Morgunblaðið - 07.09.2002, Page 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 23
NÝTT verslunarhúsnæði BYKO í
Breiddinni í Kópavogi verður tekið í
notkun hinn 14. september næst-
komandi. Jón Helgi Guðmundsson,
forstjóri BYKO, segir að vöruúrval
fyrirtækisins aukist til muna með
tilkomu hins nýja húsnæðis auk þess
sem öll aðkoma fyrir viðskiptavini
og starfsfólk breytist mikið til batn-
aðar. Hann segir að nú sjái fyrir
endann á endurskipulagningu á allri
aðstöðu fyrirtækisins, sem staðið
hafi yfir undanfarin ár.
„Forsendan fyrir því að hægt var
að ráðast í endurskipulagningu hjá
BYKO í Breiddinni var sú að við
fengum úthlutað lóð hjá Reykjavík-
urhöfn, í Kjalarvogi við Sundahöfn,“
segir Jón Helgi. „Þar höfum við
byggt um 10 þúsund fermetra vöru-
geymslu fyrir grófar byggingavör-
ur, en við byrjuðum á þeirri bygg-
ingu á árinu 1999. Hinn 22. júní á
síðasta ári var svo fyrsta skóflu-
stunga tekin að hinu nýja verslunar-
húsnæði fyrirtækisins í Breiddinni.“
Með tilkomu nýja verslunarhús-
næðisins í Breiddinni verður heild-
argólfflötur BYKO þar um 20 þús-
und fermetrar. Nýbyggingin er um
7 þúsund fermetrar að stærð á
tveimur hæðum, um 4 þúsund fer-
metrar á jarðhæð, þar sem verður
verslun, og um 3 þúsund fermetrar í
kjallara fyrir lager. Nýbyggingin er
byggð við um 3 þúsund fermetra
vörurhús sem fyrir var á staðnum
en breytt hefur verið í verslunar-
rými, og verður heildargólfflötur
verslunarinnar því um 7 þúsund fer-
metrar á einni hæð.
Auk stækkunar á verslunarhús-
næði BYKO í Breiddinni hefur
skipulagi timbursölunnar og sölu á
öðru byggingarefni verið breytt.
Nærri allt byggingarefni er nú und-
ir þaki og geta viðskiptavinir ekið
þar inn og í gegn á bílum sínum og
afgreitt sig sjálfir ef þeir vilja. Jón
Helgi segir að þessi verslunarmáti
sé nýjung, sem geri kaup á bygg-
ingavörum mun aðgengilegri og
auðveldari fyrir viðskipavinina.
Sérinngangur fyrir iðnaðarmenn
Ýmis nýmæli verða í hinni nýju
verslun BYKO í Breiddinni að sögn
Jóns Helga. Hann segir að verslunin
verði öll mun rýmri en áður var og
opnunartími lengri. Viðskiptavinir
muni geta keypt sér léttar veitingar
í kaffiteríu og iðnaðarmenn muni
hafa sér inngang til að auðvelda
þeim það sem þeim tilheyrir. Þá
verði flestar vörur verslunarinnar í
henni sjálfri en viðskiptavinirnir
muni ekki þurfa að sækja þær ann-
að, nema í undantekningartilvikum.
Jón Helgi segir að hin nýja versl-
un BYKO í Breiddinni verði opnuð
kl. 10:00 laugardaginn 14. septem-
ber næstkomandi. Hann segir að
bygging húsnæðisins og aðrar
breytingar sem framkvæmdar hafi
verið á því um 5 hektara landsvæði
sem BYKO hefur til umráða í
Breiddinni í Kópavogi hafi gengið
mjög vel. Þannig hafi verið staðið að
framkvæmdum að ekki hafi þurft að
koma til mikillar yfirvinnu og ekki
sé útlit fyrir að þörf verði á slíku síð-
ustu dagana fyrir opnun, eins og al-
gengt sé hér á landi við svipuð tæki-
færi.
Það var arkitektastofan Arkís ehf.
sem sá um hönnun hins nýja versl-
unarhúsnæðis BYKO í Breiddinni.
Hjá BYKO starfa um 350 manns
en að meðtöldum starfsmönnum
ELKO og starfsmönnum fyrirtæk-
isins í Lettlandi er heildarfjöldinn
rúmlega 600.
BYKO opnar nýtt verslunarhúsnæði í Breiddinni í Kópavogi hinn 14. september næstkomandi
Morgunblaðið/Kristinn
Heildargólfflötur hinnar nýju verslunar BYKO í Breiddinni er um 7 þúsund
fermetrar á einni hæð en í kjallara er um 3 þúsund fermetra lager.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO, við hluta af þeim rafmagnshand-
verkfærum sem í boði verða í hinni nýju verslun fyrirtækisins.
Aukið
vöru-
úrval og
stórbætt
aðstaða