Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Árvekni um brjóstakrabbamein
Litur hefur aldrei snert þig svona
NÝTT Pure Color Velvet
fyrir varir og neglur
Flauel, mjúkt og munúðarfullt. Djúpir,
lostafullir litir. Pure Color Velvet - nýr
varalitur með flauelsáferð og tælandi gljáa.
Naglalakk líka, í litum sem minna á pell og
purpura. Komdu og sjáðu. Láttu flauelið
snerta þig. www.esteelauder.com
Förðunarráðgjafi verður í Lyf og heilsu Austurstræti
í dag og á morgun, föstudag, frá kl. 12-17.
er til sölu. Upplagt fyrir tvo samhenta einstaklinga.
Góður sölutími framundan.
VEFNAÐARVÖRUVERSLUNIN LÍNHÚSIÐ
Hóll Akureyri auglýsir
Allar upplýsingar veitir Vilhelm Jónsson, Fasteignasölunni Hóli,
Hafnarstræti 83, 600 Akureyri, sími 461 2010 og 891 8363.
er til sölu. Einn
vinsælasta krá
landsins er í þessu
húsi. Húsið er 630 fm
á tveimur hæðum.
Miklir möguleikar.
Veitingahúsið POLLURINN
Vesturbrún - vandað parhús
Erum með í einkasölu ákaf-
lega vandað u.þ.b. 260 fm
parhús með innbyggðum
bílskúr. Húsið er á tveimur
hæðum og stendur vel í ný-
legu hverfi f. ofan Laugar-
ásinn. Arinn í stofu og vand-
aðar innréttingar, gólfefni og
tæki. Topp eign á eftirsóttum stað. V. 30,5 m. 2722
SLÖKKVILIÐIÐ á Keflavíkur-
flugvelli tók í gær við verðlaunum á
sviði brunavarna sem það vann ný-
lega til í árlegri samkeppni milli um
100 slökkviliða Bandaríkjaflota. Yf-
irmaður flotastöðvar varnarliðsins
afhenti verðlaunin við hátíðlega at-
höfn í slökkvistöðinni en þau eru þau
æðstu sem veitt eru á sviði bruna-
varna hjá flotanum. Slökkviliðið var
að fá verðlaunin fjórða árið í röð.
Slökkvilið varnarliðsins er skipað
íslenskum starfsmönnum, samtals
128 manns. 90 þeirra annast bruna-
varnir allra mannvirkja á varn-
arsvæðunum, að meðtalinni flugstöð
Leifs Eiríkssonar, svo og allra flug-
véla sem leið eiga um flugvöllinn. Í
flugþjónustudeild starfa svo 38
manns.
Í tilkynningu frá varnarliðinu er
minnt á að Keflavíkurflugvöllur sé
fjölfarinn alþjóðaflugvöllur og eini
varaflugvöllur fjölmargra véla er
leið eiga yfir N-Atlantshafið. Hann
sé jafnframt varnarstöð og þrett-
ándi fjölmennasti þéttbýliskjarni
landsins með 600 byggingum og öðr-
um mannvirkjum sem sum hver séu
hin stærstu sinnar tegundar á land-
inu. Rík áhersla er lögð á öflugt eld-
varnaeftirlit og fyrirbyggjandi að-
gerðir með víðtækri notkun
fullkomins viðvörunar- og slökkvi-
búnaðar. Viðbúnaður vegna örygg-
is- og björgunarþjónustu við her-
flugvélar sem og aðrar flugvélar,
farþega og áhafnir, er einnig viða-
mikill þáttur í starfseminni.
Að auki sjá starfsmenn slökkvi-
liðsins um hreinsun hættulegra efna,
fermingu og affermingu herflutn-
ingaflugvéla, afgreiðslu og þjónustu
við herflugvélar sem leið eiga um
flugvöllinn og rekstur sérstaks ör-
yggisbúnaðar er stöðvar orrustu-
þotur í lendingu, að ógleymdum ís-
vörnum og snjóruðningi á athafna-
svæði flugvéla á Keflavíkurflugvelli.
Slökkviliðið hefur síðustu 16 ár
hafnað í einu af þremur efstu sætum
þessarar samkeppni, sem kennd er
við Alan G. Ogden, og vinnur nú til
æðstu verðlauna í sínum riðli fjórða
árið í röð.
Við sama tækifæri í gær voru
slökkviliðsmönnum, sem nýlega
hafa lokið hæfnisprófum, afhent
starfskírteini sín ásamt her-
lögreglumönnum sem hlotið hafa
kennsluréttindi í akstri öryggis- og
björgunarbifreiða.
Dugnaði starfsmanna að þakka
Haraldur Stefánsson slökkviliðs-
stjóri sagði við Morgunblaðið að
verðlaunin sýndu að Bandaríkjaher
og íslensk stjórnvöld væru ánægð
með starfsemi og þjónustu slökkvi-
liðsins. Verðlaunin mætti fyrst og
fremst þakka dugnaði og hug-
myndaauðgi starfsmanna slökkvi-
liðsins þar sem aukin áhersla væri
lögð á forvarnir og uppfræðslu til
fólks á varnarsvæðinu og þjálfun
starfsmanna. Haraldur sagði
slökkviliðið leggja mikið upp úr því
að auka tilfinningu fólks um bruna-
varnir með fræðslu í skólum og á
vinnustöðum.
Aðspurður um þýðingu verð-
launanna fyrir slökkviliðið sagði
Haraldur þau ekki síst vera lyfti-
stöng út á við og að þau sýndu starfs-
mönnum að vinna þeirra væri mikils
metin. Slökkviliðið þyrfti einnig að
standa undir auknum kröfum ár frá
ári. Hann minnti á að slökkviliðið
hefði fengið vottun samkvæmt al-
þjóðlegum stöðlum, eitt þriggja
slökkviliða á vegum Bandaríkjahers
og hið eina utan Bandaríkjanna og
Kanada. Auk mikillar velgengni í
þessari Ogden-samkeppni hefði
slökkviliðið unnið til fjölmargra al-
þjóðlegra verðlauna á árum áður,
allt frá sjöunda áratug síðustu aldar.
Slökkvilið varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
Vinnur til
æðstu verð-
launa fjórða
árið í röð
Keflavíkurflugvöllur
Ljósmynd/Friðþór Eydal
Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri og Dean M. Kiyohara, yfirmaður
flotastöðvar varnarliðsins, með verðlaunagripinn sem afhentur var í gær.
TVEIR kappar úr BAG-Hnefaleika-
félagi Reykjaness, þeir Þórður Sæv-
arsson og Skúli Vilbergsson, eru á
leiðinni á árlegt meistaramót í Dan-
mörku um aðra helgi, HSK Box Cup.
Er þetta þeirra fyrsta opinbera
keppni í hnefaleikum og í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að þetta sé
jafnframt í fyrsta sinn í tæp 50 ár
sem íslenskir „boxarar“ keppi á op-
inberu móti.
Sterkir keppendur frá Norður-
löndunum munu koma saman í Hille-
rød skammt frá Kaupmannahöfn
dagana 11. til 13. október nk. Mótið
er meðal þeirra stærstu sem fram
fara á Norðurlöndunum en á síðasta
ári voru þar háðir 142 bardagar.
Keppnin er með útsláttarfyrirkomu-
lagi í hverjum þyngdarflokki.
Þórður Sævarsson er 24 ára og
keppir í millivigt. Hann hefur stund-
að ólympíska hnefaleika í fimm ár og
þykir með allra fimustu hnefaleika-
köppum landsins. Dvaldi hann í
Bandaríkjunum við æfingar og
keppni á síðasta ári undir hand-
leiðslu þekkts þjálfara. Skúli er 18
ára og keppir í léttþungavigt. Hann
hefur æft hnefaleika undanfarin þrjú
ár og var ásamt Þórði í liði BAG-
Hnefaleikafélags Reykjaness sem
fór í keppnisferð til Bandaríkjanna á
síðasta ári.
Guðjón Vilhelm er framkvæmda-
stjóri hnefaleikafélagsins og jafn-
framt þjálfari Þórðar og Skúla.
Hann sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera bjartsýnn fyrir þeirra
hönd um góðan árangur í Danmörku.
Þeir væru vel undirbúnir og hefðu
æft stíft undanfarið. „Það verður
gott að sjá hvar við stöndum í sam-
anburði við aðrar þjóðir. Þórður og
Skúli munu gera sitt allra besta og
sýna mótherjum sínum í hringnum
hið eina og sanna víkingaeðli,“ sagði
Guðjón.
Sem liður í undirbúningi fyrir
mótið fór fram opin æfing um síðustu
helgi í húsakynnum BAG í Reykja-
nesbæ. Að sögn Guðjóns kom þang-
að vel á annað hundrað gesta sem
gátu fylgst með hnefaleikakeppni í
fyrsta sinn frá því að ólympískir
hnefaleikar voru leyfðir hér á landi.
Tveir hnefaleika-
kappar á norrænt mót
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Þórður Sævarsson hvílir sig milli átaka á æfingamóti í Keflavík um síð-
ustu helgi. Hann er á leiðinni til Danmerkur ásamt Skúla Vilbergssyni.
Keflavík
FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í
minnihluta bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar lögðu fram bókun á fundi í
fyrrakvöld vegna svarbréfs heil-
brigðisráðuneytisins um rekstrar-
vanda Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja, HSS, sem greint var frá í
blaðinu í gær. Segir m.a. í bókuninni
að staða stofnunarinnar sé óljós mið-
að við það sem fram komi í bréfinu.
Í bókuninni eru rakin helstu atriði
svarbréfsins, einkum þau er snúa að
rekstrarvandanum. Fulltrúar Sam-
fylkingarinnar segja það ekki koma
fram í svarinu hvaða rekstrarþættir
séu í ólagi. Stjórn HSS þurfi að upp-
lýsa það.
Í svarbréfi ráðuneytisins kom
fram að vinnuhópur á vegum þess
hefði skilað skýrslu fyrir ári um
framtíðarhlutverk D-álmunnar og
hún kynnt fulltrúum Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum. Við-
brögð hefðu hins vegar ekki borist
ráðuneytinu og því lægi ekki fyrir
ákvörðun um nýtingu 3. hæðar álm-
unnar. Um þetta segir í bókuninni:
„Hvað veldur því að „fulltrúar
Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum“ sem skýrslan var kynnt fyr-
ir hafa ekki fylgt málinu eftir? Hvers
vegna er ekki efnt til fundar þar sem
sveitarstjórnarmönnum er kynnt
þessi skýrsla svo sameiginleg um-
ræða geti átt sér stað um nýtingu 3.
hæðarinnar. Það er engan veginn
viðunandi að ráðuneytið þurfi að bíða
í meira en ár eftir viðbrögðum
heimamanna við slíkri skýrslu þegar
um jafn mikilvægt hagsmunamál
okkar Suðurnesjamanna er að
ræða.“
Ekki voru fleiri bókanir lagðar
fram um þetta mál á fundi bæjar-
stjórnar en umræður urðu nokkrar.
Bókað í bæj-
arstjórn um
málefni HSS
Reykjanesbær