Morgunblaðið - 07.09.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGullpotturinn skiptist í
fernt í Berlín /B4
Óvíst hvort Árni Gautur leiki
gegn Ungverjum /B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r7.
s e p t e m b e r ˜ 2 0 0 2
TVEIMUR skipverjum af skútunni
Orbit 2 var bjargað um borð í þyrlur
varnarliðsins snemma í gærmorgun
en annar þeirra hafði slasast þegar
mastur brotnaði og lenti á honum.
Norskur togari tók skútuna í tog
meðan unnið var að björgunaraðgerð-
um en þegar síðast fréttist af skút-
unni rak hana stjórnlaust.
Samkvæmt upplýsingum frá slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss reyndist breskur skipverji
meiddur á fæti og víðar en áverkar
hans voru ekki eins alvarlegir og talið
var í fyrstu. Hinn skipverjinn sem er
kanadískur hlaut væga ofkælingu en
er ómeiddur.
Í fréttatilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni kemur fram að björgunar-
stöðin í Clyde á Skotlandi hafði sam-
band við stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar klukkan 19.40 í fyrrakvöld
vegna sendinga frá neyðarbauju 240
sjómílur suðaustur af Vestmannaeyj-
um. Einnig hafði þota Flugleiða num-
ið neyðarsendinguna á leið sinni til Ír-
lands. Nimrod eftirlitsflugvél var
send af stað frá Bretlandi og kom
áhöfn hennar auga á neyðarblys sem
skotið var frá skútunni um klukkan
23. Haft var samband við skútuna og
var áhöfninni tjáð að mastur hefði
fallið á annan skipverjann sem hefði
fótbrotnað og hlotið innvortis meiðsl.
Landhelgisgæslan óskaði eftir því við
varnarliðið að það sendi þyrlu eftir
skipverjunum en taldar voru líkur á
að þyrlur Landhelgisgæslunnar
þyrftu að sinna öðrum neyðarköllum.
Þá höfðu borist óvenju mörg neyð-
arköll norður af landinu en þau
reyndust vera fölsk og segir Dagmar
Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar, að líkur séu á
að þau hafi borist frá herskipum og
flugvélum sem eru að æfingum þar.
Samkvæmt upplýsingum frá varnar-
liðinu lögðu þyrlurnar upp frá Kefla-
vík klukkan 5:10. Norski togarinn
Koralle var þá kominn með laskaða
skútuna í tog og Nimrod eftirlitsflug-
vél breska flughersins sveimaði.
Mennirnir tveir voru hífðir hvor upp í
sína þyrluna og sneru áleiðis til
Reykjavíkur um áttaleytið. Þær lentu
við Landspítalann í Fossvogi um
tveimur og hálfri klukkustund síðar.
Þyrlur varnarliðsins sóttu skipverja 300 sjómílur á haf út
Slasaðist þegar skútu-
mastrið lenti á honum
Mennirnir voru hífðir um borð í þyrlur suðaustur af Reykjanesi.
VIÐGERÐ er hafin á sæstrengnum
Cantat3, sem bilaði að morgni 28.
ágúst á milli Færeyja og Bretlands.
Viðgerðarskip á vegum Teleglobe,
sem annast rekstur strengsins, fann
strenginn sl. fimmtudag og var þeg-
ar hafist handa við að hífa hann upp
á dekk til viðgerða. Skv. upplýsing-
um Heiðrúnar Jónsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Landssímans, er áætlað
að viðgerð verði lokið 11. september.
Öll talsímaumferð til og frá land-
inu fer nú fram um gervitungl en
netsamband hefur verið flutt yfir á
Cantat3-strenginn til Bandaríkj-
anna. Allt fjarskiptasamband um
sæstrenginn til Evrópu liggur hins
vegar niðri þar til viðgerð lýkur.
Að sögn Heiðrúnar er komið á
fullt talsíma- og netsamband við út-
lönd eftir þessum leiðum og er
Landssímanum ekki kunnugt um að
neinar truflanir hafi orðið. Til að ná
sæstrengnum upp í skipið þurfti að
skera á hann og var vestari endinn
hífður upp síðdegis. Kom þá í ljós
eins og talið hafði verið að einangrun
strengsins hafði rofnað. Var bútur
klipptur af og endinn síðan festur við
bauju. Því næst var hafist handa við
að ná upp endanum Evrópumegin og
viðgerð hafin.
Áætlað að við-
gerð verði lokið
11. september
Viðgerðarskip við Cantat3-strenginn
DÝRBÍTUR hefur lagst á fé frá bæn-
um Gröf II í Víðidal og hafa alls 17
kindur drepist af hans völdum, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á
Blönduósi.
Á miðvikudagsmorgun gekk bónd-
inn á Gröf II fram á dauða á og við
smölun kom í ljós að sex kindur voru
dauðar af völdum dýrbítsins og 11 til
viðbótar voru svo illa á sig komnar að
nauðsynlegt reyndist að lóga þeim.
Átta til viðbótar eru særðar. Að sögn
lögreglunnar á Blönduósi telur bónd-
inn sig hafa séð hund frá nágrannabæ
atast í fénu. Mælst hefur verið til þess
að hundurinn verði tjóðraður en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um hvort
honum verði lógað.
Dýrbítur
leggst á fé
í Víðidal
SPÁÐ er ágætis veðri víða um land
um helgina og jafnvel eitthvað fram
eftir næstu viku. Spáð er einkum
góðu veðri norðan lands og austan.
Morgunblaðið/Ómar
Haustblíða
um helgina
BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGIÐ
Átak hefur beint því til Vegagerðar-
innar að hún stöðvi reglubundnar
ferðir á vegum Hagvagna í Hafnar-
firði milli níu gististaða í Reykjavík og
sýningarsvæðis Íslensku sjávarút-
vegssýningarinnar í Smáranum í
Kópavogi. Bifreiðastjórafélagið Átak
vísar til álits Jóns Magnússonar hrl.,
þar sem segir að ekki sé heimild í lög-
um fyrir þessum ferðum Hagvagna.
„Hagvagnar í Hafnarfirði auglýsa
ákveðnar brottfarir á tímabilinu kl.
8.40 til 9.30 að morgni frá níu til-
greindum stærstu gististöðum í
Reykjavík á sýningarsvæði sjávarút-
vegssýningarinnar og brottför frá
sýningarsvæði sjávarútvegssýningar-
innar til sömu gististaða kl. 18 dag
hvern sem sýningin stendur. Far-
gjald fyrir hvern farþega er kr. 300,“
segir í áliti Jóns Magnússonar. Kemst
hann að þeirri niðurstöðu að ekki sé
heimild í lögum fyrir þessari starf-
semi Hagvagna. „Ljóst er að Hag-
vagnar hafa hvorki sérleyfi né einka-
leyfi á fólksflutningum milli gististaða
og sjávarútvegssýningar,“ segir m.a. í
álitinu.
Í ljósi álitsins vill bifreiðastjóra-
félagið Átak að Vegagerðin stöðvi
umræddan akstur. „Leigubílstjórar
eru orðnir langþreyttir á því að láta
hópferðabíla taka af sér þá litlu vinnu
sem til kemur með svona uppákom-
um,“ segir Jón Stefánsson, varafor-
maður Átaks, og vísar til vinnu vegna
sjávarútvegssýningarinnar.
Í áliti lögmanns Átaks segir:
„Vegagerðinni sem hefur eftirlit með
leiguakstri og fólksflutningum ber að
sjá til þess að ákvæðum laganna sé
framfylgt og þau leyfi sem aðilar hafa
keypt til fólksflutninga hafi það inni-
hald sem lögin hafa markað þeim. Það
er því eðlilegt að bifreiðastjórafélagið
Átak beini því til Vegagerðarinnar að
stofnunin hlutist til um að akstur sá
sem hér um ræðir á vegum Hagvagna
verði stöðvaður því ekki verður annað
séð en hann brjóti gegn lögvörðum
rétti leigubifreiðastjóra miðað við
ákvæði laga um einstaklingsbundnar
ferðir og hópferðir.“
Þreyttir á að hópferða-
bílar taki vinnu af þeim
ÞRÍR íslenskir slökkviliðsmenn eru
í sendinefnd frá norrænum slökkvi-
liðum sem verða við minningarat-
höfn um þá slökkviliðsmenn sem
féllu í hryðjuverkunum í New York
11. september sl.
Við athöfn hinn 12. september
mun sendinefnd frá samtökunum af-
henda minningarskjöld um slökkvi-
liðsmenn sem létu lífið við björgun-
arstörf í World Trade Center.
Votta föllnum
starfsbræðrum
virðingu
♦ ♦ ♦