Morgunblaðið - 22.09.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 9
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Örugg fasteignaviðskipti!533 4800
Björn Þorri,
hdl., lögg. fast-
sali, sölumaður.
Karl Georg,
hdl., lögg. fastsali,
sölumaður.
Sigtryggur,
sölumaður.
Ragnar,
sölumaður.
Fríður,
ritari.
- Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i !
Allar eignir á netinu: www.midborg.isOpið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. frá kl. 9-17.
Þorlákur Ómar,
sölustjóri.
Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-17
NAUSTABRYGGJA 55-57 OG 54-56
Miðborg er með í einkasölu nýjar íbúðir í lyftuhúsum á besta stað við höfnina í Bryggjuhverfinu í
Reykjavík. Nú eru örfáar íbúðir eftir óseldar. Íbúðirnar eru til afhendingar nú þegar fullbúnar án
gólfefna eða tilbúnar til innréttinga. Húsin eru glæsilega hönnuð, klædd viðhaldsfrírri klæðningu og
standa við fallegt torg við smábátabryggjuna. Fallegt sjávarútsúni. Hönnun þakhæðar íbúðanna er
mjög sérstök og spennandi m.a. mikil lofthæð. Sjón er sögu ríkari.
Í dag, sunnudag, frá kl. 14-17 verða sölumenn okkar á staðnum og sýna þessar glæsilegu íbúðir.
ÍTALSKIR bankar hafa sýnt því
aukinn áhuga að fjármagna starf-
semi fyrirtækja og verkefni á Íslandi
í samstarfi við hérlenda banka. Sam-
skipti Íslands og Ítalíu hafa sömu-
leiðis verið að aukast á ýmsum öðr-
um sviðum og hafa ítölsk stjórnvöld
áhuga á því að opna sendiráð hér á
landi á næstu árum.
Þetta er meðal þess sem kom fram
í samtali sem Morgunblaðið átti við
sendiherra Ítala á Íslandi, Andrea G.
Mochi Onory Di Saluzzo, er hann var
staddur hér á landi í tengslum við
heimsókn forseta neðri deildar
ítalska þingsins, Pier Ferdinando
Casini, til Íslands um síðustu helgi.
Þá var verið að endurgjalda heim-
sókn Halldórs Blöndal forseta Al-
þingis, til Ítalíu fyrir fjórum árum.
Di Saluzzo, sem hefur aðsetur í
Osló, segir að heimsóknir af þessu
tagi séu afar mikilvægar og stuðli að
auknum samskiptum landanna. Hið
sama hafi einkaheimsóknir forsætis-
ráðherra landanna hvor til annars
gert en Davíð Oddsson var sem
kunnugt er nýlega á Ítalíu að endur-
gjalda heimsókn ítalska forsætisráð-
herrans, Silvios Berlusconis, frá því í
vor.
Í tengslum við Ítalíuheimsókn
Davíðs og fund Íslensk-ítalska versl-
unarráðsins í Róm var undirritaður
tvísköttunarsamningur milli Íslands
og Ítalíu sem Di Saluzzo segir að
muni vonandi auka viðskipti milli
landanna. Hafi þau þó verið orðin
töluverð fyrir.
Hann segir að í Róm hafi verið
fulltrúar fjölmargra fyrirtækja frá
Íslandi sem m.a. hafi komist í sam-
band við fulltrúa ítalskra banka og
fjármálastofnana. Að sögn sendi-
herrans hafa bankar á Ítalíu sýnt því
aukinn áhuga að fjármagna starf-
semi og verkefni á Íslandi í samstarfi
við hérlenda banka, einkum Lands-
bankann. Sá áhugi sé mun meiri en
hann hafi gert sér grein fyrir. Hann
bendir m.a. á að ítalskir bankar hafi
komið að fjármögnun Smáralindar í
Kópavogi.
Auk samskipta á sviði stjórnmála
og viðskipta minnir Di Saluzzo á
menningarsamstarf landanna, sem
hafi verið skjalfest með undirritun
samnings menntamálaráðherra Ís-
lands og Ítalíu á síðasta ári. Eftir sé
þó að samþykkja samninginn í báð-
um deildum ítalska þingsins.
Áhugi fyrir opnun sendiráðs
Sem fyrr segir hefur Di Saluzzo
aðsetur í Osló en hann er einnig
sendiherra Ítalíu í Noregi og hefur
gegnt embættinu í þrjú ár. Hann
segist reyna að koma eins oft til Ís-
lands og hann geti. Þetta var þriðja
heimsókn hans til landsins á þessu
ári en hann kom vegna NATO-fund-
arins í Reykjavík sl. vor og sótti fund
Íslensk-ítalska verslunarráðsins í
lok febrúar síðastliðinn.
„Þegar ég kem hingað til Íslands
finn ég fyrir miklum áhuga á Ítalíu
og hið sama finn ég á Ítalíu gagnvart
Íslandi. Ég bind vonir við að fleiri
ferðamenn fari milli landanna. Hér
er ákaflega fallegt landslag og það er
ekki síst það sem Ítalir hrífast af,“
segir Di Saluzzo en á þessu ári er bú-
ist við að um átta þúsund ítalskir
ferðamenn komi til Íslands. Að-
spurður hvort ítölsk stjórnvöld muni
opna sendiráð hér á landi á næstu ár-
um segir Di Saluzzo mikinn áhuga og
vilja til þess vera til staðar. Líkur á
því aukist ár frá ári, ekki síst þegar
samskiptin séu orðin þetta mikil á
ýmsum sviðum.
Sendiherra Ítalíu á Íslandi segir að ítölsk stjórnvöld hafi áhuga á að opna sendiráð á Íslandi
Ítalskir bankar sýna
Íslandi aukinn áhuga
Morgunblaðið/Þorkell
Andrea G. Mochi Onory Di Saluzzo, sendiherra Ítalíu á Íslandi og í Nor-
egi, er lögfræðingur að mennt og gegnir einnig stöðu prófessors í al-
þjóðalögum við háskólann í Mílanó. Hann hefur aðsetur í Noregi.