Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSÖLULOK
Enn meiri lækkun
Nýjar vörur komnar
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Haust
2002
BLACKY
DRESS
jean paul
BRAX
feel good
LAUGARVEGUR 53,
s. 551 4884
Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Glæsileg rúmföt
fyrir alla fjölskylduna
Opið kl. 10-17Langur laugardagur
ÍBÚAR Moskvu áttu í andnauð í gær,
er reykjarmökkur frá skógareldum í
grennd við borgina lagðist yfir hana
og bættist ofan á þá loftmengun sem
fyrir var frá verksmiðjum og bílaum-
ferð. Í tíð kommúnista var áherslan
alltaf lögð á að auka iðnframleiðsluna
án tillits til mengunar sem er mikið
vandamál víða í austurhluta álfunnar.
Hér ganga vegfarendur um Rauða
torgið í Moskvu fyrir framan dóm-
kirkju heilags Basils, umlukta reykj-
armekkinum.
Loftmengunarmökkurinn olli svo
slæmu skyggni að loka varð tíma-
bundið fyrir umferð um flugvelli
borgarinnar og fólki var almennt ráð-
lagt að halda sig innandyra. Borgar-
stjórinn Júrí Lúzhkov bað íbúana,
sem eru um 10 milljónir, að örvænta
ekki, en veðurstofan sagði ástandið
alvarlegt, einkum þar sem hlutfall
kolmónoxíðs í andrúmsloftinu var
orðið tvöfalt hærra en mörkin fyrir
því sem telst heilsuspillandi. Var því
spáð að mekkinum myndi ekki létta af
borginni fyrr en í fyrsta lagi eftir 4–5
daga. Er þetta í annað sinn sem slíkt
reykjarský af völdum skógarelda
leggur yfir rússnesku höfuðborgina á
líðandi sumri. Allt tiltækt slökkvilið á
svæðinu berst við skógareldana.
Reykur
þjakar
Moskvubúa
Reuters
BANDARÍSKA alþjóðafyrirtækið
McDonalds á nú stöðugt erfiðara
uppdráttar í Hvíta-Rússlandi, þar
sem stjórnvöld virðast vera stað-
ráðin í að sjá til þess að skyndibita-
menning sú sem McDonalds stend-
ur fyrir skjóti ekki varanlegum
rótum meðal Hvít-Rússa.
McDonalds hóf í ágústmánuði
lögsókn gegn yfirvöldum í Minsk
vegna lóðarleigusamnings undir
veitingastað skyndibitakeðjunnar í
höfuðborg sovétlýðveldisins fyrr-
verandi. Er lögsókn þessi síðasti
hlekkurinn í langri keðju vand-
kvæða, sem rekstur McDonalds í
landinu hefur rekið sig á frá því
hann hófst þar árið 1996.
McDonalds hafði gert leigusamn-
ing við borgaryfirvöld í Minsk til 39
ára á lóð á góðum stað í miðborg-
inni, rétt hjá lestarstöð og háskóla.
Þar var reistur skyndibitastaður,
einn af sex slíkum sem opnaðir hafa
verið í Hvíta-Rússlandi. Nú hafa
borgaryfirvöld aftur á móti ákveðið
að háskólanum sé heimilt að byggja
á lóðinni og er fyrirhugað að
byggja þar yfir háskóladeild í al-
þjóðastjórnmálum.
Loka verður McDonalds-
veitingastaðnum á lóðinni í tvö ár á
meðan byggingaframkvæmdir há-
skólans standa yfir. Þegar eða ef
veitingastaðurinn opnar aftur mun
hann vera umkringdur nýju há-
skólabyggingunni. Og nú vilja
McDonalds-menn fara fyrir dóm
með málið til að krefjast skaðabóta.
Brjóta alla samninga
Gagnrýnendur líta svo á, að þetta
mál sé dæmigert fyrir þau vanda-
mál sem erlendir aðilar standa
frammi fyrir sem eru að reyna að
standa í rekstri í þessu fyrrverandi
sovétlýðveldi, þar sem tíu milljónir
manna búa. Reynsla síðustu ára
hefur sýnt að hvít-rússnesk yfirvöld
hika ekki við að brjóta samninga
við erlenda fjárfesta. Stórfyrirtæki
á borð við Ford-bílaverksmiðjurnar
hafa gefizt upp og haft sig aftur á
brott eftir að hafa verið búin að
setja jafnvel andvirði hundraða
milljóna króna í fjárfestingar í
landinu.
McDonalds-veitingastaðirnir
eiga sér greinilega marga aðdá-
endur í Hvíta-Rússlandi, þrátt fyrir
vandkvæðin. Aðsóknin er mikil og
fólk sem kemur utan af landi til
borgarinnar flykkist þangað og
heilu fjölskyldurnar láta taka
myndir af sér fyrir utan þetta tákn
bandarísk-vestrænnar matarmenn-
ingar.
En þessar vinsældir meðal
óbreytts almennings breyta því
ekki að skyndibitakeðjan á sér
marga einarða óvildarmenn meðal
embættismanna borgar og ríkis,
sem og hjá háskólanum í Minsk.
Meðal andstæðinga McDonalds
eru „grillbræðurnir“, sem eru hóp-
ur manna sem áður störfuðu hjá
McDonalds og rækta sín í milli eigin
útgáfu McDonalds-slangurs og
halda úti kjarnyrtri heimasíðu þar
sem þeir úthúða fyrirtækinu fyrir
meðferð þess á ungu starfsfólki,
lágum launum og stjórnunarstíl
þess.
Há járngirðing hefur verið reist í
kringum veitingastaðinn.
Í skýrslu sem út kom á vegum Al-
þjóðabankans í janúar sl. er Hvíta-
Rússland sagt vera eitt þeirra fyrr-
verandi lýðvelda Sovétríkjanna þar
sem umbætur væru hvað stytzt á
veg komnar. Alexander Lúkasj-
enkó, forseti landsins, hefur vilj-
andi sniðgengið umbætur af því
tagi sem unnið hefur verið að í öðr-
um fyrrverandi kommúnistaríkjum
Austur-Evrópu síðasta áratuginn.
Vilja taka sér Kúbu
til fyrirmyndar
Svetlana Kalinkina, aðstoðarrit-
stjóri Belorusskaya Delovaya Gaz-
eta, sem er viðskiptablað, segir að
McDonalds-málið sé dæmigert fyrir
vandamál sem erlendir fjárfestar
glími við í Hvíta-Rússlandi.
„Fjöldi erlendra fjárfesta, stórir
sem smáir, hefur gert sér grein fyr-
ir því að það er svo gott sem
ómögulegt að stunda viðskipti í
Hvíta-Rússlandi,“ segir hún. „Of
margir þeirra sem sitja við valda-
taumana í landinu standa enn í
þeirri trú að það sé hægt að breyta
landinu í eins konar Kúbu, land-
lukta í miðri Evrópu, og komast af
á landsins gæðum einum.“
Sem dæmi um aðra erfiðleika
sem McDonalds hefur lent í, er að í
maímánuði sl. gaf heilbrigðisráðu-
neytið í Minsk út yfirlýsingu um að
matur McDonalds væri skaðlegur
heilsu fólks. Ráðlagði ráðuneytið
landsmönnum að leggja sér frekar
hefðbundinn innlendan mat til
munns, en sá matur er, rétt eins og
rússneskur matur almennt, þungur,
fitu- og kolvetnaríkur.
McDonalds í þrenging-
um í Hvíta-Rússlandi
Reuters
Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, skoðar vænlegan hest í
bænum Khoiniki, um 350 km suðaustan við höfuðborgina Minsk, en ekki
fer sögum af því hvort hann keypti gripinn. Erlend stórfyrirtæki kvarta
undan því að Hvít-Rússar standi ekki við gerða samninga.
Moskvu. Los Angeles Times.
Himneskir tónar
í farsímann
KAÞÓLSKA kirkjan í Hollandi
hvetur nú til þess að farsímanot-
endur segi skilið við jarðneska
hringingartóna og sæki sér frek-
ar himneska tóna í símana sína,
stafræn stef sótt úr þekktum
sálmalögum á borð við „Ave
Maria“ eða „Salve Regina“. Á
heimasíðu sem sett hefur verið
upp á vegum kirkjunnar á vef-
slóðinni www.catholictunes.nl er
boðið upp á 15 hringingarstef
byggð á þekktum laglínum
kirkjulegrar tónlistar. Vonast
kirkjunnar menn til að þetta
hjálpi fólki til að eiga augnablik
„andagiftar og íhugunar“ í hvert
sinn sem síminn hringir.
Osama
í Köln
DÓMSTÓLL í Köln í Þýzkalandi
úrskurðaði í gær, að tyrkneskum
hjónum sem búa í borginni væri
ekki heimilt að skrá son sinn und-
ir nafninu Osama bin Laden.
Hjónin höfðu kært ákvörðun
íbúaskrárskrifstofunnar í Köln,
sem neitaði að skrá barnið undir
þessu nafni á þeirri forsendu að
maðurinn sem hjónin vilja skíra
það eftir er eftirlýstur um allan
heim fyrir hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum fyrir ári. Var vísað til
þess í úrskurðinum að nafnið er
heldur ekki leyfilegt í Tyrklandi.
Dómstóllinn fór fram á að for-
eldrar barnsins gæfu skýringar á
nafnavalinu.