Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD kl. 22 verður sýndur fyrsti þáttur vetrarins í
hinni vinsælu þáttaröð Djúpu lauginni á Skjá einum.
Eins og margir muna fengu tíu einstaklingar að sjá um
prufuþátt í vor og tveir þeirra voru valdir úr sem stjórn-
endur þáttarins í vetur, þau Kolbrún Björnsdóttir og
Hálfdán Steinþórsson.
Ögrun eða athyglissýki?
„Það eru búið að vera brjálað að gera við undirbúning
þáttarins, og þetta er mjög skemmtileg vinna,“ segir
Kolbrún.
„Já, ég var á sjónum svo við Kolla hittumst ekki fyrr
en fyrir mánuði, en í þennan mánuð hafa tekist miklir
kærleikar með okkur,“ bætir Hálfdán við, og þau brosa
hvort til annars, greinilega strax orðin bestu vinir.
Kolbrún, sem er hárgreiðslumeistari, segist hafa sótt
um starfið til að ögra sér, enda haldin mikilli myndavéla-
fælni. „Ég gat ekki ímyndað mér að ég kæmist alla leið
og fengi starfið, en núna strax hef ég losnað við fælnina.
Samt myndi ég eiginlega vilja gera þetta með öðru and-
liti. Ég held að þetta verði kannski svolítið mikið eftir
veturinn.“
„Maður er auðvitað athyglissjúkur,“ botnar Hálfdán
með glott á vör. „Nei, nei, ég vildi ögra sjálfum mér með
að prófa að sækja um, breikka sjóndeildarhringinn,“
segir Hálfdán sem m.a hefur búið í kommúnu í London.
Gaman að taka þátt
Þau segja þáttinn verða svipaðan og áður, allavega sé
leikurinn sjálfur alveg eins. „Síðan er nýtt sett, og nýtt
Djúpu laugar-lag verður frumflutt í þættinum í kvöld.
Við verðum líka með skemmtilegt sófaviðtal í kvöld, og
langar að hafa það fastan lið að spjalla við einstakling
sem er sérfróður á einhvern hátt um þessi mál,“ segir
Kolbrún.
Einnig segja þau ævintýraferðirnar verða svipaðar, en
jafnvel enn ævintýralegri en áður. Hins vegar muni nú
reyna meira á samvinnu stefnumótaparsins en oft áður.
Nýju stjórnendurnir vita nefnilega hvernig er að vera
báðum megin við borðið.
„Við Kolla höfum bæði farið í þáttinn sem keppendur.
Ég fékk að velja mér dömu, og Kolla var valin til að fara á
stefnumót,“ útskýrir Hálfdán.
„Og það kom mér á óvart hversu ótrúlega gaman er að
taka þátt í Djúpu lauginni,“ segir Kolla.
„Þannig að bíðið með að binda ykkur þangað til þið haf-
ið komið í þáttinn,“ segir Hálfdán.
Og til að sækja um þátttöku er best að fara inn á
strik.is og þaðan inn á Djúpu laugina. En fyrst er um að
gera að skella sér í partí á Vídalín sem haldið verður eftir
að útsendingu fyrsta þáttarins lýkur, en það er bannað
lenda á „séns“, því…
„…það er skilyrði að vera á lausu til að taka þátt í
Djúpu lauginni,“ ítrekar Kolla að lokum.
Djúpa laugin full að nýju
Bíðið með að binda ykkur!
Morgunblaðið/Kristinn
Hálfdáni og Kolbrúnu finnst mesta áskorunin að
leiða saman fólk sem á eitthvað sameiginlegt.
Leitandi einstæðum sálum ætti að
vegna vel í höndum sálfræðinemans
og hárgreiðslukonunnar sem munu
leiða saman líka einstaklinga í beinni
útsendingu í vetur.
Alltaf á þriðjudögum
Sýnd kl. 4 og 5. Íslenskt tal. Vit 429
Það er einn í hverri
fjölskyldu!
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
Sýnd kl. 6.45, 9 og 11.15 B.i. 12. Vit 427
Kvikmyndir.com
DV
1/2
SK.RadioX i ir.ir rti ir. . i
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12. Vit 423
FRUMSÝNING
M E L G I B S O N
Hetja framtíðarinnar
er mætt í frábærri
grínmynd!
EddieMurphyog RandyQuaidí sprenghlægilegri
gamanmynd sem kemur verulega á óvart.
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
27 þúsund áhorfendur
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SG. DV
SV Mbl
Sýnd kl. 6.
Líf þitt mun
aldrei verða
eins!
Sjáið myndina í frábæru
nýju hljóðkerfi Háskólabíós
ÓHT Rás2
SK Radíó X
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10. Enskt tal.
FRUMSÝNINGM E L G I B S O N
Sýnd kl. 5.45, 8 10.20. B. i. 12.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
„Ótrúlega fyndin, fjörug og frumleg mynd sem
fengið hefur frábæra dóma.“
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Hverfisgata 26 - Tel.: 511 3240
Bjarni
Tryggva
spilar
alla
helgina
sex
fet
undir
Við erum best geymda
um helgar
Opið til
kl. 5.30
The Merry Ploughboys föstudag.
Það eru Dublin dagar þessa
daganna og alltaf Írsk
stemming á Celtic.