Morgunblaðið - 22.09.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 53
DAGBÓK
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig á áttræðisafmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Guðlaugsdóttir,
Holti, Garðahverfi,
Garðabæ.
Sjálfboðaliðar óskast
Vinalína Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Íslands.
Kynningarfundur fyrir þá sem vilja starfa sem sjálfboðaliðar
hjá Vinalínunni, sem er símaþjónusta fyrir 18 ára og eldri,
verður haldinn mánudaginn 23. september
kl. 20:00 í Sjálfboðamiðstöðinni á Hverfisgötu, 105 Rvík.
Upplýsingar í síma 551 8800.
Dagsnámskeið í haustskreytingum er hafið
Meðal annars verður kenndur haustkrans, karfa/skreyting,
skreyting í glugga og frjálst val.
Skráning í síma 555 3932 • Upplýsingar í síma 897 1876
Blómaskreytingar
VR-styrkurUffe Balslev blómaskreytir
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Stórrýmingarsala
30-50% afsláttur
Rýmum fyrir nýjum vörum
Kápur frá 2.000 kr.
Tannlæknir
Hef hafið störf að loknu námi á
Tannlæknastofu Elínar Sigurgeirsdóttur,
Grensásvegi 48, Reykjavík.
Tímapantanir og upplýsingar
í síma 553 4530.
Verið velkomin.
Gísli Einar Árnason - tannlæknir.
ALDREI er trygging fyrir
því að blekkisögn heppnist,
en ef áhættan er engin sakar
ekki að reyna.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á10
♥ –
♦ G865
♣D1087543
Vestur Austur
♠ 843 ♠ K
♥ ÁDG95 ♥ K1086432
♦ ÁD1043 ♦ K7
♣– ♣K92
Suður
♠ DG97652
♥ 10
♦ 92
♣ÁG6
Spilið kom upp í sveita-
keppni á sumarleikum
Bandaríkjamanna. Norður
er gjafari og það blasir við
að opna á einhvers konar
laufhindrun. Flestir myndu
láta þrjú lauf duga, en fjögur
lauf er líka möguleiki ef
kerfið býður upp á þann
möguleika:
Vestur Norður Austur Suður
– 4 lauf Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Margir nota opnun á fjór-
um laufum til að sýna átta
slaga hönd í hjarta, sem er
svonefnd „Namyats“-sagn-
venja (Stayman afturábak).
Svo er líka til í því að láta
sögnina vera tvíræða: ann-
aðhvort laufhindrun eða
rennandi hjartalitur. Sagn-
irnar að ofan benda til þess
að sú hafi verið regla NS, en
svo var ekki. Opnunin sýndi
bara lauf og ekkert annað!
Suður gerði sér hins vegar
grein fyrir því að AV ættu
a.m.k. geim í hjarta, ef ekki
slemmu, og ákvað að „stela
litnum“. Og það tókst svona
vel, suður varð sagnhafi í
fjórum hjörtum með eitt
tromp á móti engu! Sagnhafi
ætti ekki að fá nema einn
slag á spaðaás, en hann fékk
slag á tromp með því að
stinga tígul! Átta niður og
400 til AV, sem gaf blekk-
ingameistaranum 11 IMPa í
plúsdálkinn, því hinum meg-
in spiluðu AV 6 hjörtu, sem
standa á borðinu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5
e6 7. Dd2 a6 8. 0–0–0 h6 9.
Be3 Dc7 10. f4 Bd7 11. Kb1
b5 12. Bd3 Ra5 13. De1 Rc4
14. Bc1 b4 15. Rce2 a5 16. h3
e5 17. Rf5 g6 18. Rxd6+
Bxd6 19. Bxc4 Dxc4 20.
Hxd6 Be6 21. b3 Dc5 22.
fxe5 Rxe4 23. Rf4
Rc3+ 24. Ka1 Bf5 25.
Rd3 Bxd3 26. Hxd3
a4 27. Bb2 axb3 28.
Bxc3
Lokafléttan sem
sýnd er með skák-
þjálfaranum Zigurds
Lanka var tefld í
Nice í Frakklandi
1995. Hún er óvenju-
leg fyrir þær sakir að
í sókninni eru ein-
ungis drottning,
hrókur og tvö peð og
fyrir hitt að kóngur
svarts og kóngshrókurinn
hafa ekki fært sig frá upp-
hafi skákarinnar! Lanka
hafði svart gegn Milan
Mrdja. 28... Hxa2+ 29. Kb1
Ha1+! og hvítur gafst upp
enda mát eftir 30. Kxa1
Da5+ 31. Kb2 Da2+ 32. Kc1
Dxc2# og 30. Bxa1 Dxc2#.
7. mótið í Bikarsyrpu Halló
hefst kl. 20.00 á skákþjón-
inum ICC. Öllum er velkom-
ið að taka þátt í mótinu.
Svartur á leik.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Í ÞÆTTINUM Íslenskt
mál 14. þ.m. er fjallað um
ýmis orð í máli okkar, sem
honum bárust í bréfi og
ekki er sama, hvernig eru
notuð í máli okkar. Þar var
vikið að því, að lesandi
Mbl. hefði séð kanínu látna
í Öskjuhlíðinni. Vitaskuld
er það réttmæt athuga-
semd, að dýr finnast ekki
látin, heldur dauð. Á þetta
við um allar skepnur.
Þetta er enn eitt dæmi um
það, að menn eru að reyna
að vanda mál sitt, en at-
huga ekki alltaf, hvað á við
hverju sinni og fara þá yfir
markið og meira en það.
Auðvitað sá lesandinn kan-
ínuna dauða í Hlíðinni, en
hefði þetta verið maður,
hefði lesandinn séð hann
látinn. Fyrir löngu hefur
verið bent á sams konar
misræmi í pistlum mínum
og þá einnig í sambandi við
lo. dáinn. Bréfritari minn-
ist á annað orðfæri, sem
stingur í stúf við eðlilega
málkennd. Eitt sinn mun
hafa staðið hér í Mbl.: þeg-
ar „vanfærar hreinkýr fór-
ust“. Hér virðist höfundur
þáttarins einungis beina
sjónum sínum að so. farast
um hreinkýrnar, enda á so.
að drepast við í þessu sam-
bandi: þegar „vanfærar
kýr drápust“. En ég býst
við, að fleiri en ég hnjóti
einnig um lo. vanfær á
þessum stað, enda á það
ekki heldur við hér. Kýrin
er kálffull og kýrnar kálf-
fullar, en ekki vanfær eða
þær vanfærar. Vanfær er
samkv. OM einvörðungu í
þessu sambandi haft um
konu, sem er barnshaf-
andi. Ýmis önnur orð koma
upp í huga minn, sem
menn nota ekki rétt og
trúlega þá af einhverjum
tepruskap. Hér ber því
margt að varast í meðferð
málsins. Vel má vera, að ég
minnist síðar á ýmis dæmi
þessa. – Að endingu þakka
ég nemanda mínum frá
fyrri árum góðar ábend-
ingar í bréfi, en þær koma
síðar til umræðu. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Kálffullar kýr
LJÓÐABROT
LJÁÐU MÉR VÆNGI
„Grágæsa móðir!
ljáðu mér vængi“,
svo ég geti svifið
suður yfir höf.
Bliknuð hallast blóm í gröf,
byrgja ljósið skugga tröf;
ein ég hlýt að eiga töf
eftir á köldum ströndum,
ein ég stend á auðum sumarströndum.
Hulda
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 22.
september, er sextug Erla
Guðmundsdóttir, bókunar-
stjóri hjá Kynnisferðum.
Eiginmaður hennar er Stef-
án Ólafsson.
100 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánu-
daginn 23. september, er
100 ára Guðrún Eggerts-
dóttir Norðdahl frá Hólmi,
Stórholti 17, Reykjavík.
Eiginmaður hennar var Sig-
urður Júlíus Eiríksson, lát-
inn 1966. Guðrún er að
heiman en tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í Fé-
lagsmiðstöðinni Hraunbæ
105, 1. hæð, að kvöldi afmæl-
isdagsins kl. 20.30–22.30.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert agaður og átt
auðvelt með að takast á við
stór verkefni sem krefjast
mikils af þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það þarf lag til að stefna
öllum þáttum þannig að
þeir beri að þeim brunni,
sem þú vilt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ættingi þinn kallar á at-
hygli þína en þú ert of
önnum kafinn við aðra
hluti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Breytingar breytinganna
vegna hafa sjaldnast
nokkuð upp á sig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Tunglið er í húsi sporð-
drekans sem gerir þig
ákafari en oft áður.
Hafðu augun hjá þér
þegar nýir möguleikar
opnast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert nú tilbúinn til að
ráðast í þau verkefni sem
eru þér ekki beint hug-
leikin en þó nauðsynleg.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt þér líki betur fá-
menni en margmenni er
ástæðulaust að loka sig
úti frá öllum mannamót-
um.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur ákveðnar skoð-
anir sem geta valdið
ágreiningi við maka eða
náinn vin í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að gera ekki
svo stífar kröfur til þinna
nánustu að þær kunni að
ganga af sambandinu
dauðu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þar sem Venus er ný-
komin inn í stjörnumerki
þitt áttu auðvelt með að
samsinna þeim sem
verða á vegi þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur lengi velt mál-
unum fyrir þér og nú er
komið að því að þú segir
hug þinn og sjáir hvaða
undirtektir hugmyndir
þínar fá.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að takast á
hendur ítarlega rann-
sókn á málefni, sem þú
berð nú fyrir brjósti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu ekki aðra hrifsa til
sín það sem í raun er þinn
hlutur. Hafðu léttleikann
í fyrirrúmi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRÉTTIR
Í HAUST halda til framhaldsnáms
alls fjórtán íslenskir Fulbright-
styrkþegar. Af þeim eru fjórir sem
hlotið hafa styrk frá einkaaðilum.
Minningarsjóður Pálma Jónssonar
hefur undanfarin tvö ár styrkt þrjá
nemendur til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum í læknisfræðilega
tengdum greinum. Eftirtaldir styrk-
þegar hlutu styrk frá Minningar-
sjóðnum: Halla Björg Ólafsdóttir,
Penn State University, Hans Tómas
Björnsson, The Johns Hopkins
School of Medicine, og Ragnar
Ólafsson, University of Michigan.
Einnig hefur Íslensk erfðagrein-
ing styrkt einn styrkþega undanfar-
in tvö ár.
Í ár hlýtur Óli Þór Atlason þann
styrk og hefur nám við University of
Chicago. Styrkirnir eru að upphæð
12.000 dollarar hver.
Styrkja Fulbright-styrk-
þega til framhaldsnáms