Morgunblaðið - 07.09.2002, Qupperneq 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 39
hlutverki“ að það gleymist að mörgum
stofnunum er ætlað að ná öðrum og
háleitari árangri en að veita umsagn-
ir? Ég vona alltént að ekki sé mein-
ingin að Landgræðslan verði einhvers
konar umsagnarkontór, en hafi hvorki
vald né getu til góðra verka í þágu ís-
lenskrar náttúru. Árangur Land-
græðslunnar er fyrst og fremst háður
faglegum styrk hennar.
Rányrkja
Undirritaður hefur oft velt fyrir sér
framtíð landgræðslustarfs á Íslandi,
ekki síst í ljósi tregðunnar til að taka
raunverulega á augljósum vanda.
Gunnarsholt, höfuðból landverndar á
Íslandi, á „upprekstrarrétt“ á eina
mestu auðn landsins, Rangárvallaaf-
rétt, og borgar líkast til ennþá fjall-
skilagjald enda þótt enginn sé rekst-
urinn. Það getur varla talist annað en
styrkur við áníðslu á ónýtu landi.
Stefnuskrá framboðslista í heimahér-
aði Landgræðslu ríkisins í kosningun-
um í vor er kannski talandi dæmi um
nýja strauma: „Nýting afrétta. Nýting
afrétta verður með óbreyttum hætti í
góðu samráði við Landgræðslu ríkis-
ins.“ Er nú rányrkja best stunduð í
góðu samráði við þá sem eiga að gæta
hagsmuna landsins? Þá er nú líklega
farsælla að leggja Landgræðslu rík-
isins niður.
Úrelt ný lög?
Það frumvarp sem nú liggur fyrir
er að sumu leyti skref aftur á bak. Það
tekur ekki á þeim vanda sem helst
brennur á gróðri og jarðvegi landsins.
Er það vilji hins háa Alþingis að setja
úrelt lög? Lög sem þjóðin og þeir sem
fást við verndun landsins verða síðan
að sitja uppi með um ókomna framtíð?
Vandanum verður þá velt áfram án
þess að tekin sé skýr afstaða til þess
hvernig staðið verður að málum. Ef ný
lagasetning er ekki tilefni til að móta
stefnu til framtíðar, hvenær þá?
Höfundur er náttúrufræðingur.
Verkefni hans, „Jarðvegsvernd“,
sem unnið var að á vegum Rala og
L.r., vann til umhverfisverðlauna
Norðurlandaráðs 1998.
EGILL Skallagrímsson var í
fréttum nýlega; leitað var beina
hans undir Mosfelli. Saga hans
er stöðugt í umræðunni. Í bygg-
ingu sögunnar leika erfðamálin
aðalhlutverk; mér virðist þessu
ekki nægur gaumur gefinn.
Í Egils sögu Skalla-Grímsson-
ar er sagt frá tveimur erfða-
málum og hliðstæðum. Mynda
þau saman aðalgrind sögunnar.
Í hvorutveggja málinu er tilkalli
um arf hafnað því að sækjandi
sé hórgetinn og skuli því arf-
laus.
Það hafði lent á Þórólfi
Kveldúlfssyni að hafna endan-
lega tilkalli Hildiríðarsona um
arf. Björgólfur faðir þeirra hafði
gamall tekið Hildiríði sér til
fylgilags. Því eru Hildiríðarsyn-
ir kallaðir hórgetnir. Hefst lang-
ur vígaslóði. Egill freistar þess
að ná arfi sem Ásgerði konu
hans beri. En Björn faðir henn-
ar hafði numið Þóru, móður
hennar, á brott og auðvitað
gegn vilja frænda hennar. Ás-
gerður er kölluð hórgetin eða
þýborin. Hafnað er tilkalli Egils
um arf. Hefst vígaslóði annar og
langur. Lesendur taka ólíka af-
stöðu í þessum tveimur málum,
þótt hliðstæð séu, líklega vegna
þess hversu ólíkt höfundurinn
afgreiðir málin tvö. Þessi að-
algrind atburðarásar er svo
skreytt með lífrænna söguefni.
Vel kann meginefni Egils
sögu að vera sagnfræðilega rétt.
Ketill hængur frændi þeirra
Kveld-Úlfs niðja hefndi fyrir
Þórólf eldra; Ketill nam síðar
land um Rangárvelli, er forfaðir
þeirra í Odda sem fóstruðu
Snorra Sturluson. Ketill hafði
búið norður á Hálogalandi, ekki
langt frá Þórólfi og Sigríði í
Sandnesi og hefur þekkt vel til.
En Rannveig dóttir Sigríðar,
skyld Kveld-Úlfs niðjum, verður
húsfreyja í Fljótshlíð. Í þeim
héruðum geymast sagnir vel svo
sem Þórður Tómasson hefur
sannað. Snorri býr á Borg um
hríð þar sem Egill forfaðir hans
hafði búið og Mýramenn þar allt
í kringum hann.
Með aðalgrind er léttara að
muna langa sögu – en lífi hverr-
ar sögu ræður þó myndauðgi
hennar og sjónnæmi þess er á
hlýðir. Þetta er spurning um
myndminni. Snorri goði hefur
þekkt vel til Egils. Þuríður dótt-
ir hans er aðalheimild Ara
fróða, en sonarsonur Ara var
nánasti vinur Guðnýjar móður
Snorra Sturlusonar. Gömul
kona sem ég þekkti átti vini
fædda fyrir móðuharðindi, það
er nær jafnlangt og frá Agli til
Snorra Sturlusonar.
Valgarður Egilsson
Um Egils sögu
Höfundur er læknir og
rithöfundur.
Falleg, fullkomin og vönduð
ítölsk raftæki á fínu verði.
E
LD
AV
É
LA
R
•
O
FN
A
R
•
H
E
LL
U
B
O
R
Ð
•
V
IF
T
U
R
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
Fást aðeins hjá okkur
og kosta minna en
þig grunar!
alltaf á þriðjudögum
ÍÞRÓTTIR