Morgunblaðið - 22.09.2002, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 19
Í LÝÐRÆÐISRÍKI eins ogokkar eiga einstaklingar,formlega séð, jafnan réttgagnvart opinberri þjónustu.Hitt vitum við öll, að þetta er
engan veginn tilfellið. Það skiptir
verulega máli hvort þú ert Jón eða
Séra Jón, þegar kemur að því að
smokra sér upp eftir biðlistum, eða
gegnum nálaraugu eftirlitsstofnana.
Við tölum hins vegar ekkert mjög
mikið um þetta, enda trúa flestir
Íslendingar því að þeir séu Séra
Jón og ekkert minna og því ekki
rétt að vera að gera mikið veður út
af svona hlutum. Hver veit hvenær
við þurfum á Séra-þjónustu að
halda?
Ég gerði mér fyrst almennilega
grein fyrir þessu þegar ég heyrði
ákveðna setningu
á fjarlægum stað
fyrir mörgum ár-
um. Oft hef ég
rifjað téða setn-
ingu upp síðan og
ætíð virðist hún
jafnfullkominn sannleikur um hið
íslenska kerfi.
Fyrir allnokkrum árum dvaldi ég
um nokkurra ára skeið í Bandaríkj-
unum við nám og vegna þessa
þurfti ég að eiga veruleg samskipti
við stofnun sem ber hið geðþekka
nafn Lánasjóður íslenskra náms-
manna. Fátt í samskiptunum við þá
mikilvægu og þörfu stofnun reynd-
ist jafngeðþekkt og nafnið.
Megineinkenni samskiptanna
voru þau, að námsmaðurinn var
sýknt og heilagt að sýna fram á að
hann eða hún væri ekki að sölsa
undir sig lánsfé, ásamt tilheyrandi
verðtryggingu og vöxtum, með
glæpsamlegum svikum og prettum.
Stafsmenn LÍN virtust vera eins
konar skilorðsfulltrúar í óða önn við
að koma í veg fyrir óhæfuverk ís-
lenskra síbrotamanna sem væru að
leika sér í útlöndum og þættust
vera í skóla.
En það var svo undarlegt, að hjá
sumum námsmönnum virtist allt
engu að síður ganga vand-
kvæðalaust. Greiðslurnar frá LÍN
bárust á tilsettum tíma, allt var
eins og stafur á bók. Þó var enginn
munur á námsframvindunni. Maður
kunni nú ekki við að vera mikið að
spyrja viðkomandi kollega sína út í
þetta, en öfundaði þá óneitanlega af
þeirri frábæru þjónustu sem þeir
virtust svo einstaklega lánsamir að
njóta.
Svo var það undir lok námstím-
ans að skýringin fékkst á þessu öllu
saman. Skýringin fólst í einni setn-
ingu sem ung kona og fyrrverandi
námsmaður sagði við undirritaðan í
tuskubúð á Venice Beach í Los
Angeles. Þegar
ég hafði borið
mig eitthvað illa
eftir samskipti
við LÍN, kinkaði
konan kolli, afar
skilkningsrík í
framan, og sagði
um leið og
hún dæsti til
að ítreka sam-
hygðina: „Það er
svo erfitt að eiga
við Lánasjóðinn,
ef maður þekkir
engan sem vinn-
ur þar.“
Og viti menn,
þarna reyndist
komin skýringin
á því hvers
vegna sumir
námsmenn lentu
aldrei í neinum
vandræðum gagnvart LÍN.
Það kom sem sé í ljós að hinir lán-
sömu námsmenn áttu allir frænd-
fólk eða kunningja eða gamla
bekkjarfélaga sem unnu hjá LÍN
eða þá að foreldrar námsmannsins
áttu kunningja eða bekkjarfélaga,
o.s.frv.
Nú orðið eru samskipti mín við
LÍN alveg ljómandi. Þeir rukka og
ég borga af láninu. En varla líður
svo vika að mér verði ekki hugsað
til setningarinnar góðu, svo augljóst
sem það er hvað það skiptir miklu
máli fyrir sérhvern Íslending, sem
þarf að eiga samskipti við „kerfið“,
að þekkja einhvern sem vinnur þar.
Maður hættir sér nú varla út í að
ímynda sér hvernig það er fyrir út-
lendinga, eða Íslendinga sem ekki
eiga djúpar rætur og stóran frænd-
garð í íslensku samfélagi. Eiga þeir
yfirhöfuð möguleika?
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Þekkirðu ekki einhvern?
um
jól
in
Al
ica
nte
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Beint leiguflug me› Fluglei›um
til Alicante 18. desember
og 6. janúar.
33.240kr.*
Ver›dæmi:
*miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11ára ferðist saman.
37.630 kr. ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug og flugvallarskattar.
Munið að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum,
VR ávísunum og Fríkortspunktum að eigin vild og lækka
ferðakostnaðinn.
Takmarkað sætaframboð.