Morgunblaðið - 03.10.2002, Síða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Lausar íbúðarhúsalóðir
Akureyrarbær auglýsir lausar til umsóknar eftirtaldar lóðir
á svæði sunnan Reynilundar:
5 einbýlishúsalóðir,
2 parhúsalóðir og
2 fjölbýlishúsalóðir fyrir 12 íbúðir á hvora lóð.
Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2002.
Lóðum verður úthlutað í samræmi við ,,Vinnureglur
umhverfisráðs við lóðaveitingar“ og með fyrirvara um að
deiliskipulagstillaga sem nú er í auglýsingu nái fram að
ganga.
Nánari upplýsingar eru veittar í afgreiðslu umhverfisdeildar,
Geislagötu 9, 3. hæð, í þjónustuanddyri og á heimasíðu
Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Umhverfisdeild
„ÞETTA ER auðvitað mjög mikil
vinna, en hún er líka gefandi,“ seg-
ir Sigurlína Styrmisdóttir, móðir
þriggja drengja og háskólanemi á
Akureyri. Tveir sona hennar, Bald-
vin, 8 ára, og Héðinn, 14 ára, eru
mikið heyrnarskertir og ganga í
deild fyrir heyrnarlausa sem hóf
starfsemi við Lundarskóla haustið
2001. Elsti sonurinn, Gunnar, er
nemandi við Verkmenntaskólann á
Akureyri.
Sigurlína er 75% öryrki. Hún
stundar nám við Háskólann á Ak-
ureyri og stefnir að því að ljúka BS-
prófi í viðskiptafræði næsta vor.
Fyrir þremur árum flutti hún
með syni sína suður til Reykjavík-
ur, en þá voru ekki í boði nein úr-
ræði vegna skólagöngu Héðins á
Akureyri. Baldvin var í leikskóla
fyrir heyrnarlaus og heyrandi
börn, en hafði þá ekki verið greind-
ur heyrnarskertur sjálfur. Á leik-
skólanum byrjaði hann að læra
táknmál. „Það kom ekkert í ljós í
þessa veru í reglubundnum lækn-
isskoðunum og hann breytti engu
sjálfur á heimilinu sem gaf til
kynna hvers kyns var, sjónvarpið er
til að mynda alltaf hátt stillt,“ segir
Sigurlína.
Hljóð líkt og heyrandi skynjar
með höfuð ofan í vatni
Báðir drengirnir eru mikið
heyrnarskertir en heyra sérhljóða í
mæltu máli og líkir Sigurlína heyrn
drengjanna við það sem heyrandi
skynjar með höfuð sitt ofan í vatni.
Þeir fengu nýlega fullkomin staf-
ræn heyrnartæki, „þau bestu til
þessa,“ segir Sigurlína, en þau
magna hið talaða mál meir en önn-
ur og þeim fylgir ekki eins mikið af
aukahljóðum. Strákarnir heyra
ekki í dyrabjöllu eða síma, en fá
innan tíðar úr með nema sem titrar
við hljóð og þeir munu sjá á úrinu
hvort það er síminn sem hringir eða
dyrabjallan.
Þegar Sigurlína flutti suður fyrir
þremur árum var Héðinn eina
heyrnarskerta barnið á grunn-
skólaaldri á Akureyri, en nú eru
þau tíu talsins. Haustið 2001 var svo
sett á stofn deild við Lundarskóla
fyrir þennan hóp barna. „Við
neyddumst til að flytja búferlum
suður á sínum tíma vegna aðstæðna
okkar. Ég var því afskaplega
ánægð þegar ég heyrði af því að
þessi deild væri að hefja starfsemi
fyrir norðan. Við vildum vera
heima, hér eru okkar rætur og fjöl-
skylda,“ segir Sigurlína. „En ekki
síður er ég hamingjusöm fyrir því
hvað vel hefur tekist til með deild-
ina í Lundarskóla. Það er greini-
lega fyrir hendi mikill metnaður að
gera allt eins best verður gert.“
Slökkva á heyrnartækjunum
þegar þeir reiðast við mömmu
Þrír kennarar eru við deildina,
Kristín Irene, Svanhvít Magn-
úsdóttir og Þórhallur Arnarson.
Börnin fá sérstakan stuðning og
eru eftir aðstæðum einnig inni í sín-
um bekk með heyrandi börnum,
sem fá kennslu í táknmáli. „Mér
finnst yndislegt að upplifa hvað
jafnaldrar strákanna eru þrosk-
aðir. Þeir líta á það sem eðlilegan
hluta lífsins að það séu ekki allir
eins.
Töluverð vinna er því samfara að
ala upp tvö heyrnarskert börn og
margt með öðrum hætti en á heim-
ilum þar sem allir heyra. „Ég segir
oft við strákana að þetta sé verk-
efni sem við verðum að takast á við,
það gangi ekki að leggjast í sjálfs-
vorkunn. Ég vil alls ekki blása út
fyrir þeim að þetta sé eitthvert
stórt vandamál. Þeir verða að læra
að bjarga sér sem best,“ segir Sig-
urlína. Hún sagði að stundum mis-
líkaði strákunum eitthvað sem hún
segði við þá. „Þegar þeir reiðast við
mömmu sína horfa þeir á mig, taka
um heyrnartækið og slökkva á því.“
Sigurlína hefur sótt námskeið í
táknmáli, „ en ég ætla að læra
meira“, segir hún og bætir við að
innan tíðar verði boðið upp á slík
námskeið á Akureyri, fyrir for-
eldra, aðstandendur og aðra þá sem
telja sig hafa af því gagn.
Dagur heyrnarlausra
Dagur heyrnarlausra var haldinn
á Akureyri um liðna helgi, í fyrsta
sinn og komu af því tilefni gestir
frá höfuðborgarsvæðinu. Efnt var
til messu í Glerárkirkju þar sem
kór heyrnarlausra söng og kaffi-
samkoma var að henni lokinni. Sig-
urlína segir að enn sem komið er sé
félagslíf heyrnarlausra ekki mikið
á Akureyri, en það eigi eflaust eftir
að breytast. Samfélag heyrnar-
lausra sé lítið, en gaman sé að fylgj-
ast með hversu náin tengsl eru á
milli manna, líkt og innan hópsins
séu allir ættingjar.
Á tvo syni sem hafa verið í deild fyrir heyrnarlausa í Lundarskóla einn vetur
Ham-
ingjusöm
með
metnaðar-
fullt starf
Morgunblaðið/Kristján
Baldvin Jónsson fyrir miðju, Birgir Snær Jónsson og Freydís Kjartansdóttir syngja á táknmáli í messu heyrn-
arlausra í Glerárkirkju sl. sunnudag en þá var dagur heyrnarlausra. Stjórnandi þeirra var Þórhallur Arnarson.
Bræðurnir Baldvin, t.v., og Héðinn Jónssynir slökkva á heyrnartækj-
unum þegar þeir reiðast móður sinni, Sigurlínu Styrmisdóttur.
FERÐASKRIFSTOFA Akureyrar
býður nú í haust upp á ferðir til Lond-
on, beint á ská frá Akureyri. Flogið er
eldsnemma að morgni frá Akureyri til
Keflavíkurflugvallar, í veg fyrir áætl-
unarvél Flugleiða til London og svo
beint frá Keflavík til Akureyrar þegar
komið er heim aftur. Alls eru farnar
þrjár slíkar ferðir nú í haust, þar sem
farið er út á fimmtudegi og komið
heim á sunnudegi.
Ragnheiður Jakobsdóttir, skrif-
stofustjóri Ferðaskrifstofu Akureyr-
ar, sagði að hér væri um tilraun að
ræða og að mikill áhugi væri fyrir
þessum ferðum. Fyrsta ferðin var
farin sl. fimmtudag, önnur ferðin er
farin í dag og sú þriðja verður farin
fimmtudaginn 17. október. Ferða-
skrifstofa Akureyrar leigir Fokker-
vél frá Flugfélagi Íslands til að flytja
farþega milli Akureyrar og Keflavík-
ur og því geta 50 manns verið í hverri
ferð. Ragnheiður sagði að ferðalang-
arnir hefðu góðan klukkutíma í frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli fyrir
brottför. Flugleiðavélin frá London
kemur um kl. 15 á sunnudögum til
Keflavíkur og sagði Ragnheiður að
Akureyringarnir væru komnir til síns
heima fyrir kvöldmat.
Kostnaður við ferðina til London
frá Akureyri er á milli 60 og 70 þús-
und krónur og er hún 6–8 þúsund
krónur dýrari en ef farið væri frá
Keflavík. Innifalið er flug, gisting með
morgunverði, flugvallarskattar og
gjöld.
„Þetta er tilraun en við vonum að
þetta verði til frambúðar. Við þurfum
heldur ekkert að einskorða okkur við
London, þótt ákveðið hafi verið að
bjóða ferðir þangað til að byrja með.
Það getur vel komið til greina að
bjóða upp á svona ferðir í nóvember
eða næsta vor. Eins getum boðið upp
á svona ferðir fyrir hópa, 40–50
manns.“
Ragnheiður sagði að ekki stæði til
að bjóða upp á borgarferðir í beinu
þotuflugi frá Akureyri, í bili. „Við ætl-
uðum að gera tilraun með það í vor en
hættum við enda er það mjög dýrt.
En við erum að reyna að koma til
móts við þarfir fólks með því að bjóða
upp á ferðir með þessu fyrirkomulagi
og teljum það skref í rétta átt.“
Ferðaskrifstofa
Akureyrar
Ferðir til
London
beint á ská
frá Akureyri
RANNSÓKNARDEILD Lögregl-
unnar á Akureyri lýsir eftir vitnum
að áreksti tveggja fólksbifreiða.
Hann varð á mótum Glerárgötu og
Þórunnarstrætis um kl. 11 laugar-
daginn 28. september síðastliðinn.
Báðir bílarnir eru gráir að lit og ber
ökumönnum ekki saman um tildrög
óhappsins, þ.e. báðir telja sig hafa
ekið yfir gatnamótin á grænu ljósi.
Þeir sem kynnu að hafa orðið vitni
að árekstrinum eru beðnir um að
hafa samband við fulltrúa hjá rann-
sóknardeild Lögreglunnar á Akur-
eyri.
Lýst eftir vitnum
Sýning á Café Karólínu. Svava
Egilson hefur opnað sýningu á
verkum sínum á Café Karólínu.
Þetta er fyrsti hluti af þremur
sem verða næstu 6 vikurnar.
Fyrsta hlutann nefnir listakonan
Landslagið mitt með gulum spor-
öskjum og stendur hann til 12.
október en þá hefst annar hluti,
sem stendur til 25. október. Sýn-
ingu Svövu lýkur síðan með þriðja
hluta frá 26. október til og með 8.
nóvember. Svava Egilson er fædd
í Reykjavík en hefur búið á Ak-
ureyri og í Eyjafjarðasveit frá
árinu 1992. Hún hefur síðastliðin
fimm ár aðallega starfað við
myndlist.
Í DAG
ÞAÐ er alveg æðislegt að fá svona
tíðarfar og veðrið gerist ekki betra
á þessum árstíma,“ sögðu þeir Við-
ar Garðarsson og Snorri Magn-
ússon, smiðir hjá Hyrnu á Ak-
ureyri. Þeir félagar voru í blíðunni
í gær að vinna við þak á raðhúsi
sem Hyrna er að reisa við Lind-
arsíðu. Sólarlaust var á Akureyri
en hitinn fór upp fyrir 15 gráður á
Celíus sem verður að teljast mjög
gott og eldsnemma í gærmorgun
var hitinn kominn yfir 10 stig.
Hyrna er að byggja þrjú raðhús
fyrir Búmenn við Lindarsíðu og er
óhætt að segja að byggingarnar
hafi rokið upp úr jörðinni síðustu
vikur og mánuði.
Morgunblaðið/Kristján
Veðrið gerist ekki betra