Morgunblaðið - 06.09.2002, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 27
SMÁRALIND - KRINGLUNNI - AKUREYRI
Mikið úrval
Verð frá kr. 5.995
Str. 36-42
Ný sending frá og
ÉG hef ekki heyrt Helenu Eyjólfs-
dóttur syngja djass síðan á tónleik-
unum góðu á Hótel Sögu er safnað
var fyrir nýrnavél handa eiginmanni
hennar, Finni Eydal. Þá heyrði ég í
síðasta sinni á djassviðinu bræðurna
Finn og Ingimar, sem nú eru báðir
látnir.
Helena Eyjólfsdóttir er fyrst og
fremst þekkt sem dægurlagasöng-
kona en hefur alltaf sungið djass er
tækifæri hafa gefist enda var Finnur
Eydal einn fremsti djassleikari
landsins. Helena söng fyrst ís-
lenskra kvenna ekta djass inná
hljómplötu árið 1958, voru það lögin
But Noe For Me og Bewitched og
lék The Icelandic All Star með
henni; Finnur, Andrés Ingólfsson
o.fl .
Það var vel til fundið hjá umsjón-
armanni sumardjasstónleikaraðar
Jómfrúarinnar, Sigurði Flosasyni,
að fá Helenu til að syngja með tríói
sínu á þessum lokatónleikum sum-
arsins og ber að þakka honum og
Jakobi veitingamanni fyrir framtak-
ið. Húsfyllir var einsog jafnan á
þessum tónleikum og urðu fjölmarg-
ir frá að hverfa. Tríóið hóf tónleikana
á Willow Weep For Me, ekki ólík út-
gáfunni sem er á skífu Sigurðar,
Himnastiginn. Það ríkti sama blús-
tilfinningin, en leikurinn var allur
sterkari og endað næstum í rytm-
ablúsi. Síðan kom Helena með fínan
Gershwin; Takin The Change Of
Love og síðan Someone To Watch
Over Me, en var þar dálítið tæp í tón-
inu til að byrja með. Gone With The
Wind var skemmmtilega sungið með
latínsveiflu á köflum og tveir Jóns
Múla ópusar voru einnig á dag-
skránni: Það sem ekki má og Gettu
hver hún er? Þrjú lög verð ég að
nefna til viðbótar er Helena söng
mjög skemmtilega: Rodgers-dans-
inn It’s All Right With Me þarsem
Sigurður blés enn einn glæsisólóinn
og Agnar Már hlóð upp garnerískri
spennu, Tenderly sem Sigurður
bætti um betur og What Is The
Thing Called Love eftir Cole Porter
með frábærum orgelsóló Agnars
Más. Þarna komst Helena nær Söru
Vaughan tilfinningunni en ég hef
heyrt aðrar íslenskar söngkonur
gera, þó rödd þeirra, raddbeiting, sé
gjörólík og Helena spanni ekki nema
brot af tónsviði Söru.
Þetta voru einstaklega vel heppn-
aðir tónleikar og hrynurinn fínn;
vinstri hönd Agnars Más sá um bass-
ann og Pétur Grétarsson með fína
trommusveiflu. Svona til gamans
söng Helena Hvíta máva sem auka-
lag, en með meira djassbragði en
fyrr.
Helena djassar að nýju
DJASS
Jómfrúin
Helena Eyjólfsdóttir, söngur, Sigurður
Flosason, altósaxófón, Agnar Már Magn-
ússon, orgel, og Pétur Grétarsson,
trommur. Laugardaginn 31. ágúst 2002.
HELENA EYJÓLFSDÓTTIR OG TRÍÓ
SIGURÐAR FLOSASONAR
Vernharður Linnet
FORNLEIFAVERND ríkisins gef-
ur almenningi kost á að skoða sjö
minjastaði víða um land í dag og á
morgun með leiðsögn sérfræðinga.
Minjarnar tengjast fiskveiðum og
siglingum. Tilefnið er Menningar-
minjadagar Evrópu (The European
Heritage Days) en deginum er ætlað
að vekja athygli á áþreifanlegum
minjum sem liðnar kynslóðir hafa
látið eftir sig og þeirri menningar-
arfleifð sem íslenskt nútímaþjóð-
félag byggir á. Sérfræðingar verða
til staðar á stöðunum sjö, miðla af
þekkingu sinni um minjastaðina og
skiptast á skoðunum við þá gesti sem
þess æskja.
Viðfangsefni menningarminjadag-
anna eru eftirfarandi:
Laugardagur
Minjasvæði Reykjaness: Kynnt
verður verstöðin Selatangar í landi
Ísólfsskála við Grindavík. Agnes
Stefánsdóttir fornleifafræðingur
verður á staðnum kl. 14–16. Upplýs-
ingar: 698 0558/865 4033.
Minjasvæði Vesturlands: Kynnt
verður Berserkjagatan. Magnús A.
Sigurðsson minjavörður mun hefja
kynningu við Bjarnarhöfn kl. 11.
Upplýsingar: 855 1880/865 4033.
Minjasvæði Vestfjarða: Kynnt
verður verstöðin Skálavík við Bol-
ungarvík. Ragnar Edwardsson
kynnir minjarnar kl. 14–16, einnig á
morgun, sunnudag. Upplýsingar:
863 3767/865 4033.
Minjasvæði Norðurlands eystra:
Kynntar verða minjar við Hraun-
höfn í Norður-Þingeyjarsýslu. Sig-
urður Bergsteinsson minjavörður
mun kynna minjarnar kl. 14–16.
Upplýsingar: 865 9942/865 4033.
Minjasvæði Austurlands: Farið
verður í 9 km gönguferð frá Unaósi
og út í Stapavík við Héraðsflóa. Lagt
verður af stað frá Unaósi kl. 13. Um-
sjón Guðný Zoëga minjavörður.
Upplýsingar: 864 1451/865 4033.
Minjasvæði Suðurlands: Að þessu
sinni verða kynntar minjar um fisk-
veiðar við Dyrhólaey og fjallað um
eldri minjar sem vitað er að voru
þar. Kristinn Magnússon fornleifa-
fræðingur sér um kynninguna. Hann
verður á Lágeynni kl. 14–16. Upp-
lýsingar: 849 6451/865 4033.
Sunnudagur
Minjasvæði Norðurlands vestra:
Kynntar leifar á Þingeyrum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu en þar eru þrír
friðlýstir minjastaðir. Þór Hjaltalín
minjavörður mun hefja dagskrána í
Þingeyrakirkju kl. 14. með erindi um
minjarnar. Sérstaklega verður
fjallað um Stígandahróf og gengið
um minjasavæðið að erindi loknu.
Upplýsingar: 869 7203/865 4033).
Menningarminjadagar Evrópu
Leiðsögn um
sjö minjastaði
Verstöðin Selatangar á Reykjanesi.
NÚ stendur yfir skráning nýrra fé-
laga í Vinafélag Íslensku óperunn-
ar. M.a. býðst félagsmönnum einum
að hlýða á óperusöngvarana Kristin
Sigmundsson og Gunnar Guð-
björnsson leiða saman hesta sína á
sérstökum hátíðarsýningum á Rak-
aranum í Sevilla 29. og 30. nóv-
ember.
Kristinn fer með hlutverk Don
Basilios í fimm sýningum og Gunn-
ar syngur hlutverk Almaviva greifa
í ellefu sýningum. Saman syngja
þeir félagar þó aðeins í tveimur síð-
ustu sýningunum.
Sérstök kynning á Rakaranum
verður fyrir félagsmenn í Vina-
félaginu einni klukkustund áður en
hátíðarsýningarnar hefjast. Gunn-
steinn Ólafsson tónlistarmaður sér
um kynninguna en hann kennir
einnig á námskeiði Vinafélagsins og
Endurmenntunar Háskóla Íslands
um Rakarann og Rossini 28. októ-
ber til 29. nóvember. Forgang-
smiðasala fyrir félagsmenn á hátíð-
arsýningarnar stendur fram til 7.
september.
Félagsmenn í Vinafélaginu njóta
einnig forkaupsréttar að aðgöngu-
miðum á aðrar sýningar Íslensku
óperunnar.
Netfang vinafélagsins er vina-
felag@opera.is.
Óperusöngur á
hátíðasýningum
Gunnar
Guðbjörnsson
Kristinn
Sigmundsson
LEIKRIT Þorvaldar Þorsteinsson-
ar And Björk, of course … verður
sýnt á nýjan leik í Borgarleikhúsinu,
eftir sumarhlé, og
verður fyrsta
sýningin í kvöld.
Það er leikhópur
undir stjórn
Benedikts Erl-
ingssonar sem
leikur í verkinu.
Marta Nordal
hefur nú tekið við
hlutverki Sigrún-
ar Eddu Björnsdóttur. Aðrir leikar-
ar eru Harpa Arnardóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Sóley Elíasdóttir,
Halldór Gylfason, Gunnar Hansson
og Þór Tulinius.
Aðeins eru fáar sýningar fyrirhug-
aðar á verkinu nú í haust.
Leikaraskipti
í Björk
Marta Nordal
UNGT ljóðskáld í Garðabæ, Bjarki
Páll Eysteinsson, var í hópi þeirra 33
sem komust í úrslit alþjóðlegu ljóð-
listakeppninnar sem haldin var á
Netinu í sumar. Bjarka Páli var boð-
ið að koma til Washington og taka
þátt í úrslitakeppninni og lesa upp
ljóð sitt en hafði ekki tök á því og
fylgdist því með úr fjarlægð. Ljóð
hans nefnist Heaven on Earth.
Bjarki Páll er 16 ára og hóf nám í
haust við Fjölbrautaskólann í Garða-
bæ en hann hefur einnig getið sér
gott orð sem íþróttamaður.
Komst einnig
í úrslit
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
SÝNING á verkum Eero Lintusaari
skartgripahönnuðar og Harri Syrj-
anen, gullsmiðs og leðursmiðs, verður
opnuð á morgun, laugardag, kl. 16.
Þetta er í þriðja sinn sem Harri
sýnir í Listhúsi Ófeigs. Þeir félagarn-
ir eru kunnir í heimalandi sínu og
hafa haldið margar einkasýningar
bæði heima og erlendis ásamt fjölda
samsýninga víða um lönd. Þeir hafa
hlotið fjölda viðurkenninga, þar á
meðal var Harri kjörinn listiðnarmað-
ur ársins í Finnlandi árið 1996.
Sýningin er opin virka daga kl. 10–
18 og laugardaga kl. 11–16. Sýning-
unni lýkur 25. september.
Skartgripa-
hönnuður
hjá Ófeigi
DILBERT
mbl.is