Morgunblaðið - 22.09.2002, Blaðsíða 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 37
Viðhald í lágmarki. Húsin eru einangruð að utan og
klædd með áli og harðvið. Gluggar eru álklæddir.
Innréttingar, skápar og hurðir eru vandaðar og
hægt er að velja milli þriggja viðartegunda.
Lögð er sérstök áhersla á góða hljóðeinangrun.
Gólfplötur annarar hæðar og ofar verða
einangraðar undir gólfílögn.
Í öllum íbúðum er þvottahús auk sér geymslu í
kjallara.
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna að
undanskyldum baðherbergisgólfum sem eru
flísalögð.
Í öllum íbúðum er dyrasími tengdur myndavél í
anddyri. Settur verður upp tengikassi í hverja íbúð
fyrir síma, loftnet og ljósleiðara og verða sjónvarps-,
síma- og nettengingar mögulegar í öllum
herbergjum.
Sér bílastæði í bílageymsluhúsi fylgir öllum íbúðum.
Sameign og lóð verða fullfrágengin með
snjóbræðslu í stétt fyrir framan húsið.
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is
Ítarlegar upplýsingar á www.iav.is
Sér inngangur er í allar íbúðir af glerklæddum svalagangi.
Í dag, sunnudaginn 22. september, halda
Íslenskir aðalverktakar kynningu á íbúðum í
smíðum við Laugarnesveg milli kl. 13 og 15.
Allar upplýsingar og gögn á staðnum.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
Ólafsgeisli til sýnis í dag
Í dag milli kl. 13:00 og 15:00 kynnum
við glæsilegar sérhæðir í húsunum nr.
121-125 við Ólafsgeisla. Öll húsin eru tví-
býlishús og eru byggð á einhverjum fal-
legasta byggingarstað í Reykjavík, með
óviðjafnanlegt útsýni yfir Reykjavík og golfvöllinn í Grafarholti. Íbúðar-
flötur er u.þ.b. 150 fm og innbyggður bílskúr u.þ.b. 28 fm. Hér býðst
þér að búa í næsta nágrenni við ósnortna náttúru í glæsilegu og nútíma-
lega hönnuðu húsnæði. Húsin afhendast fullbúin að utan en að innan
geta íbúðirnar verið fokheldar eða lengra komnar eftir samkomulagi.
Ólafsgeislinn er gullmolinn í Grafarholtinu, staðsettur sunnan-
og sólarmegin í holtinu. Sjón er sögu ríkari.
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Falleg og vel staðsett studio íbúð á 4.
hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er 44,3 fm og
snýr í suður og vestur, gott útsýni og
svalir. Húsið klætt að utan og sameign
lítur vel út. Verð kr. 7,1 milljón áhvílandi
2,7 mkr.
Opið hús í dag hjá Auði milli kl 14 og
16 bjalla merkt 4-4
VALLARÁS 5 - REYKJAVÍK
Einbýlishús á einni hæð um 135 fm auk
bílskúrs 76 fm. Húsið er timburhús byggt
1960 vel skipulagt, með 4 svefnherbergj-
um, falleg aðkoma, skjólgóður garður,
upphitaðar stéttir. Bílskúr er steyptur og
með öllum lögnum. Mjög vinalegt hús á
góðum stað.
Verð 21,0 millj. Áhvílandi 5,7 millj í Hús-
bréfum. Til afhendingar fljótlega.
Opið hús í dag milli kl. 14 og 16
FAXATÚN 25 - GARÐABÆ MEÐ 76 FM BÍLSKÚR
OPIÐ HÚS SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 16
DR. ANDREA Honigsfeld, Ful-
bright-gestakennari við Kennara-
háskóla Íslands, heldur fyrirlestur á
vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ
næstkomandi miðvikudag 25. sept-
ember kl. 16:15. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn í sal 2 í nýbyggingu Kenn-
araháskóla Íslands v/Stakkahlíð og
er öllum opinn.
Í fyrirlestrinum kynnir Andrea
niðurstöður og ályktanir af alþjóð-
legri samanburðarrannsókn sinni á
einkennum námsvenja unglinga.
Í rannsókninni var stuðst við
fræðilegan grunn Dunn and Dunn
Learning-Style Model. Yfir 1600
unglingar frá fimm löndum tóku þátt
í rannsókninni, frá Bermúdaeyjum,
Brúnei, Nýja-Sjálandi, Svíþjóð og
Ungverjalandi.
Markmið rannsóknarinnar var að
greina hvað er líkt og hvað ólíkt með
námsvenjum unglinga eftir aldri
þeirra, kyni, skólastigi og þjóðerni.
Fyrirlestur um
námsvenjur
unglinga
MENTOR, verkefni um vináttu, er
nú að hefjast í annað sinn. Verður
upphafsdagur þess í Áskirkju í
Reykjavík í dag, sunnudag, og stend-
ur milli klukkan 15 og 17.
„Mentor-verkefnið vinátta verður
starfrækt í annað sinn skólaárið
2002-2003 og eru fjórir grunnskólar í
Reykavík þátttakendur í verkefninu
að þessu sinni. Skólarnir eru Austur-
bæjarskóli, Fellaskóli, Háteigsskóli
og Langholtsskóli. Mentor verkefnið
er byggt á alþjóðlegri fyrirmynd en
það sem er næst okkur er starfrækt í
Malmö í Svíþjóð,“ segir m.a. í frétta-
tilkynningu.
„Mentor-verkefnið vinátta hóf
göngu sína á Íslandi haustið 2001
sem samstarfsverkefni Velferðar-
sjóðs barna á Íslandi, Háskóla Ís-
lands, Kennaraháskóla Íslands og
tveggja grunnskóla í Reykjavík.
Verkefnið felst í því að háskólastúd-
entar verja þremur stundum á viku
yfir skólaárið í samveru með grunn-
skólabarni á aldrinum 7-12 ára.
Kjarni Mentor-verkefnisins vináttu
er að háskólastúdentar veiti grunn-
skólabörnum stuðning og hvatningu.
Áhersla er lögð á gagnkvæman
ávinning og hagsmuni samfélagsins í
heild af því að börn og ungmenni
kynnist og læri af aðstæðum hvers
annars. Nemendur háskólanna
tveggja fá tækifæri til að verða fyr-
irmynd í lífi grunnskólabarna og já-
kvætt afl í lífi þeirra og börnin að
mynda tengsl við þroskaðan, fullorð-
inn aðila utan fjölskyldu sinnar.“
Mentor-
verkefnið
vinátta hefst
í annað sinn
SKRÁNING er hafin í námskeiðið
Börn eru líka fólk og er það ætlað
börnum 6–12 ára og foreldrum
þeirra. Námskeiðið stendur í 10 vik-
ur, einu sinni í viku. Það fer fram síð-
ari hluta dags, kl. 17:00–18:30. Nám-
skeiðið er ætlað börnum sem eiga
foreldra sem eru alkóhólistar, of-
virkir, með athyglisbrest eða eiga við
geðrænan vanda að stríða eða þar
sem börn búa við óöryggi af ýmsum
toga innan fjölskyldu sinnar.
Námskeiðinu er ætlað að skoða
með börnum og foreldum hvaða leið-
ir þau geta farið til að græða sárin og
eins að kenna aðferðir sem geta nýst
þeim til að takast betur á við erf-
iðleika sem upp geta komið.
Sálfræðingur leiðbeinir foreldrun-
um og bendir þeim á nýjar leiðir sem
þeir geta farið í uppeldinu og gefur
þeim ýmis hagnýt ráð sem geta
gagnast vel. Barnaráðgjafi – uppeld-
isfræðingur veitir börnunum hand-
leiðslu.
Nánari upplýsingar eru í For-
eldrahúsinu eða á heimasíðunni okk-
ar, www.foreldrahus.is.
Námskeið um
forvarnir