Morgunblaðið - 06.09.2002, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
LEIÐARAHÖFUNDUR Tímarits lög-
fræðinga er nokkuð harðorður í garð ný-
stofnaðrar lögfræðideildar Háskólans í
Reykjavík (HR) í 2. hefti tímaritsins. Seg-
ir í leiðaranum að töluverðir gallar hafi
komið fram í kynningu á deildinni. Hvergi
hafi komið fram hvaða kröfur verði gerðar
til nemenda, hvaða próf þeir þurfi að
standast og hvernig, enda þótt nemendum
sé eflaust gerð grein fyrir því í upphafi
náms.
„Auglýsingarnar og viðtölin ein og sér
gætu fengið menn til þess að trúa því að
eftir fimm ár útskrifuðust úr deildinni allir
þeir sem inngöngu sóttu í haust sem
„framúrskarandi lögfræðingar sem geti
skipað sér í fremstu röð á sínu sviði“.
Fróðir menn segja hins vegar að við allar
lagadeildir, sem vilja láta taka mark á sér,
sé aðeins tvennt til, annaðhvort að beitt sé
ströngum inntökuskilyrðum eða nemendur
verði látnir standast, fljótlega eftir upphaf
náms, próf sem úrslitum ræður um hvort
þeir fái að halda því áfram.“ Vitnað er til
kynningar HR í Morgunblaðinu þar sem
segir að skólinn muni bjóða upp á metn-
aðarfullt og nútímalegt laganám sem „mið-
ar að því að útskrifaðir nemendur verði
framúrskarandi lögfræðingar sem geti
skipað sér í fremstu röð á sínu sviði“.
Nemendur tæpast felldir
af sömu hörku og í HÍ
Leiðarahöfundur segir að samkvæmt
orðum deildarforseta, sem sömuleiðis birt-
ust í Morgunblaðinu, verði blíðlega tekið á
móti þeim nemendum sem fái inngöngu í
deildina og óþarft að óttast að margir
nemend
endur ve
unni og
skóla Ís
spyrja s
einhver
drjúgan
þeirra sj
deildinn
við þeim
um,“ seg
Þá sé
sem mu
geta me
sé veifað
fara efti
þeir ver
prófesso
Erfitt
Hörð gagnrýni á lagadeild Háskólans í R
Menn sanna si
auglýsingum og
EIRÍKUR Tómasson, forseti lagadeildar
Háskóla Íslands (HÍ), segir að honum finnist
þetta vera orð í tíma töluð, hann taki undir
margt sem þar komi fram. „Mér finnst að
lagadeild Háskólans í Reykjavík þurfi að
sanna sig áður en hún fer að gefa yfirlýs-
ingar af því tagi sem fyrirsvarsmenn hennar
hafa gefið, eins og er tekið upp í leiðaranum.
Ég kannast ekki við neitt dæmi þess frá okk-
ar nágrannalöndum að deild sem ekki hefur
tekið til starfa lýsi því yfir að hún muni út-
skrifa framúrskarandi lögfræðinga. Það þarf
að byggja lagakennslu upp á löngum tíma,“
segir Eiríkur.
Hann segir að í Danmörku hafi aðeins
tveir rótgrónir háskólar heimild til að út-
skrifa fullgilda lögfræðinga. „Danmörk er nú
20 sinnum fjölmennara þjóðfélag en okkar.
Þetta eru miklu stærri lagadeildir en við
þekkjum hér. Í Noregi eru þetta þrír skólar
og fimm í Svíþjóð. Við þurfum að ætla okkur
af í samkeppninni. Mér finnst að menn hafi
farið ansi hratt í Háskólanum í Reykjavík,
án þess að ég sé endilega að beina gagnrýni
minni að þeim.“
Fleiri skólar hafi tekið upp kennslu í lög-
fræði. „Mér finnst gott að auka kennslu í lög-
fræði, ég tek það fram og samkeppnin er
góð, hún hefur a.m.k. verið okkur hvatning
hér.“
HÍ hafi útskrifað um 50 lögfræðinga að
meðaltali á ári sem sé ívið hærra hlutfall,
miðað við fólksfjölda, en á nágrannalöndun-
um. Ekki hafi verið skortur á lögfræðingum,
en það sé gott að fá fleiri til starfa í samfélag-
inu sem kunni eitthvað fyrir sér í lögum.
Verða að setja
strangar kröfur
Eiríkur segir að hann hafi ekkert við að-
ferð HR við inntöku nemenda að athuga.
„Það sem skiptir öllu máli er að lagadeild
HR geri strangar kröfur til nemenda sinna.
Ef það er gert útskrifast frá þeim hæfir lög-
Orð í tíma töluð
Lö
Eiríkur Tómasson, forseti
lagadeildar Háskóla Íslands
JÓN Steinar Gunnlaugsson, pró-
fessor við lagadeild Háskólans í
Reykjavík, segir að honum finn-
ist leiðaraskrifin í Tímariti lög-
fræðinga vera kuldaleg kveðja til
lagadeildar HR. „Vill höfundur-
inn ekki bara leyfa okkur í laga-
deild HR að sýna fram á það með
störfum okkar hvers við erum
megnug áður en hann byrjar að
tala svona til okkar?“ spyr hann.
Hann segir að í leiðaranum
birtist sömuleiðis mörg sérkenni-
leg viðhorf. „Í fyrsta lagi virðist
að sá sem leiðarann skrifar telji
það vera til marks um vandaða
lagakennslu að fella sem flesta
nemendur. Hann byrjar á því að
fjalla um það að í lagadeild HÍ
séu margir felldir og virðist gefa
það í skyn að með því að fella
færri sé lagakennslan sem veitt
er lakari. Þetta eru auðvitað
mjög sérkennilegt sjónarmið.“
Auðvitað þurfi að gera kröfur í
akademísku námi, það sé hægt að
gera á ýmsa vegu.
Jón Steinar segir að sömuleiðis
komi það viðhorf honum spánskt
fyrir sjónir sem leiðarahöfundur
gefur í skyn að til standi að taka
„blíðlega“ á móti þeim nemend-
um sem hefja nám við deildina.
„Hvaða boðskapur er þetta?“
spyr Jón Steinar. „Er hann að
segja að þá og því aðeins verði
námið við HR sambærilegt nám-
inu við HÍ að hlutfallslega jafn-
margir verði felldir þar, á fyrsta
ári eða fljótlega eftir þeir byrja?“
Sömuleiðis sé undarlegt sem
gefið sé í skyn að skólagjöldin við
HR feli það í sér að minni kröfur
verði gerðar til nemenda. „Það
væri gaman að vita hvað háskól-
ar heimsins, bestu háskólar í
heimi, segðu við sjónarmiðum af
þessu tagi þar sem skólagjöld
eru auðvitað margfalt hærri en
hér er um að ræða.“
Ítarleg greinargerð samin
um störf Jóns Steinars
Jón Steinar segir að þá sé
hnýtt í hann með sérkennilegum
hætti, en hann er eini prófess-
orinn sem ráðinn hefur ve
deildina. Sagt sé að men
orðið prófessorar „eins og
sé veifað“ og þurfi ekki „
eftir því langa og leiðinleg
sem þeir verða að ger
sækja um stöðu prófess
lagadeild HÍ“.
„Það er eins og höfundu
arar greinar telji að þet
ekki verið gert þegar ég v
inn sem prófessor við þenn
skóla og mér er spurn hv
hann um það. Hér var sa
arleg greinargerð um m
fræðistörf áður en ég var r
þetta starf, m.a. mín fræ
skrif sem eru allnokkur au
sem ég er með kennslu
frá Háskóla Íslands fyri
lögmannsstörf mín um á
Kuldalegar
og ótímabær-
ar kveðjur
Lagadeild tók til star
Jón Steinar Gunnlaugsson,
prófessor við lagadeild HR
HAGUR ALDRAÐRA
TÍMAMÓT HJÁ MAREL
Hátæknifyrirtækið Marel hef-ur tekið í notkun nýjar höf-uðstöðvar við Austurhraun
í Garðabæ. Nýja húsið er sérsniðið
að starfsemi fyrirtækisins og allt
hið glæsilegasta. Við hönnun og
skipulag húsnæðisins var lögð
áhersla á að skapa gott vinnuum-
hverfi með því að tryggja m.a. góða
hljóðvist, lýsingu og loftræstingu.
Sveigjanleiki er í öllu skipulagi
húsnæðisins og auðvelt fyrir fyr-
irtækið að aðlaga sig þeim hugs-
anlegu breytingum sem verða
munu á rekstri þess á komandi ár-
um. Nýja byggingin er rúmir
15.000 fermetrar að stærð og ger-
breytir allri aðstöðu fyrirtækisins,
sem áður var með starfsemi í
tveimur byggingum í Reykjavík.
Rými Marels eykst um helming við
flutninginn og að auki eru fyrir
hendi möguleikar á stækkun um
3.500 fermetra.
Marel, sem var stofnað árið 1983,
hefur á þeim rúmu 19 árum sem
síðan eru liðin verið til húsa á
tveimur stöðum, upphaflega á Suð-
urlandsbraut 32 og frá árinu 1985 á
Höfðabakka 9 í Reykjavík auk þess
að vera með á leigu húsnæði í
Tungubakka. Þegar flutt var á
Höfðabakkann voru starfsmenn
Marel 35. Þar áttfaldaðist fjöldi
þeirra því í Austurhrauninu eru
starfsmenn Marel 280. Hjá Marel-
samstæðunni starfa nú um 800
starfsmenn í 11 löndum víðs vegar
um heiminn.
Mikill vöxtur hefur einkennt
starfsemi Marels en árlegur með-
alvöxtur fyrirtækisins hefur verið
um 35%. Fyrirtækið selur nú fram-
leiðsluvörur sínar jöfnum höndum í
fiskiðnaði, alifuglaiðnaði og kjöt-
iðnaði. Um 98% af veltu fyrirtæk-
isins koma frá erlendum mörkuð-
um.
Marel á rætur sínar í Háskóla Ís-
lands og hefur verið byggt upp og
þróað af háskólamenntuðum mönn-
um. Þar hafa verið mótaðir annars
konar stjórnunarhættir en í mörg-
um íslenskum fyrirtækjum að því
leyti til að lögð hefur verið áhersla
á flatt stjórnkerfi með stuttum boð-
leiðum á milli starfsmanna og
æðstu stjórnenda. Fyrirtækið hefur
lagt áherslu á hópvinnu og tók fyrir
nokkrum árum upp svokallað sellu-
fyrirkomulag í framleiðslu og
stjórnun, sem víða hefur reynst vel
en er ekki algengt hjá íslenskum
framleiðslufyrirtækjum. Sýnir það
þá framsýni sem ávallt hefur ríkt
hjá stjórnendum þess.
Við byggingu hins nýja húss í
Garðabænum var tekið mið af
þessu framleiðsluferli og er ótrú-
legt að sjá þann sveigjanleika sem
það býður upp á bæði fyrir starfs-
menn og starfsemina. Hingað til
hefur fyrirtækið eingöngu getað
framleitt upp í pantanir en í nýja
húsinu opnast sá möguleiki að geta
átt einfaldari línur til í einhverju
magni sem getur aukið sölumögu-
leika verulega. Enn sem fyrr verða
stærri og flóknari línur eingöngu
framleiddar upp í pantanir enda
sérsniðnar að þörfum hvers og eins.
Í ræðu sem Benedikt Sveinsson,
stjórnarformaður Marels, flutti
þegar húsið var tekið formlega í
notkun sl. þriðjudag kom fram að
með því að sameina starfsemi fé-
lagsins á einn stað í hentugri að-
stöðu sparast miklir fjármunir og
möguleikar skapast til umtals-
verðrar framleiðniaukningar.
Að sögn Benedikts hafa Garðbæ-
ingar tekið vel á móti Marel. Alls
eru nú um 4.300 störf í Garðabæ.
Marel er nú stærsti einstaki vinnu-
staðurinn í Garðabæ eða með um
7% af öllum störfum í bænum.
Það hlýtur að vera mikil lyfti-
stöng fyrir bæjarfélag eins og
Garðabæ að fá starfsemi stórfyrir-
tækis eins og Marel til sín.
Nýjar höfuðstöðvar eru fyrirtæk-
inu til sóma og jákvætt að sjá nýja
byggingu rísa þar sem hugað er að
þörfum starfseminnar og starfs-
manna með þeim hætti sem er hjá
Marel í Garðabænum. Það er rík
ástæða til að óska stjórnendum,
starfsmönnum og hluthöfum Marel
til hamingju með þessi merku
þáttaskil í sögu fyrirtækisins.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-flokksins kynntu á blaðamanna-
fundi í fyrradag tillögur um lækkun
fasteignaskatta á aldraða og ör-
yrkja, sem lagðar voru fram á fundi
borgarstjórnar í gær. Er gert ráð
fyrir að hækka tekjuviðmið vegna
niðurfellingar fasteignaskatta um
50% á íbúðarhúsnæði 67 ára og eldri
og öryrkja, sem þeir eiga og búa í.
Jafnframt er lagt til að holræsagjald
verði lækkað um 25% á næsta ári,
sem fyrsta áfanga í að fella það niður
á kjörtímabilinu. Telja Sjálfstæðis-
menn að þannig mundi þeim fjölga
verulega, sem greiði enga fasteigna-
skatta og holræsagjald eða fá 80%
eða 50% niðurfellingu á þessum
sköttum.
Í tilefni af þessari tillögugerð er
ástæða til að minna á, að almennt er
hagur aldraðra borgara erfiður. Þótt
hluti þessa aldurshóps sé eignalega
vel settur og þurfi ekki að hafa
áhyggjur af afkomu sinni í ellinni og
annar hópur búi við betri eftirlauna-
kjör en almennt tíðkazt er ljóst að
stór hópur aldraðra á ekki auðvelt
með að láta enda ná saman. Ástæðan
er m.a. sú, að þótt lífeyrissjóðakerfið
hafi verið að eflast á síðustu tveimur
áratugum eftir að verðtrygging kom
til sögunnar njóta þeir, sem komnir
eru á eftirlaunaaldur, nú þeirrar
batnandi stöðu ekki nema að tak-
mörkuðu leyti. Það verða aðrar kyn-
slóðir, sem njóta góðs af því.
Talsmenn aldraðra hafa linnulaust
reynt að vekja athygli á málstað sín-
um á undanförnum misserum. Von-
andi er tillöguflutningur sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn nú og ýmsar
aðrar aðgerðir af hálfu opinberra að-
ila til marks um að þeir sem ráða
ferðinni hjá ríki og sveitarfélögum
séu byrjaðir að hlusta.