Morgunblaðið - 03.10.2002, Side 25

Morgunblaðið - 03.10.2002, Side 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 25 30% afsláttur Reykjavík • Akureyri • Selfossi www.blomaval.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 1 88 50 09 /2 00 2 FORELDRAR fransks flugþjóns sem ákærður hefur verið í Banda- ríkjunum fyrir að hafa skrifað sprengjuhótun um borð í farþega- þotu Virgin-flugfélagsins hafa beðið Jacques Chirac Frakklandsforseta að skerast í leikinn. Verði flugþjónn- inn, Michael Philippe, fundinn sekur á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Hann er 25 ára og neitar ásökunun- um. Flugvélin var á leið frá London til Orlando á Flórída í janúar sl. er upp- sölupoki fannst á salerni hennar þar sem skrifað hafði verið: „Bin Laden er bestur, Bandaríkjamenn verða að deyja, það er sprengja um borð, al- Qaeda.“ Þótt skilaboðin væru á ensku var franskur ritháttur á orð- unum bin Laden og al-Qaeda. Phil- ippe sagði síðan flugstjóra vélarinn- ar að hann hefði fundið pokann á salerninu og var vélinni þá lent í Keflavík. Philippe var handtekinn á New- ark-flugvelli í New York í mars og um mánuði síðar var honum sleppt úr fangelsi gegn 250 þúsund dollara tryggingu. Í maí var hann ákærður, m.a. fyrir að hafa hótað að nota ger- eyðingarvopn gegn bandarískum ríkisborgurum, en verjandi hans segir þá ákæru ekki standast þar sem flugvélin hafi verið utan banda- rískrar lögsögu er hótunin var gerð. Philippe er nú í Orlando þar sem fylgst er með ferðum hans með raf- rænum hætti. Réttarhöldin í máli hans hefjast 21. október. Biðja Chirac ásjár í máli flugþjónsins París. AP. DANSKA ríkisstjórnin hyggst leggja fram tillögur er miða að því að Færeyingar og Græn- lendingar geti sjálfir farið með þau utanríkismál sem koma þeim aðallega við en ekki Dön- um. Kom þetta fram í stefnu- ræðu Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra og sagði hann að heimild af þessu tagi væri ekki fyrir hendi í gildandi heimastjórnarlögum um Fær- eyjar og Grænland sem eru hlutar danska ríkisins. Danski þjóðarflokkurinn, sem veitir samsteypustjórn Rasmussen stuðning á þingi, lýsti efasemd- um og sagði hugsanlegt að ný- mælið stangaðist á við stjórnar- skrána. Innflutnings- bann afnumið FRAKKAR afnámu í gær bann við innflutningi á nautakjöti frá Bretlandi en það hefur gilt und- anfarin sex ár vegna ótta við kúariðu. Frakkland var áður helsti markaður Breta fyrir nautakjöt og olli bannið miklum vanda í samskiptum ríkjanna. Evrópusambandið aflétti banni við innflutningi breska kjötsins þegar 1999 en Frakkar neituðu að hlíta þeirri ákvörðun, jafnvel þótt Evrópudómstóllinn segði bannið ólöglegt. Hertar reglur NÝJAR og hertar reglur í Bandaríkjunum um eftirlit með ferðalöngum frá tilteknum múslímaríkjum munu auka enn á andúð múslíma á Bandaríkj- unum, að sögn talsmanns stjórnvalda í Íran í gær. Regl- urnar eru liður í auknum við- búnaði vegna hryðjuverkanna í september í fyrra og er ekki síst beint gegn gestum frá araba- löndum en einnig Íran, Indónes- íu, Pakistan og Afganistan. Krenz ekki náðaður EGON Krenz, sem var síðasti leiðtogi Austur-Þýskalands og var árið 2000 dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir að heim- ila lögreglu að skjóta flótta- menn, verður ekki náðaður. Var þetta niðurstaða þýskrar náðun- arnefndar í gær. Krenz tók við af Erich Honecker í október 1989, mánuði fyrir fall Berlínar- múrsins, en hrökklaðist frá í desember sama ár er veldi kommúnista hrundi. Einkavæð- ingu mót- mælt RÁÐAMENN í Frakklandi gerðu í gær lítið úr fyrirhuguð- um fjöldaverkföllum sem verða í dag meðal opinberra starfs- manna Markmið verkfalls- manna er m.a. að mótmæla áformum stjórnar hægriflokk- anna um að selja stóran hluta hlutabréfanna í flugfélaginu Air France og hefja einkavæðingu orkufyrirtækjanna EDF og GDF, tveggja flugvalla Parísar, neðanjarðarlestakerfisins, síma- fyrirtækisins France Telecom, póstþjónustunnar og ríkisjárn- brautanna. STUTT Forræði í utanríkis- málum? RÍKISSTJÓRN Görans Perssons, forsætisráðherra Svíþjóðar, stóð af sér atkvæðagreiðslu um vantraust á sænska þinginu í gær. Höfðu þá Græningjar samþykkt eftir miklar viðræður að styðja stjórnina. Atkvæðagreiðslan fór þannig, að 174 voru á móti vantrausti, 158 með en 17 þingmenn Græningja sátu hjá. Höfðu Græningjar farið fram á ráð- herraembætti en drógu þá kröfu til baka gegn samningum um ýmis áhugamál þeirra. Meðal annars féll- ust jafnaðarmenn á sænskt bann við þorskveiði í Eystrasalti frá næstu áramótum Vantrausts- tillaga felld Stokkhólmi. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.