Morgunblaðið - 22.09.2002, Side 16

Morgunblaðið - 22.09.2002, Side 16
16 SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á NÆSTU dögum er þessvænzt að hinn virti þýzkisérfræðingur í þjóða-rétti, Jochen Frowein,birti skýrslu sem Evr- ópuþingið fól honum að vinna fyrir um hálfu ári. Er jafnvel búizt við því að sú niðurstaða sem Frowein kemst að í þessari skýrslu geti spillt fyrir þeim ásetningi dönsku ESB-for- mennskunnar að ljúka samningum um ESB-aðild átta fyrrverandi kommúnistaríkja í Mið- og Austur- Evrópu, auk Miðjarðarhafseyríkj- anna Möltu og Kýpur, á leiðtogafundi sambandsins í Kaupmannahöfn í des- ember. En hvernig má það vera, að slík lögfræðileg sérfræðiskýrsla geti komið stækkunaráformum Evrópu- sambandsins, sem meira og minna allt starf ESB á undanförnum árum hefur miðazt að, út af sporinu? Það er von að spurt sé. Því hvaða venjulegur borgari Vestur-Evrópu nútímans kannast við hinar svoköll- uðu Benes-tilskipanir? Þær eru nefni- lega umfjöllunarefni sérfræðiálits þjóðaréttarprófessorsins. Málið snýst um lagatilskipanir sem Edvard Ben- es, fyrsti eftirstríðsforseti Tékkóslóv- akíu, gaf út á árunum 1945-1946 og sköpuðu lagalegan grundvöll fyrir eignasviptingu og brottflæmingu um þriggja milljóna Súdeta-Þjóðverja, þ.e. þýzkumælandi íbúa héraðanna Bæheims og Mæris, og reyndar ung- verskra borgara Tékkóslóvakíu einn- ig. Er Benes, sem var síðasti forseti Tékkóslóvakíu fyrir stríð og fór fyrir útlagastjórn í London á stríðsárun- um, hafði myndað bráðabirgðaríkis- stjórn í Prag í maí 1945 sagði hann: „Kjörorð okkar er, að við verðum að hreinsa land vort af öllu þýzku, menn- ingarlega, efnahagslega og pólitískt.“ Með brottflæmingu Súdeta-Þjóð- verja urðu Bæheimur og Mæri, hinar fornu lendur Bæheimskonunga sem Tékkland nútímans nær yfir, í fyrsta sinn í sögunni því sem næst hrein- tékkneskt svæði. Benes-tilskipanirnar frá 1945-1946 eru enn þann dag í dag hluti af rétt- arkerfi Tékklands – reyndar sam- þykkti tékkneska þingið í apríl sl. ein- róma ályktun um að Benes- tilskipanirnar væru óhagganlegur hluti lagaarfleifðar lýðveldisins – og spurningin sem Evrópuþingið bað Frowein að svara snýr að því hvort sú staðreynd, að slík lög um „þjóðern- ishreinsanir“ er að finna í lagasafni tilvonandi aðildarríkis, samræmdist grundvallargildum ESB og hvort ESB beri að gera tékkneskum stjórn- völdum að lýsa viðkomandi lög ógild áður en forsvaranlegt er að bjóða landið formlega velkomið í raðir að- ildarríkja þess. Bæði á lögfræðiskrifstofu fram- kvæmdastjórnar ESB í Brussel sem og meðal manna á Evrópuþinginu sem gjörla til þekkja er búizt við því að Frowein muni í skýrslunni gagn- rýna með ótvíræðum orðum lög sem ríkisstjórn Benes setti árið 1946 og veitti öllum borgurum Tékkóslóvakíu sakaruppgjöf fyrir glæpi framda á því fólki sem með fyrri tilskipunum var búið að gera réttlaust, þ.e. Súdeta- Þjóðverjum og Ungverjum í Slóvak- íu. Samkvæmt heimildum austur- ríska dagblaðsins Die Presse telja menn í æðstu stöðum innan fram- kvæmdastjórnarinnar það ekki úti- lokað að stjórninni í Prag verði gert að ógilda þessi sakaruppgjafarlög – sem teljast að vísu ekki eiginlegur hluti hinna svokölluðu Benes-tilskip- ana en voru sett á sama tíma – áður en Tékkland fær lögformlega aðild að sambandinu. Eftir sérfræðingi hjá Evrópuþinginu er hins vegar haft, að í skýrslunni sé komizt að þeirri nið- urstöðu að „málaflokkurinn sem varðar eignasviptingu og brottflæm- ingu muni að öllum líkindum ekki skipta lengur máli“, þ.e. að ekki sé ástæða fyrir Evrópusambandið að gera ógildingu tilskipananna sem að þessu lúta að skilyrði fyrir inngöngu í sambandið. Talsmenn dönsku stjórn- arinnar, sem fer með formennskuna í ráðherraráði ESB þetta misserið, höfðu áður lýst því yfir að Benes-til- skipanirnar væru ekki hluti af aðild- arsamningunum við Tékkland og deilurnar um þær ættu ekki að hafa nein áhrif á þá. Eftir að þessar deilur blossuðu upp sl. vetur hafði Günter Verheugen, sem fer með stækkunarmálin í fram- kvæmdastjórn ESB, lýst því yfir m.a. í ræðu í Prag að þær ættu ekki að snerta aðildarsamningana. Ekki mætti leyfa að deilur um þessa skugga fortíðarinnar yrðu látnar spilla fyrir því einstæða sögulega tækifæri sem fælist í næstu stækk- unarlotu Evrópusambandsins; sam- einingu Evrópu í friði og bræðralagi þjóðanna sem álfuna byggja, í austri og vestri. Tékkneskir stjórnmálamenn hrökkva í þjóðernisbaklás Rifjum upp hvernig þessar deilur hófust. Hvatinn að því að þingmenn úr öllum flokkum Tékklands fundu hjá sér þörf fyrir að samþykkja ein- róma ályktun af því tagi sem greint er frá hér að ofan, um að Benes-tilskip- anirnar séu ósnertanlegar, var m.a. beiðni Evrópuþingsins um vinnslu sérfræðiálits á því hvort þær stöng- uðust á við lög og reglur ESB. Kveikjan að þessari beiðni þingsins var að nokkrir meðlimir þess – þýzkir – höfðu vakið athygli þess á tilvist þessarar löggjafar í Tékklandi og spurt hvort land sem héldi fast í slík haturslög ætti að óbreyttu heima í Evrópusambandinu, þjóðabandalagi sem grundvallaðist ekki sízt á sam- stöðu um virðingu fyrir mannréttind- um. Þetta varð Milos Zeman, þáverandi forsætisráðherra Tékklands, og öðr- um tékkneskum stjórnmálaleiðtogum Skuggar síðari heimsstyrjaldar dofna seint í Mið-Evrópu Flækir áformin um stækk- un Evrópusambandsins Afleiðingar brottflæmingar um 13 milljóna Þjóðverja frá Mið- og Austur-Evrópu í kjölfar síðari heimsstyrj- aldar eru nú með ýmsu móti farnar að skjóta upp kollinum í tengslum við samningaviðræðurnar um stækkun Evrópusambands- ins til austurs. Auðunn Arn- órsson rekur hér, í fjórða hluta greinaflokks, hvernig þessir skuggar fortíðarinnar flækja áformin um inn- göngu Tékklands og Pól- lands í ESB. Þorp á Suður-Mæri. Í þessum hús- um, rétt norður af landamærunum við Austurríki, bjó þar til fyrir rúmri hálfri öld þýzkumælandi fólk, sem Tékkar flæmdu á brott eftir lok síðari heims- styrjaldar. Deilur um löggjöf sem skap- aði grundvöllinn fyrir brottflæmingu Súdeta-Þjóðverja eitra samskipti Tékklands við Þýzkaland og Austurríki og flækja samninga um inngöngu Tékklands í ESB.                                  !      "#  "#  "#  "#  "#  "#  $ !#  $ !#  $ !#  "# % & & !    &   ' (                    ! " # $%$&  ) ! * )    & " +, " )!*)-%). '/!&! ###       !    "#  +, " )!*)-%).  !       !   *-%)."  "# "#   $   % "#  $&  $  !   '($!    &  '#      &  "#    ) !! $   *  +     

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.