Morgunblaðið - 22.09.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 22.09.2002, Qupperneq 15
frá auðugum einstaklingum í írsku samfélagi, bæði á meðan hann gegndi ráðherrastörfum og fyrir þann tíma. Þegar Pattison er spurður að því hvort Haughey hafi verið jafn spillt- ur og af er látið færist hann undan því að fella nokkra dóma, segist ætla að leyfa dómstólunum að kveða upp sinn úrskurð fyrst. Hann vill ekki samþykkja að spilling hafi ver- ið landlæg í írskum stjórnmálum. Þúsundir starfsviðtala — bara til að halda vinnunni! Pattison ber sérstakan heiðurs- titil sökum þess að hann hefur setið lengst allra núverandi þingmanna á þingi: „Father of the house.“ „Ég átti nú aldrei von á því að ég myndi hljóta slíkan titil. Ég hef aldrei á ævi minni notið atvinnu- öryggis að heita má. Nú í vor tók ég þátt í mínum þrettándu þingkosn- ingum þannig að ég hef að meðaltali þurft að fara fram á endurkjör á þriggja ára fresti. Í lok hvers kjör- tímabils er maður rekinn úr starfi því þá er umboð manns á enda. Þá þarf maður að fara í gegnum starfs- viðtal, raunar þúsundir slíkra með kjósendum, sem ráða örlögum manns, til þess eins að fá gömlu vinnuna sína aftur!“ En þá ert þú greinilega mjög fær að sannfæra vinnuveitandann um að ráða þig að nýju?! „Já það er rétt, úr því ég hef enst allan þennan tíma! Fyrir flestar kosningar hafa stjórnmálaspekingar reyndar spáð því að nú muni ég tapa sæti mínu. Það hefur hjálpað mér því það hefur gefið stuðnings- fólki mínu aukinn kraft til að tryggja kjör mitt.“ Aðspurður segir Pattison rétt að grundvallarbreyting hafi átt sér stað á írsku samfélagi á þeim tíma sem liðinn er síðan hann kom fyrst inn á þing. Írland sé ekki lengur jafn lokað og gamaldags og það var, allt hafi verið opnað upp á gátt. Þró- unin hafi verið hröð og í raun hafi menn ekki haft við á síðustu árum að bregðast við þeirri miklu upp- byggingu sem orðið hafi. Segist Pattison geta tekið undir að þetta ástand megi kalla vaxtarverki hins nýja Írlands. „Þegar ég horfi til baka er það sorgleg staðreynd að nánast allir jafnaldra minna fluttust á brott, til annara heimsálfa. Það var engin tækifæri að hafa á Írlandi á sjötta áratugnum. Vonleysið var algert. Fæstir höfðu efni á því að fara í há- skóla. Eini kosturinn, sem við fólki blasti, var að flytjast búferlum til Bandaríkjanna. Allt þetta hefur breyst og það er afar ánægjulegt að sjá hversu fólk er að gera það gott á Írlandi um þessar mundir,“ sagði Séamus Pattison. sár david@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 15 BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 • FAX: 562 3025 E-MAIL: holt@holt.is • http://www.holt.is standandi móttökur með veitingum, drykkjarföngum og gaffal- eða pinnamat. sitjandi borðhald fyrir allt að 60 manns þar sem þjónað er til borðs. brúðkaup, afmæli, árshátíðir, hádegisverðir, kvöldverðir. kynningar, ráðstefnur og smærri fundir (háhraða ADSL nettenging fyrir allt að 8 tölvur samtímis). Margreynt og menntað fagfólk aðstoðar við undirbúning og skipulagningu. Nánari upplýsingar og ráðgjöf á Hótel Holti og á www.holt.is Þingholt Glæsilegur veislu- og ráðstefnusalur fyrir 20 til 120 manns HAFÐU ÞAÐ FYRSTA FLOKKS - ÞAÐ KOSTAR EKKI MEIRA.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.