Morgunblaðið - 22.09.2002, Page 1
MORGUNBLAÐIÐ 22. SEPTEMBER 2002
222. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Algengt að ganga þurfi
eftir svörum ráðuneyta
og stofnana 10
Hnífjafnt eftir harða
kosningabaráttu 12
Æfingar
auka
öryggi
20
Þegar ein sál frelsar aðra
„Mér leið eins og hér ætti ég
heima. Því mun ég aldrei
gleyma,“ segir bandaríski
kvikmyndaleikarinn Keith
Carradine um reynsluna af
því að leika á Íslandi annað
aðalhlutverkanna í nýrri
bíómynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, Fálkum, sem
frumsýnd verður nk. föstu-
dag. Árni Þórarinsson ræðir
við Carradine um per-
sónuna, sem hann leikur,
einfara með óljósa fortíð,
um gerð myndarinnar, starf
hans fyrir heimsþekkta leik-
stjóra á borð við Ridley
Scott og Robert Altman,
Carradine-fjölskylduna og
margt fleira, og Sæbjörn
Valdimarsson skrifar um
ættir og uppruna./10
ferðalögAlpaganga bílarDaewoo Matiz börnDagblöð fyrir börnbíóThe Bourne Identity
Smalað í Stafnsrétt
Árviss ævintýri gangnamanna
Í göngum og
réttum
leysist úr læð-
ingi einhver
frumkraftur
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
22. september 2002
B
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, notaði í gær tækifær-
ið á lokadegi kosningabaráttunnar
í Þýskalandi til að ítreka andstöðu
sína við hugsanlega herför Banda-
ríkjastjórnar gegn Írak. „Við segj-
um hreint út: Mið-Austurlönd –
Írak þar með talið – þarfnast frið-
ar, ekki nýs stríðs,“ sagði Schröd-
er í ræðu í Rostock.
Á meðan var kanslaraefni kosn-
ingabandalags kristilegu flokk-
anna CDU/CSU, Edmund Stoiber,
að opna hina frægu október-
bjórhátíð í München í Bæjaralandi.
Karin, eiginkona Stoibers, var
með í för eins og sjá má á stærri
myndinni.
Hart hefur verið sótt að Schröd-
er undanfarna daga vegna um-
mæla sem höfð voru eftir dóms-
málaráðherra hans, Herta
Däubler-Gmelin, en þar var
George W. Bush Bandaríkja-
forseta líkt við Adolf Hitler.
Däubler-Gmelin neitar því að hafa
látið meint ummæli falla og segir
að rangt hafi verið eftir sér haft.
Schröder sendi Bush afsök-
unarbeiðni á föstudag en ljóst er
þó að frost er komið í samskipti
ríkjanna tveggja. „Ég myndi segja
að samband okkar og Þýskalands
hafi oft verið betra. Hlutir hafa
verið sagðir sem engan veginn er
hægt að sætta sig við. Ummæli
dómsmálaráðherrans, jafnvel þó
að hún hafi ekki sagt nema helm-
inginn af því sem eftir henni er
haft, eru óviðunandi,“ sagði
Condoleeszza Rice, þjóðarörygg-
isráðgjafi Bush, í samtali við
þýska útgáfu Financial Times í
gær.
Reuters
Hnífjafnt/12–13
Enginn bilbug-
ur á Schröder
ÍRAKAR hyggjast ekki sætta sig við
neinar frekari ályktanir af hálfu ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem
hugsanlega myndu setja frekari skil-
yrði um afvopnun þeirra. Frá þessu
var greint í íraska ríkisútvarpinu í
gær en Saddam Hussein Íraksfor-
seti hafði áður átt fund með sínum
helstu ráðgjöfum.
„Bandarískir embættismenn
reyna nú, ef marka má fréttaflutn-
ing, að fá nýja og vonda ályktun sam-
þykkta í öryggisráðinu. Írak lýsir því
hér með yfir að það muni ekki sætta
sig við neitt slíkt,“ sagði í yfirlýsingu
sem lesin var í íraska útvarpinu í
gær. Þá var haft eftir íröskum emb-
ættismanni að stjórnvöld í Bagdad
hygðust ekki starfa eftir ályktunum
sem gengju þvert á það samkomulag
sem embættismaðurinn sagði að
hefði verið gert við Kofi Annan,
framkvæmdastjóra SÞ.
Ekki er hins vegar um það að ræða
að samþykki Íraka sé forsenda þess
að hægt sé að framfylgja hverri
þeirri ályktun, sem öryggisráðið
kann að gera.
Bush ræddi við Pútín
Naji Sabri, utanríkisráðherra
Íraks, hafði tilkynnt Annan á mánu-
dag að Írakar féllust á að vopnaeft-
irliðsnefnd samtakanna hæfi aftur
störf í landinu. Bandaríkjastjórn hef-
ur hins vegar haldið áfram að þrýsta
á um að öryggisráðið samþykkti nýja
og harðorða ályktun sem ekki aðeins
skikkaði Íraka til að leyfa aftur
vopnaeftirlit í landinu, heldur skyld-
aði þá til afvopnunar og til þess að
virða mannréttindi í landinu, heita að
láta af stuðningi við alþjóðlega
hryðjuverkamenn o.s.frv.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti reyndi að fá Rússa, sem hafa
neitunarvald í öryggisráðinu, á sitt
band á föstudag og ræddi þá m.a. við
Vladímír Pútín, forseta Rússlands í
síma. Engin niðurstaða var komin í
þær viðræður en Rússar hafa áður
sagt að óþarfi væri að samþykkja
nýja ályktun í öryggisráðinu úr því
að Írakar hefðu fallist á vopnaeftirlit.
Er það hins vegar mat Banda-
ríkjastjórnar að Írakar hafi með til-
kynningu sinni, um að vopnaeftirlit
yrði leyft á ný, aðeins ætlað að skapa
klofning í öryggisráðinu. Um póli-
tíska leikfléttu væri að ræða af hálfu
Íraka – ekki yrði um það að ræða
frekar en venjulega að Írakar stæðu
við gefin loforð.
Írakar sætta sig ekki
við frekari skilyrði
Bagdad. AFP, AP.
FLEST benti í gær til að þjóðern-
issinninn Vladímír Meciar hefði unn-
ið sigur í þingkosningum sem haldn-
ar voru um helgina í Slóvakíu. Ekki
var þó talið líklegt að Meciar hefði
tryggt sér næg atkvæði til að geta
myndað ríkisstjórn en margir hinna
flokkanna hafa útilokað stjórnar-
samstarf með flokki hans, HZDS.
Meciar var forsætisráðherra Slóv-
akíu á árunum 1994-98. Hann þótti
afar umdeildur, bæði heima og heim-
an, og hafa stjórnmálaskýrendur
sagt að ólíklegt sé að Slóvakíu yrði
boðin aðild að Atlantshafsbandalag-
inu eða Evrópusambandinu á meðan
Meciar væri við völd.
Kjörstaðir lokuðu á hádegi að ísl.
tíma og bentu útgönguspár til þess
að HZDS hefði tryggt sér 18% at-
kvæða á meðan miðhægriflokkur
Mikulas Dzurindas forsætisráðherra
virtist ætla að fá 16,5%, sem er meira
en spáð hafði verið. Smer-flokkur
Roberts Fico virtist hins vegar ekki
ætla að fá nema 13,4% en því hafði
verið spáð að Fico myndi fara fyrir
næstu samsteypustjórn í landinu.
Kosið í Slóvakíu
Meciar
fékk flest
atkvæði
Bratislava. AFP, AP.
ÞAÐ gerist ekki svo sjaldan að
hinir allra mestu snillingar í
knattspyrnunni séu sagðir
þyngdar sinnar virði í gulli.
Þetta verður að vísu ekki sagt
um Norðmanninn Kenneth
Kristensen en hann er þó sann-
arlega þyngdar sinni virði – í
rækju!
Frá því er sagt í norskum fjöl-
miðlum að þriðjudeildarfélagið
Vindbjart hafi samþykkt að
selja Kristensen, sem er 23 ára
gamall, til keppinautanna í Flo-
ey, sem einnig spila í þriðju
deildinni norsku. Mun Kristen-
sen byrja að spila fyrir Floey um
leið og þeir hafa reitt af hendi
u.þ.b. 75 kg af ferskri rækju til
forráðamanna Vindbjart.
„Kenneth langaði mikið til að
spila fyrir Floey og við vildum
ekki standa í vegi hans,“ segir
Vidar Ulstein, forseti Vindbjart.
„Hann er hins vegar samnings-
bundinn okkur þannig að við
vildum fá greiðslu fyrir hann.“
Var ráðgert að ákveða endan-
legt „kaupverð“ leikmannsins
fyrir innbyrðis leik liðanna í gær
en þá átti að vigta Kristensen,
sem skoraði 14 mörk fyrir Vind-
bjart á síðustu leiktíð.
Þyngdar
sinnar virði
í rækju
Ósló. AFP.
ÓTTAST er að allt að eitt hundrað
manns hafi farist þegar skriða féll á
lítið þorp í Kákasus-lýðveldinu
Norður-Ossetíu í suðurhluta Rúss-
lands í gær. Þekktur rússneskur
kvikmyndaleikari er meðal þeirra
sem er saknað en upptökur höfðu
staðið yfir á nýrri bíómynd í þorpinu
þegar atburðurinn átti sér stað.
Um var að ræða blöndu aur- og
snjóskriðu en um tíu íbúðarhús í
þorpinu Karmadon fóru alveg á kaf.
Þá féll skriðan einnig á aðalþjóðveg-
inn, sem liggur til Karmadons, sem
hamlaði björgunarstarfi. Notast var
við björgunarþyrlur í gær og þá
höfðu hjálparsveitir verið sendar á
staðinn úr nærliggjandi lýðveldum,
Kabardino-Balkaria og Karachaj-
evo-Tsjerkessía.
Fulltrúar STV-kvikmyndafyrir-
tækisins sögðu að 29 manns hefðu
verið á þeirra vegum í þorpinu, þar á
meðal Sergej Bodrov yngri en hann
er þekktur leikari í Rússlandi.
Óttast um
líf 100
manna
Moskvu. AFP, AP.
Norður-Ossetía
♦ ♦ ♦