Morgunblaðið - 06.09.2002, Side 49

Morgunblaðið - 06.09.2002, Side 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 49 ÞAÐ er alltaf gaman á haustin þeg- ar vetrarstarf kirknanna fer í gang því þá vakna þær af sumardval- anum og kalla fólk til kirkju á ný. Hjallakirkja í Kópavogi er þar eng- in undantekning. Næsti sunnudag- ur markar upphaf vetrarstarfsins í kirkjunni og hefjum við starfið með sköpunarhátíð kl. 11. Um er að ræða allsherjar fjölskylduhátíð fyr- ir stóra og smáa en dagskráin er að mestu miðuð við yngri kynslóðina. Brúður leika stórt hlutverk á hátíð- inni og Tóta trúður kíkir í heim- sókn. Næstu helgi, sunnudaginn 15. september, hefjast svo barnaguðs- þjónustur á ný en þær eru hvern sunnudag kl. 13. Í næstu viku hefst svo vetr- arstarfið í kirkjunni. Barna- og æskulýðsstarf verður með hefð- bundnu sniði. Æskulýðsfélagið fyr- ir unglinga í 8. bekk verður á sínum stað á mánudagskvöldum kl. 20 og verður fyrsta samveran 9. sept- ember. Svo ætlum við að gera til- raun með starf fyrir unglinga í 9. og 10. bekk og munu þau hittast fyrst sunnudagskvöldið 15. sept- ember kl. 20. Tíu til tólf ára starfið er á sínum stað á miðvikudögum kl. 17 og kirkjuprakkararnir, 7–9 ára börn, mæta í kirkjuna á fimmtudög- um kl. 16.30. Ekki má gleyma að nefna fjölskyldumorgna, samverur fyrir unga foreldra með börn sín, en þær eru á miðvikudögum kl. 10– 12. Þá bjóðum við aftur upp á 12 spora námskeið í kirkjunni, en það gaf góða raun á síðasta vetri. Um er að ræða námskeið sem er til þess fallið að hjálpa fólki að vinna með tilfinningar sínar, öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu með hjálp kristinnar trúar. Fyrsti kynning- arfundurinn um námskeiðið verður miðvikudaginn 11. september kl. 20 og eru allir velkomnir. Á mið- vikudögum munum við einnig bjóða upp á opið hús hálfsmánaðarlega kl. 12–14 en þar bjóðum við velkom- in öll þau sem eru heima við á dag- inn og vilja stytta sér stundir með því að sýna sig og sjá aðra. Hver samvera hefst með léttum hádeg- isverði, síðan er slegið á létta strengi með ýmsum hætti og gestir koma í heimsókn. Samverunni lýkur á stuttri helgistund. Fyrsta opna húsið verður miðvikudaginn 18. september og síðan hálfs- mánaðarlega eftir það. Að öðru leyti er helgihald og safnaðarstarf með hefðbundnu sniði. Guðsþjónustur eða messur eru á sunnudögum kl. 11 og bæna- og kyrrðarstundir í kirkjunni á þriðjudögum kl. 18. Verið velkomin í Hjallakirkju. Safnaðarferð haustið 2002 SAFNAÐARSTARF Fríkirkjunnar í Reykjavík mun halda í sína árlegu safnaðarferð laugardaginn 7. sept- ember. Ferðinni er heitið á Vest- urlandið. Lagt verður af stað frá Fríkirkj- unni í Reykjavík klukkan 10. Ferða- tilhögun er þannig að við ökum um Hvalfjörð og Skorradal. Stoppað verður á Hvanneyri þar sem við munum skoða Búvélasafnið sem þar er. Þaðan verður ekið að Deild- artunguhver. Hádegismatur verður snæddur á Hótel Reykholti. Þar verður boðið upp á súpu dagsins með nýbökuðum bollum og smjöri í forrétt. Aðalréttur verður gufusoð- in ýsa með pipar, kartöflupasta (gnocchi), rækjum og sítrónu. Og að sjálfsögðu verður kaffi og te á eftir. Eftir gott stopp í Reykholti skoðum við Hraun og Barnafossa. Síðan verður stoppað í Borgarnesi og ek- ið heim á leið í gegnum göngin. Að venju mun Fríkirkjan greiða hluta af ferðakostnaði. Þátttöku- gjald/ferðakostnaður er 2.000 kr. fyrir fullorðna og 1.000 kr. fyrir börn. Innifalið í því verði eru ferðir og matur í Reykholti. Þeir sem óska eftir frekari upp- lýsingum og ætla að taka þátt í þessari ferð eru vinsamlegast beðn- ir að skrá sig í síma safnaðarheim- ilisins, 552 7270, eða á netinu: fri- kirkjan@frikirkjan.is og hreidar@frikirkjan.is. Safnaðarstarf fríkirkjunnar í Reykjavík, sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson, Hreiðar Örn Zoëga Stef- ánsson. Fjölskylduhátíð í Grafarvogskirkju SUNNUDAGINN 8. september nk. kl. 11 er fyrsta barnaguðsþjónusta haustsins í Grafarvogskirkju. Há- tíðin verður haldin í aðalsal kirkj- unnar. Sunnudagaskólinn settur. Brúð- urnar Sólveig, Karl og Konni koma í heimsókn ásamt trúðum. Sér- stakir „heiðursgestir“ verða dýr sem minna okkur á sköpun Drott- ins, meðal annars koma hvolpar, kanína og hænuungar. Krakka-, barna- og unglingakór kirkjunnar syngja. Stjórnandi Oddný J. Þor- steinsdóttir. Organisti: Hörður Bragason. Prestar og starfsfólk barnastarfsins taka þátt í guðsþjón- ustunni. Félög kirkjunnar, safn- aðarfélagið, félag eldri borgara, æskulýðsfélög, foreldramorgnar og kórarnir kynna starf sitt eftir messu. Boðið er upp á kaffi, djús og kleinur eftir athöfn. Grafarvogskirkja. Glatt á hjalla í Hjallakirkju Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyr- ir börn. Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og bibl- íufræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 19 verður kvöldverðarskemmtun á vegum lofgjörðarhópsins. Keflavíkurkirkja. Ljósanótt, menning- ardagar í Reykjanesbæ: Dagskráratriði í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavík- urkirkju: Svartar rósir: Bylgja Dís Gunnarsdóttir, söngkona og Lára Rafnsdóttir, píanó- leikari, halda tónleika í Kirkjulundi kl. 20.30. Aðgangseyrir 1.500 kr. Verið velkomin. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Samkomur á laugardögum: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Bænastundir á hverju kvöldi kl. 20-22 í hliðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður: Gavin Anthony. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar Valgeir Arason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður: Brynjar Ólafsson. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf Kirkjustarf Styrktar- hlaup á laugardag RANN hlaupið sem sagt var frá í blaðinu í gær að færi fram sunnu- daginn 8. september hefur verið fært yfir á laugardag, 7. september, klukkan 19:00. VETRARSTARF KFUM og KFUK í Reykjavík hefst með hausthátíð sunnudaginn 8. septem- ber. Þá verður fjölskyldudagur í aðalstöðvum félagsins með dag- skrá sem hefst kl. 14. Úti verður knattspyrna á vegum Sportfélags- ins Hvats, kassabílarall, margs konar leiktæki og leikir, ungling- arúta félagsins o.fl. Inni verður skákmót, kaffihús verður opið og kynntar allar starfsgreinar og deildir KFUM og KFUK og syst- urfélaga þess, Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og Kristilegu skólahreyfingarinnar, en innan hennar eru Kristileg skólasamtök og Kristilegt stúdentafélag. Hægt verður að spjalla við for- svarsmenna starfsgreinanna og spyrja þá um starfið. „Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér starf KFUM og KFUK og starfs- greina þess og skoða félagsheim- ilið,“ segir Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri. „Félagið rekur barna og unglingastarf á Reykja- víkursvæðinu í 32 deildum, sum- arbúðir í Vatnaskógi fyrir drengi en einnig feðga á haustin, sum- arbúðir í Vindáshlíð fyrir stúlkur, miðbæjarstarf í Austurstræti 20 sem hefur að markmiði að ná til ungmenna miðborgarinnar sem sum eiga í erfiðleikum og Ömmu- kaffi í því húsi. Þá á félagið og rekur unglingarútu sem er tveggja hæða enskur strætisvagn sem er eins konar félagsmiðstöð á hjólum. Starfsemi í henni fer fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hefur leiðtogadeild verið komið á fót sem sér um þjálfun verðandi leiðtoga í starfi félags- ins.“ Kynjaskiptar aðaldeildir fyrir karlmenn og konur eru starfrækt- ar yfir vetrarmánuðina og almenn- ar samkomur eru haldnar á sunnu- dögum kl. 17 en einnig svo kallaðar Vökur kl. 20 á sunnudags- kvöldum yfir vetrarmánuðina (hefjast 15. sept.) en þar er lögð áhersla á nútímatónlist og sveigj- anlegt form. Einnig á félagið og rekur ásamt systurfélögum sínum (Kristilegri skólahreyfingu og Kristniboðssambandinu) Biblíu- skólann við Holtaveg sem býður upp á fjölbreytt námskeiðahald yf- ir veturinn, m.a. Alfa-námskeið, en slíkt námskeið hefst 10. septem- ber. Kristileg skólasamtök hafa fjöl- breytt starf fyrir unglinga á aldr- inum 16–20 ára og Kristilegt stúd- entafélag fyrir 20 ára og eldri. Fjölskyldusamkoma verður kl. 17 á sunnudaginn með fjölbreyttri dagskrá og grillveislu á eftir. KFUM og KFUK með hausthátíð um næstu helgi Pennar seldir til styrktar Krabbameins- félaginu UM helgina verða seldir pennar um land allt til styrktar starfi Krabbameinsfélagsins, en slík sala er orðin árviss. Selt verður við verslanir og gengið í hús þar sem því verður við komið. Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabba- meinsfélags Íslands en það eru 25 svæðisbundin krabbameinsfélög og fimm stuðningshópar, sem stofn- aðir hafa verið til að sinna fé- lagslegri þjónustu við þá sem hafa fengið krabbamein. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að efla starf svæðisbundnu félaganna. Hafa nokkur þeirra þegar tekist á við veigamikil verkefni í heima- byggð sinni, einkum á sviði fræðslu og forvarna. Pennasölunni er ætlað að styðja við þessa starfs- þætti. Krabbameinsfélagið væntir þess að landsmenn taki sölufólki vel og noti þetta tækifæri til að efla baráttuna gegn krabbameini. Krabbameinsfélag Íslands hefur með höndum fjölþætta starfsemi: Leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna, skráningu krabbameins, krabbameinsrann- sóknir, fræðslu um krabbameins- varnir og ýmiss konar stuðning við sjúklinga. Starfsmenn Orkubús Vestfjarða Fallið verði frá sameiningu orkufyrirtækja AÐALFUNDUR starfsmanna- félags Orkubús Vestfjarða fagnar og styður ályktun 47. fjórðungs- þings Vestfirðinga um orkumál. Hvetur aðalfundurinn sveitarstjórn- armenn og þingmenn hins nýja norðvesturkjördæmis til að fylgja ályktuninni eftir við iðnaðarráð- herra og þingmenn. Ályktun fjórðungsþingsins var á þá leið að skora á iðnaðarráðherra að falla frá áformum um samein- ingu RARIK, Orkubús Vestfjarða og Norðurorku með höfuðstöðvar á Akureyri. Segir að nái þessi áform fram að ganga muni störfum fækka á Vestfjörðum þrátt fyrir sam- komulag við ríkisstjórnina um að efla þessa starfsemi í fjórðungnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.