Morgunblaðið - 03.10.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.10.2002, Qupperneq 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í VAR Örn Sverrisson þekkir vel til innan veggja atvinnu- leikhúsanna hér á landi, seg- ist að miklu leyti alinn þar upp og hefur nú leikið í þeim öllum. „Ég þekki leikhúsheiminn vel og líður vel þar,“ segir hann við blaðamann yfir tebolla um hádegisbil á sunnudag, daginn eftir hátíðarsýn- ingu á verkinu. „Leiklistin er krefj- andi listgrein en ég hef líf og yndi af því að takast á við hana.“ Foreldrar hans eru listamenn, Ív- ar hefur komið fram á leiksviði með þeim báðum – þó ekki samtímis – og þau starfa bæði við uppfærsluna á Hamlet hjá LA: Elín Edda Árnadótt- ir hannar leikmynd og búninga og Sverrir Guðjónsson semur tónlistina. Byrjaði að leika níu ára Þess ber og að geta að langamma Ívars, Fanný Friðriksdóttir, stýrði á sínum tíma saumastofu Þjóðleik- hússins, Edda Ágústsdóttir amma hans vinnur þar í dag og fósturpabbi móður hans, „Stjáni, Kristján Júl- íusson, sem ég kallaði alltaf afa, vann á smíðaverkstæðinu. Smíðaði leik- myndir.“ Tengslin við leikhúsið eru því mikil og hann steig ungur á svið í fyrsta skipti. Það var reyndar hjá Leik- félagi Reykjavíkur í Iðnó, í uppsetn- ingu Kjartans Ragnarssonar á Landi míns föður. Ívar var þá níu ára og móðir hans var einn dansara í sýn- ingunni. Hann lék svo Gavros í Vesaling- unum í Þjóðleikhúsinu, þar sem faðir hans söng, og Ívar fór einnig með hlutverk Hrapps í Oliver Twist á sín- um tíma, þegar hann var 11 ára. „Svo lék ég stórt hlutverk í Heima hjá ömmu í Borgarleikhúsinu á móti Gunnari Helgasyni og þar var líka Sigurður Karlsson, sem leikur núna aftur á móti mér í Hamlet.“ Ívar segist hafa verið afar virkur krakki, þurfti alltaf að hafa eitthvað að gera og því komu hlutverkin á leiksviðinu sér vel. „Þetta var mjög skemmtilegur tími en svo kom að því að ég fékk nóg af leiklistinni. Nennti þessu ekki lengur, enda var komið nóg. Ég var oft beðinn um að vera með í einhverju, en pabbi minn valdi alltaf fyrir mig hlutverk. Lét mig ekki í allt; vildi ekki keyra mig út. Í rauninni tókst ég því bara á við skemmtileg hlutverk sem barn og fékk ekki tækifæri til þess að fá leið á leiklistinni!“ Sneri sér að körfubolta í nokkur ár Áhugi á körfubolta var gríðarlegur hérlendis á unglingsárum Ívars; NBA-æðið reið yfir og hann fór ekki varhluta af því. Fjölskyldan bjó í Langholtshverfinu „og við lékum okkur mikið úti á velli við Langholts- skóla. Það var ekkert körfuboltafélag þar í kring, straumurinn lá í ÍR og ég fór því þangað.“ Seinna lék hann svo um tíma með unglingaflokki KR. Þegar styttist í stúdentspróf fór Ívar að velta því fyrir sér, eins og gengur og gerist, hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur að því loknu. „Einhvern veginn ósjálfrátt gleymdi ég þessum möguleika í nokkur ár, en á síðasta ári í menntaskóla ákvað ég að taka þátt í leiksýningum í skól- anum til þess að sjá hvort áhugi minn lægi þarna ennþá. Og það kom í ljós.“ Hann gældi líka við þá hugmynd að nema lögfræði við háskólann, en ákvað að þreyta inntökupróf í Leik- listarskólann og komst inn í hann. „Ég var ákveðinn í að gera mitt besta, ætlaði mér auðvitað inn í skól- ann, en vissi að ef það tækist ekki væri það tákn um að mér væri ekki ætlað þetta. Ég hefði ekki reynt aft- ur.“ Segist hafa valið rétt og vera ánægður í dag, þó það væri „örugg- lega sniðugt að fara í lögfræðina núna því minnið er í svo góðu lagi eft- ir að hafa lært Hamlet!“ Unnusta Ívars, Arna Ösp Guð- brandsdóttir, nemur sameindalíf- fræði við Háskóla Íslands og hann grínast með að hann ætti ef til vill að setjast á skólabekk á ný til að geta lært með henni. Segist svo reyndar viss um að hann hefði orðið góður lögfræðingur „en ég held samt að hæfileikar mínir nýtist vel í leiklistinni.“ En skyldi ekki vera erfitt að byrja á því, strax eftir nám, að glíma við Hamlet? Er það ekkert of stórt stökk? „Nei. Auðvitað er það erfitt, en mér var boðið þetta hlutverk og mað- ur hafnar ekki Hamlet. Enda er eng- in ástæða til þess. Maður fer út í leik- list til þess að takast á við það erfiðasta sem hægt er. Það er alltaf rosalega gaman að fá hlutverk eins og Hamlet því þá fær maður svo mik- ið að gera; fær að sýna svo margar hliðar á persónunni. Fer allan skal- ann og það er það sem leikarar elska að fá að gera.“ Þannig að strax í fyrstu sýningu eftir nám geturðu kannski nýtt þér allt sem þú lærðir í skólanum? „Já, og fæ jafnvel að grafa upp eitthvað nýtt til að nota – og þar kem- ur leikstjórinn inn í. Maður veit oft ekkert hvað leikstjórinn er búinn að draga fram í manni.“ Hvernig fórstu að því að búa þig undir Hamlet? Var það snúið? „Það var svolítið stress, en pressan er öll utanfrá. Hlutverkið er svo rosa- lega frægt.“ Hann fékk oft að heyra: er þetta þér ekki ofviða? Heldurðu að þú höndlir þetta? Er þetta ekki of mikið? Er ekki erfitt að byrja á þessu? „Fólk virðist svolítið hrætt við þetta; Shakespeare er svo frægur og þetta er líklega þekktasta leikrit sög- unnar. Hamlet er eins og Coca cola; allir hafa heyrt um þetta verk.“ Ívar kveðst aðeins einu sinni hafa séð Hamlet á leiksviði; sýningu Þjóð- leikhússins sem Baltasar Kormákur leikstýrði þar sem Hilmir Snær Guðnason fór með titilhlutverkið. „Nei, sú sýning truflaði mig ekki neitt. Það er alltaf farin ný leið og það sem skiptir máli fyrir mig sem leik- ara er fyrst og fremst að reyna að skilja söguna.“ Hann segist raunar hafa orðið svolítið hræddur við text- ann þegar hann renndi fyrst yfir handritið. „Textinn er mikill og getur verið erfiður í flutningi.“ Honum flaug í hug að nauðsynlegt yrði að fara á einhvers konar Ham- let-námskeið og segir að vissulega megi kalla starfið með Sveini Einars- syni það. „En maður þarf samt alltaf að stúdera mikið sjálfur, reyna að skilja verkið og ég var mikið á bóka- safninu í sumar að lesa ýmislegt sem gat komið mér á sporið.“ Ívar komst að því að gríðarlega mikið hefur verið skrifað um Hamlet, hvað þá Shakespeare og allt sem hann gerði. „Ég fékk eiginlega áfall þegar ég sá þetta allt saman! En ég valdi svo nokkrar bækur úr, margar frá því snemma á síðustu öld; margir hafa reynt að greina verkið og kom- ast að því hvers vegna persónurnar gera það sem þær gera og hverju þær eru að sækjast eftir. Og það eru til ýmsar útgáfur af því! Fræðimenn- irnir þekkjast greinilega og talsvert er um að þeir gagnrýni hver annan. Þessum skrifum má auðvitað ekki taka eins og algildum sannleika, en þetta hrærir upp í manni.“ Ríkharður þriðjis – eftir hlé Ívar Örn hefur einu sinni tekið þátt í uppfærslu Shakespeare-verks áður. „Við lékum Ríkharð þriðja í skól- anum og það var mjög góð æfing.“ Þá skiptu tveir skólabræðranna hlutverki Ríkharðs með sér. Ívar túlkaði hann eftir hlé en Ólafur Eg- ilsson fyrir. „Við vorum bara þrír í bekknum og fimm stelpur, þannig að það var alltaf nóg að gera hjá okkur strákunum. „Óli lék Ríkharð þegar hann kleif upp metorðastigann og krækti sér í kórónuna og svo tók ég við þegar hann var kominn með kór- ónuna og allt var á niðurleið.“ Hann segist hafa búið að því nú að hafa tekist á við bundinn texta í Rík- harði. „Það er svolítil pæling, að ná textanum þannig að áhorfendur geti gripið hann og skilið en hætti ekki að hlusta. Það er mjög tæknilegt atriði og kostar mikla æfingu.“ En hvers vegna skyldi Ívari Erni hafa verið boðið hlutverk Hamlets í sýningunni? Veit hann það? Hafa þeir Sveinn kannski unnið saman áð- ur? „Nei, við höfum ekki gert það. En leikstjórar fylgjast með hvað er að gerast í skólanum, koma í Nemenda- leikhúsið og sjá hvað maður er að gera þar. Hann vildi hafa Hamlet frekar ungan, sem og Ófelíu, Laertes og Hóras, og þá þarf náttúrlega að finna fólk í hlutverkið. Hann þurfti að leita að ungum leikara sem honum fannst henta í hlutverk Hamlets og hann treysti til að takast á við það. Sveinn vildi fá mig í lið með sér og það er alveg frábært.“ Hefur Sveinn laumað því að þér hvers vegna hann valdi þig? „Ja, hann hefur sagt mér hvenær hann tók ákvörðun um að hann héldi að ég gæti þetta. Hann sá mig leika í Túskildingsóperunni eftir Brecht í Nemendaleikhúsinu, sem er æðis- lega skemmtilegt verk. Það var fyrsta verkið sem við sýndum. Ég lék Makka hníf, glæpamann sem brennir allar brýr að baki sér. Hann fær alla upp á móti sér og er hengdur af lýðn- um og gömlum ástkonum. Það snúast allir á móti honum af því að hann svífst einskis.“ Ívar Örn Sverrisson hlýtur mikið lof fyrir frammistöðuna í Hamlet hjá LA Maður hafnar ekki Hamlet „Ívar Örn Sverrisson vinnur eftirminni- legan leiksigur,“ sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins eftir frumsýningu Leikfélags Akureyrar á Hamlet á föstudaginn. Skapti Hallgrímsson spjallaði við Ívar Örn, sem er 25 ára nýútskrifaður leikari og fer með titilhlutverkið í sýningunni. Hamlet kominn úr útreiðartúr fyrir hátíðarsýningu síðastliðið laug- ardagskvöld, þegar flestir leikarar verksins riðu frá túninu neðan Sam- komuhússins, hring um bæinn og aftur að leikhúsinu. Frá vinstri: Jónas Viðar, listrænn ráðunautur LA, og feðgarnir Ívar Örn Sverrisson (Hamlet) og Sverrir Guðjónsson sem semur tónlist í verkinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ívar Örn Sverrisson: „Leiklistin er krefjandi listgrein en ég hef líf og yndi af því að takast á við hana.“ Ívar Örn (t.h.), fimmtán ára gamall, ásamt Gunnari Helgasyni í Heima hjá ömmu í Borgarleikhúsinu 1992. Morgunblaðið/Þorkell
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.