Morgunblaðið - 06.09.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 06.09.2002, Síða 16
SUÐURNES 16 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „GRINDVÍKINGAR hafa löngum verið einna stærstir í verkun saltfisks hér á landi og um tíma kom um það bil helmingur saltfiskútflutnings landsmanna héðan. Þá hafa Grindvík- ingar jafnframt lengi verið í forystu fyrir sölusamtök saltfiskframleið- enda, eins og SÍF. Þótti því vel við hæfi að koma upp aðstöðu hér í Grindavík til að segja þessa merku sögu,“ segir Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík og formaður stjórnar Saltfiskseturs Íslands, í samtali við blaðamann í skoðunarferð um húsakynni setursins. Iðnaðarmenn eru að ljúka bygg- ingu glæsilegs sérhannaðs sýningar- húss Saltfisksetursins að Hafnargötu 12a og á sama tíma er verið að leggja lokahönd á uppsetningu sögusýning- ar um saltfisk sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnar við athöfn í dag. Jafnframt verður opnuð sýning á bátalíkönum eftir Grím Karlsson skipstjóra í minni sal set- ursins. Ferðafólk og menning Að sögn Ólafs er hugmyndin með stofnun Saltfisksetursins að höfða til erlendra ferðamanna sem koma til landsins, ekki síst þess stóra hluta þeirra sem leggur leið sína í Bláa lón- ið, og bjóða þeim að upplifa andrúms- loft sjávarplássins. Þá verði skóla- fólki boðið að sækja setrið heim í skipulögðum ferðum. Auk þess verð- ur aðstaðan nýtt til menningarstarfs í Grindavík enda segir Ólafur Örn að einn tilgangurinn sé að efla menning- arstarf í bæjarfélaginu. Bygging Saltfisksetursins, sem Ólafur Örn segir að sé fyrsti áfangi þess, og uppsetning sögusýningar- innar, kostar um 160 milljónir kr. Auk aðal-sýningarsalarins er þar minni salur á efri hæðinni sem fyr- irhugað er að nota til annarra sýn- inga, uppákoma og fundahalds, og anddyri þar sem hægt verður að bjóða upp á kaffi og minjagripi til sölu. Þá hafa verið byggðir sólpallar hafnarmegin við húsið og þar segir Ólafur Örn að Grindvíkingar geti safnast saman við ýmis tækifæri og nefnir sjómannadaginn sérstaklega í því sambandi. Húsið er byggt af Ístaki hf. eftir alútboð. Það er teiknað af Yrki sf, arkitektunum Ásdísi H. Ágústsdótt- ur og Sólveigu Berg Björnsdóttur. Að uppbyggingunni stendur sjálfs- eignarstofnunin Saltfisksetur Íslands sem fjöldi fyrirtækja og einstaklinga í Grindavík á aðild að en Grindavík- urbær ber þó hitann og þungann af uppbyggingunni. Ólafur Örn segir að fyrirtæki í Grindavík styðji uppbygg- inguna myndarlega og einnig sé verið að leita til stórfyrirtækja annars staðar á landinu. Fyrirhugað er að byggja við húsið veitingahús, þar sem lögð verður áhersla á saltfiskrétti, en þeim áfanga hefur verið frestað. Þriðji áfangi yrði bygging annars sýningarsalar vestan við húsið en ekkert hefur verið ákveðið í því efni, að sögn Ólafs. Salurinn er eins og leiksvið Björn G. Björnsson leikmynda- hönnuður hefur unnið að hönnun sögusýningar um saltfiskinn í tæp tvö ár og þótt mörg handtök væru eftir þegar blaðamaður var þarna á ferð fyrr í vikunni fullyrti Björn að allir hlutir yrðu komnir á sinn stað í dag, fyrir komu forsetans. Björn sér sýningarsalinn fyrir sér eins og leiksvið. Markmið hans er að skapa hughrif hjá gestunum með öll- um þeim aðferðum sem tiltækar eru. Gestirnir koma inn í lítið sjávarpláss og fylgist með íbúunum, raunar leik- brúðum, veiða fisk, verka saltfisk og selja. Byggðar hafa verið leikmyndir af gömlum dönskum pakkhúsum og bárujárnshúsum og meira segja sölu- búð í þorpi við Miðjarðarhafið til að sýna söluna sem er lokahluti fram- leiðslunnar. Mikið er af stórum ljós- myndum á veggjum svo og upplýs- ingar í texta. Sjávarmöl er á gólfum og bryggjur til að ganga eftir. Aukið er á hughrif fólks með viðeigandi hljóðum, lifandi myndum og ekki síst lykt. Jafnframt er reynt að sýna þró- unina sem orðið hefur í verkun salt- fisksins til okkar tíma. Björn segir að þrátt fyrir þá stað- reynd að ekkert byggða- eða sjó- minjasafn sé í Grindavík hafi gengið ágætlega að safna munum fyrir sýn- inguna. Hann hafi fengið muni lánaða frá ýmsum söfnum og fyrirtækin í Grindavík lagt ýmislegt til. Þá sé ver- ið að safna munum hjá fyrirtækjum innan SÍF. Loks segir hann að fjöldi muna hafi verið útbúinn sérstaklega fyrir sýninguna. Björn segir að mikið hafi verið skrifað um saltfiskinn og því auðvelt að afla nauðsynlegra upp- lýsinga. Björn segir skemmtilegt að vinna að þessu verkefni. Í upphafi hafi hug- myndin verið að setja sýninguna upp í gömlum fiskverkunarhúsum í Grindavík en bæjarstjórn hafi sýnt þann stórhug að byggja yfir hana glæsilegt sýningarhús. Húsið sé sér- hannað og byggt í þessum eina til- gangi og skapi það mikla möguleika. Segist hann ekki vita til þess að í slíkt hafi áður verið ráðist hér á landi. Þá hælir hann Grindvíkingum fyrir að hafa tekið sögu saltfisksins fyrir. Það skapi þessu setri sérstöðu og segist hann hafa þá trú að fljótt verði þar kominn vísir að sjóminjasafni. Saltfisksýningin verður opnuð fyr- ir almenning næstkomandi mánudag og verður opin alla daga vikunnar frá klukkan 11 til 18. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna. Saltfisksetur Íslands tekið í notkun í sérhönnuðu húsi með opnun sýningar um sögu saltfisksins Lítið sjávar- þorp með við- eigandi lykt og hljóðum Saltfisksetur Íslands verður tekið í notkun í dag með því að forseti Íslands opnar sögusýningu um saltfisk í nýbyggðu sýningarhúsi í Grindavík. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður, Kjartan S. Kristjánsson, forstöðumaður Saltfisksetursins, og Ólafur Örn Bjarnason bæjarstjóri með handbörur og saltfisk á saltfisksýningunni sem verið er að setja upp. Grindavík PORTÚGALSKIR dagar verða á öllum veitingahúsum í Grinda- vík dagana 6. til 8. september, í tilefni af opnun Saltfiskseturs Íslands. Hópur matreiðslunema frá Portúgal kemur til að leiðbeina við matseldina. Portúgalskur matseðill verður á boðstólum og eldað að hætti Portúgala. Þetta er tækifæri til að bragða á salt- fiski eins og hann gerist bestur, segir í fréttatilkynningu frá ferðamálafulltrúa Grindavíkur. Eftirtalin veitingahús taka þátt í portúgölskum dögum: Bláa lónið, Hafurbjörninn, Sjáv- arperlan, Sjómannastofan Vör og Veitingahúsið Jenný. Portú- galskir dagar MENNINGAR- og fjölskylduhá- tíðin Ljósanótt 2002 var sett í Reykjanesbæ í gær um leið og opnuð var sýning á verkum 40 fé- lagsmanna í Myndlistarfélagi Reykjanesbæjar. Við athöfn í Svarta pakkhúsinu sagði Steinþór Jónsson, formaður undirbúningsnefndar, hátíðina setta um leið og hann greindi frá nokkrum atriðum dagskrár. Gat hann þess að þar væru um 50 menningaratriði og þakkaði lista- fólki bæjarins og duglegum menningarfulltrúa. Hann hvatti fólk til að taka þátt í sem flestu og njóta helgarinnar. Breidd í félagsmannahópnum Í Svarta pakkhúsinu við Hafn- argötu í Keflavík hefur verið sett upp sýning á 49 verkum eftir 40 félaga í Myndlistarfélagi Reykja- nesbæjar. Hjördís Árnadóttir, formaður félagsins þakkaði þann heiður sem félagsmönnum væri sýndur með því að setja Ljósanótt við opnun sýningar þeirra. Hún gat þess að breiddin í félaginu væri mikil, byrjendur og lengra komnir myndlistarmenn væru saman í félaginu og allt upp í heimsþekkt listafólk. Þeir sem lengra væru komnir tækju þátt í sýningum og það efldi mjög aðra félagsmenn. Sýningin í Svarta pakkhúsinu er aðeins á Ljósanótt og lýkur á sunnudag. Jafnframt lýkur starf- rækslu félagsins á sumargalleríi sem þar hefur verið frá því í vor. Gestur Friðjónsson lék á harm- oníkuna við setningu Ljósanætur og er hann á myndinni með Steinþóri og Hjördísi. Sýning á verkum 40 félagsmanna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reykjanesbær  Laxness-fjöðrin, listaverk Er- lings Jónssonar, verður afhjúpað á lóð Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Skólavegi 1 í Keflavík, klukkan 15 á morgun, laugardag. Áhugahópur um lista- safn Erlings færði Bókasafni 16 á Ljósanótt. Sýningin verður opin frá klukkan 10 til 22 á laug- ardag en síðan á venjulegum af- greiðslutíma út septembermánuð.  Blómabíllinn verður í Keflavík á Ljósanótt. Þar eru seld blóm. Er þetta í fyrsta skipti sem Blómabíllinn er á ferðinni á þess- um degi. Reykjanesbæjar verkið að gjöf á aldarafmæli Halldórs Laxness. Viðstödd afhjúpunina verða með- al annarra Auður Laxness og Erlingur Jónsson.  Þrjár myndlistarkonur, Hildur Harðardóttir, Gulla Olsen og El- ín Rós Eyjólfsdóttir, sýna saman í Galleríi Hringlist í Hafnargötu Meðal atriða Ljósanætur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.