að segja við konuna mína hluti sem ég myndi aldrei segja.“ „Þetta er alveg vandamál sem ég kannast við,“ segir Jón. „Maður fæð- ist í ákveðnum líkama og fólk sem þekkir mann veit við hverju á að bú- ast af manni. Þegar maður svo tekur að sér einhverja aðra persónu er það eins og að mála sig upp á nýtt að inn- an. Svo þarf að afmála sig aftur þeg- ar leiknum er lokið. Ég þurfti því oft að af-karaktera mig þegar ég kom heim eftir að vera Júlli heilan dag.“ „Það er líka skrýtin tilfinning að horfa á sjálfan sig leika,“ segir Þor- steinn. „Ég horfði til dæmis aldrei á Fóstbræður þegar þeir voru sýndir.“ „Ég hef aldrei séð sýninguna mína Ég var einu sinni nörd,“ segir Jón. „Ég hef séð Fóstbræður einu sinni en hef aldrei fundið neina þörf hjá mér til að horfa á þá aftur.“ Af hverju haldið þið að þetta sé? „Mér finnst ekkert að því að horfa á það sem maður gerir en þetta er samt svolítið eins og sjálfsfróun, sem er reyndar allt í lagi í góðu hófi,“ út- skýrir Jón. „Þegar maður horfir á sjálfan sig sér maður svo í gegnum sig og það getur verið neyðarlegt,“ segir Þor- steinn. Þeir félagar hafa gegnum tíðina túlkað fjöldann allan af skrautlegum persónum en skyldi einhver ein vera í mestu uppáhaldi hjá þeim? „Karakter sem fyllir mig alltaf mikilli gleði er „trekant“-gaurinn á verkstæðinu í Fóstbræðrum. Þessi vangefni verkstæðismaður er sá sem mér þykir hvað vænst um,“ segir Jón. „Já það er reyndar einn karakter sem ég held svolítið upp á í Fóst- bræðrum og það er Snúlli snúður. Hann var leikari sem var mjög slæmur og var að reyna að vera trúð- ur en hafði engan húmor,“ rifjar Þorsteinn upp. „Hann stendur mér alltaf svolítið nærri og þykir alltaf vænt um þegar fólk man eftir hon- um.“ „Sá sem mér þykir hvað vænst um af þeim persónum sem Steini hefur leikið er löggan í Viðey. Mér fannst hann hann alveg yndislegur og finnst Steini æðislegur,“ segir Jón. Þrátt fyrir gullhamrana segist Þorsteinn ekki muna eftir neinni persónu Jóns sem hann haldi sér- staklega upp á. Að lokum segjast þeir félagar svo mæla sérstaklega hvor með öðrum í Maður eins og ég. „Steini er frábær og mér finnst al- veg þess virði að fara á myndina bara til að sjá atriðin með honum,“ segir Jón og Þorsteinn lætur ekki sitt eftir liggja í gullhamrahríðinni. „Mér finnst hins vegar Jón vera að gera mjög merkilega hluti í myndinni og í rauninni algerlega halda henni uppi.“ Ekki slæm meðmæli það! Sigurður Sigurjónsson (t.v) leikur föður hins seinheppna Júlíusar. birta@mbl.is Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 415 Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 422 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12. Vit 420  SK Radíó X Líkar þér illa við köngulær? Þeim líkar ekkert vel við þig heldur!  Kvikmyndir.is DV Sýnd kl. 3.45. Íslenskt tal. Vit nr. 410.  kvikmyndir.is Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 400  DV  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8. Vit 406Sýnd kl. 4 og 6. Vit 398 1/2 Kvikmyndir.is HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 418 Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 14. Vit 417 Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. Vit 422 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 422 Sýnd kl. 8 og 10. Vit 420 Einnig sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 423 Frumsýning Frumsýning Frumsýning Frumsýning Frumsýning 27.000 kjarnorkusprengjur Einnar er saknað 27.000 kjarnorkusprengjur Einnar er saknað Sýnd kl. 6 með íslensku tali. Maður eins og ég er rómantísk gamanmynd úr raunveru- leikanum. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn. Sýnd kl. 8. Vit 417Sýnd kl. 6. Vit 417 SK Radíó XSK Radíó X

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.