Morgunblaðið - 07.09.2002, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HLUTABRÉF Baugs hækkuðu um
1,9% í verði í gær eftir að stjórn Arc-
adia tilkynnti að hún myndi mæla
með yfirtökutilboði Philips Greens í
félagið. Lokaverð bréfanna var 10,30
krónur og markaðsverð Baugs 24,5
milljarðar króna. Verð hlutabréfa fé-
lagsins hækkaði um 21,2% í síðustu
viku og markaðsvirðið um 4,3 millj-
arða króna.
Baugur sendi frá sér tilkynningu
eftir að ljóst varð að stjórn Arcadia
myndi mæla með sölu á Arcadia og
þar kom fram að ávinningur Baugs
af væntanlegri sölu yrði mikill þrátt
fyrir mikinn kostnað við undirbún-
ing sameiginlegs tilboðs Baugs og
Philips Greens. Hagnaður af sölu
bréfanna verður að sögn Baugs um 8
milljarðar króna eftir skatta og
kostnað, en heildarverð sem Baugur
fær fyrir hlut sinn er um 21 millj-
arður króna. Skuldir Baugs vegna
hlutabréfanna í Arcadia eru um 3,6
milljarðar króna og því mun lausa-
fjárstaða félagsins batna um 18
milljarða króna við söluna, en tilboð-
ið hljóðar upp á staðgreiðslu hluta-
fjárins.
Í tilkynningunni kemur fram að
Baugur hafi ekki tekið ákvörðun um
hvernig fjármununum verði varið, en
þeim verði þó varið til að efla félagið
frekar í sókn á erlendum vettvangi.
Samningarnir kvalræði
Philip Green lýsir samningavið-
ræðunum við Baug í samtali við The
Daily Telegraph. Þar segir hann að
erfitt hafi reynst að ná samkomulagi
um að Baugur keypti þrjár verslun-
arkeðjur út úr Arcadia þar sem keðj-
ur félagsins séu tengdar og flókið að
skilja þær í sundur. Green segist
ekki hafa tekið ákvörðun um hvort
hann muni selja Baugi keðjurnar, en
segir samningaviðræðurnar hafa
verið hreint kvalræði. Á endanum
hafi hann séð að samningar myndu
ekki nást um kaup Baugs á versl-
unarkeðjunum og þá hafi hann sett
Baugsmönnum úrslitakosti.
Eins og fram hefur komið lauk
samningaviðræðunum milli Greens
og Baugs með því að Baugur sam-
þykkti að selja Green 20% hlut sinn í
Arcadia án skilyrða um verslunar-
keðjurnar.
Baugur hagnast um 8 millj-
arða á sölunni á Arcadia
Bætt lausafjárstaða upp á 18 millj-
arða nýtt til frekari sóknar erlendis
Stjórn/22
RÉTTAÐ verður í Fossrétt á Síðu í
dag. Til stóð að rétta þar í gær en
gangnamenn voru seinir af fjalli og
nokkuð liðið á daginn þegar komið
var með safnið.
Björn bóndi Helgason á Fossi á
Síðu var að binda lausa enda í rétt-
inni í góða veðrinu í gær og ekki
var laust við að lesa mætti nokkra
eftirvæntingu úr svip bæði bóndans
og hástökkvarans hans Glóa.
Í dag verður einnig m.a. réttað í
Auðkúlurétt í Austur-Húnavatns-
sýslu, Skaftárrétt í Vestur-
Skaftafellssýslu, Skarðarétt í
Skagafirði og Stafnsrétt í Svart-
árdal í Austur-Húnavatnssýslu og á
morgun m.a. í Hraunsrétt í Aðaldal
og Reynistaðarrétt í Skagafirði.
Bóndinn,
hundurinn
og féð
Morgunblaðið/RAX
arflokksins á Selfossi í gær að
aðalmarkmið Framsóknarflokksins
í alþingiskosningunum á komandi
vori ætti að vera að stýra næstu
ríkisstjórn. „Ég er tilbúinn að leiða
hann á þeim forsendum,“ sagði
hann.
Haustfundurinn fór fram á Sel-
fossi í gær og fyrradag. Á vinnu-
fundinum í gær sagði Halldór Ás-
grímsson meðal annars að
Framsóknarflokkurinn hefði alla
burði til að ná ágætis árangri í al-
þingiskosningunum næsta vor.
Flokkurinn hefði starfað í ríkis-
stjórn í nær tvö kjörtímabil og
hann hlyti að setja sér það mark-
mið að verða leiðandi afl í næstu
ríkisstjórn.
Halldór Ásgrímsson sagðist telja
að kominn væri tími til að Fram-
sóknarflokkurinn stýrði ríkis-
stjórninni. „Við hljótum að berjast
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanríkis-
ráðherra, sagði á haustfundi þing-
flokks og landstjórnar Framsókn-
fyrir því sem aðalmarkmiði í kosn-
ingabaráttunni og reyna að skapa
okkur það traust,“ sagði hann, en
bætti við að hann segði þetta ekki
vegna þess að hann bæri ekki fulla
virðingu fyrir öðrum flokkum og
þar með töldum samstarfsflokkn-
um, en kominn væri tími til að
Framsóknarflokkurinn fengi þetta
tækifæri og að íslenskir kjósendur
gæfu honum það.
Formaður Framsóknarflokksins
benti á að þetta tækifæri gæfist
ekki nema flokkurinn fengi nauð-
synlegt traust og fylgi. Það væri
mikill misskilningur þegar menn
héldu að það væri sjálfsagt að
Framsóknarflokkurinn yrði með í
þessu og hinu stjórnarmynstrinu,
sama hvernig hann liti út. 1978
hefði Framsóknarflokkurinn orðið
að sætta sig við að tapa kosning-
unum en fara síðan í ríkisstjórn
með Alþýðuflokknum og Alþýðu-
bandalaginu sem minnsti flokkur-
inn. Þá hefði Framsóknarflokkur-
inn m.a. farið með forsætisráðu-
neytið, fjármálaráðuneytið og ut-
anríkisráðuneytið, en ekki hefði
verið létt fyrir flokkinn að fara inn
í þá ríkisstjórn og vera þar í for-
ystu. Flokkurinn yrði að koma
þeim boðum skýrt til skila að ætl-
uðust menn til mikils af Fram-
sóknarflokknum, eins og menn
ættu að gera því hann hefði fulla
burði til að vera í forystu, yrði
hann að fá stuðning. „Án þess
stuðnings getum við lítið og það er
að sjálfsögðu ekki sjálfgefið að
Framsóknarflokkurinn verði í rík-
isstjórn. Hann verður því aðeins í
ríkisstjórn verði honum trúað fyrir
því.“
Halldór Ásgrímsson á haustfundi Framsóknarflokksins um alþingiskosningarnar
Aðalmarkmið flokksins að
stýra næstu ríkisstjórn
Evrópumálin/10
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær danskt par í 30 daga
óskilorðsbundið fangelsi eftir að toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli stöðv-
aði þau með 385 g af hassi.
Fannst það í handfarangri kon-
unnar, sem er fimmtug, en 31 árs
gamall sambýlismaður kvaðst eiga
jafna aðild að smyglinu. Sögðust þau
hafa keypt hassið í Kaupmannahöfn
með það í huga að selja það á Íslandi.
Hagnaðinum hefðu þau síðan ætlað
að verja til að greiða fyrir skemmti-
ferð til Feneyja næsta sumar.
Hass til
Feneyjaferðar
DAGUR B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans, segir í
grein í Morgunblaðinu í dag að hann
sé þess fullviss að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri fari ekki í
framboð til Alþingis. „Hún verður
áfram borgarstjóri í Reykjavík,“
fullyrðir Dagur. Síðan segir:
„Ástæða þess að ég tel nær úti-
lokað að Ingibjörg Sólrún fari fram
til Alþingis er einföld. Skýrar yfir-
lýsingar hennar um hið gagnstæða í
borgarstjórakosningunum í vor. Það
eru ekki aðeins pólitískir andstæð-
ingar sem vilji höggva í trúverðug-
leika hennar sem spyrja hvort þær
yfirlýsingar standi ekki, heldur einn-
ig margt af harðasta stuðningsfólki
hennar. Þessi spurning skiptir lyk-
ilmáli þar sem pólitískur styrkur
Ingibjargar Sólrúnar byggist ekki
síst á trúverðugleika. Styrk hennar
til að fylgja eigin sannfæringu.“
Ingibjörg
fer ekki fram
Óbreytt/35
Dagur B. Eggertsson
♦ ♦ ♦