Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 31
Heillaður af grísku harmleikjunum „Annað mjög gott verkefni sem við tókumst á við í skólanum var grískur harmleikur, Elektra eftir Sófókles. Þetta var þegar við vorum á öðru ári og það er svolítið skemmtilegt frá því að segja að Þorsteinn Bachmann, sem nú er leikhússtjóri hérna, kenndi okkur þá og stýrði því verkefni. Text- inn í Elektru er líka rosalega falleg- ur; ég er satt að segja heillaður af grísku harmleikjunum, efni þeirra er alveg sígilt þó þeir séu skrifaðir fyrir 2500 til 3000 árum.“ Ívar hefur fengið frábæra dóma fyrir frammistöðu sína í frumraun- inni, Hamlet. Heldur hann að frammistaða hans í framtíðinni verði ætíð borin saman við túlkun hans á Hamlet? Getur verið erfitt að því leyti að byrja á þennan hátt? „Ég held að þetta verði miklu frek- ar hvatning fyrir mig. Þegar svona lof kemur í fjölmiðlunum verður maður kannski svolítið stressaður yf- ir því að fólk komi með gífurlegar væntingar, og eflaust verð ég í fram- tíðinni borinn saman við Hamlet. En ég reyni bara að sinna listgreininni eins vel og ég get. Í þessari sýningu reyni ég bara að gera mitt besta eins og allir aðrir. Og ef ég kem vel út er það vegna þess að ég passa inn í heildarmyndina, sem þýðir að allir eru að gera vel. Ég get ekki leikið Hamlet einn.“ Í Þjóðleikhúsinu eftir áramót Ívar verður hjá Leikfélagi Akur- eyrar til áramóta og leikur næst í rússnesku fjölskylduleikriti, Venju- legt kraftaverk eftir Évgení Schwartz sem Vladimir Bouchler setur upp. Æfingar á því hefjast eftir um það bil tvær vikur og verkið á að frumsýna í desember. „Síðan fer ég í „bæinn“ og hef fengið hlutverk í sýningu Þjóðleik- hússins á nýju íslensku leikriti, Pab- bastrák eftir Hávar Sigurjónsson. Ég leik samkynhneigðan strák sem er í sambúð og faðir hans er ekki sáttur við það. Ég á reyndar eftir að lesa það leikrit en hlakka voðalega til að takast á við það líka. Og að koma í Þjóðleikhúsið. Þá verð ég búinn að fara hringinn og kem aftur niður í bæ.“ Hamlet og Ófelía; Ívar Örn Sverrisson og Arnbjörg Valsdóttir sem voru skólasystkin í Leiklistardeild Listaháskólans. skapti@mbl.is LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 31 ÞAÐ eru átján ár liðin síðan franski meistaradjasspíanistinn Martial Solal hélt einleikstónleika í Norræna húsinu. Þá var píanóið svo vanstillt að hann hneigði sig fyrst fyrir áheyrendum að hverju lagi loknu, síðan fyrir píanóinu og glotti við. Ekki man ég gjörla hvað var á efnisskrá hans utan Round Mid- night Monks og Caravan Tizols og Ellingtons. Þar tryllti hann allsvaka- lega enda expressjónískur píanisti. Agnar Már er um margt andstæða Solal, impressjónískur í spuna sín- um og ljóðrænn. Hann mun halda til Parísar á laugardag og taka þátt í keppni ungra djasseinleikara, Martial Solal keppninni. Voru þessir tónleikar eins konar generalprufa fyriir þá keppni. Á efnisskránni var frjáls spuni, lög eftir Agnar, djass- klassík eftir Bill Evans og Billy Strayhorn, tvo af meisturum hins impressjóníska djass, og nokkrir söngdansar. Agnar hóf tónleikana á spuna, im- pressjónískt tónaflóð fyllti salinn og örlítill Strayhorn í bassanum, síðan hin undurfagra laglína sem hann nefnir 01, titillag disksins hans góða með Ben Street og Bill Stewart. Að því loknu lék hann valsinn sem Bill Evans samdi á unglingsárum sínum, Very Early. Þótt Agnar hafi lært margt af lærisveinum Bill Evans er ekki mikill Evans í leik hans sjálfs og túlkun hans á Very Early ólík því sem maður átti að venjast hjá Ev- ans, sér í lagi vinstri hendin. Útsetn- ing Agnars var grípandi í hógværð sinni, sérstaklega undir lokin. Svo kom Leeloo. Árið 1917 samdi Fred Hanley Back Home Again In Ind- iana, þrjátíu arum síðar samdi Charlie Parker Donnu Lee yfir hljóma Indíönu og nú, fimmtíu og fimm árum síðar, semur Agnar Már Leeloo yfir sama hljómagang. Mér fannst nú meira af Indíönu í Leeloo en Donnu. Þetta var skemmtilega spilað af Agnari þótt sveiflan hefði mátt vera ögn sterkari. Meistara- verk Billy Strayhorns, Chelsea Bridge, sem er skylduverkefni í Sol- al-keppninni, var fantafallega spilað og þar var sveiflan heit og spuninn hugmyndaríkur innan hins klassíska ramma sem ballöðunnar. Distant Bisquet eftir Agnar má finna á tríódiski hans 01 og ólíkt 01 sem rann inn í impressjónískan upphafs- spunann galt lagið þess að vera hugsað fyrir tríó. Það sama má segja um Someday My Prince Will Come – í það minnsta vantaði alla spennu í leik Agnars í þeim söngdansi ólíkt því sem er á diski hans. My One And Only Love var aftur á móti vel heppnað og spuninn blússkotinn eins og í lokalaginu, Georgia On My Mind eftir Hoagy Carmichel sem fylgdi í kjölfar stríðhljóma spuna sem var þó gæddur þeim hógværa sjarma er einkennir flest sem Agnar gerir. Þó held ég hefði verið heilla- drýgra fyrir hann að spinna í hinum norræna jöklastíl sem heyra má í einu af hans bestu verkum: Kuli. Agnar lék eitt aukalag og gerði það með stæl: All The Things You Are eftir Jerome Kern. Lee Konitz hefur margsinnis sagt að það sé sos- um alveg nóg að kunna þennan söngdans. Það sé hægt að spinna endalaust út frá honum, en þótt Konitz hafi tekist það er spuni margra í þessum dansi ansi vélrænn og þreyttur. Mingus bætti einhverju sinni tónbroti eftir Rakmanínoff inn í All The Things og hóf Agnar leik- inn þar. Vinstri höndin var betri en nokkru sinni í stakkató slögum, sveiflusterkum línum og Caravan- fílingur undir lokin. Kannski var meiri kraftur í túlkun Agnars á All The Things en öðrum söngdönsum á þessum tónleikum, en það sem hann skortir helst til að bera uppi heila einleikstónleika er kraftmikil sveifla til mótvægis við þá ljóðrænu fegurð sem honum er eiginleg. Aftur á móti er tónhugsunin tær og frjó og hann hefur allt til að bera að ná langt í keppni hinna ungu ein- leikara í París. Þessir fyrstu tónleikar á Jazzhátíð Reykjavíkur lofa góðu um framhald- ið þar sem íslenskur djass verður í öndvegi. Vernharður Linnet Píanótöfrar DJASS Norræna húsið Einleikstónleikar á Jazzhátíð Reykjavíkur Þriðjudagskvöldið 1. október 2002 kl. 20:30. AGNAR MÁR MAGNÚSSON, PÍANÓ Fimmtudagur Kaffi Reykjavík. Kl. 20.30: Tríó B3. Ás- geir J. Ásgeirsson gítar, Agnar Már Magnússon á orgel og Eric Qvick trommur. Kaffi Reykjavík. Kl. 22: Kvintett Sunnu Gunnlaugsdóttur. Sunna á píanó, Kristjana Stefánsdóttir söngur, Sigurður Flosason sax, Drew Gress bassa og Scott Mc- Lemore trommur. Djasshátíð ♦ ♦ ♦ ÞRJÚ námskeið á menningarsviði eru um það bil að hefjast hjá Endur- menntun HÍ. Á því fyrsta sem hófst í gær mun dr. Birna Bjarnadóttir bókmennta- fræðingur fjalla um höfundarverk Guðbergs Bergssonar, fagurfræðina í skáldskap hans, ljóðlist og þýðingar. Guðbergur kemur einnig í heimsókn og fræðir þátttakendur um tilurð verka sinna og svarar spurningum. Máttarstólpar menningar er yfir- skrift á öðru kvöldnámskeiði sem hefst í kvöld. Þar ætla Jón Ólafsson, forstöðumaður Hugvísindastofnunar HÍ, og Gauti Kristmansson að fjalla um lykilverk í menningarsögunni. Stiklað er á stóru um nokkur rit sem öll hafa haft áhrif á þróun hugmynda, þekkingu og skilning mannsins á sjálfum sér og samfélagi sínu. Til stuðnings er gefinn út lesvísir með hugmynda-sögulegu ágripi og stuttri umfjöllun um textana sem lesnir eru. Oddný Sen, bókmennta- og kvik- myndafræðingur, fer ofan í kvik- myndasöguna á námskeiði sem hefst miðvikudaginn 9. október kl. 20.15. Saga kvikmyndanna er rakin frá tím- um töfralampans til okkar daga og hún sett í samhengi við viðburði sem höfðu áhrif á hvernig þessi nýi miðill var notaður. Sérstök áhersla er lögð á íslenska kvikmyndasögu. Námskeið á menningarsviði AF óviðráðanlegum ástæðum þarf að fresta frumsýning- unni á Benedikt búalfi sem vera átti í Loftkastalanum á sunnudag. Frumsýningin verður laug- ardaginn 12. október kl. 14. Þeir miðar sem gefnir hafa verið út á frumsýninguna gilda laugardaginn 12. októ- ber. Önnur sýning verður sem fyrr sunnudaginn 13. október. Leiksýn- ingu frestað Útflutningsráð Samtaka verslunarinnar - FÍS boðar til hádegisverðarfundar í dag, fimmtudaginn 3. október, kl. 12.00 í Háteigi, Grand Hótel. Frummælendur fundarins verða: Valdimar Gunnarsson, sjávarútvegsfræðingur. „Er framtíð í þorskeldi“? Rannveig Björnsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og lektor við Háskólann á Akureyri. „Aðkoma rannsóknastofnana í fortíð og framtíð“ . Guðjón Indriðason framkvæmdastjóri Þórsbergs hf, Tálknafirði. „Reynsla af þorskeldi á Íslandi“. Að loknum framsöguerindum verða fyrirspurnir og umræður. Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu samtakanna í síma 588 8910 eða á netfang lindabara@fis.is FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN Haustfundur Útflutningsráðs Sv/FÍS Þorskeldi á Íslandi SAMTÖK VERSLUNARINNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.