Morgunblaðið - 22.09.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.09.2002, Blaðsíða 21
stök áhersla er lögð á að sjómenn, útgerðarmenn og aðrir aðilar, sem láta sig öryggismál sjófarenda varða, taki höndum saman og vinni markvisst að því að fækka slysum til sjós og treysta öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega sem með þeim ferðast. Siglingastofnun Íslands annast framkvæmd áætlun- arinnar í samvinnu við verkefnis- stjórn sem skipuð er fulltrúum stjórnvalda, útgerða, sjómanna og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Meðal þess sem framkvæmdaáætl- unin gerir ráð fyrir er: menntun og þjálfun sjómanna, öryggi farþega- skipa og farþegabáta, átak í fræðslu og áróðri ásamt gerð fræðsluefnis og leiðbeininga um öryggismál, söfnun og miðlun upplýsinga um ör- yggi sjómanna, forvarnir í heilbrigð- ismálum sjómanna, víðtæk notkun öryggis- og gæðastjórnunarkerfa, öryggisfulltrúar verði um borð í skipum og síðast en ekki síst að lög og reglur verði virt og að rannsókn- ir á sviði öryggismála sjómanna verði stundaðar. Það sem fræðsla er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn slysum, álagsmeiðslum og óhöppum al- mennt, er mikil áhersla lögð á góða fræðslu og gott aðgengi sjómanna að fræðsluefni um öryggismálin, að sögn Ingimundar Valgeirssonar, starfsmanns verkefnisins. Unnið er að gerð margskonar fræðsluefnis fyrir sjómenn og verður því dreift sem víðast, svo sem á sérstakri heimasíðu um öryggismál sjómanna, í handbókum, bæklingum og á myndböndum. Sem dæmi um fræðsluefni má nefna stuttmyndirn- ar: Frágangur gúmmíbjörgunar- báta, Móttaka þyrlu, Æfingar um borð, Notkun línubyssa, Léttbátur- inn, Öryggi skips og áhafar, Öryggi og hífingar, Fallhætta, Frágangur vafasamra efna, Öryggi við veiðar- færi og Öryggi í vinnslunni. Fjórar þessara mynda eru nú þegar tilbún- ar, en aðrar eru í vinnslu. Nokkrir bæklingar um öryggismál sjómanna eru nú þegar komnir í dreifingu, en þeir eru: Æfingar um borð í skipum, Nýliðafræðsla í skipum, Eldvarnir í skipum, Fallhætta í skipum, Öryggi við hífingar, Öryggi í höfnum og Ör- yggi smábáta. Öryggisfulltrúar um borð Eins og áður er getið, er það liður í langtímaáætlun um öryggismál að sérstakir öryggisfulltrúar verði um borð í íslenskum skipum. Að mati Hilmars ber að fagna slíku þar sem þeim er ætlað að verða mikilvægir tenglar. „Öryggisfulltrúar hafa ákveðnum skyldum að gegna gagn- vart örygginu um borð og ber að koma með athugasemdir og ábend- ingar um það sem betur má fara og betur gera. Að sama skapi hvílir sú skylda á mannskapnum um borð að nota þann varnarbúnað, sem völ er á og skipið leggur til.“ Slysavarnaskóli sjómanna hefur starfað frá árinu 1985 og þurfa allir sjómenn að sækja námskeið í örygg- isfræðslu til að fá lögskráningu á skip. Slíkt námskeið tekur fimm daga, en nú er unnið að því að hrinda í framkvæmd endurmenntun á vegum skólans, sem verða tveggja daga námskeið, og eiga allir sjó- menn að sækja sér endurmenntun í öryggisfræðslu á fimm ára fresti. „Takmark okkar með öryggisvik- unni er að taka höndum saman um öryggi sjómanna og menn verða að hafa það í huga að þegar stundin rennur upp þriðjudaginn 1. október þá skiptir ekki máli hvort pokinn sé kominn í rennu, hvort verið sé að vinna aflann, hvort menn séu á frí- vakt eða hvort verið sé að landa. Menn fara til æfingarinnar með það í huga að ekki verður gefinn tími til að klára verkin ef raunverulegt neyðarástand skapast,“ segir Hilm- ar Snorrason að lokum. join@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 21 Laugavegur 68, sími 551 7015. Ný sending frá: AB DONKERS skór FROU FROU Lauren Vítal „HÉR hafa menn alltaf verið sér meðvitandi um öryggisþáttinn og tel ég reyndar að það sama gildi um sjó- menn heilt yfir,“ segir Birgir Sig- urjónsson, skipstjóri á Bjarti NK 121, en áhöfninni á Bjarti tókst að loka af eld í vélarrúmi skipsins í ágúst í fyrra þar sem skipið var að veiðum á Tangaflaki, um 40 mílur austur af Norðfjarðarhorni. Tog- arinn Ljósafell kom til aðstoðar og kom með Bjart til hafnar í Neskaup- stað eftir níu tíma tog. Reykkafarar fóru þá um borð en enginn eldur fannst í vélarrúmi skipsins. Hins vegar var þar talsverður reykur og var þegar hafist handa við að reyk- ræsta skipið. Einn skipverja af Bjarti var fluttur á sjúkrahús með reykeitrun. Að sögn Birgis varð vélstjórinn fyrstur var við eldinn þegar hann fór niður í vélarrúmið um nóttina og því sé líklegt að eldurinn hafi verið búinn að krauma í nokkrar mínútur. Um það bil fimm mínútum síðar fóru rafalarnir. Drepið var á vélinni með neyðarstoppi uppi í brú. Viðvör- unarkerfi fór, einhverra hluta vegna, ekki í gang fyrr en nokkru seinna og þá annars staðar í skipinu en í vélarrúminu. „Aðgerðir voru strax hafnar um leið og eldurinn uppgötvaðist og var mannskapurinn allur með á nótunum um hvernig bregðast skyldi við.“ Reynt var að loka öllum opum að vélarrúminu til að sem minnst loft kæmist að. Erfitt var um vik að slökkva eldinn vegna þrengsla og reyks og því gerðu menn litlar tilraunir til að ráða nið- urlögum hans. Farið var með slökkvitæki niður til að byrja með, en þar sem menn gátu lítið athafnað sig, létu þeir bara buna úr því. Þrettán skipverjar voru um borð í Bjarti, sem er 461 brúttólesta ísfisk- togari í eigu Síldarvinnslunnar. Mjög erfitt er að eiga við eld í bát- um úti á rúmsjó vegna plássleysis og þrengsla, en þó eiga allar bruna- varnir að vera um borð. Að sögn Birgis er farið reglulega yfir örygg- isatriði og staðsetningu björg- unartækja um borð í skipinu með áhafnarmeðlimum. „En við ræsum ekki út með ímyndaðan eldsvoða og við erum heldur ekki að hleypa bát- unum út. Öryggismálin eru meira rædd og það kom á daginn að menn gerðu allt rétt í þessum aðstæðum án þess að það hafi gripið um sig óðagot. Mannskapurinn hafði allur sótt öryggisnámskeið Slysavarna- skóla sjómanna þar sem þeir fengu m.a. þjálfun í hvernig bregðast eigi við eldi um borð í skipum. Aftur á móti má segja að sumir séu sér meira meðvitandi um öryggismáln en aðrir, eins og gengur.“ Allir strákarnir með á nótunum Morgunblaðið/Þorkell Birgir Sigurjónsson, skipstjóri á Bjarti NK 121, sendi áhöfninni á Ljósafelli SU 70 hlýjar kveðjur eftir níu tíma tog til Neskaupstaðar. „ÉG TEL að öryggismálin á okkar skipi séu í eins góðu lagi og þau frek- ast geta orðið. Björgunaræfingar fara fram á fyrstu útleið eftir hver mánaðamót og fer lengd æfinganna eftir því hvers eðlis þær eru. Stund- um er farinn hefðbundinn hringur um skipið, öryggisbúnaðurinn skoð- aður og yfirfarinn og mönnum sýnt hvar helstu tól og tæki er að finna. Reykköfun eða æfing í notkun létt- báta tekur heldur lengri tíma. Við færum svo hverja einustu björgunar- æfingu inn í eftirlitsdagbók sem yf- irfarin er af Siglingamálastofnun,“ segir Víðir Benediktsson, fyrsti stýrimaður á Kaldbak EA, ísfisktog- ara Útgerðarfélags Akureyringa. Segja má að hurð hafi skollið nærri hælum þegar Víðir lenti í því í mars síðastliðnum að slasa sig um borð þar sem Kaldbakur var á þorskveiðum fyrir austan Hvalbak í suðvestanátt og átta vindstigum. Verið var að taka trollið þegar stroffa slitnaði með þeim afleiðingum að gilskrókurinn flaug í gegnum rúðu í brúnni og í öxl Víðis, þar sem hann stóð og var að fylgjast með því sem fram fór á dekki. Víðir, sem var skipstjóri í túrnum, sagði að krókurinn hefði komið eins og fallbyssukúla í gegnum 10 mm þykkt öryggisglerið með þeim afleiðingum að hann lá kylliflatur í glersallanum á gólfinu á eftir. Mikið mildi þótti að hann skyldi ekki fá krókinn, sem er um 10 kg að þyngd, í höfuðið. Víðir var fluttur á sjúkrahús í Neskaupstað og síðan áfram með sjúkraflugi til Akureyrar. „Þetta óhapp mitt var auðvitað einskær óheppni og í raun er ekkert sem hægt er að laga í kjölfar þess. Þetta er svipað og ef menn lenda í því að detta í tröppum. Tröppunum verður ekkert breytt á eftir.“ Víðir segist ekki hafa orðið var við annað en að menn skynji nauðsyn björgunaræfinga enda þyrftu þeir al- farið að treysta á sjálfa sig ef eitt- hvað kemur upp á úti á rúmsjó. „Með tilkomu Slysavarnaskóla sjómanna hefur orðið mikil hugarfarsbreyting í öryggismálum sjómanna. Að minnsta kosti hafa margir, sem lent hafa í hrakningum, borið því vitni að öryggisfræðsla skólans hafi rifjast upp fyrir mönnum á örlagastundum. Að mínu mati ættu menn þó að fara með reglulegu millibili á svona nám- skeið því bæði vilja hlutirnir fjara út í kollinum á manni og eins koma nýj- ungar fram á sjónarsviðið í björg- unarbúnaði eins og öðru. Það eru að verða sex ár síðan áhöfnin á Kaldbak fór á námskeið og finnst mér nú kom- inn tími til að fara að hressa upp á minnið. Að sama skapi finnst mér að útgerðarmenn mættu vera meðvit- aðri um fræðsluna og þann örygg- isbúnað, sem á boðstólum er hverju sinni. Þrátt fyrir að ég sé ekki að kvarta, veit ég að víða er pottur brot- inn í aðbúnaði og öryggi skipa vegna þess að hlutirnir snúast alltaf fyrst og síðast um peninga. Rétt er að skipstjórinn á að sjá til þess að hlut- irnir séu í lagi um borð, en skipstjór- inn hefur því miður enga prókúru á heftin hjá þessum körlum.“ Einskær óheppni Morgunblaðið/Kristján Víðir Benediktsson, skipstjóri á Kald- bak EA, ásamt Magnúsi syni sínum. „SLYSAVARNASKÓLI sjómanna hefur gert stórátak í öryggismálum og á heiður skilinn fyrir að hafa stuðlað að hugarfarsbreytingu í flot- anum á undanförnum árum. Skips- félagar mínir hafa sagt mér að sú þekking, sem þeir hafi fengið í skól- anum, hafi verið það eina sem kom- ist hefði að í kollinum á þeim þegar ég datt í sjóinn. Nú væri komið að því að þeir þyrftu að nýta sér þekk- inguna,“ segir Jón Björnsson, háseti á Kaldbak EA. Áhöfn togarans tókst að bjarga Jóni úr sjónum eftir að hann féll útbyrðis að kvöldi 11. desember í fyrra í svartamyrkri og suðvestanþræsingi í Eyjafirði. Jón var nýkomin á vakt og voru auk hans fimm menn að vinna á dekkinu við að skipta um svonefnda grandara, stálvíra fremst á botn- vörpunni. Þeir eru í rúllum og er slakað út aftur með skipinu. Þegar verið var að renna vírnum aftur eft- ir skipinu kom sláttur á hann með þeim afleiðingum að hann lenti á Jóni sem var aftasti maður á dekki, rétt við skutrennuna. Hann fékk vírinn framan á bringuna og gerði sér fljótt grein fyrir hvað var að gerast. „Mín fyrsta hugsun þegar ég féll niður rennuna var að forðast vírinn enda vissi ég að þetta yrði búið ef hann næði mér,“ sagði Jón skömmu eftir slysið. Hann var klæddur í úlpu, gúmmí- buxur, stígvél, með hvítan skíða- hjálm á höfði og með líflínuna í belt- inu. Til að létta sig, fór hann strax að reyna að losa sig úr fötunum og ákvað að eyða ekki kröftunum í stöðug hróp, köll og sund, heldur reyndi að halda ró sinni, troða mar- vaðann og hrópa með reglulegu millibili. „Ég var alltaf viss um að strákarnir myndu bjarga mér úr sjónum. Þeir sáu þegar ég fór út með vírnum og gerðu allt rétt. Ann- ars væri ég ekki hér,“ sagði Jón, sem sá þegar félagar hans settu út björgunarbátinn og hófu leit með aðstoð ljóskastara. Jón mun hafa verið í 5 gráðu heitum sjónum í 10– 20 mínútur þegar hann bjargaðist og skipti hvíti hjálmurinn á hafflet- inum sköpum við leitina. „Ég vil leyfa mér að fullyrða að öryggisbúnaðurinn um borð sé í topplagi. Það er á hinn bóginn ekki nóg að vera með toppbúnað ef mennirnir kunna ekki að nota hann,“ segir Jón, sem viðurkennir að vissulega hefði hann getað verið betur búinn þetta örlagaríka kvöld. „Ég var til dæmis ekki í flotgalla, en hefði auðvitað átt að vera í honum. Það má skella skuldinni á ákveðið kæruleysi, en þar sem ákveðið puð getur fylgt því að skipta um grand- ara, höfum við stundum komið okk- ur undan því að fara í flotgallana auk þess sem ég taldi enga hættu á ferðum þarna á útstíminu. Nú hefur þeim vinsamlegu tilmælum verið beint til okkar allra að nota flotgalla ef við erum að vinna á dekki og finnst öllum það sjálfsagt, sér- staklega eftir það sem kom fyrir mig, enda virðist sem eitthvað þurfi alltaf að koma fyrir til að vekja menn til umhugsunar,“ segir Jón. Erum nú allir í flotgöllum Morgunblaðið/Kristján Jón Björnsson, skipverji á Kaldbak EA, í faðmi fjölskyldunnar, eiginkon- unnar Jóhönnu Guðmundsdóttur, Freydísar Önnu, Guðmundar Freys og Björns Stefáns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.