Morgunblaðið - 20.09.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 11
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10, s. 533 1710
Opið
mán.-fös. 11-18
laugardag 11-16
GERÐU
GÓÐ KA
UP
Loksins gallarnir komnir aftur
Kr. 2.990 - Margir litir - allar stærðir
Galli 2.990
Rendur galli m. hettu
St. S-XL
Litir: Svart, rautt, grátt, dblátt
Galli 2.990
Galli án hettu
St. S-XL
Litir: Svart, rautt, grátt, dblátt
Barnagalli 2.500
St. 50-100
Litir: Rautt, blátt
Póstsendum
Nýtt kortatímabil
ÝMIS tækifæri eru fyrir hendi til að
auka viðskiptatengsl íslenskra og
írskra fyrirtækja. Þá mætti gera Ír-
um betur grein fyrir því hversu Ís-
land er gott heim að sækja. Þetta er
mat Rorys O’Hanlons, forseta neðri
deildar írska þingsins, en hann fer
fyrir nefnd írskra þingmanna sem
dvalist hefur á Íslandi undanfarna
daga í boði Halldórs Blöndals, for-
seta Alþingis.
O’Hanlon og Séamus Pattison,
varaforseti neðri deildar írska
þingsins, heimsóttu Alþingishúsið í
gær og tók Halldór á móti þeim. Er
O’Hanlon þar til vinstri en Pattison
til hægri.
Greiða atkvæði um
Nice-sáttmálann öðru sinni
Þá hitti írska sendinefndin að máli
fulltrúa þingflokkanna á Alþingi og
sagði O’Hanlon að gott tækifæri
hefði þar gefist til skoðanaskipta um
ýmis mál sem sameiginleg væru ey-
ríkjum í útjaðri Evrópu. Evrópu-
málin bar m.a. nokkuð á góma en til-
kynnt var í gær að Írar myndu
greiða atkvæði um Nice-sáttmálann
svokallaða öðru sinni 19. október nk.
Nice-sáttmálinn var felldur í at-
kvæðagreiðslu í fyrra en þess er
beðið í höfuðstöðvum Evrópusam-
bandsins að Írar greiði atkvæði um
hann á nýjan leik enda stækkun
sambandsins til austurs háð því að
öll aðildarríkin hafi staðfest hann.
Kosningaþátttaka var einungis
35% er Írar greiddu síðast atkvæði
um sáttmálann en O’Hanlon segir að
mun meiri kraftur hafi einkennt að-
draganda þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar núna. Það sé síðan verkefni
almennings á Írlandi að ákveða
hvort rétt sé að samþykkja sáttmál-
ann.
Ísland
gott
heim að
sækja
Morgunblaðið/Golli
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt fertugan karlmann,
Guðmund Helga Svavarsson, í sex
ára til fangelsi fyrir skjalafals,
fjársvik og þjófnað á tímabilinu
janúar til apríl á þessu ári. Ákærði
var dæmdur í 17 ára fangelsi árið
1991 fyrir morð sem hann framdi á
bensínstöð í Stóragerði í Reykja-
vík, rán og fleiri brot, en fékk
reynsluslausn 29. júní í fyrra.
Hann framdi í kjölfarið fjölda af-
brota, aðallega fjársvik og auðg-
unarbrot.
Dómurinn taldi að Guðmundur
Helgi hefði með þessum afbrotum
rofið skilorð reynslulausnarinnar.
Frá refsingu hans dregst gæslu-
varðhaldsvist sem hann hefur sætt
frá 14. apríl sl.
Ragnar Davíð Bjarnason, sem
átti aðild að einu málanna sem
Guðmundur var sakfelldur fyrir,
var dæmdur í 2 ára fangelsi en
hann var einnig á reynslulausn.
Guðmundur Helgi var jafnframt
dæmdur til að greiða ýmsum fyr-
irtækjum samtals um 1.250 þúsund
krónur í skaðabætur.
Pétur Guðgeirsson héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Verjandi
Guðmundar Helga var Sigurður
Kári Kristjánsson hdl. og verjandi
Ragnars Davíðs Hilmar Ingimund-
arson hrl.
Dæmdur
í sex ára
fangelsi
DÁNARTÍÐNI meðal ungs og
miðaldra fólks er afar lág hér á
landi. Í nýrri samantekt Hagstof-
unnar um dánarorsakir á árinu
1998 og þróunina á árunum 1981 til
1998 kemur fram að langflest
dauðsföll eiga sér stað í hárri elli
sem hefur í för með sér hátt hlut-
fall dauðsfalla af völdum lang-
vinnra sjúkdóma. Algengustu dán-
arorsakir eru blóðrásarsjúkdómar
og krabbamein. Aðrar fremur al-
gengar dánarorsakir eru slys og
öndunarfærasjúkdómar.
Slys algengari
meðal drengja
Dánartíðni er hærri meðal karla
en kvenna í öllum aldurshópum,
allt frá ungbörnum og fram á gam-
als ár. Í samantekt Hagstofunnar
kemur ennfremur fram að á síð-
ustu tveimur áratugum hafa börn
og ungir karlar hagnast mest á
bættum lífslíkum á Íslandi. Dán-
artíðni meðal barna og ungmenna
er mjög lág hér á landi. Hagstofan
segir, að þetta eigi sér í lagi við um
ungbarnadauða og Ísland sé nú í
hópi fárra landa í heiminum þar
sem ungbarnadauði er undir 5 af
hverjum 1.000 lifandi fæddum.
Kvillar í upphafi burðarmáls og
meðfæddar vanskapanir eru al-
gengustu dánarorsakir meðal
yngstu barnanna.
Munur milli kynjanna vex þegar
eins árs aldrinum er náð og stafar
það einkum af því að slys eru al-
gengari meðal drengja en stúlkna,
segir í samantekt Hagstofunnar.
Ytri orsakir áverka og eitrana
eru sem fyrr algengustu dánar-
mein beggja kynja í aldurshópnum
15–29 ára og meðal karla í aldurs-
hópnum 30–44 ára. Dánartíðni er
mun hærri meðal karla en kvenna
af þessum orsökum. Munur á dán-
artíðni milli kynjanna er langmest-
ur í aldurshópnum 15–29 ára.
Á aldrinum 30–44 ára fer að bera
á dauðsföllum af völdum sjúkdóma
í blóðrásarkerfi meðal karla, en fá-
ar ungar konur deyja úr þessum
sjúkdómum. Á síðustu áratugum
hefur dánartíðni af völdum blóð-
rásarkerfissjúkdóma meðal karla á
þessum aldri lækkað. Algengasta
dánarorsök kvenna á aldrinum 30–
44 ára eru æxli. Ytri orsakir eru al-
gengasta dánarorsökin meðal karla
á þessum aldri en hún er í þriðja
sæti hjá konum.
Hagstofan segir, að þótt dauðs-
föllum af völdum óhappa og sjálfs-
víga haldi áfram að fjölga bæði
meðal karla og kvenna eftir að 45
ára aldrinum er náð séu dauðsföll
af völdum langvinnra sjúkdóma
mun algengari í þessum aldurshópi
en meðal yngra fólks.
Eftir að 65 ára aldri er náð er
mynstur dánarorsaka mun áþekk-
ara milli kynjanna en í yngri ald-
urshópunum. Sjúkdómar í blóðrás-
arkerfi, æxli og öndunarfærasjúk-
dómar eru algengustu dánaror-
sakir meðal þeirra allra elstu.
Dánartíðni með-
al barna og ung-
menna mjög lág